Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðný fæddi þrjá andvana syni: „Ég er endalaust sorgmædd, það er búið að særa mig svo mikið“

Guðný fæddi þrjá andvana syni: „Ég er endalaust sorgmædd, það er búið að særa mig svo mikið“
Guðný María er að gera góða hluti.

„Ég var send alein til ókunn­ugra aðeins 18 mán­aða gömul. Mamma var veik, ófrísk að sínu fjórða barni og sendi mig til systur sinnar sem ég þekkti ekk­ert. Þarna var ég látin vera aftur og aftur og missti smám saman öll tengsl við for­eldra mina og systk­ini,” segir Guðný María Arn­þórs­dóttir, tón­list­ar­kona.

Guðný María hefur gengið í gegnum mörg áföll á lífs­leið­inni en heldur þó alltaf í jákvæðn­ina og bjart­sýn­ina eins og heyra má greini­lega á tón­list hennar. Hún tekur á móti blaða­manni í fal­legri íbúð í rót­grónu hverfi í Reykja­vík, brosmild, óað­finn­an­lega snyrt og í fal­legum sum­ar­kjól. Hún býður upp á kaffi á meðan hún segir sögu sína.

Þrjú andvana börn

Hún seg­ist aldrei hafa pass­aði inn í systk­ina­hóp­inn og for­eldrar hennar gert lítið til að verja hana. „Heimilið mitt varð sem stríðs­á­stand í Sýrlandi og ég flúði út í bæ til að finna mér skjól. Mér leið aftur á móti vel í skól­anum en heima var ég sífellt hrædd og í ójafn­vægi. Ég fékk að heyra dag­lega að ég væri og ljót og heimsk“.

Guðný María seg­ist hafa verið sein­þroska, bæði and­lega og lík­am­lega og rekur það til van­rækslu í æsku. Á þessum árum hafði hún flutt frá Akureyri og vann á næt­ur­klúbbnum Hollywood. „Mér fannst neyslan gera mig flotta en Bakkus braut mig niður”. Fljót­lega flutti sam­starfs­maður hennar inn á hana og segir hún hann hafa ætl­ast til þess að hún ynni fyrir þeim báðum. Leiðin lá fljót­lega niður á. Hún segir sam­býl­is­mann sinn hafa hætt að vinna og drykkja þeirra beggja hafi auk­ist. Á þessu tíma­bili varð Guðný María ófrísk að sínu fyrsta barni. „Eggja­stokkar mínir höfðu ekki þroskast vegna neysl­unnar og mér hafði verið sagt að ég gæti ekki eign­ast barn. Ég var þvi komin meira en 3 mán­uði á leið er þetta uppgvötað­ist. Þá kom í ljós að mað­ur­inn minn var með litn­ingagalla og yrði ég því að fara í legvatns­stungu. Að end­ingu kom í ljós að barnið hafði erft þennan litn­ingagalla og fæddi ég and­vana son, nán­ast full­burða”.

Guðný segir það hafa verið ólýs­an­lega skelfi­legt að horfa á lát­inn son, sinn svo fal­legan. Tveir and­vana drengir með sama litn­ingagalla fædd­ust í kjöl­farið. „Þetta voru voða­leg ár, ég var í sífelldu bind­indi en gat svo allt í einu verið stödd með áfeng­is­glas í hend­inni”.

Lífið breyttist á augabragði

Þann 1. októ­ber 1981 fór Guðný María í með­ferð á Sil­unga­polli og hóf nýtt líf. Hún var þó enn í sam­bandi við mann sinn sem hún seg­ist hafa verið and­lega háð. „Hann stjórn­aði mér og fannst ég alger­lega ómögu­leg. Samt komst ég á AA fundi og lífið fór mikið að batna og ég fór að fá smá­vegis sjálfs­traust.” Sam­skipti hennar við systk­ini hennar voru þó enn afar stirð.

Guðný María smakk­aði aldrei framar áfengi og hefur verið edrú í tæpa fjóra ára­tugi.

Þegar Guðný María hafði verið edrú í tvö ár fæddi hún fyrsta lif­andi barnið, litla telpu. „Líf mitt breytt­ist á einu auga­bragði. Ég fór að lesa allt um barna­upp­eldi og þetta sumar 1983 var víst rign­inga­sumar en ég tók aldrei eftir því. Ég reyndi að láta pabbann passa barnið svo að ég gæti unnið en það gat hann ekki, hann datt bara í það. Hann var túramaður sem drakk 10 daga og upp í 2 vikur en nú setti ég þvert nei fyrir að að hann drykki á heim­il­inu“.

Guðný Maríu tókst að kaupa sér verka­manna­í­búð og eftir að hafa farið á fræðslu­nám­skeið hjá Reykja­vík­ur­borg hóf hún störf sem dag­móðir og starf­aði sem slík í mörg ár við miklar vin­sældir. Hún eign­að­ist son árið 1985, annan son þann 1988 og dóttur árið 1990. Á þessu tíma­bili fór maður hennar í 10 með­ferðir áður en honum tókst að hætta neyslu.

Guðný María segir að þrátt fyri það hafi ástandið á heim­il­inu langt því frá því hafa batnað.

Enginn svaraði ákalli um hjálp

„Hann var með mér verri edrú en fullur og fram­hjá­haldið var stöðugt. Martröð mín hófst fyrir alvöru árið 1993. Ég var ekki lengur elsku­leg kona hans sem hafði ítrekrað bjargað lífi hans og þessi ynd­is­lega móðir að börnum hans,  Nei, hræðsla hans gerði hann að vondum manni, hættu­legri en hann var nokkru sinni fullur. Ef ég bað um skilnað neit­aði hann en ef ég sagð­ist elska hann, þá vildi hann skilja við mig. Ég var í raun ein með fjögur börn en eng­inn sem ég bað um svar­aði ákalli mínum um hjálp því eng­inn vildi blanda sér í okkar mál. Hann flutti síðan loks­ins út haustið 1995 og ég var því ótrú­lega þakk­lát. Aftur á móti vissi ég ekki að þrauta­ganga mín væri í raun að byrja“.

Guðný segir mann sinn hafa skipu­lagt brotið niður trú og traust barn­anna á henni sem móðir. Hún flúði lands­hluta á milli með börnin en á end­anum fór hennar fyrr­ver­andi í for­ræð­is­mál við hana. „Ég varð svo hrædd og byrja að panikka en fékk svo lög­mann til að hjálpa mér. Sá minnt­ist reyndar aldrei á ofbeldi eða alka­hól­isma hans en gagn­rýndi mig svo stöðugt að ég vissi hrein­lega ekk­ert hvað ég átti að gera. Ég fékk hvergi neina hjálp“.

Svo fór að Guðný fór til Bret­lands þar sem hún hafði búið áður. „Ég fór með öll börnin til að fá hvíld frá ofbeld­inu”.

Ætlaði engum að giftast í Bretlandi

Guðný segir þá sem hún hafa leitað til hafa brugð­ist sér þegar hún kom heim og málið var tekið fyrir í Hér­aðs­dómi. „Systkini mín og fyrr­ver­andi tengda­for­eldrar sem ég hafði verið sem best, fóru öll gegn mér. Ég vissi ekki að lög­mað­ur­inn gat frestað mál­inu eða kallað fram fullt af vitnum mér í hag. Til dæmis alla þeir for­eldrar sem ég hafði gætt barna fyrir.

Systkini mín full­yrtu að mín biði karl­maður í Bret­landi sem ég ætl­aði að gift­ast. Það var algjört rugl, ég hafði deitað þar mann í viku­tíma og það var löngu liðin tíð. Það var alveg merki­legt hvað allir voru eitt­hvað upp­teknir af meintu ást­ar­lífi mínu. Svo fór að ég tap­aði mál­inu þann 13. mars 1998 og missti öll börnin mín á þeim for­sendum að ég væri að flytja erlendis að gift­ast manni, sem var algjör vit­leysa“.

Hún segir að þau hafi öll fimm grátið það kvöld. Morgunin eftir mætti pabbi þeirra og tók börnin hágrát­andi með valdi. „Nágrann­arnir sáu þetta en eng­inn lyfti fingri okkur til hjálpar“.

Send í lögreglufylgd á geðdeild

Næst sá Guðný börnin í byrjun ágúst þegar hún bank­aði upp á hjá pabba þeirra“. Við börnin kyssumst og knús­umst en í því kemur pabbi þeirra, skipar þeim að fara út í bíl og býður mér til stofu. Áður en ég veit af koma tveir lög­reglu­þjónar inn og henda mér blá­edrú og rólegri í gólfið og settu mig í hand- og fóta­járn. Mér var hent í fang­elsi, ásökuð um inn­brot. Daginn eftir mætti borg­ar­læknir og var ég send í lög­reglu­fylgd á geð­deild. Ég komst að því að systkin9 mín höfðu látið svipta mig sjálf­ræði, fólk sem ég varla þekkti. Ég hélt end­an­lega að öll ver­öldin væri orðin brjáluð og var skelf­ingu lostin“.

Vegna lyfj­anna sem Guðný voru gefin á geð­deild þurfti hún að leita til SÁÁ þegar hún losn­aði af deild­inni, enda alls ekki ætluð óvirkum alka­hólista. „Auðvitað hafði ég fengið áfalla­röskun en eng­inn vissi hvað það var árið 1998 á Íslandi. Hún er ekki læknuð hjá geð­læknum heldur er unnið úr henni hjá sál­fræð­ingum. Næstu árin voru svona, ég stóð mig sem hetja, vann og reyndi að nálg­ast börn mín án árang­urs. Systk­inin réð­ust reglu­lega á mig og þá var ég aflífuð í DV, trú­lega af mínum fyrr­ver­andi, sagt að „geð­veik dag­móðir væri að vinna hér í hverf­inu”. Við það missti ég starfs­leyfið og var stimpluð „geð­veika konan”.

Í þokka­bót barði bróðir minn svo illi­lega árið 2005 að ég var heilan vetur að jafna mig.

Held í vonina á meðan hjartað slær

Í dag eru meira en 23 ár síðan að Guðný María missti börnin sín. „Hefði ég dáið frá fjórum börnum, hafði það þótt voða­legt, en ég er eins og rétt­laus þræll eftir að hafa verið tekin frá þeim“.

Ég er að segja frá þessu hér í fyrsta sinn. Það hefur eng­inn fjöl­mið­ill þorað því fyrr. Hvorki systk­ini mín né minn fyrr­ver­andi hafa bætt börnum mínum þennan missi eða reynt að gefa þeim móðir sína að nýju“.

Guðný sýnir blaða­manni myndir af börnum sínum, full ást­úðar og sökn­uðar. Þær skipta hund­ruðum. „Pabbi þeirra vissi að börnin mín voru mér allt og með því að taka þau af mér átti ég ekk­ert. Í dag á ég líka fullt af barna­börnum sem ég fæ ekki að þekkja í sjón. Ég er góð og sam­visku­söm kona en pabbi þeirra hædd­ist að mér þar til þau fóru að gera það líka, jafn­vel tengda­börnin. Á tíma­bili vildi eldri sonur minn hafa „leyni­sam­band” við mig en allt hið góða hefur verið brotið niður, jafn­vel þótt að þau viti betur innst inn.

Ástin mun sigra

Guðný María hjólar áfram, alein í líf­inu og segir enn sé verið að bregða fæti fyrir hana. „Ég er enda­laust sorg­mædd, það er búið að særa mig svo mikið, já og börnin mín líka. Það er búið að taka af þeim traustið, ástin og lífið með mömm­unni sinni sem er svo stór partur af þeim.

Ég hef verið edrú með hjálp AA sam­tak­anna í tæp 40 ár ár, vinn og er í skóla. Alltaf verið þeim til sóma, hvað svo sem er bullað til að rétt­læta glæpa­verkin gegn okkur í Hér­aðs­dómi forðum.

Ég trúi að ástin mun sigra, ást barna minna til mín og mín til þeirra, já, og barna­barn­anna. Ég vil þakka öllum sem lásu sög­una mína hér í Mannlífi og gengu í mínum sporun mínum um stund.

Ég held í von­ina á meðan hjarta mitt slær, það getur eng­inn móðir annað,“ segir Guðný María að lokum.

Viðtalið birt­ist áður í maí. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una