Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lára tónlistarkona fékk kvíðakast á Gatwick-flugvelli: „Ég endaði upp í rúmi í krassi“

Lára tónlistarkona fékk kvíðakast á Gatwick-flugvelli: „Ég endaði upp í rúmi í krassi“

„Að finna jafn­vægið, en ég leita að jafn­vægi í öllu. Jafn­vægið er bara sífelldur dans og maður staldrar stutt við í miðj­unni án þess að detta. En í dans­inum fel­ast töfr­arnir.“

Lára Rún­ar­dóttir tón­list­ar­kona, kynja­fræð­ingur og eig­andi MÓA studio í Bolholti 4, kláraði nýverið sjö­undu sóló­plötu sína sem kemur út með vetr­inum. Lára kom í stutt og ein­lægt spjall.

Lára úskýrir fyrir okkur að mest­allur tím­inn og ástríða hefur farið í að skapa fal­legan grið­ar­stað í hjarta Reykja­víkur. Stað­ur­inn miðar að því að færa meira umburð­ar­lyndi, slökun og mildi inn í dag­legt líf. Þetta er staður þar sem fólk fær tæki­færi til að staldra við og heyra í sjálfum sér. Staður þar sem við æfum okkur í djúpum tengslum.

Öruggt fem­inískt kvenna­rými
Lára býður upp á opna tíma dag­lega, tón­heilun, gong, jóga og hug­leiðslu þar sem kakó­plantan er leið­andi í vinn­unni, en allir tímar byrja á 100% hreinu súkkulaði frá Guatemala. Á nám­skeiðum MÓA studio læra nem­endur að kyrja mön­trur og kom­ast á ýmis konar við­burði þar sem Lára nýtir það sem hún hefur verið að fást við innan jóga­fræð­innar síð­ustu árin. Í næsta mán­uði mun hún byrja með lokuð nám­skeiði sem hún kallar öruggt fem­inískt kvenna­rými þar sem skoð­aðar verða hugs­anir okkar og hvað hefur mótað þær.

Hvaða hugmyndir við höfum um kvenleikann og það að vera kona og hvort það nýtist okkur raunverulega.

„Við spyrjum okkur hvernig við getum hrisst upp í gömlum gildum sem eiga ekki lengur við. Við ætlum líka að skoða rýmið sem við gefum okkur fyrir til­finn­inga­lega úrvinnslu, hvernig við hlúum að lík­am­anum okkar, skoðum lík­ams­í­mynd­ina og hvernig feg­urð­ar­staðlar og heilsu­bylt­ingin hefur mótað það, hvernig við horfum á og njótum lík­am­ans. Við ætlum líka að skoða það hvað við trúum á, hvernig við getum gefið eftir og þegið hjálp og hvaða hugs­anir og gjörðir leiða til auk­ins frels­ins,“ segir Lára ein­læg.

Lára hóf sitt jógaferðalag árið 2005 hjá Auði Bjarnadóttur og segist hafa elskað það frá fyrsta tíma.

„Tímarnir hennar voru fjöl­breyttir og skemmti­legir með svo dásam­legri slökun í lokin.“

Lánsöm að geta starfað við það sem ég elska
Lára fór í kjöl­farið í kenn­ara­nám í Kundal­ini Jóga hjá Auði og síðan þá hefur hún lært ýmis­legt sem því teng­ist. Þar á meðal NA- Sham­an­isma og höf­uð­beina- og spjald­hrygg­ar­jöfnun. Auk þess að fara á fjöldan allan af nám­skeiðum og við­burðum þessu tengdu.

„Ég lít reyndar ekki á mig sem jóga­kenn­ara, heldur mann­eskju sem heldur rými utan um hug­læga, til­finn­inga­lega, lík­am­lega og and­lega heilun fólks, en þaðan leiði ég inn í hreyf­ingu og hug­leiðslu.“

Það er alltaf hægt að kafa dýpra, öðl­ast meiri værð, sjálfs­þekk­ingu og sjálfs­virð­ingu.

„Það hefur líka verið svo for­vitni­legt að kynn­ast ólíku fólki og ólíkum leiðum sem mér sýn­ist miða allt að því sama. Það kemur mér á óvart hvað við­horf skiptir miklu og hvað ég er lánsöm að geta starfað við það sem ég elska.“

Að læra og aflæra
Lára seg­ist vera stolt­ust af fjöl­skyld­unni sinni, tón­list­inni og fyr­ir­tæk­inu sínu.

„Ég er stolt af því að fylgja draumunum mínum og halda alltaf áfram þó ég mæti mót­læti og erf­ið­leikum. Ég er stolt af þraut­seigju minni og vilja til þess að læra og aflæra.“

Ég á mér nokkrar botnsögur þar sem mitt andlega ferðlag hófst, segir Lára.

„Sú sem er eft­ir­minni­leg­ust er þegar ég fékk kvíða­kast á Gatwick flug­velli í London, eftir að hafa drukkið aðeins of mikið viskí og sofið lítið í heilan mánuð. Ég átti að vera að fara á tón­leika­ferð en í staðin fyrir að fara í það ferða­lag end­aði ég upp í rúmi í krassi. Þar reyndar hófst mitt and­lega ferða­leg og eftir á mundi ég ekki breyta neinu.

Ég hef einnig upp­lifað burn out í jafn­rétt­is­starfi þegar ég átt­aði mig á að það eru ekki allir til í að berj­ast/vinna að jöfn­uði og mann­rétt­indum. Ég hef kom­ist í gegnum mín mestu áföll á marga vegu, sumt hefur virkað til skamms tíma en krafið mig um dýpri vinnu meðan annað hefur gefið mér mik­inn bata.

Ég hef ábyggilega eytt einhverri milljón í sálfræðikostnað, stundað 12 sporin,

hug­leitt á hverjum degi fyrst í hörku en svo fundið virðið og mildið í því, eign­ast ómet­an­lega vini og svo á ég eig­in­mann sem er algjör­lega ein­stakur.“

Það sem hefur í gegnum tíð­ina gefið Láru gleði og ánægju er;  „þegar ég hef fengið að búa í útlöndum. Spila tennis við mann­inn minn í Sevilla á Spáni, sjá mömmu mína fylgja draumunum sínum, horfa á dóttur mína dansa, semja lög með syni mínum. Spila á tón­list­ar­há­tíðum um allan heim. Sjá pabba minn lifna við eftir að hann ofkæld­ist í sjó­sundi. Stund­irnar að fá börnin sín í fangið í fyrsta sinn. Sjá fjöl­skyldu og vini vaxa. Stofna fyr­ir­tæki. Dansa tangó í Frakk­landi og svo var brúð­kaupið okkar sturlað partý.“

Jóga­sal­ur­inn í Móum

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina