Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Í fréttum var þetta helst – Birgir liðhlaupi, byrlun á B5 og kraftaverk Guðmundar Felix

Í fréttum var þetta helst – Birgir liðhlaupi, byrlun á B5 og kraftaverk Guðmundar Felix
Guð­mundur Felix Grét­ars­son

Í fréttum var þetta helst

Sig­mundur gefur lítið fyrir skýr­ingar Birgis: „Við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir skýr­ingu Birgis Þór­ar­ins­sonar um að lið­hlaup hans úr þing­flokki Mið­flokks­ins megi rekja til Klaust­urs­máls­ins „þriggja ára gamla eft­irá­skýr­ingu sem haldi ekki alveg vatni.“

Sig­mundur er ekki einn um þá skoðun, enda hafa ýmsir, bæði úr þing­heimi og utan hans, talið það hæpið að ætla að skella skuld­inni á Klaust­urs­málið, eftir að hafa í heil þrjú ár í kjöl­far þess setið sem fast­ast í flokknum.

Sig­mundur segir að á þessum þremur árum sem liðin séu hafi Birgi verið treyst fyrir hinum ýmsu hlut­verkum innan flokks­ins. Eftir fund stjórnar Mið­flokks­ins í gær sagði Sig­mundur í sam­tali við mbl.is að vista­skipti Birgis væru von­brigði.

Hann telur þó ákvörðun Birgis fyrst og fremst ranga gagn­vart því fólki sem unnið hafi hörðum höndum að því að koma honum á þing í Suð­ur­kjör­dæmi. Það hafi tek­ist með átta atkvæðum.

Sig­mundur segir ákvörð­un­ina vissu­lega hafa komið á óvart. Hann hafi þó verið var­aður við því af fleirum en einum að Birgir myndi fara í bólið með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sig­mundur seg­ist hafa neitað að trúa því. Birgir hafi heitið fólk­inu í kjör­dæm­inu því að hann yrði með Mið­flokknum og hafi auk þess lagt mikið á sig til að verða val­inn odd­viti í kjör­dæm­inu.

Öll fréttin: Sig­mundur gefur lítið fyrir skýr­ingar Birgis: „Við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen.“

Erna fylgir ekki Birgi – Jón Steinar segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn sið­lausan

Erna Bjarna­dóttir hefur greint frá því að hún ætli ekki að fylgja Birgi Þór­ar­ins­syni yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Birgir sagði skilið við Mið­flokk­inn á dög­unum, og sagði þá ákvörðun hafa átt langan aðdrag­anda. Loks hafi hann ákveðið að færa sig yfir um flokk en ákvörð­unin bygg­ist meðal ann­ars á Klaust­urs­mál­inu um árið.
Í yfir­lýs­ingu Birgis um helg­ina gaf hann í skyn að Erna myndi fylgja honum yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn.
Erna sagði það ekki ætlun sína í við­tali á Bylgj­unni í morgun.

„Ég hef ekki skráð mig í Sjálf­stæð­is­flokk­inn og er ekki á leið­inni þangað,“ sagði Erna í Bítinu í morgun.

Þá sagði Erna að rætt hafi verið við hana um að skipta yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn en vildi hún ekki gefa upp hverjir það voru.
Auk þess hafi Birgir sagt henni að upp­lifun hans væri sú að unnið væri gegn honum innan Mið­flokks­ins.

Jón Steinar Gunn­laugs­son skrif­aði um málið í Morg­un­blað­inu í dag og ber pistill­inn tit­il­inn „Stuðn­ingur við sið­leysi“.
Jón Steinar nefnir Birgi ekki á nafn en segir að hann hafi boðið sig fram undir fölsku flaggi.
„Hann var ein­fald­lega að svindla á kjós­endum,“ skrifar Jón Steinar og bætir við að Birgir hafi kosið yfir sig flokk sem hann yfir­gaf strax að kjöri loknu. Ástæð­urnar hafi þó legið fyrir áður en kosn­ingar fóru fram.

Þá spyr hann hvers vegna Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn taki þátt í þess­ari hátt­semi Birgis.

Mikilvæg skila­boð Elmu eftir skemmtun á B5: „Augun voru alltaf að rúlla aftur á
bak“

Á Twitter í dag má finna mik­il­væga færslu Elmu um byrlun. Færsluna skrifar hún sem aðstand­andi stúlku sem lenti í því að vera byrlað ólyfjan á skemmti­stað.

Elma segir frá því að vin­kon­urnar hafi verið að skemmta sér á B5, sem nú heitir reyndar Banka­stræti Club, þegar atvikið átti sér stað.

„Ég sem ung stelpa vissi ekk­ert hvernig ég ætti að hjálpa henni,“ segir Elma.

Elma vill, í ljósi reynslu sinnar, að annað ungt fólk geri sér grein fyrir þeim ein­kennum sem fylgja byrlun svo­kall­aðra „nauðg­un­ar­lyfja“ og hvað sé best að gera ef slíkar aðstæður koma upp. Elma segir að um það bil hálf­tíma eftir að vin­kona hennar hafi drukkið skotið með efn­inu í hafi hún orðið mjög völt og litið út fyrir að vera orðin veru­lega ölvuð.

„Hún var við það að sofna og gat varla haldið sér stand­andi. Augun voru alltaf að rúlla aftur á bak og hún átti erfitt með að halda athygli á mér og annarri við­staddri vin­konu. Hún fann fyrir mik­illi ógleði og vissi alls ekki hvað var að koma fyrir sig. Við vissum að hún væri ekki orðin svona full og átt­uðum okkur sem betur fer fljótt á aðstæðum.“ Elma segir að þær hafi farið með vin­konu sína á bráða­mót­tök­una, en þar hafi lítið verið að gert og stúlkunni ein­fald­lega bent á að fara heim og sofa úr sér.

„Það voru engin test tekin til að finna út hvaða efni var notað og við vitum það ekki ennþá,“ segir Elma. Elma tekur fram að sá sem setti lyf út í drykk vin­konu hennar hafi ekki verið ókunn­ugur maður, heldur kunn­ingi. „Okkur er alltaf sagt að taka ekki drykki frá ókunn­ugu fólki en í þessum aðstæðum var það ekki málið.

Ef þið ætlið að þiggja drykki frá ein­stak­lingi, plís farið með þeim upp að barnum og takið sjálf við drykknum frá bar­þjón­inum.“ Elma biðlar til fólks að skilja vini sína og vin­konur aldrei eftir ein. „Ef þið sjáið mjög snögga breyt­ingu á hegðun, takið ein­stak­ling­inn inn á bað og tékkið hvort ein­hver af ofan­töldum ein­kennum séu til staðar.

Ef svo er, fáið hjálp frá dyra­verði. Látið hann fylgja ykkur út og komið ykkur heim eða á slysó,“ segir Elma að lokum.

Guð­mundur heldur áfram á ótrú­legu bata­ferli sínu: „Þetta átti ekki að ger­ast fyrr en eftir tvö ár“

Guð­mundur Felix Grét­ars­son, sem fyrstur manna gekkst undir handa­á­græðslu á báðum hand­leggjum, síð­ast­lið­inn jan­úar, birti stór­kost­legt mynd­band á Instagram-reikn­ingi sínum í morgun.

Guð­mundur gekkst undir aðgerð­ina í Lyon í Frakk­landi fyrir 9 mán­uðum. Batinn hefur verið undra­verður og á undan áætlun. Í mynd­band­inu sýnir Guð­mundur það nýjasta í bata­ferl­inu.

„Nú eru liðnir 9 mán­uðir frá því að ég fékk hand­legg­ina og vildi ég gera mynd­band og segja frá nýj­ustu þró­un­inni í ferl­inu. Fyrir ykkur sem sáuð mynd­bandið í maí, að ég held 28. maí, þá gat ég lít­il­lega hreyft tví­höfð­ann,“ segir Guð­mundur í mynd­band­inu og hreyfir tví­höfð­ann. „En nú get ég gert tals­vert meira. Tví­höfð­inn virkar nokkuð vel og svo eykst styrk­ur­inn í öxl­unum, tví­höfð­anum og þrí­höfð­anum með hverjum deg­inum sem líður.“ Þá seg­ist hann finna fyrir kulda og snert­ingu í hægri hand­leggnum, sé þrýst vel á hann.

Svo hlakkar í Guðmundi Felix og hann segir að nýjasta þró­unin sé nokkuð merki­leg. „Nú get ég hreyft fing­urna lít­il­lega, en þetta átti ekki að geta gerst fyrr en eftir tvö ár.“ Því næst gerir hann smá til­raun, tekur upp mandar­ínu­bát með hægri hönd og setur upp í sig.

Öll fréttin: Guð­mundur heldur áfram á ótrú­legu bata­ferli sínu: „Þetta átti ekki að ger­ast fyrr en eftir tvö ár“

Ófremd­ar­á­stand í Sælukoti og starfs­menn end­ast aðeins nokkra mán­uði: „Búið að vera svona í mörg ár“

„Starfs­menn end­ast oft­ast þarna í nokkra mán­uði og þetta er búið að vera svona í mörg ár,“ sagði fyrr­ver­andi starfs­maður leik­skól­ans Sælukots í við­tali við Mannlíf.

Mannlíf ræddi við fyrr­ver­andi starfs­mann leik­skól­ans, sá starfs­maður hefur óskað nafn­leyndar í tengslum við málið.
Móðir barns sem var í leik­skól­anum hafði sagt frá reynslu sinni af leik­skól­anum eftir að grunur kom upp um að starfs­maður leik­skól­ans hefði brotið á barni hennar.
Þá taldi móð­irin leik­skól­ann hafa brugð­ist en trún­að­ar­skýrslur barna­verndar voru sýndar á fundi með for­eldra­ráði.

Mannlíf greindi frá því í gær að starfs­mað­ur­inn hefði sagt starfi sínu við Sælukot lausu og í kjöl­farið herjað á borg­ina í von um að leik­skól­inn yrði skoð­aður.

Starfs­mað­ur­inn segir þá í við­tal­inu að hann og fleiri fyrr­ver­andi starfs­menn leik­skól­ans hafi rætt saman og borið saman bækur sínar. Þá telur starfs­mað­ur­inn leik­skól­ann ekki upp­fylla nægi­lega vel kröfur til þess að halda starf­sem­inni gang­andi, en meðal ann­ars hafi verið allt of mörg börn á hvern starfs­mann.

Þá efast starfs­mað­ur­inn um örvun mál­þroska barna við leik­skól­ann en hann er gríð­ar­lega mik­il­vægur þáttur.

„Hver er tungu­málakrafa borg­ar­innar varð­andi leik­skóla, rekstr­ar­að­ili talar ekki íslensku og enska er ekki heldur hennar móð­ur­mál og öll sam­skipti eru mjög flókin.“

Öll fréttin: Ófremd­ar­á­stand í Sælukoti og starfs­menn end­ast aðeins nokkra mán­uði: „Búið að vera svona í mörg ár“

Önnur móðir lýsir ófremd­ar­á­standi á Sælukoti. Tveggja ára börn ein og án eft­ir­lits í lok­uðu rými


Mannlífi hafa borist ábend­ingar er varða leik­skól­ann Sælukot og virð­ist frá­sögn­unum ekki ætla að linna. Óvíst er hvernig Reykja­vík­ur­borg hafi tekið á mál­inu að svo stöddu en ljóst er að til­kynn­ing­arnar eru orðnar margar.

Í gær sagði önnur móðir reynslu sína af leik­skól­anum, en í síð­asta mán­uði hafði móðir stigið fram og sagt sína reynslu. Grunur lék á að barn kon­unnar hefði orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns. Þá ræddi Mannlíf einnig við leik­skól­ann vegna máls­ins sem kvaðst hafa sýnt for­eldra­ráði trún­að­ar­gögn frá Barna­vernd.

Móðirin segir að hún hafi byrjað að hafa áhyggjur af mál­þroska barns­ins en barn­inu fór aftur í tali eftir að það byrj­aði á leik­skól­anum.

„Hún kunni að telja og kunni liti, svo fór hún að rugla öllu saman þegar leik­skól­inn byrj­aði. Þegar við vorum að telja sagði hún þá einn, og svo two, three, four.“

Þá segir móð­irin að hún hafi spurt út í þetta, og sent tölvu­póst. En hún velti því líka fyrir sér hvort nógu margir íslensku­mæl­andi væru við leik­skól­ann, enda mik­il­vægt fyrir málörvun barn­anna. Móðirin segir svarið frá leik­skól­anum ekki eiga við rök að styðj­ast. Henni hafi verið til­kynnt að mikil íslenska væri töluð við leik­skól­ann.

„Það væru bara tveir starfs­menn sem töl­uðu ekki íslensku, sem er bara bull því það voru að minnsta kosti fjórir. Og sam­kvæmt því þá væru tíu starfs­menn á leik­skól­anum,“ segir móð­irin og bætti við að það gæti hrein­lega ekki stað­ist vegna fjölda barna við leik­skól­ann.

Öll fréttin: Önnur móðir lýsir ófremd­ar­á­standi á Sælukoti. Tveggja ára börn ein og án eft­ir­lits í lok­uðu rými

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina