Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kjartan Darri leikari var við dauðans dyr: „Ekki oft sem ég hafði séð pabba minn gráta“

Kjartan Darri leikari var við dauðans dyr: „Ekki oft sem ég hafði séð pabba minn gráta“

Kjartan Darri Krist­jáns­son fær skila­boð á Messen­ger frá blaða­manni. Er hann til í við­tal? Hann svarar á Messen­ger:

„Já, ég er á ferða­lagi um landið, með leik­sýn­ingu, er að fara um borð í Baldur á eftir. En það er senni­lega sam­band alla leið! Þú bjallar bara og við vonum að sam­bandið haldi.“

Baldur siglir rúmum klukku­tíma síðar frá höfn í Stykk­is­hólmi og um Breiða­fjörð­inn með eyj­arnar ótelj­andi og þá er leik­ar­inn til­bú­inn í við­tal. Haust­sólin skín á fjörð­inn fagra.

Sýningin sem hann nefndi er leik­ritið Vloggið eftir Matthías Tryggva Har­alds­son og er á vegum Þjóð­leik­húss­ins. „Sýningin er fyrir nem­endur í 8. 9. og 10. bekk. Ég og Þórey Birg­is­dóttir leikum og Ásta Jónína Arn­ar­dóttir er tækni­maður sýn­ing­ar­innar. Við ökum á Þjóð­leik­hús­bílnum hring­inn í kringum landið; við erum reyndar búin að fara heilan hring og það má segja að við endum á að fara einn og hálfan hring. Við Þórey leikum ungt fólk sem er að reyna fyrir sér í vlogg­brans­anum og vilja verða Youtube-stjörnur. Karakt­er­arnir Sirrý og Konráð fara nýstár­lega leið að því; þau velja for­varnir sem ein­hvers konar efni­við til að heilla pöp­ul­inn, ná athygli þeirra og verða fræg. En það sem þau vita ekki er að „kontentið” þeirra er ekk­ert sér­stak­lega áhuga­vert, fyrir utan það hvað þau virð­ast hafa tak­mark­aða vit­neskju um for­varnir.“

Processed with VSCO with hb2 preset

Við dauðans dyr

Kjartan Darri ólst upp í Vest­ur­bænum í Reykja­vík og gekk í Mela­skóla og síðan Haga­skóla. Hann fékk ungur áhuga á leik­list.

„Ég tók alltaf mik­inn þátt í félags­líf­inu í skól­anum. Áhuginn á að koma fram var kannski fyrst bund­inn við skól­ann og félags­lífið þar. Mér fannst alltaf mjög gaman að koma fram á skóla­skemmt­unum og svo var svo mikil gleði og spenn­ingur þegar maður var að búa til atriðin með bekkj­ar­fé­lögum sínum. Ég myndi kannski ekki segja að ég hafi verið athygl­is­sjúkur en mér fannst mjög gaman að koma fram, standa á sviði með vinum sínum og skemmta fólki.“

Darri fór í Mennta­skól­ann í Reykja­vík. Bróðir hans hafði farið í MR og tekið þátt í Herra­nótt og Darra fannst það vera heill­andi og tók þátt í leik­sýn­ingum Herranætur öll árin sem hann var í skól­anum.

Hann fór á fyrsta ári í MR að finna fyrir félags­kvíða sem var svo slæmur að hann leit­aði sér hjálpar sál­fræð­ings. „Ég, eins og við öll gerum ein­hvern tím­ann, fór að hafa áhyggjur af því hvað fólki fannst um mig, fékk algjöra þrá­hyggju um hvernig ég kæmi öðrum fyrir sjónir. Það að velta því fyrir sér hvað fólk sé að hugsa um mann er hola sem eng­inn ætti að fara of djúpt ofan í. Það er oft­ast algjör­lega til­gangs­laust að vera að velta því fyrir sér hvað öðrum finnst um mann. Ég vildi tala við sál­fræð­ing, ein­hvern sem gæti sagt mér hvað væri að ger­ast og af hverju hugs­anir mínar væru að bera mig ofur­liði.

Sál­fræð­ing­ur­inn, sem ég hitti bara einu sinni, útskýrði þetta frá­bær­lega fyrir mér og sagði að ég gæti auð­veld­lega unnið bug á þessum kvíða sjálfur með því að ögra mér, stíga inn í aðstæður sem mér þætti óþægi­legar. Það er gott að ögra sér; ef maður er hræddur við eitt­hvað þess þá heldur. Það er nauð­syn­legt að stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann, það gerir manni bara gott. En þessi kvíða­glíma var klár­lega eitt­hvað sem breytti mér á end­anum til betri manns á sínum tíma og kenndi mér margt.“

Það er gott að ögra sér; ef maður er hræddur við eitt­hvað þess þá heldur.

Erf­ið­leik­arnir voru fleiri á þessum tíma en Kjartan Darri var 16 ára þegar hann veikt­ist alvar­lega af heila­himnu­bólgu og var í lífs­hættu um tíma. „Ég lá inni með heila­himnu­bólgu af völdum bakt­er­íu­sýk­ingar en þetta getur dregið fólk til dauða ef ekk­ert er gert. Ég held ég hafi ekki áttað mig á alvar­leika máls­ins fyrr en ég kom heim af spít­al­anum á aðfanga­dag en þá brast pabbi í grát og knús­aði mig. Það var ekki oft sem ég hafði séð pabba minn gráta. Þetta var magnað móment; ég að hugga pabba minn.

Ég var síðan boð­aður í rann­sókn en það var verið að rann­saka fólk sem hafði fengið heila­himnu­bólgu. Það var verið að athuga alls konar, ég fór meðal ann­ars í jafn­vægis­próf og heyrnar- og sjón­próf. Maðurinn sem sá um þetta sagð­ist þurfa að segja mér hvað ég væri hepp­inn; ég var fyrsti ein­stak­ling­ur­inn sem hann tók á móti þann dag­inn sem kom gang­andi inn. Ég hugs­aði dálítið um þetta eftir á. Svo má líka minna sig á hvað maður er hepp­inn að búa í sam­fé­lagi með gott heil­brigð­is­kerfi og kannski líka hvað við erum heppin að Alex­ander Fleming hafi óvart fundið upp pensi­línið.“

Kjartan Darri segir að það að hafa glímt við kvíða og svo að vera við dauð­ans dyr vegna heila­himnu­bólgu hafi haft þau áhrif að hann finni fyrir meiri auð­mýkt en ella og sé ein­læg­ari. „Þetta eru kostir sem ég hef reynt að temja mér í gegnum tíð­ina. Og það skiptir máli að muna að staldra aðeins við, slaka á í öxl­unum, njóta, brosa og knúsa fólk inni­lega.“

Maðurinn sem sá um þetta sagð­ist þurfa að segja mér hvað ég væri hepp­inn; ég var fyrsti ein­stak­ling­ur­inn sem hann tók á móti þann dag­inn sem kom gang­andi inn.

Gaf hestinum að éta

Jú, það var gaman að fá að taka þátt í upp­setn­ingum Herranætur á mennta­skóla­ár­unum. Leik­listin og leik­húsin heill­uðu svo mikið að Darri sótti um á leik­list­ar­braut Lista­há­skóla Íslands árið 2010 en komst ekki inn. Þá fór hann læra spænsku við Háskóla Íslands og tók þátt í upp­setn­ingum Stúd­enta­leik­húss­ins á sama tíma. „Svo fékk ég inni í leik­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands árið 2012.“ Hann var þá 22 ára. „Ég vann á þessum tíma mikið sem tækni­maður hér og þar. Ég byrj­aði ungur sem ljósamaður í Íslensku óper­unni og var líka eitt­hvað að vinna í Þjóð­leik­hús­inu og Loft­kast­al­anum og svo var ég umsjón­ar­maður tækni­mála hjá Iðnó. Mér líður ein­stak­lega vel í leik­húsum; þetta eru svo dýr­mætir staðir. Það er góður andi í þessum húsum og svo eru líka svo skemmti­legar sögur sem fylgja leik­hús­unum.

Ég var einu sinni að vinna sem tækni­stjóri á ein­leikja­sýn­ing­unni Hún Pabbi sem var sýnd á Act Alone á Suð­ur­eyri. Tækni­maður húss­ins kom inn og spurði hvort ég væri ekki örugg­lega búinn að gefa hest­inum. Ég spurði hvað hann ætti við. Hann fór svo með mig í sjopp­una í leik­hús­inu og lét mig kaupa súkkulaði­stykki. Svo fórum við bak­sviðs og niður í kjall­ara og þar lá sæl­gæt­is­hrúga í ein­hverri kompu. Ég átti að setja súkkulaðið þar og „gefa hest­inum”. Ég man ekki hversu gömul hjá­trú þetta var en það þurfti sem sagt að gefa hest­inum áður en maður fór að vinna því ann­ars myndi maður eiga hættu á að slasa sig. Maðurinn sagði mér sögur af öðrum tækni­mönnum sem gleymdu að gefa hest­inum og bíða þess ekki bætur. Ég er ekk­ert mjög hjá­trúa­fullur en ég ætl­aði ekk­ert að láta reyna á það og gaf þessum hesti með glöðu geði.“

Grímuverðlaunahafi

Darri hefur tekið þátt í mörgum spenn­andi verk­efnum eftir útskrift frá Lista­há­skóla Íslands vorið 2015. Hann fór að vinna hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar strax eftir útskrift og lék meðal ann­ars í verk­unum Pílu Pínu og Helga magra. Þá hefur hann tekið þátt í fjölda sýn­inga sjálf­stæðra leik­hópa sem leik­ari og einnig sem vídeó-, hljóð- og ljósa­hönn­uður. Darri var árið 2017 til­nefndur til Grímu­verð­launa fyrir lýs­ingu árs­ins í sýn­ing­unni Þór­bergur sem var sett upp í Tjarn­ar­bíói. Hann fær æ fleiri tæki­færi til að koma fram sem leik­ari og er nú árs­ráð­inn hjá Þjóð­leik­hús­inu. Á síð­asta leik­ári og núna í haust leikur hann í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins í sýn­ing­unni Kaf­bát­ur­inn en fyrir þá túlkun fékk hann Grímu­verð­launin sem leik­ari árs­ins í auka­hlut­verki.

Á síð­asta leik­ári og núna í haust leikur hann í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins í sýn­ing­unni Kaf­bát­ur­inn en fyrir þá túlkun fékk hann Grímu­verð­launin sem leik­ari árs­ins í auka­hlut­verki.

„Þetta er frá­bær við­ur­kenn­ing og minnir mann á hvað það eru mikil for­rétt­indi að vera að vinna við það sem maður elskar. Svo styrkir þetta mann í þeirri trú að maður sé á réttri hillu og sé von­andi að gera góða hluti, það er voða­lega ánægju­legt.“

Hvað er svo fram undan? „Vloggið heldur áfram á sinni veg­ferð um landið og endar svo á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins þar sem við tökum á móti elstu grunn­skóla­nemum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Svo verð ég með í leik­rit­inu um Láru og Ljónsa, sýn­ingu fyrir okkar allra yngsta og mik­il­væg­asta fólk, og eftir ára­mót leik ég í söng­leiknum Sem á himni sem er að slá í gegn um heim all­ann og gerir örugg­lega hér á Íslandi.“

Þörfin fyrir að segja sögur

Darri gaf hest­inum og lukku­dís­irnar virð­ast fylgja honum í leik­hús­heim­inum. Hvað heillar hann við þennan heim svo mikið að hann vildi gera þetta jafn­vel að ævi­starfi? „Það er þessi þörf að segja fólki sögur og gefa fólki ein­hvers konar upp­lifun. Ég held að það sem heldur manni fast­ast í þessu starfi sé fólkið sem maður er að vinna með og ég held að það hafi verið þannig alveg frá því ég var í grunn­skóla. Ég eign­að­ist marga af mínum bestu vinum í öllu þessu stússi í Herra­nótt og Stúd­enta­leik­hús­inu. Svo heldur maður bara áfram að kynn­ast fleira fólki og vinna með alls konar hæfi­leik­a­ríku og skap­andi ein­stak­lingum sem víkka í manni hug­ann og stækka hjartað.“

Baldur siglir á firð­inum fagra og í gegnum tækin heyrst brak þegar hann klýfur öld­urnar. Þarna ger­ast ævinýrin alveg eins og á svið­inu. Þarna ræt­ast jafn­vel draumar. Hvað með draum­inn varð­andi leik­húsið?

„Æðsti draum­ur­inn er að geta skapað sína eigin list og setja eitt­hvað á svið eða á filmu úr mínu eigin hug­ar­tetri. Það væri nátt­úr­lega draum­ur­inn. En svo má líka tala um draum eins og að eiga heima í kast­ala sem væri líka leik­hús og maður gæti alltaf verið að skapa eitt­hvað. En það ger­ist senni­lega aldrei.. nei.. aldrei að segja aldrei, kannski ræt­ist það.“

Æðsti draum­ur­inn er að geta skapað sína eigin list og setja eitt­hvað á svið eða á filmu úr mínu eigin hug­ar­tetri.

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una