Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Óvæntir endurfundir

Óvæntir endurfundir
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég kynnt­ist Sigrúnu þegar ég var 17 ára. Við vorum jafn­öldrur, en ástæðan fyrir því að við kynnt­umst var sú að hún fór að vera með yngri bróður mínum. Sigrún varð strax góð vin­kona mín og við urðum mjög nánar.

Við áttum mörg sam­eig­in­leg áhuga­mál, eitt af þeim var söng­ur­inn. Við sungum báðar í kór á þessum tíma og seinna meir sungum við í sama kórnum. Okkur þótti mjög vænt hvor um aðra og við vörðum öllum stundum saman nema þegar hún var ein með bróður mínum. Oft fór ég þó með þeim í bíó þar sem við vorum öll með bíó­d­ellu og tvisvar ferð­uð­umst við þrjú saman inn­an­lands.

„Í fyrstu skrif­uð­umst við mikið á, en eftir að ég gifti mig og varð ólétt og hún fór að vera með dönskum manni fækk­aði bréf­unum.“

Samband þeirra ent­ist ekki lengi, þau hættu að vera saman þegar við vin­kon­urnar vorum nítján ára, eða eftir tæp tvö ár. Þrátt fyrir það héldum við Sigrún okkar vin­áttu, hún minnk­aði ekk­ert þó að Sigrún hætti fyrst um sinn að koma jafn­mikið heim til okkar og áður var. Vinátta okkar dýpkaði frekar en hitt, því eftir þetta fór Sigrún að tala meira um sjálfa sig við mig.

Þegar við vorum tví­tugar kynnt­ist ég til­von­andi eig­in­manni mínum og skömmu síðar ákvað Sigrún að fara í nám til Kaup­manna­hafnar einn vetur þannig að sam­band okkar minnk­aði tölu­vert. Í fyrstu skrif­uð­umst við mikið á, en eftir að ég gifti mig og varð ólétt og hún fór að vera með dönskum manni fækk­aði bréf­unum. Sigrún heim­sótti mig sum­arið sem elsta barnið mitt var á fyrsta ári, en vet­ur­inn eftir flutti Sigrún til Parísar í eitt ár og eftir það má heita að ég hafi ekki heyrt af henni. Ég vissi að vísu að hún gift­ist Dananum og þau fluttu til Jótlands, en þar með var líka öll sagan sögð. Oft hefur mér verið hugsað til Sigrúnar öll þessi ár síðan hún flutti til Dan­merkur og minn­ing­arnar sem ég átti um hana og vin­áttu okkar hafa oft yljað mér. Það hafði hvarflað að mér oftar en einu sinni að reyna að hafa uppi á henni, en ein­hvern veg­inn varð aldrei neitt úr því.

Út í bláinn

En það fór samt svo að ég hitti Sigrúnu aftur en þá var næstum 21 ár liðið síðan við sáumst síð­ast. Það var væg­ast sagt und­ar­leg til­viljun sem réði því.

Við hjónin ferð­uð­umst ekki mikið á fyrstu búskap­ar­árum okkar. Okkur lang­aði svo sann­ar­lega til þess, en við vorum auð­vitað blönk og upp­tekin af barna­upp­eldi og höfðum hvorki tíma né pen­inga til ferða­laga. Eftir að börnin uxu úr grasi breytt­ist þetta og und­an­farin sjö ár höfum við farið til útlanda á hverju ári. Fyrst fórum við reglu­lega í ein­hvers konar hóp­ferðir. Fyrir tveim árum ákváðum við svo að gera eitt­hvað „öðru­vísi“ og í stað þess að fara í hefð­bundnar sól­ar­landa­ferðir lang­aði okkur að fara ein út í blá­inn, fá okkur bíla­leigu­bíl og ferð­ast frjáls. Við flugum til London og tókum bíl á leigu þar og ókum í suður. Við gistum oft­ast á einka­heim­ilum í svo­kall­aðri „Bed and Break­fast“-gist­ingu og lík­aði það ein­stak­lega vel. Bret­arnir eru svo elsku­legir heim að sækja og okkur fannst næstum eins og við værum fóst­ur­börn heima­manna á flestum stöð­unum. Við ókum gegnum litla, vina­lega bæi, versl­uðum í „kaup­fé­lög­unum“ þeirra, fórum á pöbbana og veif­uðum til gömlu kvenn­anna sem hjól­uðu um með hundana sína í bast­körfum. Þetta var ynd­is­legt.

Einn af þeim bæjum sem við nán­ast villt­umst inn í heitir Rye og er gam­all, sér­stak­lega róm­an­tískur og fal­legur. Þar fundum við fal­legt, lítið hús með skilti í glugga þar sem boðið var upp á gist­ingu. Á móti okkur tók afskap­lega smá­gerð, gömul kona sem umvafði okkur hlýju og bauð okkur te úti í rósa­garð­inum sínum. Hún sagði að okkur væri vel­komið að setj­ast þar hvenær sem okkur lysti. Okkur lík­aði svo vel í hús­inu hjá ekkj­unni, frú Jenkins, að við ákváðum að vera þar í þrjá daga til að ná úr okkur vega­þreyt­unni í róleg­heit­unum áður en við snerum til baka til London. Við sáum ekki eftir þeirri ákvörðun því það fór ein­stak­lega vel um okkur, við gengum um bæinn og létum eins og við værum heima hjá okkur – og þar hitti ég Sigrúnu!

Magnaður morgunverður

Þriðja og síð­asta morg­un­inn okkar hjá frú Jenkins fórum við snemma fram í morg­un­verð­inn í sól­stof­unni. Þar voru þrjú kringlótt borð fyrir gest­ina og við sett­umst alltaf við borðið sem sneri út í garð­inn. Við vorum rétt að fá okkur sæti með kaffi­boll­ana okkar og heima­bök­uðu boll­urnar þegar önnur hjón komu inn í stof­una. Mér varð litið á þau og konan vakti strax athygli mína, mér fannst ég hafa séð hana áður!

Ég sett­ist hjá mann­inum mínum og sneri vinstri hlið­inni að fólk­inu sem var að fá sér á disk­ana. Eins og sönnum Íslend­ingi fannst mér auð­vitað allt í lagi að tala frjáls­lega við mann­inn minn, maður heldur jú alltaf að eng­inn skilji mann. Ég sagði honum skýrt og skil­merki­lega að mér hefði ég fund­ist þekkja þetta fólk; ég hefði örugg­lega séð þessa konu áður. Í því leit konan upp og þá þekkti ég Sigrúnu. Við gripum báðar and­ann á lofti og hún fleygði frá sér disk­inum og hljóp til mín. Við féll­umst í faðma og hvorug trúði eigin augum. Sigrún hafði litið á okkur þegar hún heyrði íslensk­una og þekkti mig eins og skot. Þarna urðu miklir fagn­að­ar­fundir og aum­ingja karl­arnir okkar urðu hálf­vand­ræða­legir. Sigrún og maður hennar sett­ust hjá okkur og það var lít­ill morg­un­matur sem fór ofan í okkur stöll­urnar. Við töl­uðum og töl­uðum á íslensku, auð­vitað um sjálfar okkur og á end­anum fóru þeir eig­in­menn okkar að tala saman á ensku því mað­ur­inn minn talar ekki dönsku og hennar ekki íslensku.

„Eins og sönnum Íslend­ingi fannst mér auð­vitað allt í lagi að tala frjáls­lega við mann­inn minn, maður heldur jú alltaf að eng­inn skilji mann. Ég sagði honum skýrt og skil­merki­lega að mér hefði ég fund­ist þekkja þetta fólk; ég hefði örugg­lega séð þessa konu áður.“

Þetta var væg­ast sagt sér­kenni­legt borð­hald. Frú Jenkins varð auð­vitað vör við að eitt­hvað merki­legt var á seyði og þegar hún fékk alla sól­ar­sög­una varð hún svo kát að hún krafð­ist þess að við yrðum einn dag í við­bót í hennar boði en Sigrún og hennar maður áttu pantað fram á næsta dag. Við þáðum boðið og þennan dag not­uðum við til að fara í laut­ar­ferð út fyrir bæinn með nesti sem frú Jenkins útbjó handa okkur.

Þetta er ein­hver eft­ir­minni­leg­asti dagur sem ég hef lifað. Við töl­uðum ensku þennan dag og svo skemmti­lega vildi til að menn­irnir okkar höfðu mjög gaman af þessu líka og við vorum öll mjög ham­ingju­söm og glöð eftir þessa ferð. Við Sigrún ákváðum að nú skyldum við ekki missa hvor af annarri aftur. Við fundum strax að vin­átta okkar var enn til staðar, það var rétt eins og við hefðum hist síð­ast í gær. Við sungum báðar enn í kór – hún á dönsku! og við vorum báðar enn með bíó- og ferða­dellu. Við gátum strax talað saman og við höfðum svo margt að segja hvor annarri að einn dagur nægði engan veg­inn. Við skipt­umst á heim­il­is­föngum og Sigrún gaf mér net­fangið sitt ef ég gæti hugs­an­lega notað það seinna. Við hjónin áttum að vísu heim­il­is­tölvu þegar þetta var, en við höfðum ekki haft aðgang að pósti fram að þessu. Eitt af því fyrsta sem við komum í fram­kvæmd eftir að við komum heim úr þess­ari ferð var að fá okkur net­fang.

Þessi ágæti dagur leið allt of hratt og við Sigrún hétum því að hitt­ast oft eftir þetta. Við gáfum hvor annarri lof­orð um að heim­sækja hvor aðra sem fyrst og skrif­ast á.

Við höfum staðið við þetta því við Sigrún erum mikið í sam­bandi á tölv­unni og í sumar koma þau hjónin til Íslands. Auðvitað eru þau ekki bara að koma til að heim­sækja okkur, en í þetta skipti munu þau gista á heim­ili mínu. Ég hlakka mikið til að fá þau hingað, og bróður mínum sem nú er giftur og tveggja barna faðir finnst þetta líka skemmti­legt.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina