Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jónas gerðist grænkeri með fikti: „Mér leið eins og ég ætti að vera í algjörri örvæntingu“

Jónas gerðist grænkeri með fikti: „Mér leið eins og ég ætti að vera í algjörri örvæntingu“
Jónas Reynir Gunn­ars­son Mynd: Gassi

Jónas Reynir Gunn­ars­son er ungur og efni­legur rit­höf­undur en hann hefur komið eins og hljóð­látur storm­sveipur inn í bók­mennta­heim­inn und­an­farin ár. Hafa bækur hans hlotið lof gagn­rýnenda sem og bók­mennta­verð­laun og jafn­vel verið þýddar yfir á önnur tungu­mál. Svo er Jónas mik­ill húmoristi. Jónas ræddi við Mannlíf um heima­bæ­inn, skáld­skap­inn, vegan­ismann og húmor­inn. Sem sagt um eitt og annað.

Hinn fagri Fellabær

„Það var bara ljúft að alast upp í Fellabæ,“ sagði Jónas Reynir og svo varð vand­ræða­leg þögn og skella þeir upp úr, Jónas og blaða­mað­ur­inn. Spurn­ingin var ekk­ert sér­stök, hvernig var að alast upp í Fellabæ? Svarið var stutt enda kannski lítið meira um það að segja, það var bara ljúft að búa í Fellabæ.

Jónas Reynir í nátt­úr­unni

Aðspurður hvort Fellabær hafi gefið honum ein­hvern inn­blástur í skrifin segir Jónas svo vera. „Já, fyrsta ljóða­bókin mín, Leið­ar­vísir um þorp. Það er auð­velt að draga línu frá henni í Fellabæ. Og líka í skáld­sögu minni, Dauði skógar, en í hvor­ugri bók­inni kemur nafnið Fellabær fram samt. Já, og svo í ljóða­bók minni Þvotta­dagur koma fram æskuminn­ingar frá Fellabæ.“ Sem sagt, af sex bókum sem Jónas hefur skrifað hefur Fellabær gefið honum inn­blástur í helm­ing þeirra, verður það að telj­ast nokkuð gott. „Og það er kannski algengt meðal rit­höf­unda, svona mót­andi æskuár.“

Jónas Reynir

Skrítið að gefa ekki út bók þetta árið

Jónas Reynir bjó í Fellabæ þar til hann var orð­inn 22 ára en þá flutti hann suður og hóf nám við Háskóla Íslands. Þar fékk hann BA- og masters­gráðu í rit­list með kvik­mynda­fræði sem auka­grein. Árið 2017 komu út þrjár bækur eftir Jónas, sem hugs­an­lega er Íslands­met. Það voru tvær ljóða­bækur og ein skáld­saga. Síðan þá hefur svo­lítið hægst á Jónasi Reyni en þó komið út ein bók á ári. Þar til þetta árið. Aðspurður hvort það sé ekki svo­lítið skrítin til­finn­ing að vera allt í einu ekki með í jóla­bóka­flóð­inu segir Jónas það hafa verið það fyrst.

„Ég er svona aðeins far­inn að venj­ast því núna en fyrri hluti árs­ins var mjög skrít­inn því ég er vana­lega á vorin að ganga frá bók fyrir haustið. Og svo fékk ég níu mán­aða lista­manna­laun en hafði aldrei áður fengið svo mikið úr því, þannig að maður var orð­inn vanur því að troða mar­vað­ann en núna náði ég loks­ins niður á botn­inn.“ Jónas seg­ist hafa verið eirð­ar­laus til að byrja með og ekki vitað hvað hann ætti að gera við sig. „Mér leið eins og ég ætti að vera í algjörri örvænt­ingu og panikki yfir því að gera eitt­hvað meira en ég var að gera. Bókin sem ég er að vinna í núna hugsa ég að komi út á næsta ári, en það er skáld­saga.“

Jónas Reynir á góðri stundu

„Nei,“ segir Jónas hik­andi þegar hann er spurður hvort hann sé alveg hættur í ljóð­unum. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það. Ég verð ein­hvern veg­inn bara að sinna hug­mynd­unum sem koma upp í haus­inn á mér hverju sinni, en það vill þannig til að ég hef bara fengið skáld­sagna­hug­myndir und­an­farið. En ég veit ekki hvenær næsta ljóða­bók verður til.“

Björt fortíð Jónasar

Jónas Reynir á sér for­tíð sem alls ekki allir vita um. Á árunum 2005-2010 gerði Jónas mynda­sögur ásamt félaga sínum, Finni Torfa Gunn­ars­syni, sem þeir köll­uðu Arthur. Nutu mynda­sög­urnar gríð­ar­legra vin­sælda og mætti jafn­vel tala um költ-status Arthurs í dag. „Þetta til­heyrði ein­hverri inter­net­menn­ingu, áður en Facebook sprakk út, bloggið var vin­sælt á sama tíma, blog­spot.com, hugi.is og hlekkja­síður eins og bat­man.is og fleira.“ Arthur var til að byrja með dreift á meðal fólks inni á þessum hlekkja­síðum en birt­ist svo á tíma­bili á DV.is og síðar gáfu þeir út bók með mynda­sög­unum. Spurður hvort Jónas Reynir hafi hugsað sér að snúa sér aftur að mynda­sögum og grín­inu seg­ist hann fá útrás fyrir „ein­hverja svona vit­leysu.“ á Instagram-síðu sinni. „En það er ekk­ert úti­lokað að ég geri eitt­hvað slíkt aftur. Grín er nátt­úru­lega mjög erfið og góð æfing í strúktúr og skrifum almennt, held ég. Það er van­metið form.“

Arthur naut mik­illa vin­sælda á fyrsta ára­tugi ald­ar­innar

Loksins fullgildur grænkeri

Vegan­ismi er Jónasi hug­leik­inn en sjálfur er hann vegan eða græn­keri eins og það útleggst víst á íslensku. Fyrir um það bil tveimur og hálfu ári byrj­aði hann að vera græn­keri en í nokkur ár á undan hafði hann byrjað að elda vegan­rétti heima hjá sér en nennti ekki að hugsa um það þegar hann fór í mat­ar­boð eða út að borða. „Þegar ég fór svo að spá í sið­ferð­is­legu rökin fyrir þessu þá sá ég bara að rök mín fyrir dýra­áti héldu ekki. En svo huns­aði ég það í um fjögur ár, vegna þess að það var svo auð­velt og svo er fátt jafn sam­fé­lags­lega við­ur­kennt og að borða dýr. En svo óx það smá saman, þetta byrj­aði með fikti,“ segir Jónas og heldur niðri í sér hlátr­inum. „En svo getur vel verið að umræðan um lofts­lags­málin und­an­farin ár, hafi ýtt við manni. Það var ekki vink­ill­inn sem ég var að pæla í upp­haf­lega en voru aukarök sem negldu þetta alveg niður fyrir mér.“

Jónas heldur að það hafi náðst nokkuð góður árangur hvað varðar græn­kera­lífs­stíl­inn, sífellt fleiri eru að bæt­ast í hóp­inn og bæði veit­inga­staðir og versl­anir hafa tekið við sér. „Maður sér það til dæmis á vöru­fram­boð­inu. Fólk sem var vegan fyrir tíu árum, maður bara klappar fyrir því. Nú eru nán­ast allir veit­inga­staðir með vegan­rétti og versl­anir líka. Það sýnir bara að eft­ir­spurnin hefur verið að aukast gríð­ar­lega mikið.“ Hann seg­ist fagna rök­ræðum um vegan­isma en segir fáa nenna því. „Ég hef borðað dýr meiri­hlut­ann af ævi minni, meira að segja eftir að ég komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri rangt, þannig að ég skil alveg fólk sem er ekki til­búið í þetta. Ég held samt að vegan­ismi sam­ræm­ist gildum flestra í raun.“ Jónas bætir því við að því meira sem það er normaliserað því auð­veld­ara verður það fyrir fólk að ger­ast vegan. „Þegar þetta verður komið á þann stað að maður pantar pítsu og vega­nost­ur­inn bragð­ast eins og venju­legur ostur, þá held ég að þetta verði auð­veld­ara fyrir aðra.“

Jónas Reynir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina