Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigurbjörn Árni fór í lyfjahlé fyrir Ólympíuleikana: „Ég er fúll yfir því að vera með sortuæxli“

Sigurbjörn Árni fór í lyfjahlé fyrir Ólympíuleikana: „Ég er fúll yfir því að vera með sortuæxli“
Sig­ur­björn Árni Arn­gríms­son

Sig­ur­björn Árni Arn­gríms­son, skóla­stjóri Fram­halds­skól­ans á Laugum, greind­ist í febr­úar með fjórða stigs sortu­æxli. Hann hafði árið 2013 tekið eftir fæð­ing­ar­bletti á öðrum hand­leggnum sem honum fannst vera grun­sam­legur en lét ekki athuga hann fyrr en tveimur árum síðar. Blett­ur­inn var þá fjar­lægður og settur í ræktun og kom í ljós að þetta væri sortu­æxli. Sig­ur­björn fór í kjöl­farið í stærri aðgerð þar sem eitlar í hol­hönd­inni voru fjar­lægðir og næstu árin fór hann reglu­lega til húð­sjúk­dóma­læknis til að fylgj­ast með blettum og voru nokkrir fjar­lægðir til öryggis.

Það var svo eftir síð­ustu ára­mót sem honum leið eins og hann væri með maga­kveisu. „Einn morg­un­inn í jan­úar var eins og eitt­hvað hefði poppað út úr kviðnum á mér í belt­is­stað vinstra megin. Ég hélt að þetta væri kvið­slit. Ég var alltaf að kenna á fimmtu­dögum og læknar sem hingað koma komu einnitt á fimmtu­dögum og ég lét ekki kíkja á þetta fyrir en þremur til fjórum vikum síðar. Ég var svo sendur í mynda­töku og kom í ljós að ég væri fullur af æxlum. Þetta var á föstu­degi og það var svo­lítið töff inn í helg­ina. Það kom svo í ljós að þetta sem kom út úr kviðnum reynd­ist vera sortu­æxli sem hafði tekið sér ból­festu í fitu­vefnum á mér undir húð­inni og hafði svo vaxið út í gegnum band­vef­inn og spratt þar af leið­andi fram út undan húð­inni. Þetta var góð kúla sem kom þarna yfir nótt.“

Ég var svo sendur í mynda­töku og kom í ljós að ég væri fullur af æxlum.

Reglu­legt tékk síð­ustu ár til að fylgj­ast með blettum á húð­inni eftir að sortu­æxlið á hand­leggnum hafði verið fjar­lægt. Sig­ur­björn er spurður hvort aldrei hafi verið boðið upp á mynda­töku í tengslum við það eft­ir­lit. „Ég spurði lækni að þessu og sam­kvæmt bók­inni þá er þetta talin vera eðli­leg með­ferð og almennt við­ur­kennd. Það er hægt að spyrja hvað sé for­svar­an­legt varð­andi skann­anir en það er allta einn sem dregur stutta stráið eins og ég og það er ekk­ert gaman. Kunningi minn fékk sortu­æxli fyrir 10 árum og var í eft­ir­liti næstu árin og allt í góðu. Svo greind­ist hann í vor með 13 æxli í höfð­inu og hann dó í sumar. Þetta voru sortu­æxli. Þetta getur gerst og sumir eru óheppnir. Það er bara þannig.“

Sortu­æxli eru tengd við mikil sól­böð og ljósa­bekkja­notkun og segir Sig­ur­björn að hann hafi mikið farið í ljósa­bekki þegar hann var ung­lingur og að hann hafi mikið legið út í sól­inni þegar hann bjó í Banda­ríkj­unum á sínum tíma.

Skítadíll

Þegar Sig­ur­björn er spurður um stöð­una í dag þá seg­ist hann von­ast til að hún sé góð. „Ég fór í skanna í júlí­byrjun og þá höfðu æxlin minnkað aðeins nema æxli í höfð­inu á mér; það hafði ekk­ert breyst. Þá fór ég reyndar í lyfja­hlé svo ég kæm­ist á Ólymp­íu­leik­ana og yrði ekki þreyttur þar,“ segir hann en hann hefur meðal ann­ars unnið sem íþrótta­lýsandi. „Ég hef ekki farið í skanna síðan. Svo varð ég eftir að heim kom stress­aður yfir því að þetta lyfja­hlé hafi kannski ekki verið snið­ugt. Ég bara verð að treysta því að þetta haldi allt áfram í sömu átt. Ég veit ekki hvenær ég fer næst í skanna; það hefur ekki verið rætt.“

Hann segir þetta vera skíta­díl. „Ég er fúll yfir því að vera með stortu­æxli og hugs­an­lega lifa ekki mjög lengi. Þetta er bara óheppni. Ég verð stundum leiður og dapur. Ég vakna stundum á næt­urna og er eitt­hvað að velta þessu fyrir mér og stundum fer haus­inn á mér á flug. En ef maður hefur nóg að gera þá hefur maður um annað að hugsa. Það hjálpar manni ekk­ert að velta sér upp úr þessu.

Ég verð stundum leiður og dapur.

Sumir verða blindir og aðrir missa fót. Þeir sem grein­ast með sortu­æxli lifa ekki lengi. Það er talað um 11 mán­uði sem miðl­uns­gildi varð­andi fram­gang sjúk­dóms­ins; sumir lifa skemur en aðrir lengur. Það er alltaf einn af hverjum fimm eða sex sem eru lif­andi eftir fimm ár. Ég veit um mann sem hreins­að­ist af þessu. Það verður örugg­lega sjokk ef myndir sýna fram á að þetta hafi stækkað og sé að sækja í sig veðrið. En þá verður að díla við það. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég muni ekki leiða dóttur mína til alt­aris ef hún giftir sig og hvort ég verði aldrei afi; þetta er samt fjar­læg fram­tíð af því að ég á það unga krakka. Annars reyni ég að vera kátur. Ég er frekar léttur.“

Vara sig á sólböðum og ljósabekkjum

Sig­ur­björn segir að það sem fari mest í taug­arnar á sér sé hvað hann verður þreyttur; segir að það teng­ist frekar lyfja­gjöf­inni heldur en sjúk­dómnum sjálfum. „Ef ég er að fara í girð­inga­vinnu eða að moka skít þá eru þetta þrír til fjórir tímar og þá er ég bara búinn. Ef ég verð þreyttur þá verð ég ónýtur í nokkra daga á eftir þannig að ég verð að hætta áður en ég verð þreyttur,“ segir skóla­stjór­inn sem í fyrra­haust tók við ásamt bróður sínum búi for­eldra þeirra en bróðir hans sér almennt um rekst­ur­inn þótt Sig­ur­björn hjálpi stundum til á kvöldin og um helgar. Þeir eru með um 90 kindur og 35 hesta. Annars er hann mest í skól­anum þar sem nem­endur eru um 100 þar sem er oft mikið fjör. „Ég held að Fram­halds­skól­inn á Laugum sé góð við­bót við fram­halds­skólaflór­una. Dreif­býlið er mik­il­væg und­ir­staða og það þarf að gefa ungu fólki kleift að búa í dreif­býli og þá er ég ekki að tala um Laugar eða nágrenni þar sem við búum nálægt Akureyri. Ég á við aðra staði víða um land. Það væri í lagi að hvetja ungt fólk til að búa úti á lands­byggð­inni.“

Sig­ur­björn elskar nátt­úr­una, talar um ferska loftið og frelsið.

Og hann elskar lífið.

Hann talar um lær­dóm­inn af veik­ind­unum. Hann nefnir fyrst hve nauð­syn­legt það sé að passa sig á sól­böðum og ljósa­bekkjum og bætir svo við að fólk eigi ekki að fresta hlut­unum. „Það er ekki víst að það komi morg­un­dagur eða annað ár til að fram­kvæma hlut­ina. Ég hef líka kannski lært eitt­hvað æðru­leysi.“

Hann seg­ist ekki ótt­ast dauð­ann og seg­ist ekki hafa velt honum mikið fyrir sér. „Ég hef trú á því að ég hafi breytt þannig að ég kom­ist upp til Guðs. Til himna. Ég reikna með eft­ir­lífi; svo getur vel verið að sú mæli­stika sem ég hef um mínar gjörðir sé allt önnur en þeirra sem eru hinum megin.“

Það er ekki víst að það komi morg­un­dagur eða annað ár til að fram­kvæma hlut­ina. Ég hef líka kannski lært eitt­hvað æðru­leysi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina