Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”

„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”

Gyða Dís jóga­kenn­ari breytti alger­lega um stefnu fyrir um 20 árum en áður hélt hún sér gang­andi með gosi og súkkulaði. Síðasta ára­tug­inn hefur hún svo gengið skref­inu lengra með því að vera 90 pró­sent á hrá­fæði. „Þrátt fyrir almennt heil­brigt líf­erni er það engin til­viljun að ég umbreytti lífs­háttum mínum fyrir tutt­ugu árum. Ég á þrjá syni ásamt eig­in­manni mínum, drengi sem nú eru orðnir full­orðnir menn, en einn þeirra er með alvar­legan hrörn­un­ar­sjúk­dóm. Andlega er hann alveg heill, mjög greindur og hefur lokið háskóla­námi, en hann þarf aðstoð við allar athafnir dag­legs lífs. Á yngri árum varð hann oft lífs­hættu­lega veikur og ég var löngum stundum hjá honum á spít­al­anum. Á þessum tíma var nóg að hann fengi kvef­pest og það gat haft mjög alvar­legar afleið­ingar. Ég hélt mér gang­andi á gosi og súkkulaði, gat lítið sofið og það tók mik­inn toll af mér. Ég fann að ég var ekki að hugsa nógu vel um sjálfa mig og ákvað að taka málin í mínar hendur svo ég gæti hugsað betur um son minn,“ segir Gyða Dís.

Of mikið álag og lít­ill svefn

Eitt af því fyrsta sem hún gerði var að taka til í matar­æði sínu, hægt og blíð­lega hófst að henda út ákveðnum atriðum í fæð­unni. Það hefur hún gert frá árinu 2009 eða í rúman ára­tug. „Ég er enn á lífi og líður vel, en sumir telja að hrá­fæði gæti varla verið hollt til lengdar. Sér í lagi hér­lendis yfir dimm­ustu og köld­ustu mán­uð­ina. Það er mis­mun­andi hvernig matar­æði hentar hverjum og einum. Við erum öll ólík, en hrá­fæði hentar mér mjög vel. Þegar mér er boðið í veislu tek ég með mér nesti og fæ oft spurn­ingar frá for­vitnu fólki,“ segir hún og hlær. „Fólk vill fá að vita hvað ég er með, vill fá að smakka, og þegar ég varð vör við hversu mörgum finnst það ógur­lega gott sem ég var að borða fór ég að halda nám­skeið þar sem ég kenni fólki að útbúa hrá­fæði. Þetta er sann­ar­lega góm­sætur matur sem ég borða og það kemur mörgum á óvart að ég er algjör súkkulaði­grís. Ég geri súkkulaðið sjálf og hef líka haldið mjög vin­sæl nám­skeið í súkkulaði­gerð,“ segir hún og bendir á blogg­síðu sína, shreeyoga.is. Það er upp­skrift af hrákök­unni sem hún var með á fimm­tugs­af­mæl­inu sínu og allir hafi verið mjög hrifnir af. Gyða Dís seg­ist vera í miklu betra formi núna 56 ára en þegar hún var tví­tug. Bæði and­lega og lík­am­lega. „Yngsti sonur minn segir oft „hvað er að frétta mamma þú ert eins og Benjamin Button.“ Ég yng­ist með árunum,” segir hún og hlær.

Hvernig er matar­æðið?

„Ég er svona 90 pró­sent á hrá­fæði og borða ein­ungis gufusoðið græn­meti og Ayur­vedískan pott­rétt sem sam­anstendur af mung baunum, kínóa eða basmati grjónum og krydd­jurtum sem gerir mér gott. Svona matur er góður fyrir melt­ing­ar­kerfið og sér­stak­lega yfir vetr­ar­tím­ann. Fólk er auð­vitað mjög mis­mun­andi, en melt­ingin skiptir mig máli og ég huga vel að þarma­flór­unni. Síðustu ár hefur Gyða til dæmis borðað meira af súr­káli sem hún gerir sjálf eða kaupir til­búið. Auk þess tekur hún dag­lega inn góð­gerla og hætti ég að drekka kaffi árið 2004. Fyrir hana var mjög auð­velt að hætta ein­hverjum rútínum. En þá var hún greind með svo­kallað Raynards syndrome og þurfti að forð­ast þrjá hluti: Kulda, álag eða streitu og kaffi. Í hennar til­felli var auð­veld­ast að losa sig við kaffið og gekk bara eins og í sögu. En núna síð­asta ár hefur hún­bætt því aftur inn og finnst gott að gera sér ákveðin kaffi­drykk með ýmis­konar super stöffi, en stundum notar hún kaffi eða sleppir því og geri kakó­drykk með þessu stöffi í stað­inn.” ,,Ég hef alltaf verið hrifin af öllu sem kall­ast ofur­fæði “superfood” t.d. Chlorella og Spirul­inu ég ríf hana í mig til að fá aukna orku. Sumum finnst það alger­lega ótrú­legt en þetta er satt ég tygg hana vel hef trú á að hún sé góð fyrir tenn­urnar einnig (held það alla vega )“.

Lang­hlaupar­inn sem varð jógi

Gyða Dís hefur alltaf haft mikla hreyfi­þörf. Hún var lang­hlaup­ari áður en jógað kom inn í líf hennar og breytti öllu. „Ég var lang­hlau-pari áður en ég hellti mér úti jóga­á­stundun. Það má segja að ég hafi hætt að hlaupa á toppnum þegar ég kláraði fal­leg­asta og skemmtile-gasta hlaup lífs míns, Lauga­vegs­hlaupið, sem var 54 km. Á þessum tíma var ég byrjuð að iðka jóga undir hand­leiðslu meist­ara míns, Krist­bjargar Krist­manns­dóttur jóga­kenn­ara. Ég var búin að læra öndun, hug­leiðslu, jóga­sög­una og að iðka Yamas og Niyamas. Árið 2009 hætti ég alveg að hlaupa og kynnt­ist Hot jóga sem kom mér skemmti­lega á óvart,“ segir Gyða Dís. Hún segir að það hafi verið magnað að upp­lifa það að hægt sé að keyra púls­inn upp og auka styrk, já og styrkja beinin sem er svo nauð­syn­legt með jóga­á­stundun. Ég bara fann mig algjör­lega í krefj­andi jóga­stöðum, fann ein­hvern veg­inn hvað jóga átti brjál­æð­is­lega vel við lík­ama minn. Svo fór ég aðeins lengra og rann­sak­aði hvað eða hvernig ég gæti öðl­ast betri reynslu, hvar ætti ég að gera það hér­lendis eða erlendis. Ég fór að sjálf­sögðu til Krist­bjargar í 200 tíma jóga­kenn­ara­nám en mér finnst það í raun vera grunn­ur­inn af öllu jóga hjá mér því það er gott að fara í íslenskan jóga­kenn­ara skóla. Það er öðru­vísi en að læra erlendis sem ég og gerði einnig. Í fram­haldi af rann­sókn minni fór ég alveg á bólakaf í jóga­kenn­ara­nám en hugs­aði það í upp­hafi aðeins fyrir mig sjálfa til að auðga líf mitt, læra tækn­ina í öndun og hug­leiðslu, læra að tækla mig á erf­iðum stundum og kannski líka fyrir fjöl­skyldu mína.“

Mikið mót­læti

Gyða Dís segir að við lendum öll í mót­læti í líf­inu og segir að það sé okkar ákvörðun hvernig við tök­umst á við það. „Ég hef alls ekki sloppið við mót­læti og það hefur þroskað mig og gert mig að þeirri mann­eskju sem ég er í dag. Árið 2015 seldum við fyr­ir­tækið okkar og þá stökk ég í djúpu laug­ina og byrj­aði að vinna 100% sem jóga­kenn­ari og Thai yoga nudd­ari í fullu starfi. Halda nám­skeið og opn­aði litla jóga­verslun sem bæði selur allt til jóga­iðk­unar ásamt fatn­aði og meira til. Í Shree Yoga stúd­íó­inu er hægt að koma í kröft­uga Anusara jóga­tíma, vinyasa­flæði sem ávallt er vin­sæl­ast, Yin & Yang, Inversion eða við­snúnar stöður svo sem hand­stöður, höf­uð­stöður og herða­stöður ofl. Yoga Nidra – Djúp­slökun er alltaf vin­sæl svo og jóga fyrir 60 + þeir eru gríð­ar­lega vin­sælir. Ég kenni í raun allt. Er stöðugt að afla mér meiri og betri þekk­ingu með nám­skeiðum bæði hér­lendis og erlendis. Það sem heillar mig alltaf mest er hvernig lík­am­inn “fún­kerar” lík­ams­stöður, lík­ams­beit­ing eða ANATOMY líf­færa­fræðin. Nú ég ætla bæta enn við mig þar nú í haust. Hjá mér eru einnig krakkar eða ung­lingar úr afreks­hópum fim­leika­fé­lags­ins Gerplu. Þau elska jóga, hug­leiða, anda fara með OM og mön­trur og elska djúp­slökun. Börn og ung­lingar þurfa á jóga sem og við hin hin full­orðnu, allir þurfa á jóga að halda. Ég kenni einnig útí bæ og hef verið fyrir eldri­borg­ara í Kópavogi í sumar svo síð­ustu þrjú árin hjá Sjálfs­björg. Ég er ýmsu kunn og tel mig einmitt mjög færa í að vinna með ein­stak­linga sem glíma við ákveðna hömlun, fötlun eða hreyfi­hömlun. Allir geta stundað jóga, ég full­yrði það.

Lærði í Tælandi

Í jan­úar 2016 hélt Gyða Dís til Tælands þar sem hún náði sér í 200 stunda kenn­ara­rétt­indi í Anusara jóga sem hún kennir mikið í dag. Anusara jóga er jóga hjart­ans, að sjá allt það fal­lega í öllu sem er, sjá það að hver og ein leggur allt sitt í að ástunda og gera það 100% miðað við sína eigin getu og lík­ams­burð.Við erum svo mis­jöfn, hver og einn er ein­stakur eða ein­stök og við verðum að bera virð­ingu fyrir því, bera virð­ingu fyrir lík­ama okkar og læra að elska hann nákvæm­lega eins og hann er.” Í lok októ­ber 2021 er Gyða Dís að byrja með þriðja jóga­kenn­ara námið því jógað er ástríða hennar í líf­inu. Svo fal­legt að deila og leyfa öðrum að upp­lifa dýpt­ina og skiln­ingin. Útskrif­aðir jóga­kenn­arar hafa mikið sótt tíma til mín sem og jóga­kenn­ara­námið. „Ástríðan mín er að kenna jóga, leiða jóga­tíma, leiða fólk áfram inn í mis­mund­andi stöður og jóga snýst ekki endi­lega um að fara í alla vega vindur og fettur og krefj­andi jóga­stöður alls ekki. Það snýst um umbreyt­ing­una í raun og veru. Hver viltu þú vera? Aðal­á­stæðan fyrir þessu er að það er svo gaman að sjá fólkið sitt vaxa og dafna, fylgj­ast með ferða­lag­inu þeirra og þau að takast á við sinn innri mann. Í ken-nara­nám­inu förum við enn dýpra að sjálf­sögðu. Ég hef und­an­farin ár boðið upp á á ýmis­konar jóga­ferðir hér­lendis og erlendis.,,Heilsu­efl­andi Gyð-juferðir” næsta ferð verður 28.októ­ber -31. Október. Þar er gríð­ar­lega mikil viska og lær­dómur sem jóg­arnir öðl­ast, finna sig og bera þessar ferðir oft saman við hinar ýmsar starfs­manna ferðir sem eru í sama til­gangi að bæta líf sitt og þekk­ingu í því sem það starfar við. Í fram­tíð­inni sé ég fyrir mér einmitt að bjóða upp á starfs­manna ferðir einnig. Svo er það jóga­kenn­ara námið sem er hug­ar­fóstur mitt alla daga í raun, er sífellt að mennta mig meira og nú í haust ferð ég í mjög góða anatomy eða líf­færa­fræði kúrsa til að öðl­ast meiri færni og allt nám gerir okkur víð­sýnni. Námið hefst 31.októ­ber með viku­dvöl á dásam­legu stað á Snæ­fells­nesi. Þar er allt til alls, hreinn vegan græn­met­is­matur / plöntu­fæði, hrá­fæði og Ayurveda fæði. Aðstaðan er öll til fyr­ir­myndar ró og kyrrð þannig að nem­inn geti alger­lega “kúp­lað” sig út.

Hvað drífur þig áfram?

„Ástríðan, fyrir öllu því sem ég er að gera. Fólk spyr mig hvernig nennir þú þessu, vakna alla morgna og fara kenna? En jú ástríðan flytur fjöll ásamt kær­leik­anum. Ég geri mitt besta og elska það að fá fólk með ýmis konar vanda­mál og sjá það fá bata, styrkj­ast og verða heil­brigð­ara. Vegna þess að lík­amar okkar eru gerðir til að hreyfa sig, ég er líka mikil Anatomy eða líf­færa “nörd” það skiptir mig miklu meira málið að þú farir rétt í og úr jóga stöð­unni / asana heldur en hvernig þú lítur út í henni. Við erum ekki að stunda jóga til þess aðeins að fara í fal­lega jóga­stöðu. Jóga er svo miklu miklu miklu meira en það. Ég sé sjálfa mig æva gamla kenna jóga fyrir unga sem aldna. Er bjart­sýn á fram­tíð­ina og ef heilsan er í lagi þá er allt annað í lagi. Kannski svona í lokin er vert fyrir hvern og einn að huga að því hvað hann/hún setur ofaní sig eða fóðrar sinn eigin heil­ag­leika eða lík­ama. Snýst svo­lítið um að hlúa að sjálfum sér fara vel með nýrun og lifur og átta sig á því hvaða fæða er raun­veru­lega góð. Í lokin langar mig einnig að segja það að við fæð­umst öll og deyjum öll. En stóra spurn­ingin er hvernig þú ferð­að­ist um lífið frá upp­hafi til enda. Öll opnum við hliðið á fal­lega garð­inum, með fal­legum blómum, trjám, steinum vatni ofl. Flugur og fuglar. En þá er spurn­ingin hvernig við ferð­umst í gegnum lífið og sjáum við feg­urð­ina í öllu sem er. Taka eftir og átta sig á því að allir eiga rétt á ham­ingj­unni og allir geta verið ham­ingju­samir. Hver sem þú ert og hvernig sem þú lítur út. Hættum að bera okkur saman við aðra það eina sem vert er að gera er að bera sig við þig sjálfa/n. Búm­er­angið: hugsa fal­legar hugs­anir, tala fal­lega og gera góð­verk.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una