Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ragga nagli segir Pepsi Max setja taugakerfið í sér alveg á hliðina

Ragga nagli segir Pepsi Max setja taugakerfið í sér alveg á hliðina

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, sem flestir þekkja betur undir nafn­inu Ragga nagli, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Ragga er sál­fræð­ingur að mennt með áherslu á heilsusál­fræði. Hún er einnig lærður einka­þjálf­ari og er hún virk að deila fróð­leik um heilsu­sam­legt líf­erni meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum sínum, á fyr­ir­lestrum, með greina­skrifum og svo hefur hún einnig gefið út bók um efnið.
Ragga er ekki hlynnt öfgum né svoköll­uðum töfra­lausnum og mælir Mannlíf hik­laust með að ungir sem aldnir, hraustir sem slappir fylgist með henni og taki sér líf­erni hennar og ráð til fyr­ir­myndar. Því það má með sanni segja að þarna sé á ferð frá­bær fyr­ir­mynd sem hefur raun­sæi að leið­ar­ljósi.
Mannlíf komst að því að þegar Ragga er á Íslandi fer hún yfir­leitt alltaf á Pablo Discobar að dansa, hún er ekki fyrir það að setja sér mark­mið og er að íhuga það að kjósa Viðreisn í næstu kosn­ingum.

Fjöl­skyldu­hagir? Gift Snorra Steini Þórð­ar­syni, arki­tekt, en við höfum verið saman í 23 ár. Nældi mér í kauða árið 1998 í sól­ar­landa­ferð á Kúbu. Fannst hann svo ansi snið­ugur þarna á hót­el­barnum í hvítum útvíðum jakka­fötum.

Menntun/atvinna? Ég starfa sem sál­fræð­ingur á minni eigin stofu hér í Kaup­manna­höfn, en er einnig með sam­töl í gegnum Kara Connect fjar­funda­búnað fyrir skjól­stæð­inga mína á Íslandi.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Ég elska góðar krimma­ser­íur þar sem er verið að leysa morð eða manns­hvörf. Allt svona lög­fræði­t­engt og sál­fræði­legt kitlar mig alveg. Skand­in­av­ískt stöff. Evr­ópskar ser­íur. Breskir krimmar. Amerískt gæða­efni. Er sko með áskrift að nán­ast öllum streym­isveit­unum. Þetta er smá blæti hjá okkur hjónum.

Leikari? Þeir eru svo margir. Flottar kjarna­konur eins og Olivia Colman, Judi Dench, Francis McDormand, Meryl Streep og Glenn Close, Viola Davis sem yfir­leitt tryggja gæðaræmu á skjánum.
Karla­megin er ég mjög hrifin af Benedict Cumberbatch, George Martin, Morgan Freeman, Anthony Hopkins, Adam Driver, Matthew McConaughey og Chiwetel Ejiofor.

Rit­höf­undur? Ólafur Jóhann er í algjöru upp­á­haldi, Ragnar Jónasson, Hall­grímur Helgason, Einar Kára og Auður Jóns­dóttir koma líka upp í hug­ann.
Erlendir rit­höf­undar eru Zadie Smith, Paulo Coelho, Haruki Murakami og Caitlin Moran.

Ragga nýtur þess að búa í Köben.

Bók eða bíó? Bæði betra. Alltaf bók fyrir svefn­inn, og ég er svo gam­al­dags að það verður að vera alvöru bók með blað­síðum sem ég get flett. Svo er bíó um helgar á vet­urna mikið áhuga­mál. Ég er mik­ill bíónörd og finnst gaman að sjá áhuga­verðar myndir með eðal­leik­urum. Nenni ekki að eyða tím­anum í B-mynda drasl.

Besti matur? Gefðu mér eld­grill­aða nauta ribeye medium rare, kart­öflur, aioli og salat og ég er sátt í marga daga. Grillað lamba­fille kitlar líka pinn­ann. Eins finnst mér tandoori grillað lamb og kjúklingur algjört gúr­meti.

Kók eða Pepsí? Kók zero. Pepsi max setur tauga­kerfið í mér alveg á hlið­ina.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Dynjandi í Arn­ar­firði.

Hvað er skemmti­legt? Að hitta vini, borða góðan mat, ferð­ast til útlanda, spila og æfa.

Hvað er leið­in­legt? Að gera skatta­skýrsl­una.

Hvaða flokkur? Úff… ég er algjör flokka­mella og kýs yfir­leitt ekki það sama. En í næstu kosn­ingum er ég að sverma fyrir Viðreisn. Er mik­ill aðdá­andi Þor­gerðar Katrínar og þegar Sigmar Guðmunds bætt­ist í raðir þeirra var þetta geir­neglt. Hann hefur verið í upp­á­haldi síðan á útvarps­stöð­inni Sólinni í eld, eld, eld gamla daga.

Hvaða skemmti­staður? Þegar ég er á Íslandi fer ég yfir­leitt alltaf á Pablo Discobar að dansa og á Kalda bar til að spjalla við mann og annan.

Kostir? Fyndin, róleg, úrræða­góð og ákveðin.

Lestir? Sterkar skoð­anir, sjálf­miðuð og óskipu­lögð.

Hver er fynd­inn? Sóli Hólm, Ari Eldjárn, Ricky Gervais og Celeste Barber.

Hver er leið­in­legur? Sumir hafa leið­in­lega eig­in­leika án þess að heildin þeirra sé leið­in­leg. Það er engin ástæða til að nafn­greina neinn í því sam­hengi.

Trúir þú á drauga? Nei. Ég var mjög myrk­fælin sem barn og trúði á drauga en ég vann mig út úr því með að labba um húsið í myrkri til að sanna fyrir sjálfri mér að það væri ekk­ert hættu­legt við myrkrið.

Stærsta augna­blikið? Þegar við Snorri giftum okkur. Það var dásam­leg­asti dagur lífs míns.

Mestu von­brigðin? Ég hef nú barasta ekki upp­lifað nein von­brigði sem gætu ratað á blað.

Ragga seg­ist ekki vera mikið fyrir mark­miða­setn­ingu.

Hver er draum­ur­inn? Hefur alltaf langað að búa í ein­hverju suð­rænu landi í smá tíma og dusta rykið af spænsk­unni minni og vera í sól og hita megnið af árinu. Vonandi fer þessu bless­aða Covid að ljúka svo við getum ferð­ast aftur.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári?  Að hafa tekið þessa Covid veiru bara á kass­ann á fjórum dögum. Engin eft­ir­köst og ekk­ert vesen.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ég er ekki mikið fyrir að setja mér mark­mið, leyfi líf­inu svo­lítið að flæða bara. Ég set mér frekar hegð­un­ar­mark­mið og reyni að haka við þau á hverjum degi.
Drekka nóg af vatni, fara á æfingu, fara snemma að sofa, fara í göngutúr eftir kvöld­mat, ná öllum skrefum dags­ins, borða hollt, hlægja og tala við alla­vega einn vin eða ætt­ingja.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Nei….alveg blankó.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég piss­aði í mig í Ísaks­skóla. Við sátum nokkur að tala saman eftir skóla og það var svo gaman að ég tímdi ekki að missa af með að fara á kló­settið og end­aði á að það goss­að­ist allt út og beint í stól­inn. Ég lét eins og ekk­ert væri og labb­aði svo bara út með skóla­tösk­una fyrir aftan bak svo eng­inn sæi pissu­blett­inn en stóll­inn kom hins­vegar upp um mig og ég fékk að heyra þetta ansi lengi á eftir. Ég þrætti að sjálf­sögðu fyrir verkn­að­inn, og sagði að það hefði örugg­lega verið bara ein­hver blettur í stólnum.

Sorg­leg­asta stundin? Þegar amma mín dó svip­lega í svefni aðeins rúm­lega sjö­tug. Hún var algjör skör­ungur og mikil vin­kona mín. Alltaf svo vel til höfð og dömu­leg og lagði manni lín­urnar í líf­inu. Ég lærði af henni að vera ekk­ert að væla yfir smá­munum, bara girða sig í brók og halda áfram.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að hugsa vel um heils­una því við eigum bara eina heilsu og ef hún bregst þá tak­markar það alla okkar til­veru.
Svo finnst mér mjög mik­il­vægt að koma fram við aðra af virð­ingu og for­dóma­leysi og rækta vina­sam­böndin sín vel. Því eng­inn er eyland, og maður er manns gaman. Við þrí­fumst best þegar félags­netið er sterkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti