Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hanna Rún: „Var skikkuð í lyfjapróf eftir sigur og var lömuð tímabundið eftir fæðingu“

Hanna Rún: „Var skikkuð í lyfjapróf eftir sigur og var lömuð tímabundið eftir fæðingu“
Mynd Skjáskot/RÚV Mynd: Skjáskot RÚV

Hanna Rún Bazev Óla­dóttir hefur verið í sviðs­ljós­inu í 25 ár þrátt fyrir að vera rétt um þrí­tugt. Gríð­ar­leg vinna og metn­aður hefur skilað henni á verð­launa­palla víðs vegar um heim­inn. Hanna Rún er einn far­sæl­asti dans­ari þjóð­ar­innar en hefur upp­lifað að vel­gengni skilar sér ekki alltaf í vinum og vin­sældum. Hún seg­ist vera sjálfri sér nóg og bestu stund­irnar eigi hún heima hjá sér.

Varð fyrir aðkasti og einelti

„For­eldrar mínir settu mig í dans þegar ég var fjög­urra ára, ég var alltaf dans­andi og kenn­ar­arnir sögðu mig með ein­hvern auka­takt þrátt fyrir að ég væri ung,“ segir Hanna Rún sem keppti á sínu fyrsta Íslands­meist­ara­móti 1997 og vann með dans­herra sínum í ballroom-dönsum og lat­índönsum.

„Ég var sex ára og man mjög vel eftir mót­inu, bara eins og þetta hafi gerst í síð­ustu viku, var í gulum kjól og svo bleikum kjól og fannst þetta allt mjög sér­stakt. Allar stóru stelp­urnar hjálp­uðu okkur, enda við ung og kunnum ekk­ert á þetta,“ segir Hanna Rún og tekur fram að á þessum tíma hafi mik­ill fjöldi keppt í öllum flokkum og erlend pör komið hingað til keppni. Segir hún sorg­legt hversu fáir keppi í dansi í dag hér­lendis.

Í grunn­skóla varð Hanna Rún fyrir aðkasti og ein­elti og segir það aðal­lega hafa falist í því að hún var skilin útundan.

„Þegar ég varð eldri fann ég hvað ég var óvel­komin hjá stelp­unum, þannig að ég var mikið með strák­unum. Svo var ég bara ótrú­lega mikið ein. Ég sagði for­eldrum mínum frá þessu og þau útskýrðu fyrir mér að þetta væri afbrýði­semi.

Ég skildi ekki af hverju, sjálf átti ég tvær vin­konur sem voru mjög efni­legar í fim­leikum og ég var svo montin að þekkja þær. Á tíma­bili hugs­aði ég um hvort ég fengi að vera með ef ég stæði mig illa.

For­eldrar mínir sögðu að ég væri ekki að æfa mig og leggja allt þetta á mig til að fara út á gólfið og dansa illa til að geta leikið við stelp­urnar, þá væru þær ekki alvöru­vin­konur.

Ég var nörd og mik­ill ein­fari, elskaði að mála, hanna kjóla, spila á hljóm­borð og er þannig enn í dag. Ég er algjör­lega sjálfri mér nóg,“ segir hún í við­tali við Rögnu, blaða­mann Vikunnar.

Þýsku þjálfararnir voru harðir

Hanna Rún segir að strax í upp­hafi hafi verið lögð mikil áhersla á dans­inn, parið tæki þátt í keppnum og þau sett á tveggja klukku­stunda æfingar með ung­linga­hópnum og erlendum þjálf­urum.

„Þýsku þjálf­ar­arnir voru harðir og sögð­ust ekki ætla að draga úr því þó að við værum með. Við fórum í æfinga­búðir til Þýska­lands og ég var oft að fá frí úr skóla og því var sýndur mik­ill skiln­ingur. Ég tók bara skóla­bæk­urnar með, for­eldrar mínir voru alltaf með mér og systur mínar oft líka.

Þegar keppni var þá fórum við jafn­vel tíu dögum fyrr og vorum á fullu að æfa í æfinga­búðum fram að keppn­inni. Við vorum mikið að sýna á skemmt­unum og árs­há­tíðum hér heima líka, allar helgar seint um kvöld,“ segir Hanna Rún aðspurð hvort þetta hafi ekki verið erfitt og álag fyrir hana sem lítið barn.

„Ég varð strax hug­fangin og ætl­aði að vera best. Það komst ekk­ert að annað en dans­inn. Ég teikn­aði kjóla, horfði á dans­inn á víd­eó­spólum aftur og aftur, og spáði í hvað ég vildi gera betur, horfði á eldri flokk­ana, hvað þau þar væru að gera sem við gerðum ekki. Ég þekki ekki annað en að vera með strangan þjálf­ara og ef hann öskr­aði á mig þá var það af því að ég var ekki að gera eins og ég átti að gera. Þannig var ég ekk­ert að drolla af því ég vildi að þjálf­ar­inn yrði ánægður. Svo höfðum við mánuð til að bæta okkur þar til hann kæmi næst.“

Lömuð eftir fæðingu

„Í fyrstu til­raun var stungið í taug og það sem gerð­ist var að innri vöðvinn, lær­vöðvinn sem er aðal­vöðvinn í dans­inum lam­að­ist. Læknar gátu lítið svarað mér og mér bara sagt að ég yrði að bíða.“

„Okkur lang­aði í annað barn, gátum ekki hugsað okkur að eiga bara eitt og lang­aði í strák og stelpu. Við vildum ekki hafa of langt á milli og þetta er bara full­komið, það er fimm og hálft ár á milli þeirra,“ segir Hanna Rún, sem lenti í erf­ið­leikum í fæð­ing­unni líkt og þeirri fyrri, en þó mun alvar­legri þar sem mænu­deyf­ing mis­heppn­að­ist.

„Það þurfti að gera hana þrisvar, í fyrstu til­raun var stungið í taug og það sem gerð­ist var að innri vöðvinn, lær­vöðvinn sem er aðal­vöðvinn í dans­inum lam­að­ist. Læknar gátu lítið svarað mér og mér bara sagt að ég yrði að bíða og sjá. Við vorum búin að bóka okkur í sýn­ingar sem við þurftum að aflýsa af því ég gat ekki einu sinni beygt mig niður til að sækja hleðslu­tækið mitt þá bara hrundi ég í gólfið.

Í dag er ég orðin alveg góð og finn ekk­ert fyrir því að eitt­hvað hafi gerst í fæt­inum. En þetta voru fjórir mán­uðir sem fót­ur­inn var lamaður, sem voru mjög lengi að líða og mér var sagt að því lengri tími sem liði því verra yrði það. Ég var farin að hugsa að ég gæti aldrei dansað aftur,“ segir Hanna Rún, sem glímdi við fleiri erf­ið­leika eftir fæð­ing­una.

„Ég er með ofvirkan skjald­kirtil og grennt­ist mjög hratt þrátt fyrir að borða og borða. Hárið hrundi næstum allt af mér, bæði vegna skjald­kirtils­ins, sjokks­ins yfir fæt­inum og með­göng­unnar.

Ég var farin að skoða hár­kollur ef ég myndi missa hárið alveg og hugsa hvernig ég myndi líma þær á mig í keppnum. Það jákvæða við þetta allt var að það var COVID og ég gat falið þetta, var með hár­band á myndum og hitti fáa.

Ég er mjög bakt­er­íu­hrædd og það fékk eng­inn að koma heim. Svo fékk ég ein­hverja dropa sem hjálp­uðu hell­ing með hár­vöxt­inn, auk þess sem ég var ekk­ert að lita hárið og það fékk að ná sér.“

Fer sjaldan í veislur

Hanna Rún seg­ist lítið finna fyrir heims­far­aldri fyrir utan þau áhrif sem hann hefur haft á dans­inn.

„Ég fer sjaldan í veislur eða slíkt, mér finnst gott að vera heima og gæti bara verið heima í ein­angrun í eitt ár. Ég er að syngja, sem ljóð, spila á píanó, mála, steina og hanna kjóla. Bestu vin­konur mínar búa í Noregi og úti á landi, við hitt­umst sjaldan, en það nægir okkur. Svo tala ég við fólk á net­inu.“

Skikkuð í lyfjapróf eftir sigur

Nikita bað Hönnu Rúnar þegar hún var ófrísk að syn­inum. „Hann var búinn að fá leyfi for­eldra minna og pabbi smíð­aði hring­ana. Nikita lang­aði að sjá Gullfoss og Geysi en alltaf kom eitt­hvað upp á, að lokum krafð­ist hann þess að fara og fór á hnén við Gullfoss. Gunnar, mót­or­hjóla­prestur í Digra­nes­kirkju, og vinur pabba, átti að skíra son­inn og var síðan á leið í frí. Ég vildi að hann gifti okkur, þannig að við ákváðum að kýla bara á brúð­kaup í leið­inni með viku fyr­ir­vara. Svona virka ég best, ég vil ekki hafa of langan tíma í skipu­lag. Skírnin og brúð­kaupið var í kirkju, sem var fal­leg og mikið skreytt, og þegar kom að skírn dótt­ur­innar vildi ég að hún fengi eins og sendi því boðskort um glimmer­þema. Sem kom engum á óvart og ég stein­aði allt hátt og lágt, meðal ann­ars fal­legan bekk fyrir hana.“

Þegar Hanna Rún hafði náð sér tóku dansæf­ingar við að nýju og fékk hún báða menn­ina í lífi sínu til að aðstoða sig við að koma sér aftur í gang. „Fyrsta æfingin var rosa­lega erfið og ég fann hreyf­ing­arnar allt öðru­vísi og hugs­aði; „hvar eru maga­vöðvarnir“ … maginn á mér var eins og hlaup. Það var mjög freist­andi að gera eins og aðrir höfðu sagt, hætta að dansa og vera bara mamma. Ég bað pabba að hringja í mig alla morgna til að segja mér að gera æfingar. Ég bað Nikita á æfingum um að neita þegar ég bæði um taka pásur. Þetta gerðu þeir, og þetta var það sem ég þurfti, og smátt og smátt fór að ganga betur. Við kepptum á Íslands­meist­ara­mót­inu þegar sonur okkar var sex mán­aða, unnum og ég var sett í lyfja­próf. Komnar voru sögur um að ég væri að taka eitt­hvað inn þar sem ég hefði komið snemma til baka og búin að grenn­ast hratt. Ég var mjög pirruð þar sem ég fékk ekki að tala við neinn eftir sig­ur­inn heldur tekin til hliðar og látin pissa í glas meðan staðið var yfir mér. Að sama skapi sann­aði ég að ég hefði ekki tekið neitt ólög­legt inn til að koma mér aftur í form.“

Heimild:

Ragna Gests­dóttir. 2021. „Farin að hugsa að ég gæti aldrei dansað aftur.“ Vikan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una