Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Móðir Guðbjargar með tvær gerðir krabbameins: „Gífurlegt áfall fyrir alla fjölskylduna“

Móðir Guðbjargar með tvær gerðir krabbameins: „Gífurlegt áfall fyrir alla fjölskylduna“
Guðbjörg Elísa ásamt móður sinni, Kristínu Snæfells Arn­þórs­dóttur, sem er að vonum afar stolt af dóttur sinni

„Mamma greind­ist með tvær teg­undir krabba­meins á síð­asta ári og auð­vitað var áfallið gíf­ur­legt fyrir alla fjöl­skyld­una. Tón­listin hefur alltaf verið mín helsta huggun þegar á móti blæs og þannig fór ég beint í meló­díurnar.

Ég hafði verið að syngja lag sem þá var enn á vinnslu­stigi og bar heitið Lifa og njóta. „Lífið er núna!“ hugs­aði ég og bar hug­mynd­ina að breyttum texta og nýju heiti undir þá Þórhall Emil og Einar Höllu sem sömdu lagið. Ég tengdi lagið við bróður minn og ömmu mína í upp­hafi sem dóu bæði úr krabba­meini. Þegar sjúk­dóms­grein­ingin lá svo fyrir hjá elsku mömmu minni, þá fór ég ósjálfrátt að syngja til mömmu. Þá hug­mynd sótti ég í slag­orð Krafts, sem eru stuðn­ings­sam­tök ungs fólks sem hefur greinst með krabba­mein og aðstand­endur þeirra.“

Álfrún Kol­brún­ar­dóttir (önnur frá hægri) skrifar hand­rit, leik­stýrir og fram­leiðir mynd­band við lagið Lífið er núna

Lagið helgað Krafti og hvunndagshetjum krabbameinssjúkra

Þetta segir Guðbjörg Elísa tón­list­ar­kona sem syngur af krafti um kær­leik­ann í nýút­komnu lagi sínu en tökum á tón­list­ar­mynd­bandi er nýlokið. Gugga Lísa, eins og hún vill gjarna kalla sig, á ekki langt að sækja tón­list­ar­gáf­una og hefur sungið og samið tón­list frá blautu barns­beini enda af hæfi­leik­a­ríku tón­list­ar­fólki komin í báðar ættir. 

„Trúin og tón­listin hafa hjálpað mér allra mest gegnum áfallið sem fylgdi sjúk­dóms­grein­ing­unni,“ svarar Gugga aðspurð og klykkir út með því að kær­leik­ur­inn sé magn­að­asta aflið sem sann­ar­lega sé sam­ofið heimi tón­listar. 

Mamma greind­ist sam­tímis með brjóstakrabba og lungna­krabba en krabba­meinið er líka komið í lifur.

Þegar ég kom inn í vinnslu lags­ins þá varð mér sjálf­krafa hugsað til her­ferðar Krafts út af bróður mínum og ömmu minni. Þess vegna fékk ég að bæta setn­ing­unni „Lífið er núna,“ inn í text­ann og breyta þar með heiti lags­ins. Þá höfðu frétt­irnar af krabba ekki enn borist fjöl­skyld­unni.“ 

Gugga Lísa segir tón­list­ina og trúnna fag­urt hald­reipi í gegnum erf­ið­leika lífs­ins

Guðbjörg er ekki ókunn þeirri grimmu vá sem krabba­mein er, en bróðir hennar and­að­ist aðeins 11 ára gam­all úr hvít­blæði, en mörgum árum seinna and­að­ist föð­ur­amma barn­anna úr krabba­meini í munn­holi. „Svo grein­ist mamma í vetur með tvær gerðir krabba. Ég hef því orðið fyrir marg­ít­rek­uðum áföllum vegna sjúk­dóms­ins á ævi minni og í gegnum það ferli hafa trúin og tón­listin alltaf verið mín mesta huggun.“

Lítill lagstúfur snerist upp í stórkostlegt verkefni

„Herferð Krafts snertir mig mjög djúpt vegna bróður míns og ömmu minnar og þegar mamma svo greind­ist, þá fór ég ósjálftrátt að tengja text­ann og lagið við mömmu og fer ósjálfrátt að syngja lagið fyrir hana. Þetta er í dag orðið að stór­kost­legu verk­efni sem hægt er að tengja við úrvinnslu fleiri teg­undir áfalla og lífs­reynslu.“

Samhliða tón­list­ar­ferl­inum er Guðbjörg við nám í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands en hún tók sér eðli­lega hlé frá námi eftir grein­ing­una sem skók fjöl­skyld­una nú á síð­asta ári. „Ég helga text­ann í lag­inu mömmu minni sem er enn síung um sjö­tugt og á lífið framundan í faðmi fjöl­skyld­unnar. 

Páll Óskar og Gugga Lísa frum­fluttu lagið Lífið er núna í fjár­öfl­un­ar­þætti á vegum KRAFTS í febr­úar á þessu ári

Allt í einu byrja svo hjólin að snú­ast en ég á vin­konu sem hefur sigr­ast á krabba­meini og hefur sótt stuðn­ing til Krafts. Svo vill til að hún starfar einnig hjá sam­tök­unum. Þannig koma frum­tengslin til. 

Áður en ég vissi af var ég á leið upp á svið í beinni útsend­ingu gegnum Sjónvarp Símans með lag í vinnslu og þar frum­flutti ég Lífið er núna ásamt Páli Óskari, sem steig með mér á svið í fjár­öfl­un­ar­þætt­inum.

Við smullum eins og flís við rass eftir örfáar æfingar fyrir þátt­inn. Það var gíf­ur­legur heiður fyrir mig að fá að stíga á svið með Páli Óskari og að frum­flytja lagið Lífið er núna með honum meðan á fjár­öflun stóð. Þetta gerð­ist allt svo hratt; ég hafði ekki einu sinni full­klárað lagið þegar við fórum á svið. En þetta gekk alveg eins og í sögu. Minn­ingin er frá­bær.“

Óttaðist að missa mömmu sína um stutt skeið

Í kjöl­farið gaf Guðbjörg Elísa svo út lagið á tón­list­ar­veit­unni Spotify en í þess­ari viku var svo tón­list­ar­mynd­bandið tekið upp í Reykja­vík. Eðlilega er móðir Guð­bjargar Elísu, Kristín Snæfells Arn­þórs­dóttir, afar hreykin af dóttur sinni og segir Gugga Lísa bjartar horfur á lofti.

Guðbjörg Elísa ásamt móður sinni, Kristínu Snæfells Arn­þórs­dóttir, sem er að vonum afar stolt af dóttur sinni

„Mamma fær bestu umönnun sem kostur er á og við erum þakk­lát hverjum degi. Vissu­lega er krabba­meins­með­ferð erfið og við þurftum að takast á við bakslag fyrir ein­hverjum vikum síðan, þetta var tví­sýnt um tíma og ég hélt í skamma stund að ég myndi missa mömmu. En lyfja­með­ferð gengur vel og mömmu líður eins vel og hægt er að vona. Hún fær að vera heima og það skiptir miklu.“ 

Kærleikurinn kennir okkur að rísa sterk úr erfiðleikum

Skila­boðin sem text­inn felur í sér er sterkur boð­skapur vonar og lífs­vilja: „Í lag­inu er ég ekki bara að syngja um það að sleppa, lifa og njóta því lifið er núna; lagið fjallar líka um að standa saman og berj­ast í gegnum hvers konar erf­ið­leika, hlúa að sínum nán­ustu og sjálfum sér eins mikið og hægt er.“ Og Guðbjörg er skýr í máli þegar text­ann ber á góma í við­tali við blaða­mann: „Að njóta þess að lifa í krafti kær­leik­ans sem er ávallt mestur.“ 

„Þessu lagi er ætlað að minna okkur á að vera góð við náung­ann og að gleyma ekki því að vera okkur sjálfum góð líka.“
Kær­leik­ur­inn kennir okkur að rísa upp úr erf­ið­leikum og láta ekki hugs­anir stjórna líðan okkar heldur að horfa til Guðs, sleppa tök­unum og njóta lið­andi stundar og miðla von til allra, þrátt fyrir að erf­ið­leikar rísi.

Guðbjörg syngur með kristnu lof­gjörð­ar­bandi á hverjum sunnu­degi í Smára­kirkju í Graf­ar­vogi auk þess sem hún þjónar af og til í United Reykja­vik, sem er sama­staður kristi­legs hjálp­ar­starfs. Þá syngur þessi hæfi­leik­a­ríka tón­list­ar­kona víða á vegum kirkj­unnar og tekur að sér tón­list­ar­verk­efni á öðrum kristi­legum og hefð­bundnum menn­ing­ar­við­burðum.  

Tökustjóri táraðist þegar hún heyrði lagið 

Tökum er nýlokið á tón­list­ar­mynd­band­inu en Álfrún Kol­brún­ar­dóttir, fram­leið­andi og vin­kona Guggu Lísu leik­stýrir mynd­band­inu ásamt Birgi Erni Magn­ús­syni, sem starfar sem pródúsent og hljóð­blandar tón­list­ina. 

Gugga Lísa ásamt Álfrúnu Kol­brún­ar­dóttur, fram­leið­anda og leik­stjóra mynd­bands­ins sem kemur út í júní

Sjálf seg­ist Álfrún hafa verið djúpt snortin þegar Gugga Lísa kynnti hug­mynd­ina fyrir henni. „Ég fékk sím­tal frá Guð­björgu Elísu sem bað mig að skapa fal­legt mynd­band við lagið. 

Morg­un­inn eftir sett­ist ég niður heima og hlýddi á lagið og hug­mynd­irnar flæddu fram. Málefnið þykir mér svo fal­legt og styrkj­andi að ég tárað­ist meðan ég skrif­aði hand­ritið. Ég fór bara að gráta.

Í erf­ið­leikum okkar er svo mik­inn styrk að finna og við getum öll verið til staðar hvert fyrir annað eins og Guðbjörg syngur svo fal­lega um. Það vona ég að hlust­endur nemi þann styrk gegnum lagið þegar mynd­bandið kemur á markað; að við getum blásið öðrum von og styrk í brjóst og hvatt fólk til að gef­ast aldrei upp.“ 

Mynd­bandið kemur út í byrjun júní en lagið Lífið er núna er komið á Spotify og er sér­stak­lega til­einkað móður Guð­bjargar Elísu, sem heitir Kristín Snæfells Arn­þórs­dóttir og Krafti, styrkt­ar­fé­lagi ungs fólks með krabba­mein og aðstand­endum þeirra. 

Lífið er núna er sér­stak­lega til­einkað móður Guð­bjargar Elísu og er komið á Spotify

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina