Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sorgir og draumar Dagbjartar Rúriks: ,,Ég var mjög kvíðinn unglingur og leitaði í áfengið“

Sorgir og draumar Dagbjartar Rúriks: ,,Ég var mjög kvíðinn unglingur og leitaði í áfengið“

Tón­list­ar­konan Dagbjört Rúriks­dóttir eða DIA eins og hún kallar sig sett­ist niður í spjall við Mannlíf á dög­unum. Þar sagði hún frá sigrum sínum, sorgum og draumum. Tón­listin á hennar hug og hjarta.

Dagbjört gaf út fyrsta lagið sitt árið 2018 en hún byrj­aði að semja lög og texta árið 2015.
Ellefta lag Dag­bjartar, It‘s in the stars, kemur út 1.októ­ber næst­kom­andi og segir hún það örlítið frá­brugðið því sem hún er vön:

,,Það er svo­lítið svona poppað.‘‘

Dagbjört segir að hún semji lög og texta út frá eigin reynslu og líðan:

,,Ég er mikið meiri sögu­maður heldur en lag og texta höf­undur,‘‘ segir hún hlæj­andi.

Aðspurð hvort hún eigi sér ein­hverja fyr­ir­mynd í tón­list­inni segir hún ekki svo vera. Hún reyni ekki að vera eins og ein­hver annar heldur bara hún sjálf:

,,Mér hefur stundum verið líkt við Cranberries og Emiliönu Torrini, kannski er ég bara svo­lítið eins og blanda af þeim,‘‘ bætir Dagbjört við.

Í dag er Dagbjört ham­ingju­söm og spennt að sjá hvað fram­tíðin ber í skauti sér. Þannig hefur það þó ekki alltaf verið en Dagbjört kynnt­ist áfengi sextán ára gömul:

,,Ég var mjög kvíð­inn ung­lingur og leit­aði í áfengið.‘‘

Áföll sem Dagbjört varð fyrir snemma á ung­lings­ár­unum komu til með að móta næstu ár í lífi hennar.

Hún segir að drykkjan hafi færst í auk­ana eftir að hún varð eldri og að hún hafi í kjöl­farið byrjað að reykja gras. Virkir dagar hafi ein­kennst af þrá­hyggju og bið eftir næstu helgi.
Dagbjört segir að hún hafi byrjað að drekka um níu á föstu­dögum, og verið byrjuð að nota fíkni­efni þegar leið á kvöldið, stundum fram á næsta morgun.

Eftir níu ára helg­ar­neyslu hafi hún rankað við sér og hugsað:

,,Ég er bara orð­inn fík­ill‘‘

Dagbjört vissi að það væri tvennt í stöð­unni, halda áfram á þess­ari slæmu braut eða fara í AA. Hún tók sporin í gegnum AA og syngur nú í kirkju og er í gospelkór. Dagbjört seg­ist loks­ins geta gert alla þessa hluti og stefnt að mark­miðum vegna þess að hún hafi sagt skilið við neysl­una. Fagnar hún tveggja ára edrú­mennsku þann 2. des­em­ber og brosir út að eyrum.

Dagbjört átti í ást­ar­sam­bandi við pilt sem glímdi við sömu vanda­mál og hún, en hún sleit sam­band­inu á síð­asta ári. Hún hafi alltaf haldið í von­ina að hann myndi fara sömu leið og hún, verða edrú og lifa góðu lífi vímu­efna­laus.

En aðeins mán­uði eftir að Dagbjört sleit sam­band­inu lést pilt­ur­inn.
Dagbjört hefur samið þrjú lög sem hún til­einkar honum og er ljóst að hann hafi haft mikil áhrif á hana. Minnist hún hans fal­lega í lög­unum.

Í dag eyðir Dagbjört miklum tíma í stúd­íó­inu og í skól­anum. Hún er í söng­námi og stefnir á leik­list­ar­nám sem henni hefur lengi þótt áhug­vert.

Dagbjört segir að af öllum tón­list­ar­mönnum myndi hún helst vilja vinna með Bubba Morthens en henni þyki Bríet og Salka Sól líka frá­bærar söng­konur.

Dagbjört hefur unun að sjó­sundi og er mikið nátt­úru­barn. Þá er fátt sem toppi gott pasta eða naut með berna­ise, helst mikið segir hún og hlær.

Hún er þakk­lát fjöl­skyldu sinni sem hefur stutt hana í gegnum allt, bæði erf­iða og góða tíma. Þá geti hún alltaf treyst á að fá hrein­skilið álit bróður síns á tón­list­inni.

Aðspurð hver fyr­ir­mynd Dag­bjartar sé er því fljótsvarað:

,,Mamma!‘‘

Það verður spenn­andi að fylgj­ast með Dag­björtu. Hún er svo sann­ar­lega ekki hrædd við að elta draumana og lofar nýja lag hennar It‘s in the stars virki­lega góðu. Alla tón­list hennar má nálg­ast á Spotify og Youtube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina