Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólöf segir þjóðþekktan mann hafa lamið vændiskonu: „Ég þurfti að slá stjörnurykið úr augunum“

Ólöf segir þjóðþekktan mann hafa lamið vændiskonu: „Ég þurfti að slá stjörnurykið úr augunum“

Ólöf Tara Harð­ar­dóttir einka­þjálf­ari hefur fengið gjör­sam­lega nóg af þeirri þöggun sem ríkir þegar kemur að kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart konum hér á landi. Á Instagram fjallar hún um þjóð­þekktan ein­stak­ling í story, sem nýverið hafi keypt sér kyn­lífs­þjón­ustu og gengið í skrokk á kon­unni. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var sá þjóð­þekkti hand­tek­inn á staðnum og færður í varð­hald. Atvikið átti sér stað fyrir um það bil tveimur vikum síðan.

Í nýlegri færslu á Instagram gerir Ólöf Tara þetta atvik að umtals­efni og gagn­rýnir fjöl­miðla fyrir að taka þátt í þögg­un­inni. Hún spyr hvort eng­inn þeirra hafi bein í nef­inu til að fjalla um þjóð­þekkta ofbeld­is­menn. Í sam­tali við Mannlíf vill hún ekki nafn­greina hinn þjóð­þekkta ein­stak­ling en sam­kvæmt lýs­ingum er við­kom­andi afar við­kunn­an­legur og með stóran fylgj­enda­hóp á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég þurfti að slá stjörnu­rykið úr aug­unum á mér þegar ég heyrði af þessu fyrst. Það skiptir mig hins vegar engu máli hvort þetta hafi verið þjóð­þekktur ein­stak­lingur eða lítt þekktur. Þó klám og vændi séu ekki hluti af OnlyFans umræð­unni þá er mik­il­vægt að setja and­lit á ofbeldi. Þú getur nefni­lega verið alveg ótrú­lega fokk­ing næs en samt beitt ofbeldi,“ segir Ólöf og bætir við:

„Við eigum ekki að skrímsla­væða ofbeld­is­menn en megum ekki láta það ger­ast að leyfa þeim að kom­ast upp með þetta í þögn­inni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við­kom­andi beitir ofbeldi eða óvið­eig­andi hegðun gagn­vart konum. Meðan hann getur gert þetta í þögn­inni og kom­ist upp með það heldur hann áfram og finnur sér bara nýtt fórn­ar­lamb.“

Ólöf Tara ítrekar að ofbeld­is­menn beri það ekki alltaf utan á sér og það geti allir beitt ofbeldi. „Þeir sem beita ofbeldi líti ekk­ert út á einn eða annan hátt það geti allir beitt ofbeldi sama hvernig þeir líta út. Ofbeld­is­maður getur verið næs, getur verið nágrann­inn þinn sem er alltaf að hjálpa þér. Ástæðan fyrir að fjöl­miðlar fjalla ekki um þetta er lík­lega því við­kom­andi er alltaf að drekka með þeim kaffi latte,“ segir Ólöf.

Fjöl­margir fagna færslu Ólafar og taka undir hversu mik­il­væg umræðan er. Sam­fé­lags­miðla­stjarnan Brynja Dan er ein þeirra en hún vill heldur ekki nafn­greina mann­inn. „Það eru margir að spyrja mig hver þetta er. Þetta er á allra vörum. Það vita þetta allir, allir að ræða þetta. Einhvern veg­inn þorir eng­inn að stíga fram og varpa ljósi á þetta opin­ber­lega. Ofbeldi er óaf­sak­an­legt, alltaf.

Uppfært: Sölvi Tryggva­son fjöl­miðla­maður hefur stigið fram og upp­lýst í yfir­lýs­ingu að hann sé ekki umræddur fjöl­miðla­maður.

Sölvi ritar færslu á Instagram þar sem hann neitar því að hafa verið hinn ónafn­greindi þjóð­þekkti ein­stak­lingur og birti þess til stuðn­ings mynd úr mið­lægum gagna­grunni lög­regl­unnar sem sýni að hann hafi ekki verið hand­tek­inn vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi