Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hildur fæddi andvana son og missti alla andlega orku: „Stundum langaði mig ekki út úr húsi“

Hildur fæddi andvana son og missti alla andlega orku: „Stundum langaði mig ekki út úr húsi“

Hildur Gríms­dóttir er rúm­lega þrí­tugur sjúkra­þjálf­ari og varð ófrísk að sínu þriðja barni í lok 2018. Hún átti fyrir tvo syni og var þetta fyrsta barn sem hún átti von á með eig­in­manni sínum, Elíasi Erni Ein­ars­syni.

„Ég fór í snemm­sónar þegar ég var komin sjö vikur á leið og þá fannst eng­inn hjart­sláttur og var haldið að um dulið fóst­ur­lát væri að ræða. Það var svo stað­fest rúmri viku síðar og fékk ég lyfið Cytotek; þetta eru töflur sem ég tók til að hreinsa legið. Þegar ég kom svo í skoðun 10 dögum síðar til að athuga hvort allt hefði hreins­ast þá kom í ljós að fóstrið var lif­andi. Þá áttum við allt í einu aftur von á barni þegar við héldum að við værum búin að missa það. Það var mik­ill rús­sí­bani.

Við leyfðum okkur að hlakka til eftir 16 vikna skoðun en þá slepptum við aðeins tak­inu af hræðsl­unni eftir allt sem á undan var gengið. Það fór síðan að blæða í einn dag um fjórum vikum síðar og viku síðar kom legvatnsleki í ljós. Það var annar skellur. Þá var ég komin 21 viku. Þá upp­lifði ég eins og ég væri að missa hann aftur. Svo var ég upp­lýst um að það yrði ekki endi­lega raunin en ástandið virt­ist samt vera alvar­legt og hættu­legt fyrir mig upp á sýk­ingu að gera en þótt reynt hafi verið að halda lífi í barn­inu þá var ég númer eitt ef ég myndi sýkj­ast og þá hefði þurft að taka barnið og bjarga mér.“

Enginn hjartsláttur

Hildur fékk að fara heim af spít­al­anum en átti að taka það rólega heima.

„Það var fyrir það fyrsta verið að reyna að ná líf­væn­legum tíma; 23 vikum. Safna dögum og vikum. Hver dagur er svo mik­il­vægur á þessum tíma. Og við lifðum í von­inni.

Maður trúði því að þetta myndi allt fara vel.

Ég fór svo í skoðun þegar ég var komin 25 vikur og þá kom í ljós að hann var orð­inn vaxt­ar­skertur. Ég fór að sofa um kvöldið með vonda til­finn­ingu og mér leið eins þegar ég vakn­aði morg­un­inn eftir. Ég var með svo lítið af legvatni að barnið gat eig­in­lega ekki hreyft sig. Ég fann engar hreyf­ingar. Ég fór reglu­lega að láta hlusta á hjart­slátt­inn hans en ég varð að vita hvort hann væri á lífi. Ég fór á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands á Selfossi þennan örlaga­ríka dag en ljós­móðir þar fann engan hjart­slátt. Það var allt búið að vera svo dramat­ískt að ég trúði því að það yrði hægt að finna hjart­slátt­inn öðru­vísi. Ljós­móð­irin sagði að það væri best ef ég færi í sónar. Ég fór því til Reykja­víkur í frek­ari skoðun.“

Enginn hjart­sláttur kom í ljós í són­arnum og fæð­ing­ar­læknir stað­festi að fóstrið væri látið.

„Þá kom skell­ur­inn; þarna var ég alveg búin að missa hann.“

Ákveðið ferli fór í gang. Hildi og Elíasi var boðið að fara heim og koma aftur um kvöldið til að fara í gang­setn­ingu en þau völdu að fara beint upp á fæð­ing­ar­stofu þar sem þau búa á Selfossi.

„Við vorum mjög vel upp­lýst. Við hittum síðan sjúkra­hús­prest. Hvorugt okkar er þannig lagað trúað en hún var mikil sálu­hjálp og ynd­is­leg.“

Teknar voru blóðprufur og síðan fékk Hildur töflu til að koma fæð­ing­unni af stað. Þetta var á mið­viku­dags­kvöldi. Það ferli gekk hægt fyrir sig og fékk hún töflur reglu­lega á fimmtu­deg­inum og fædd­ist and­vana sonur þeirra hjóna á föstu­deg­inum eftir rúm­lega 25 vikna með­göngu.

Móðir Hildar er ljós­móðir og tók hún á móti litla drengnum.

„Hún hafði tekið á móti eldri strák­unum mínum en þarna ætl­aði hún ekki að taka á móti heldur styðja okkur og vera bara mamma mín og amma sem væri að syrgja barna­barnið sitt. En þar sem ferlið tók svo langan tíma þá fannst henni vera út í hött að taka ekki á móti honum og þá var hún til­búin til þess. Það var hugsað mjög vel um mig á fæð­ing­ar­deild­inni. Við vorum í sér­her­bergi og var mað­ur­inn minn hjá mér allan tím­ann.“

Hjónin ungu með and­vana fæddan son sinn.

Gleym-mér-ei

Búið var að und­ir­búa for­eld­rana undir komu and­vana sonar þeirra.

„Það var búið að tala um við okkur hvað hann væri lít­ill og hvernig hann væri frá­brugð­inn full­vaxta barni sem og lif­andi barni til að reyna að minnka sjokkið þegar við fengjum hann svo í hend­urnar. Hann var lát­inn á mag­ann á mér eftir að hann fædd­ist og við skoð­uðum hann vel og svo tók ljós­mynd­ari á vegum sjúkra­húss­ins myndir af honum.“

Sjúkra­hús­prestur heim­sótti hjónin aftur og nán­asta fjöl­skylda kom upp á fæð­ing­ar­deild og haldin var kveðju­stund. Litli and­vana dreng­ur­inn fékk nafnið Hergeir Þór.

„Þetta er sterkt nafn fyrir svona litla hetju sem hafði farið í gegnum þessa með­göngu.“

Kæli­vagga á vegum styrkt­ar­fé­lags­ins Gleym mér ei var á sjúkra­stof­unni og segir Hildur að þau hjónin hafi fengið að vera þar með and­vana son sinn í vögg­unni eins lengi og þau vildu og voru þau þar í tvær nætur eftir að hann kom í heim­inn; blóð­missir hafði líka sitt að segja hvað seinni nótt­ina varðar. Gleym mér ei gaf þeim minn­ing­ar­kassa þar sem voru meðal ann­ars litlir bangsar, arm­bönd, kerta­stjaki og minn­ing­ar­bók.

„Það var ómet­an­legt að geta haft hann svona lengi hjá okkur því við vissum að við værum svo að fara að kveðja hann og að við færum af fæð­ing­ar­deild­inni án þess að taka hann með.“

Hjónin skipu­lögðu síðan útför litla drengs­ins síns og viku síðar var haldin útför þar sem söng­kona og píanó­leik­ari sáu um tón­list­ina. Lítla kistan stóð við alt­arið. Lögin sem voru sungin og spiluð: Maísól, en hann kom and­vana í þennan heim í vor­mán­uð­inum maí, Snert hörpu mína, Ást, Heyr mína bæn og Imagine.

Litli dreng­ur­inn var síðan jarð­settur í gröf föð­ur­ömmu sinnar.

Sorgarferlið

Sorgin

„Það má líkja þessu við að maður sé eins og með síma­hleðslu og er bara straujaður. Það var tekin úr manni lík­am­leg og and­leg orka. Við stóðum í flutn­ingum á þessum tíma og fluttum dag­inn eftir jarð­ar­för­ina. Það var merki­lega mikil hjálp að vera með þetta verk­efni að vera að flytja í fyrstu sam­eig­in­legu eign­ina okkar. Það var svo góð til­finn­ing að kveðja íbúð­ina þar sem ég hafði legið veik og ekki mátt reyna á mig. Við hófum nýjan kafla í nýja hús­inu okkar.

Við fengum sitt hvort þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lofið og við unnum í garð­inum um sum­arið og byggðum okkur upp á ný. Við eyddum tím­anum með strák­unum og gerðum heil­mikið. Við töl­uðum mikið um miss­inn og ég var líka opin á sam­fé­lags­miðlum. Það var að mörgu leyti mikil hjálp að vera opin um þetta og tala um þetta við fjöl­skyldu og vini. Við vorum heppin en við fengum enda­laust heim­sóknir og fólk kom með fal­leg blóm eða mat þannig að við vorum vel nærð af ást og umhyggju.“

Hildur ákvað að skipta um starfs­vett­vang og fór að vinna á þeirri deild Land­spít­al­ans þar sem hún hafði legið í þessu ferli. Hún segir að það hafi hjálpað sér.

„Það gaf mér eitt­hvað að geta gefið. Mér er hætt að líða þar illa. Það er ekki allra að geta gert þetta svona. En þetta var mín leið. Ég sneri þessu bara við.“

Hún ber sig vel en hún er beðin um að lýsa sorg­inni meira.

„Suma daga er maður alveg bens­ín­laus. Andlaus; það kemur þó sjaldnar fyrir í dag. Ég varð mjög veik á með­göng­unni og þurfti að byggja mig upp and­lega og lík­am­lega. Ég skrif­aði mig stundum út úr sorg­inni og stundum á sam­fé­lags­miðlum. Og ég tal­aði mikið við mann­inn minn, ætt­ingja og vini. Stundum lang­aði mig ekki út úr húsi. Ég er félags­lynd í eðli mínu en það má segja að ég hafi á tíma­bili eftir þetta verið félags­fælin af því að ég hafði ekki úthald í að vera innan um annað fólk. Ég valdi mér fólk sem ég vildi umgang­ast. Mér fannst vera lang­best að vera með fjöl­skyld­unni.

Það eru ákveðin stig sem maður fer í gegnum í sorg­ar­ferl­inu og maður dvelur mis­lengi í þeim.

Það er svo mik­il­vægt að fá hjálp­ina til að halda áfram í ferl­inu og fest­ast ekki á ein­hverjum stað af því að þetta er úrvinnsla. Þetta verður ekki tekið frá manni. Maður verður að lifa með þessu og finna til­gang lífs­ins.“

(Mynd: Ljós­mynd­ari Land­spít­al­ans.)

Gleði og sorg

Reynt var að kom­ast að ástæðu fóst­ur­miss­is­ins. Teknar voru fleiri blóðprufur af Hildi en venju­lega er gert á með­göngu og kom í ljós að hún var sýkt af veirunni Toxopla­s­mosis sem getur meðal ann­ars smit­ast af dýrum eða mat. Hildur segir að sýk­ingin sé sjald­gæf hér á landi. Veiran hefur slæm áhrif á fóstur.
Hvað með lyfið sem Hildur fékk til að hreinsa út legið eftir snemm­sónar?

„Ég var alltaf með áhyggjur af áhrifum þess. Það gat eng­inn sagt af eða á um hvort það gæti hafa haft áhrif á fóstrið eða það vildi eng­inn við­ur­kenna það. Það voru lækna­mis­tök að mér voru gefin þessi lyf. Það leið ekki nógu langur tími á milli skoð­ana. Ég ákvað samt að gera ekk­ert í þessu; það hefði tekið orku frá mér og ég fann ekki hjá mér þörf að fara í hart við sjúkra­húsið. Ég veit að þetta var atvika­skráð á sjúkra­hús­inu.“

Sýni voru tekin úr litla lík­am­anum og send vestur um haf og lá nið­ur­staðan fyrir fimm mán­uðum síðar.

„Það kom í ljós að dreng­ur­inn var með heil­kenni og hann hefði mjög ólík­lega lifað af vegna þess. Mín hugsun er að hann dó á besta staðnum. Hann hefði ekki átt gott líf. Hann hefði verið mjög veikur ef hann hefði lifað. Þannig að ég hef að ein­hverju leyti sætt mig við hvernig fór af því að hann hefði orðið svo veikur.“

Hildur við­ur­kennir að þessi reynsla hafi þroskað sig. „Ég lít núna allt öðrum augum á svo marga hluti og mér finnst margt ekki skipta máli sem öðrum finnst skipta máli.

Ég hef lært að njóta lífs­ins og lifa líf­inu.

Ég vil ekk­ert „bullshit“.“

Hildur og mað­ur­inn hennar eign­uð­ust annan son í mars á þessu ári. Hjalið í fjög­urra mán­aða gömlum snáð­anum er eins og und­ir­leikur við við­talið. Hildur var í áhættu­mæðra­vernd og fór oftar í skoðun en ella og segir að hún hafi farið að slaka á þegar með­gangan var hálfnuð.

„Það er stutt á milli gleði og sorgar og maður verður að læra að burð­ast með sorg­ina í gleð­inni og finna gleð­ina í sorg­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina