Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ingólfi krossbrá er Stöð 2 sýndi klámið hans: „Mér finnst þetta pirrandi“

Ingólfi krossbrá er Stöð 2 sýndi klámið hans: „Mér finnst þetta pirrandi“
Ingólfur Valur Þrast­ar­son

Í gær­kvöldi var sýnt á Stöð 2 brot úr kyn­lífs­mynd­bandi Ingólfs Vals Þrast­ar­sonar sem hefur und­an­farna mán­uði komið fram í slíkum mynd­böndum sem sýnd og seld eru á síð­unni OnlyFans og þarf fólk að kaupa mynd­böndin til að sjá þau.

Áhorf­endur Stöðvar 2 sáu því inn í þennan heim Ingólfs sem ann­ars er læstur. Hann vissi ekki að sýna ætti þetta brot úr mynd­band­inu. „Ég las færslu einnar stelpu á Twitter sem sagði þar að það hefði verið að sýna klám í Íslandi í dag á Stöð 2 og að um væri að ræða OnlyFans-stjörnur. Þetta kom svo­lítið aftan að mér. Ég skal alveg við­ur­kenna það.“

Hann er spurður hvort hann sé sár. „Bæði og. Mér finnst vera pirr­andi að hafa ekki vitað af þessu fyrir fram en ég er samt ekk­ert á móti þessu þannig. Ég bjóst ekki við þessu.“

Þessi 25 ára gamli maður, sem sýnir meira af sér í netheimum heldur en fólk gerir almennt, ólst upp í Reykja­vík og dreymdi sem strákur um að verða flug­maður eða trukka­bíl­stjóri. Hann dreymdi líka um að semja tón­list og finna ýmis­legt upp; verða upp­finn­inga­maður. „Mig lang­aði til að búa til eitt­hvað kúl. Svo þegar ég varð eldri þá sá ég fyrir mér að ég myndi fara út í það sem ég er að gera í dag,“ segir Ingólfur Valur sem fékk snemma áhuga á kyn­lífi og klámi. Hvað með fyrsta koss­inn? Hann var 12 ára og hann missti svein­dóm­inn 13 ára gam­all en fjöl­skyldan bjó í Danmörku á þessum tíma. Hann var mont­inn af árangrinum í bólinu og sagði öllum frá í skól­anum sem heyra vildu.

Starfs­menn skól­ans fréttu af bólfimi Íslend­ings­ins og var hann sendur á fund með Barna­vernd­ar­nefnd þar sem athugað var hvort hann og ból­fé­lagi hans, stelpa sem var ári eldri, höfðu bæði verið sam­þykk og væru með­vituð um hvað þau voru að gera. Svo var.

Hann var 13 ára þegar hann missti svein­dóm­inn.

Ingólfur Valur er spurður hvaða áhrif það hafði á hann að fyrsta kyn­lífs­reynsla hans hafi ratað á borð hins opin­bera. „Ég vissi ekk­ert hvað ég var að gera.“

Hann fór að horfa á kyn­líf og klám í tölv­unni og seg­ist hafa verið opn­ari um þessi mál heldur en félagar sínir. „Mér fannst aldrei vera neitt mál að opna mig um kyn­líf og aldrei vera feimn­is­mál. Ég próf­aði alls konar hluti. Ég var til dæmis með stelpu frá Banda­ríkj­unum sem var stripp­ari og ég var með stelpu frá Ástralíu sem er kenn­ari. Ég er búinn að vera með alls konar stelpum. Ég kynnt­ist sjálfum mér mikið þegar ég var með banda­rísku stelp­unni og opn­aði kannski meira fyrir hugs­anir sem ég hafði verið að setja til hliðar og ég átt­aði mig á því að mig lang­aði til að vinna við þetta.“

Hann tal­aði um alls konar stelpur. Hann seg­ist ekki vita hvað hann hafi sofið hjá mörgum. 50? „Meira.“ Hann segir að hann hafi alla tíð haft það í huga að báðir aðilar séu edrú.

Hvað með öryggi í kyn­lífi? „Ég fer reglu­lega í tékk. Ef ég hef sofið hjá stelpum sem ég hef ekki þekkt nógu vel þá hef ég notað verju. Varðandi vinn­una mína þá fara allir í tékk áður en við vinnum saman. Þetta eru bara örygg­is­ráð­staf­anir.“ Talið berst að öryggi í kyn­lífi almennt og segir Ingólfur Valur að sér finn­ist að fólk sem er að byrja í sam­bandi eigi ekki að vera óhrætt við að biðja nýja mak­ann um að fara í kyn­sjúk­dómatékk. „Mér finnst vera ólík­legt að fólk geri það af því að þetta hefur verið tabú. Fólk getur jafn­vel farið saman í tékk og gert úr þessu lítið deit. Mér finnst vera sjálf­sagt að fólk geri þetta og fólk á að ekki að líta svo á að þetta sé eins og árás á það; miklu frekar að hinn aðil­inn vilji vera öruggur. Svo er gott fyrir þann sem spyr að vita líka hvort hann sé laus við kyn­sjúk­dóma með því að fara líka í tékk. Ég veit um fólk sem hefur farið í sam­band og svo hefur komið í ljós að báðir aðil­arnir voru komnir með klamidíu sem annar aðil­inn hafði verið með í byrjun sam­bands­ins.“

Fólk getur jafn­vel farið saman í tékk og gert úr þessu lítið deit.

Ingólfur Valur telur að mynd­böndin á OnlyFans séu orðin um 50. „Ég hef alltaf verið svo­lítið lengi að koma mér í gang eftir að ég byrj­aði að vinna við þetta; ég vil kynn­ast stelp­unum áður en ég sef hjá þeim.“ Hann segir að stelp­urnar séu fimm sem hann hefur verið með í upp­tökum á þessum tíma.

Hann er spurður hvað það gefi honum að birta kyn­lífs­mynd­bönd af sér á net­inu. „Ég veit það ekki. Fyrir mér er þetta bara vinna og mér finnst þetta vera skemmti­legt. Og ef fólk vill horfa þá er það geggjað. Ég fæ að kynn­ast sjálfum mér mikið betur finnst mér. Ég fæ að læra mikið inn á sjálfan mig og hvað ég fíla og hvað ég fíla ekki. Mér finnst það vera mjög næs.“

Hann við­ur­kennir að það sé tabú í þjóð­fé­lag­inu að tala um kyn­líf. „Fólk vill ein­hvern veg­inn dæma allt,“ Ingólfur Valur sem hefur upp­lifað for­dóma af og til eftir að hann fór að vinna við þetta. „Stelp­urnar hafa til dæmis verið kall­aðar hórur. Það er eng­inn að selja sjálfan sig. Við erum að selja mynd­bönd af því sem við erum að gera með hvort öðru. Við erum að sofa hjá fólki sem við viljum sofa hjá. Það er ekki talað um kyn­líf á sumum heim­ilum en mér finnst að for­eldrar ættu að opna á þessa umræðu pínu meira heldur en er gert; ekk­ert endi­lega „full on“ heldur bara aðeins meira. Mér finnst vera mik­il­vægt að strákar viti hvað „nei“ þýðir og líka stelpur og líka hvað er að fara yfir mörk og hvað er ekki að fara yfir mörk. Það er eitt­hvað sem mér var kennt.“

Það er eng­inn að selja sjálfan sig.

Ingólfur Valur er í dag á föstu með Ósk Tryggva­dóttir sem einnig birtir myndönd af sér á OnlyFans. Hann segir að áður fyrr hafi hann ekki þurft að tengja róm­an­tík við kyn­líf en að hann geri það í dag. „Mér finnst það vera allt öðru­vísi í dag heldur en þegar ég var með ein­hverri stelpu sem ég þekkti ekki þannig að róm­an­tík skiptir mig máli í dag.“

Hann dreymir um að flytja til útlanda og fara í nám tengt tón­list og lifa svo þægi­legu lífi erlendis í fram­tíð­inni og búa rétt við strönd. Hann seg­ist ekki telja að hann muni sjá eftir því sem faðir og afi að hafa tekið þátt í kyn­lífs­upp­tökum. Hvað með blauta drauma? „Það er sjald­gæft að mig dreymi blauta drauma en það ger­ist stundum. Mig dreymdi ein­hvern tím­ann Ósk. Við vorum í ein­hverju þorpi og ég held að löggan hafi verið á eftir okkur. Svo allt í einu var Ósk stand­andi upp við vegg og áður en ég vissi af var þetta orðin kyn­lífs­sena. Þetta var mjög skrýtið.“ Hann segir að hann hafi vaknað áður en hann vissi hvort lög­reglan hefði náð þeim eða ekki.

Lítur hann á sig sem klám­stjörnu? „Ég lít á karakt­er­inn minn á OnlyFans, Wakeuplaid, sem klám­stjörnu. Annars er ég bara Ingólfur, mjög rólegur og fynd­inn; eða ég veit það ekki.“

Hann er í lokin spurður hvort hann vilji taka eitt­hvað sér­stakt fram. „Ég vil taka aftur fram að það er í lagi að biðja mak­ann um að fara í kyn­sjúk­dómatékk. Þetta á ekki að vera feimn­is­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una