Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lungnakrabbi grasseraði hjá Ragnhildi: “Mér fannst ég vera í andaslitrunum”

Lungnakrabbi grasseraði hjá Ragnhildi: “Mér fannst ég vera í andaslitrunum”
Ragn­hildur Bene­dikts­dóttir

„Fólk ætti helst ekki að byrja að reykja því það er erfitt fyrir alla að hætta og allir þeir sem eru að spek­úlera í að hætta að reykja ættu að leita sér hjálpar; það eru til alls konar leiðir svo sem Reyk­inga­sím­inn,“ segir Ragn­hildur Bene­dikts­dóttir sem hætti að reykja fyrir ára­tug og greind­ist svo með lungna­krabba­mein árið 2018.

„Já, þetta var dýr­keypt fyrir mig,“ segir hún er hún reykti í um 40 ár. Hún seg­ist nýlega hafa reiknað út hvað hún hafi sparað á því að reykja ekki síð­asta ára­tug­inn miðað við verð­lag á tóbaki á dag. Útkoman: Um fjórar millj­ónir króna.

„Ég hafði oft reynt að hætta að reykja og var með nikótíntyggjó og -plástra sem héldu alltaf við þörf­inni. Ég fékk síðan árið 2018 afskap­lega góðar geð­pillur hjá lækni en þeir voru búnir að upp­götva að geð­sjúk­lingar sem fengu þær hættu að reykja þegar þeir voru á þessu lyfi.“

Ragn­hildur seg­ist hafa tekið lyfið í nokkrar vikur. „Þetta gekk svo ljóm­andi vel. Svo var líka annað sem spil­aði inn í en það var að ég var svo til­búin and­lega til að hætta að reykja og maður þarf að vera það. Það þýðir ekk­ert að segja við mann­eskju sem reykir að hún verði að hætta að reykja. Það bara gengur ekki.“

Ég hafði oft reynt að hætta að reykja og var með nikótíntyggjó og -plástra sem héldu alltaf við þörf­inni.

Tóbakslöng­unin var lengi til staðar eftir að Ragn­hildur hætti að reykja. „Mig dreymdi það allar nætur að ég væri að reykja og ég vissi í draumunum að mig væri að dreyja og ég barð­ist við að vakna ekki.“

Hvað varð um ösku­bakk­ana á heim­il­inu þegar Ragn­hildur hætti að reykja? „Þeir fóru bara í ruslið nema þeir sem ég not­aði sem bóka­stoðir um tíma.“

Ragn­hildur og eig­in­maður hennar, Einar Pálsson.

Lungnakrabbi

Ragn­hildur var farin að verða mjög móð fyrir nokkrum árum. „Ég vann þá á heilsu­gæslu­stöð­inni á Djúpa­vogi í afleys­ingum og þar sagði ungur læknir að ég yrði að fara til lungna­sér­fræð­ings út af þess­ari mæði. Ég sagði að þýddi ekk­ert; mér yrði senni­lega sagt að ég væri of feit og búin að reykja of mikið. Lækn­ir­inn sagði að ég skyldi hætta að setja allt á for­dómana og stundum væri þetta eitt­hvað annað.

Ég fór skömmu seinna til lungna­læknis og þá greind­ist ég með lungna­krabba­mein sem var þó ekki orðið meira en það að það var skurð­tækt. Þeir bara fjar­lægðu æxlið og svo var ég í dekri á Land­spít­al­anum.“

Ragn­hildur segir að lungna­læknrinn telji að krabba­meinið hafi verið búið að grass­era í nokkuð mörg ár.

Biðin var erfið frá því að það kom í ljós að eitt­hvað var athuga­vert í öðru lung­anu þangað til í ljós kom um mán­uði síðar að um var að ræða krabba­mein. „Ég fór nátt­úr­lega að gúggla og mér fannst ég vera í and­ar­slitr­unum en ég var þá búin að gúggla allt um lungna­krabba­mein; mér skilst að maður eigi ekki að gúggla. Þá sá ég ekk­ert fram undan. Móð­ur­bróðir minn hafði fyrir ekk­ert svo löngu áður farið úr lungna­krabba.

Maður bara tal­aði um þetta en auð­vitað leið manni ekk­ert ofsa­lega vel. Þetta var eins og hvert annað hunds­bit sem maður verður að taka og það þýddi ekk­ert að vera með neitt drama í kringum það. Eitt sinn skal hver deyja. Það voru kannski börn og barna­börn sem voru með meiri áhyggjur heldur en ég og bónd­inn kannski. Það var síðan ákveð­inn léttir þegar í ljós kom hvað þetta var og að það yrði hægt að skera. Ég var búin að ímynda mér mikið verra.“ Hún segir að það hafi ekk­ert þýtt að væla yfir því hvers vegna hún fékk lungna­krabba­mein.

„Þetta var nátt­úr­lega spurn­ingin „af hverju ekki ég sem fékk krabba­mein?“ Ég bauð eig­in­lega upp á það og maður mátti alveg búast við þessu. En þegar maður var ungur þá var maður ekk­ert að pæla í þessu og reykti bara og reykti og naut þess.“

Ég fór nátt­úr­lega að gúggla og mér fannst ég vera í and­ar­slitr­unum en ég var þá búin að gúggla allt um lungna­krabba­mein; mér skilst að maður eigi ekki að gúggla.

Ragn­hildur lagð­ist svo inn á Land­spít­al­ann þar sem æxlið var fjar­lægt. Hún fékk lungna­bólgu í kjöl­farið og var erfitt að verkja­stilla hana og var hún á gjör­gæslu í þrjá sól­ar­hringa og hún seg­ist ekki muna eftir þeim tíma. Hún lá síðan á lungna- og hjarta­deild í sex daga. „Þar var dekrað við mann. Starfs­fólkið var dásam­legt; hlýtt og gott fólk. Það virt­ist vera und­ir­mannað en það var alltaf verið að gera eitt­hvað fyrir mann. Þarna var dásam­legt að vera. Ég ætla ekki að kvarta yfir því.“

Ragn­hildur fór í eft­ir­lit á hálfs árs fresti eftir aðgerð­ina. Hún fór síð­ast í maí og á svo að koma aftur næsta vor. „Maður er í eft­ir­fylgni í fimm ár.“

Hún segir vera nauð­syn­legt að fólk njóti lífs­ins; muni að brosa og vera gott hvert við annað.

Maður er í eft­ir­fylgni í fimm ár.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una