Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Opinská Þórunn Jarla: „Léttir að amma var með sífílis en ekki heilarýrnun, geðveiki eða alzheimer“.

Opinská Þórunn Jarla: „Léttir að amma var með sífílis en ekki heilarýrnun, geðveiki eða alzheimer“.
Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson.

„Bærinn brennur“ er nýjasta bók Þórunnar Jörlu Valdi­mars­dóttur og hún seg­ist ekk­ert vera að slást í jóla­bókaslagnum. „Hún er aðra vik­una í röð í 3. sæti á met­sölu­lista yfir allar bækur. Ég veit eftir 26 bækur að bækur ganga alla­veg­ana,“ segir rit­höf­und­ur­inn sem seg­ist vera með átta bækur í legvatn­inu; ekki far­vatn­inu. Hún ver almennt um fjórum tímum á dag í skap­andi vinnu svo sem að skrifa bækur eða jafn­vel baka brauð.

Þórunn, sem gengur í gúmmí­skóm til að ná jarð­sam­bandi og sem eru tveimur núm­erum of stórir til að hún geti hreyft tærnar, segir í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni.

„Ég er hálfur Önfirð­ingur,“ segir hún og talar fyrst um föð­ur­ætt­ina. „Það er voða smart. Ég þekki alveg Vest­firð­inga úr; þeir eru alltaf til. Þeir eru fjörugir strax. Pabbi er frá Mosvöllum þar sem var sýslu­manns­setur. Ég held að fjallið komi aldrei með skugga þar. Og þetta er stærsta und­ir­lendi á kjálk­anum sem er ekki kjálki; þetta er höfuð. Pabbi var mik­ill töffari og átti 12 börn sem við vitum um með tveimur konum og lærði flug­um­ferð­ar­stjórn í Oklahoma á meðan ég var inni í mömmu. Hann varð yfir­flug­um­ferð­ar­stjóri að lokum.

Mamma er Reyk­vík­ingur og mamma hennar þannig að ég er með einn fínan borg­ara­legan kven­legg. Ég held að það sé hluti af sjálfs­traustinu. Þau hitt­ust úti í Engey, langafi og langamma, og bjuggu á Lauga­vegi og svo Bald­urs­götu 30.“

Gúmmí­skórnir eru til að tryggja jarð­sam­bandið.

Afi hennar ku hafa smitað ömmu hennar af sífílis.

„Já, það er svo hrylli­legt þetta neð­anmitt­is­mál. Amma var á far­sótt­ar­hús­inu þegar ég var lítil og fór að heim­sækja hana. Mamma virð­ist ekki hafa vitað af þessu af því að hún hafði áhyggjur af því að eitt­hvert okkar systk­in­anna myndi bil­ast í höfð­inu eins og mamma hennar. Það er 3. stigs sífílis þegar það fer í höf­uðið. Jón Sig­urðs­son fékk aldrei 3. stig. Ég skamm­ast mín og roðna þegar ég tala um þetta.“

Þórunn segir að það þurfi að hafa það uppi á borð­inu að amma hennar, nafna hennar, hafi verið með sífílis en ekki heila­rýrnun, geð­veiki eða alzheimer. „Af því að hún var ung þegar hún fékk þetta þá létti það álagi og áhyggjum mömmu. Sann­leik­ur­inn gerir ykkur frjálsa og lyftir af okkur alls konar bulli sem lygi og yfir­breiðsla skapar.“

Mamma virð­ist ekki hafa vitað af þessu af því að hún hafði áhyggjur af því að eitt­hvert okkar systk­in­anna myndi bil­ast í höfð­inu eins og mamma hennar.

Tíminn leið og rit­höf­und­ur­inn til­von­andi óx úr grasi. Hún seg­ist hafa farið korn­ung með vin­konu sinni, Fríðu, til Mexíkó. „Hún vildi læra vefnað. Ég fór í lista­há­skóla. Það var gott að losna við íslenska drauga og það leysti mig mikið úr læð­ingi,“ segir hún um frjáls­ræðið sem hún kynnt­ist á þessum tíma í hit­anum.

Hún hóf síðar nám í sagn­fræði við Háskóla Íslands og þar kynnt­ist hún sam­nem­anda sínum, Eggerti Þór Ber­harðs­syni. „Við vorum skotin en ég var treg af því að hann var bæði lág­vaxn­ari og yngri en ég. Svo vorum við á Hótel Borg og þá tos­aði hann í flétt­una á mér aftan frá og við byrj­uðum að dansa og döns­uðum í 34 ár.“

Hjónin voru sam­rýmd. „Það er ótrú­leg gjöf að eiga lífs­föru­naut í sama fagi. Þá hefur maður alltaf eitt­hvað að spjalla um.“ Hún nefnir líka gagn­kvæma aðstoð í fag­inu.

Eggert lést á gaml­árs­dags­morgun fyrir sjö árum síðan.

„Hann vann allt of mikið og var með lækna­fælni á háu stigi. Hann var með kvef á milli jóla og nýárs og ég vildi að hann færi til læknis. Hann sagði fólki uppi í Árna­garði að hann ætl­aði til læknis eftir ára­mót. Þetta er feigð.“

Ég lærði hvað það er gott að vera einn.

Þórunn segir að sorgin hafi dýpkað sig. „Ég lærði hvað það er gott að vera einn. Það er extra friður í ein­ver­unni sem ég hef lært að meta.“

Hvað með dauð­ann? „Kom þú sæll, þá þú vilt.“

Hún neitar því ekki að hún sé bún að finna ást­ina aftur.

„En þar sem ekki er búið að opin­bera þá er það ekki opin­bert.“

Podcastviðtalið við Þórunni Jörlu í Mann­líf­inu er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina