Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðrún hefur heimsótt 150 lönd heims: „Vil leggja fátæku fólki lið víða“

Guðrún hefur heimsótt 150 lönd heims: „Vil leggja fátæku fólki lið víða“

Á alþjóða­þingi Lions í Las Vegas árið 2018 var Guðrún Björt Yngva­dóttir úr Lions­klúbbnum Eik í Garðabæ kosin alþjóð­for­seti Lions, fyrst Íslend­inga og fyrst kvenna í 101 árs sögu Lions. Hún er líf­enda­fræð­ingur að mennt og vann um tíma við rann­sóknir og kennslu og gegndi hún síðan um ára­bil stöðu aðstoð­ar­for­stöðu­manns End­ur­mennt­unar Háskóla Íslands.

Eig­in­maður Guðrúnar, Jón Bjarni Þor­steins­son, gekk í Lions árið 1982. „Lions var karla­klúbbur á þeim tíma og var konum ekki leyft að vera félagar en það breytt­ist árið 1987. Ég þekkti Lions því í byrjun í gegnum mann­inn minn, vini hans og klúbb­fé­laga og mér fannst skipta svo miklu máli hvað var lögð mikil áhersla á vin­átt­una og virð­ingu fyrir hvert öðru. Konur og börn félaga tóku þátt meðal ann­ars með því að planta trjám og vinna að verk­efnum í sam­fé­lag­inu en það sem ein­kennir hreyf­ingu eins og Lions er að það er settur ákveð­inn stand­ard sem skapar ákveðin gæði í félags­starfi og ákveðin tæki­færi til þess að horfa á sam­fé­lagið með öðrum hætti og þroska hæfi­leika sína svo sem leið­toga­hæfi­leika.“

Guðrún gerð­ist svo félagi í Eik árið 1992.

„Ég gekk í Lions upp­haf­lega út af því að ég vissi að þetta var skemmti­legur klúbbur, skemmti­leg vin­átta og það er alltaf gaman að vera í góðum hópi. Ég vissi auk þess að Lions væri að vinna mjög góða hluti bæði hér á landi og erlendis. Það sem heill­aði mig mest á þessum tíma var að alþjóða­hreyf­ing Lions var í alþjóð­legu átaki við að safna pen­ingum í sjón­vernd­ar­á­tak og vinna með Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni við að útrýma ákveðnum augn­sjúk­dómum á blindum víða um heim. Mér fannst það vera svo magnað. Þannig að ástæðan fyrir því að ég gekk í Lions var líka sú að leggja fátæku fólki lið víða um heim. .

Þegar ég kynnt­ist Lions átt­aði ég mig á því að það fælust ný tæki­færi í að vera í svona alþjóð­legri hreyf­ingu.“

Nýtt og ferskt

Guðrún gegndi svo í gegnum árin flestum emb­ættum hreyf­ing­ar­innar hér á landi. Hún var meðal ann­ars umdæm­is­stjóri og fjöl­um­dæm­is­stjóri. Áherslur hennar hafa tengst börnum og ungu fólki, félaga­málum, leið­toga­málum, heilsu og vellíðan og þar á meðal sjón­vernd og syk­ur­sýki, umhverf­is­málum og alþjóða­sjóði Lions­hreyf­ing­ar­innar (LCIF).

Það var oft mikið að gera. Hún var í fullri vinnu og sinnti verk­efnum sínum hjá Lions. Hún fór að minnka við sig vinnu hjá End­ur­menntun HÍ, tók sér launa­laust leyfi og hætti svo þar störfum árið 2010 en hún tekur fram að yfir­menn sínir hafi alltaf tekið vel í það þegar hún fór jafn­vel nokkrum sinnum á ári til útlanda vegna verk­efna hennar þar fyrir Lions.

Og hún vildi meira innan alþjóða­hreyf­ing­ar­innar. Hún vildi verða alþjóða­for­seti Lions.

„Til þess að vera gjald­gengur fram­bjóð­andi til alþjóða­for­seta þá þarf maður að hafa gegnt mörgum stjórn­un­aremb­ættum, bæði inn­an­lands sem í sinni heims­álfu, og hafa víð­tæka þekk­ingu og reynslu svo sem varð­andi alþjóð­lega hjálp­ar­sjóð­inn og vera í leið­toga­þjálfun við að fræða aðra. Þetta var ég búin að vera að gera síð­ustu 15 árin.

Kristín Björt Yngva­dóttir

Ég byrj­aði síðan í kosn­inga­bar­áttu árið 2015. Fram­bjóð­endur voru 16 þegar ég tók þessa ákvörðun og þurfti ég að fara víða um heim til að kynna mig og vera mjög virk. Og það var fullt starf að vera fram­bjóð­andi. Þegar ég ákvað að gefa kost á mér þá gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað þetta væri hörð kosn­inga­bar­átta og ég þurfti strax að sanna mig. Sanna að ég gæti lagt eitt­hvað af mörkum til að styrkja hreyf­ing­una. Og það var rosa­legur skóli. Það skipti síðan miklu máli fyrir sjálfs­traustið að sigra 16 aðra fram­bjóð­endur; það styrkti mig í að þora að gera eitt­hvað mik­il­vægt, leggja til ákveðnar breyt­ingar og sýna ákveðið frum­kvæði á ákveðnum sviðum. Þegar ég var í kosn­inga­bar­átt­unni hafði aldrei kona gegnt starfi alþjóða­for­seta í 100 ára sögu Lions og mjög fáir Evr­ópu­búar. Þannig að ég var mjög nýtt og ferskt afl.“

Guðrún var kosin 2. vara­for­seti árið 2016 og segir að þá hafi hún fundið að það væri hlustað á það sem hún sagði. „Það voru miklar vænt­ingar og ég var oft spurð hvernig ég ætl­aði að breyta hinu og þessu. Og ég þurfti að hafa svörin á hreinu og þróa stefnu mína mjög fljótt. Ég ferð­að­ist mikið, varð örugg­ari þegar ég kom fram og reynd­ari.“

Ákveðið kerfi er í Lions og árið 2017 varð Guðrún 1. vara­for­seti og svo var hún eins og þegar hefur komið fram kosin árið 2018 alþjóða­for­seti Lions, fyrst Íslend­inga og fyrst kvenna, í 100 ár sögu Lions.

„Ég nýtti mér það alveg í botn að koma með ferskar áherslur inn í þetta alþjóð­lega sam­fé­lag. Stór hluti Lions-félaga er í Asíu og Japanir eru þar mjög sterkir og margir þar hugsa allt öðru­vísi en við Evr­ópu­búar.“

Um 150 lönd

Guðrún hefur und­an­farin ár hitt ýmsa máls­met­andi aðila svo sem emb­ætt­is­menn, þjóð­höfð­ingja og annað frægt fólk sem var að vinna að góðum mál­efnum. Lions er í sam­starfi meðal ann­ars við Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina og Special Olympics en Kenndy-fjöl­skyldan stofn­aði Special Olympics árið 1968. Hún nefnir einnig fyr­ir­tæki og stofn­anir sem vinna að góð­gerða­málum.

Þessi ár voru við­burð­ar­rík.

„Ég hef heim­sótt um 150 lönd og hef tekið þátt í Lions-verk­efnum út um allan heim og séð hvað þörfin er ólík.

Maður sinnir til dæmis allt öðru­vísi verk­efnum í Afríku og Evrópu því þarf­irnar eru svo ólíkar. Þó það sé til fátækt í Evrópu þá er hún ekki sam­bæri­leg við fátækt til dæmis í Afríku og Indlandi. Þannig að verk­efnin eru ólík. Allir sem eru í Lions í Afríku eru vell­auð­ugir og þeir gefa jafn­vel heil sjúkra­hús. Það er alveg ótrú­legt hvað menn eru rausn­ar­legir. Það sem ein­kennir Lions-félaga er að þeir vilja leggja sam­fé­lag­inu lið; þeir vilja ekki bara nota auð sinn í að kaupa nýjar snekkjur eða þotur.“

Guðrún er spurð hvað standi upp úr þessi ár.

„Mörg verk­efni í Afríku koma upp í hug­ann. Ég get nefnt skóla í Sambíu sem Lions­klúbbar þar í landi stofn­uðu fyrir 25 árum og það finnst mér vera magnað. Skólinn eru fyrir blind og sjón­skert börn af því að á þeim tíma var það að fæð­ast fatl­aður að ein­hverju leyti oft dauða­dómur; fjöl­skyldur áttu mörg börn og ef ein­hver voru fötluð þá hurfu þau sum í næsta stöðu­vatn. For­eldr­arnir urðu að styðja þau sem voru líf­væn­leg því þau gátu ekki öll kom­ist á legg. Fátæktin var svo mikil. Það voru í upp­hafi nokkrir tugi barna í skól­anum, sem er heima­vist­ar­skóli, en nú eru þar nokkur hund­ruð börn og það er verið að stofna nýja deild sem var nefnd í höf­uðið á mér. Þannig að það er skóli með nafni mínu í Sambíu. Þetta var svo mikil upp­lifun. Þessi börn komu mjög vel fyrir og sungu fyrir mig og tóku þátt í ýmsum við­burðum.

Það er girð­ing í kringum skól­ann og örygg­is­verðir við hliðin en engu að síður komust nágrannar inn í skól­ann og stálu reglu­lega meðal ann­ars rúm­dýnum. Ég spurði hvað Lions­klúbb­ur­inn gerði við því og var sagt að það væri ekk­ert gert heldur væru nýjar dýnur keyptar. Ég spurði hvers vegna stæði á því þar sem þá myndu nágrannar halda áfram að stela. Þá var sagt að með því að gefa þeim kost á að ná í það sem þeir þyrftu þá væri líka verið að styðja við fátækar fjöl­skyldur. Þetta var alveg nýtt fyrir mér.“

Guðrún nefnir líka heim­sókn til Benin þar sem er þorp sem byggt er á staurum í stöðu­vatni.

„Lions-klúb­b­arnir höfðu reynt að bjóða íbú­unum upp á bólu­setn­ingar, augn­mæl­ingar og aðra þjón­ustu en íbú­arnir þáðu hana aldrei. Þá var ákveðið að byggja þjón­ustu­mið­stöð úti í vatn­inu og ég fór ásamt öðrum að opna hana.

Íbúar komu á litlum bátum sem skiptu hund­ruðum og voru íbúar klæddir þjóð­bún­ingum og sumir héldu á íslenska fán­anum af því að ég var aðal­gest­ur­inn.

Þetta var ævin­týra­leg upp­lifun. Ég gerði ekk­ert nema að alþjóða­hjálp­ar­sjóður Lions veitti smá­styrk til verk­efn­is­ins og íbú­arnir voru svo þakk­látir.“

Ákveðið þakklæti

Á meðan Guðrún gegndi emb­ætti alþjóða­for­esta Lions var hún oft heima í kannski tvo til þrjá daga í mán­uði.

„Þetta var mjög þreyt­andi þangað til Covid-heims­far­ald­ur­inn skall á en síðan hef ég unnið í gegnum tölvu. Það er verið að halda raf­ræna við­burði í hverju landi og þar er ég alltaf með eitt­hvað inn­legg og hef ég á síð­ast­liðnum 18 mán­uðum útbúið um 300 mynd­bönd þar sem ég tala til félag­anna, þakka og hvet til dáða,“ segir Guðrún sem í dag er í stjórn alþjóða­hjálp­ar­sjóðs Lions og er þar í ýmsum nefndum.

„Það er heil­mikið starf fram undan og það fylgir því mikil ábyrgð að vera í þessu en þegar maður er búinn að vera alþjóða­for­seti þá þarf maður að skila til baka reynsl­unni með því að sinna ákveðnum störfum. Núna er ég til dæmis æðsti leið­togi Lions í Evrópu þangað til næsti Evr­ópu­for­seti verður val­inn, eftir kannski 10 ár.“

Guðrún segir að það sem drífi sig áfram sé ákveðið þakk­læti sem hún finni fyrir og að hún finnur að hún hafi náð árangri. Skilað ein­hverju; séð að mark­mið hafi náðst.

„Þetta er eins og með vinnu og fjöl­skyld­una; þegar maður nær mark­miðum þá verður maður svo glaður og heldur áfram. Það er tvennt sem drífur mig áfram. Það er ann­ars vegar per­sónu­leg mark­mið og það að finna að maður sé að ná árangri, skila ein­hverju og gera eitt­hvað gagn. Svo er það hins vegar ákveðin þörf fyrir að bæta sam­fé­lagið; þetta er mín leið til að vinna fyrir sam­fé­lagið; ekki bara í mínu bæj­ar­fé­lagi heldur á heims­vísu.

Ég vil leggja sam­fé­lag­inu lið. Samfélag mitt er allur heim­ur­inn.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una