Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Metoo byltingin afgreiddi þremenningana: Misbuðu konum og létu sig hverfa

Metoo byltingin afgreiddi þremenningana: Misbuðu konum og létu sig hverfa

Mannlíf fékk yfir sig bylgu hat­urs og hót­ana í maí síð­ast­liðnum eftir að hafa sagt frá ofbeld­is­fram­komu þjóð­þekkts fjöl­miðla­manns í garð kvenna. Heiftin var slík að vart er að finna sam­bæri­leg við­brögðí í þjóð­fé­lag­inu.

Skip­uð­ust þó fljótt veður í lofti og fljót­lega varð ljóst ný #metoo bylgja var farin af stað. Með látum. Það var sem flóð­gáttir hefðu opn­ast, konur stigu unn­vörpum fram og voru þjóð­þekktir menn nafn­greindir vegna kyn­ferð­is­áreitni eða ofbeldis. Féllu þeir hver af öðrum af stalli sínum

Þóðþekkt og viðkunnaleg samfélagsmiðlastjarna

Upphafið má rekja til 1. maí þessa árs þegar Mannlíf birti grein þar sem fjallað var um frá­sögn Ólafar Töru Harð­ar­dóttur, einka­þjálf­ara. Sagði hún þar ítar­lega frá þjóð­þekktum ofbeld­is­manni sem hefði keypt sér kyn­lífs­þjón­ustu og gengið í skrokk á kon­unni. Væri hér um að ræða mann sem kæmi vel fyrir og hefði stóran fylgenda­hóp á sam­fé­lags­miðlum. Gagn­rýndi Ólöf harð­lega fjöl­miðla fyrir þöggun.

Hafði Mannlíf traustar heim­ildir fyrir rétt­mæti frá­sagn­anna svo og nafn við­kom­andi ein­stak­lings en kaus að birta það ekki.

Fjöldi kvenna steig fram í kjöl­farið og full­yrti að það væri á hvers manns vörum um hvaða mann væri að ræða. Sölva Tryggva­son, hinn lands­þekkta fjöl­miðla­mann og ást­mögur þjóð­ar­innar.

Andlegt hrun algjört

Það er ekki hægt að orða það öðru­vísi en í kjöl­farið hefði allt orðið vit­laust í þjófé­lag­inu. Sölvi steig fram og aftók með öllu að hann væri ofbeld­is­maður. Þjóðin fyllt­ist ein­lægri samúð með Sölva, sem hefði orðið fórn­ar­lamb kjafta­sagna og ómerki­legrar og óvand­aðrar fjöl­miðl­unar. Steininn tók úr þegar Sölvið tók hlað­varps­við­tal við sjálfan sig með dyggri aðstoð Sögu Ýrr Jóns­dóttur, lög­manns síns.

Grét hann sárt mann­orðs­morðið og kvaðst vera í losti. Andlegt hrun hans var algjört. Reglu­lega þurfti Sölvi að taka sér hlé til að þerra tárin.

Ítrekað kom fram að hér væri um að kenna frétta­miðl­inum Mannlífi. Fáum virð­ist þó hafa dottið í hug að lesa grein­ina þar sem morg­un­ljóst er að Sölvi var hvergi nafn­greindur.

Sláandi og sorglegar sögur

Þjóðin grét með Sölva. Sumir birtu myndir af sér grát­andi og senni­lega hafa sam­fé­lags­miðlar aldrei logað af sama krafti. Það er ekki hægt að orða það öðru­vísi en allt þjóð­fé­lagið hafi farið á hlið­ina. Stóð starfs­fólki Mannlífs hrein­lega ekki á sama á tíma­bili, slík var reiðin. Sama má segja um Ólöfu Töru en áreitið á hana, sem upp­hafs­manns máls­ins, var yfir­gengi­legt.

Þegar sann­anir fóru aftur á móti að ber­ast um sök Sölva breytt­ist við­horfið. Tvær konur til­kynntu að þær myndu kæra hann fyrir að hafa beitt þær ofbeldi. Önnur stað­festi að vera sú sem fyrsta frétt um málið vís­aði til.

Fjöldi fólks steig fram og við­ur­kenndi að hafa verið full­fljótt til dóma. Aðrir báðu starfs­fólk Mannlífs afsök­unar. Sölvi lét sig aftur á móti hverfa og frétt­ist síð­ast af honum þegar lög­fræð­ingur hans kvaðst hafa ekið honum á geð­deild. Ekkert heyrst frá Sölva síðan. En það sem upp úr stóð var sá gríð­ar­legi fjöldi kvenna steig fram og lýsti upp­lifun sinn af kyn­ferð­is­áreiti og mis­notkun af hendi ýmissa aðila.  Sögurnar eru slá­andi, sorg­legar og átak­an­lega margar.

„Hann reyndi það aftur og aftur“

Sölvi Tryggva­son var þó ekki fyrstur manna til að verða fyrir atvinnu og/eða æru­missi í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega mis­notkun.

„Kvöld eitt í byrjun sum­ars hitti ég konu á mínu reki á bar í miðbæ Reykja­víkur. Við könn­uð­umst lít­il­lega við hvort annað, tókum saman tal og í kjöl­farið fórum við saman yfir á vinnu­stað hennar. Þegar þangað var komið héldum við sam­ræð­unum áfram. Því miður hafði ég mis­skilið illi­lega á hvaða for­sendum við vorum stödd þar og nálg­að­ist ég hana tví­vegis óum­beð­inn og spurði hvort við ættum að kyss­ast. Svar hennar var nei og hún gaf mér skýrt til kynna að það væri ekki í boði með því að banda mér frá sér. Tekið skal fram að það var alger­lega mín ranga ályktun að slíkt væri í boði.“

Svo mörg voru þau orði Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, árið 2018 eftir að  hann var áminntur af trún­að­ar­nefnd flokks­ins, eftir að konan sem um er rætt, Bára Huld Beck, blaða­maður á Kjarn­anum, kvart­aði undan hegðan hans. Fór Ágúst Ólafur í áfeng­is­með­ferð eftir að hafa lýst yfir að vera ekki vera stoltur af hegðun sinni og hefði orðið sjálfum sér til hábor­innar skammar, eins og hann orð­aði það. Bára Huld steig fram í kjöl­farið og gaf lítið fyrir yfir­lýs­ingu Ágústs.

„Ágúst Ólafur reyndi ekki að kyssa mig tví­vegis heldur ítrek­að. Hann reyndi það aftur og aftur þrátt fyrir að ég hefði neitað honum og sett skýr mörk. Í hvert sinn sem ég neit­aði honum þá nið­ur­lægði hann mig með ýmsum hætti, sagði Bára Huld meðal annar í pistli í Kjarn­anum. Þegar kom að skoð­ana­könnun Sam­fylk­ing­ar­innar tveimur árum síðar var ljóst að flokks­menn höfðu hafnað honum og yfir­gefur þar með Ágúst Ólafur þing­sali.

„Ýmsu ábótavant í minni hegðun“

Ekki var Ágúst Ólafur fyrsti, og örugg­lega ekki síð­asti, stjórn­mála­mað­ur­inn til að stíga niður í kjöl­far sam­bæri­legra frá­sagna og ásak­ana. Þann 11. maí síð­ast­liðin skráði Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG, langan pistil þar sem hann hann til­kynnti að myndi draga fram­boð sitt til baka. Erfitt er að lesa út úr pistl­inum hvað Kolbeinn er nákvæm­lega að játa en segir hann sig hafa komið illa fram við konur í gegnum tíð­ina og kennir um erf­ið­leikum sínum við tengsla­myndun.

Hvergi kemur fram hvernig þessi fram­koma hafi lýst sér, hvort um and­legt eða lík­am­legt ofbeldi hafi verið að ræða, né hvað sé yfir­leitt verið að vísa í. „Hugsa meira um að verja mig mögu­legum skaða en það hvernig ég kem fram. Geri það því illa, kem illa fram. Læt kon­unum líða eins og þær hafi ekki skipt mig máli, sem er kol­rangt. Að þær geri það ekki lengur, sem er líka kol­rangt,” skrifar Kolbeinn.

Hann segir í færsl­unni að hann hafi sína djöfla að draga og ýmis­legt óupp­gert úr for­tíð­inni.  „Þegar mér svo barst til eyrna að hegðun mín hefði valdið konu mik­illi van­líðan varð ég fús til að leita mér aðstoðar vegna þessa. Ég vil ekki koma þannig fram að öðru fólki líði illa. Ég vil ekki sýna af mér hegðun sem konur upp­lifa sem óeðli­lega”. Hann segir enn­fremur að fagráði VG hafi borist kvart­anir vegna hegð­unar hans. „Það ferli sem þá fór af stað opn­aði augu mín fyrir því að ýmsu hefur verið ábóta­vant í minni hegðun“. Hann end­aði að skrifa að umræða und­an­far­inna daga hafi orðið til þess að hann ákvða að draga fram­boð sig hjá VG til baka.

Mikill fjöldi fólks hafði sam­band við Kolbein á síð­unni í kjöl­farið og óskaði frek­ari skýr­inga. Þær feng­ust aldrei og Kolbeinn hefur ekki skrifað staf um málið síðan svo vitað sé. Han hefur enn­fremur ekki svarað ítrek­uðum sím­tölum Mannlífs.

Landsþekktir menn í vinfengi við fjölmiðlafólk

Það sem ef til vill ein­kennir ofan­greindar frá­sagnir er hversu keim­líkar þær eru. Í öllum til­fellum leit­uðu menn­irnir í sviðs­ljósið til að skýra sína hlið máls­ins og gera lítið úr mann­orði þolenda sinna í ein­hverjum til­fellum. „Það er þeim mjög auð­velt þar sem við búum í litlu sam­fé­lagi og miklar líkur á að lands­þekktir menn séu í vin­fengi við fjöl­miðla­fólk,” segir Gabríela Bryndís Ernu­dóttir hjá Líf án ofbeldis í við­tali við Mannlíf þann 6. maí síð­ast­lið­inn.

Gabríela, sem ítrekað hefur orðið vitni að slíkri hegðun, segir segir lítið þurfa til að þessir karl­menn fái mik­inn stuðn­ing. „Oft gæta þeir þess að fara fyrr fram til að stýra umræð­unni. Það má stundum kalla þetta til­finn­inga­klám, þeir beita tárum og tala mikið um dauð­ann. Þeir fara alla leið í að stýra til­finn­ingum les­and­ans eða hlust­and­ans“.

Enn­fremur virð­ist svo sem ger­end­urnir virð­ist í mörgum til­fellum kenna hegð­un­inni um vanda á borð við áfeng­is­fíkn, kyn­lífs­fíkn eða slæ­lega til­finn­inga­greind og lofi með­ferð við við­kom­andi kvilla í kjöl­farið.

„Rætnar flökkusögur“

Nýjasta dæmið sem rataði á síður fjöl­miðla er frá í gær. Það eru lagðar fram ásak­anir á hendur tón­list­ar­manns­ins Auðunns Lúth­ers­sonar um ítrekað ofbeldi og til­raunir til að fá ólög­ráða stúlkur til kyn­ferð­is­legra athafna. Auðunn starfar hjá Þjóð­leik­hús­inu og mun málið vera þar til skoð­unar.

Sögur af meintri hegðun ofbeld­is­hegðun Auðunns í garð kvenna hafa farið sem eldur um sinu á síðum Tvitter und­an­farnar vikur. Í gær sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann seg­ist „ekki hafa áttað sig á að hafa farið yfir mörk” og leitað til fag­að­ila í kjöl­farið.

Hvergi kemur þó fram hverir umræddir fag­að­ilar eru.

Og tón­list­ar­mað­ur­inn heldur áfram og segir í yfir­lýs­ingu sinni: „Ég er stað­ráð­inn í að læra meira af þeirri umræðu sem hefur verið í gangi, bæta hegðun mína og koma út úr þessu sem betri maður.” Hann virð­ist þó draga nokkuð í land síðar í yfir­lýs­inugnni þar sem hann segir ,,rætnar flökku­sögur, sem ekki eigi rök að styðj­ast” séu á ferli. Pistil­inum lýkur með for­dæm­ingu hans á kyn­bundnu ofbeldi. „Ég skamm­ast mín fyrir að hafa verið blindur á hvernig ég var hluti af vand­anum.“

Enn er óljóst hvert fram­haldið verið á máli Auðunns og hvort það muni hafa var­an­leg áhrif á feril hans sem tón­list­ar­manns.

Uppfært kl. 17:40: Auðunn Lúth­ers­son, betur þekktur undir lista­manns­nafn­inu Auður, tekur ekki þátt í upp­setn­ingu Rómeó og Júlíu fyrir Þjóð­leik­húsið næsta vetur. Magnús Geir Þórð­ar­son, Þjóð­leik­hús­stjóri stað­festi þær fregnir í sam­tali við Vísi nú í dag. Sjá nánar á grein Mannlífs.

En ljóst er að konur eru hvergi nærri hættar. Þögg­un­inni hefur verið aflétt.

#Metoo er aug­ljós­lega langt frá því að vera lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina