Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonur Sesselju tók líf sitt: „Þetta verða þriðju jólin án Helga“

Sonur Sesselju tók líf sitt: „Þetta verða þriðju jólin án Helga“
Sesselja Anna Ólafs­dóttir

„Jólin eru ekki eins og þau voru áður. Það er val um að láta þetta ganga og hafa gaman og ég hugsa oft um hvað ég geti gert til að láta okkur líða vel. Ég er alltaf að finna út hvaða leið við förum þessi jólin þannig þau verði góður tími hjá okkur. Þannig er ég að tækla þetta fyrir þessi jól. Þannig hugsa ég um jólin í dag; hvaða leið ég eigi að fara þannig að við séum ekki að dvelja í sorg­inni. Ég gæti farið hina leið­ina og hugsað með mér að mig langi ekk­ert til að halda jól og að þetta sé ömur­legur tími,“ segir Sesselja Anna Ólafs­dóttir.

Elsti sonur hennar, Helgi Már Krist­jánssson, tók eigið líf í mars í hitti­fyrra. Hann var 31 árs. Þetta verða því þriðju jólin án Helga. „Mér finnst ég vera á ein­hverju vega­salti sem ég get verið sitt hvoru megin við.  Ég vil hafa jólin ynd­is­leg og góð. Þannig hugsa ég um jólin í ár. Ég ætla að baka smákökur sem Helga þóttu vera góðar og ég gerði það líka í fyrra; þetta eru kökur sem okkur öllum finnst vera góðar í fjöl­skyld­unni.“ Sesselja segir að pip­ar­kökur hafi verið í upp­á­haldi hjá Helga. Hvert var upp­á­hald­s­jóla­lagið hans? „Jólahjól. Það var svo vin­sælt þegar hann var barn. Svo spil­aði hann á píanó og fyrsta jóla­lagið sem hann lærði og sem hann spil­aði á fyrstu jólatón­leik­unum sínum og sem mun alltaf tengja mig við Helga er Jóla­kött­ur­inn.“

Ég er alltaf að finna út hvaða leið við förum þessi jólin þannig þau verði góður tími hjá okkur

Að flýja sannleikann

Þriðju jólin án Helga.

„Mér fannst jólin í hitti­fyrra vera mjög erfið og ég upp­lifði mig mjög þung­lynda,“ segir Sesselja Anna sem er gift og á fjögur önnur börn. „Við vildum ekki vera í sama far­inu; mig lang­aði ekki til að gera það sama og ég var vön að gera um jólin og ég held ég hafi ekki heldur haft orku í það. Við vildum fara eitt­hvað annað og gerðum það. Ég sá eftir á pínu­lítið eftir að hafa farið þessa leið. Fyrir utan að finn­ast ég ekki hafa orku til að gera neitt fyrir jólin þá held ég að mig hafi langað til að hlaupa undan sorg­inni.

Ég var örugg­lega að flýja sann­leik­ann. Ég hef alltaf verið mikið jóla­barn og bakað margar smáköku­sortir og allt á að vera svo full­komið og æðis­legt en þarna hafði ég það ekki í mér. Ég var að fást við áfallastreituröskun vegna frá­falls Helga og fékk ég martraðir á nótt­unni í marga mán­uði eftir að hann dó, ég svaf illa og borð­aði ekki mikið á þessu tíma­bili. Ég var dug­leg að fela hvernig mér leið.“ Fjöl­skyldan gisti í þrjár nætur yfir jólin 2019 á hót­eli úti á landi. „Upplifun mín var ekki góð. Mér fannst eins og það væri svart yfir öllu; eins og allt væri litað svörtu og það væri kalt. Við fengum mjög góðan mat, allt var svo fal­legt og flott og það vildu allir vel en and­leg líðan mín var ekki góð.“

Ég var að fást við áfallastreituröskun vegna frá­falls Helga og fékk ég martraðir á nótt­unni í marga mán­uði eftir að hann dó, ég svaf illa og borð­aði ekki mikið á þessu tíma­bili

Fjöl­skyldan var heima um jólin í fyrra. „Þau voru ynd­is­leg. Við höfðum góðan mat, sama ísinn og sama frómas­inn og venju­lega. Mér leið miklu betur en jólin á undan. Ég fór meira í að kaupa jóla­gjafir og sendi öllum jóla­gjafir. Ég held ég hafi farið meira ýkt í þau jól af því að ég ætl­aði að halda áfram. Ég ætl­aði að gleðj­ast. Ég ætla ekki að vera þessi dapra mann­eskja og ég ætla að halda áfram. Ég ætla að nota þessa reynslu til að læra. Ég held að Helgi myndi vilja að við séum ham­ingju­söm.“

Sesselja segir að um jólin í fyrra hafi öll fjöl­skyldan verið saman og þar á meðal sonur hennar sem býr erlendis sem og tengda­börn og tvö barna­börn. „Ég átti ynd­is­leg jól í fyrra af því að við gátum öll verið saman. Við grétum rosa­lega mikið og við hlógum rosa­lega mikið. Þetta voru frá­bær jól og mikil sam­vera. Ég held að við höfum öll haft gott af þessu.“

Gleymdist að tilkynna andlátið

Helgi hafði búið í Þýska­landi í nokkur ár þar sem hann tók eigið líf.

„Hann veikt­ist í raun­inni um jólin 2018; þá vissi ég að hann væri að veikj­ast. Við ætl­uðum öll að hitt­ast á Spáni um jólin en Helgi var þá búinn að láta leggja sig inn á geð­deild í Leipzig. Hann var með króníska kvið­verki en það fannst aldrei hvað var að en mér fannst þetta byrja þegar hann fékk botn­langa­kast í kringum 2014. Verkirnir komu og fóru. Hann fór nokkrum sinnum á sjúkra­hús út af verkjum en það fannst aldrei hvað var að. Hann sagði við mig árið 2018 að hann væri hættur að geta sofið út af verkj­unum og ætl­aði að leita sér hjálpar; ég hafði talað um að þetta væri kannski and­legt.“

Fjöl­skyldan sem var komin til Spánar var í sam­bandi við Helga á net­inu um jólin. „Ég hef oft í sorg­ar­ferl­inu spurt mig hvers vegna ég átt­aði mig ekki á því hversu alvar­legur þessi sjúk­dómur er. Hvers vegna fór ég ekki til hans? Ég hef svo­lítið klórað í sárið og spurt mig hvers vegna ég fór ekki til hans um jólin 2018 þegar hann var svona veikur. Ég var í jóla­fríi en þurfti svo að drífa mig í mína vinnu. Maður er alltaf í sömu rútín­unni.“

Sesselja Anna sagði sögu sína í við­tali við Mannlíf í vor. Þar kemur til dæmis fram að hún hafi ásamt dóttur sinni ætlað að heim­sækja Helga á geð­deild­ina í mars árið 2019 og komust þær þá að því að hann hafði verið lát­inn í viku en fjöl­skyld­unni hafði ekki verið til­kynnt um and­látið. „Kerfið á Íslandi klikk­aði. Það var mikið um að vera á þessum tíma í Berlín en sendi­ráðið var með heim­sókn þar. Ég veit ekki hvort sendi­ráðið þar klikk­aði en ég veit að sá lög­reglu­maður á Íslandi sem opn­aði tölvu­póst frá sjúkra­hús­inu í Leipzig um and­lát Helga kláraði ekki pakk­ann þannig að við vissum ekki neitt. Við fengum áfall á sjúkra­hús­inu og ég lenti í ein­hverju áfallastreitu­sjokki sem ég tel mig vera búna að vinna mig upp úr í dag.“

Þar kemur til dæmis fram að hún hafi ásamt dóttur sinni ætlað að heim­sækja Helga á geð­deild­ina í mars árið 2019 og komust þær þá að því að hann hafði verið lát­inn í viku en fjöl­skyld­unni hafði ekki verið til­kynnt um and­látið

Að lifa með sorginni

Sesselja seg­ist oft í sorg­ar­ferl­inu vera búin að hugsa um af hverju hún gerði hlut­ina ekki öðru­vísi.

„Það var ekki bara sorgin. Minn­ing­arnar voru erf­iðar. Fyrsta árið eftir að Helgi dó var ég að grafa í hvað klikk­aði hjá mér og ég var svo­lítið að kenna sjálfri mér um; kannski var ég ekki nógu góð móðir. Kannski gerði ég eitt­hvað vit­laust. Hvað fór fram hjá mér? Hvers vegna tók ég ekki eftir öllum þessum bjöllum? Þetta ár skoð­aði ég öll sam­skiptin sem fóru á milli okkar Helga á Facebook sem og sms-sam­skiptin okkar. Hvað klikk­aði hjá mér?

Ég hef áttað mig á að það er ekki hægt að breyta for­tíð­inni. Ég er svo­lítið mikið í fram­tíð­inni og ég vil vera þar. Núna er ég svo­lítið að vinna í sjálfri mér og vera ekki í sorg­inni. Ég vil vera sterk. Ég hef hreyft mig mikið og ég vil vera í mann­legum sam­skiptum. Ég forð­ast til dæmis að vera á Facebook en mér finnst vera skemmti­legra að hringja í fólkið mitt og hitt­ast saman. Mér finnst ég vera sterk­ari eftir svona erf­iða reynslu.

Sorgin er ekk­ert að fara. Maður mun alltaf lifa með hana en maður lærir ein­hvern veg­inn að lifa með henni. Ég leyfi sorg­inni alveg að flæða. Ég leyfi henni að koma, ég tala um sorg­ina og minn­ingar um Helga sem tengj­ast til dæmis jól­unum. Þetta er eins og vog­ar­skál og ég er að ákveða hvorum megin ég ætla að vera. Ég hreyfi mig mikið og það sem gerir mig sterka er lík­am­inn af því að lík­ami og sál eru sam­vinna sem við verðum að hlúa að. Ég leyfi mér að byggja mig upp með hreyf­ing­unni. Hún gerir mig jákvæða og ég fæ útrás.“

Hún seg­ist líka lesa mikið svo sem um jóga­fræði. Stundar hug­leiðslu. Núvitund.

Hún segir að orka sín hafi breyst eftir áfallið. „Maður er ekki sama mann­eskjan eftir svona áfall. Það sem skiptir mig máli er að vera ekki stressauð yfir ein­hverju sem skiptir ekki neinu máli heldur að njóta sam­vist­anna og hugsa um hvernig við getum verið góð við hvert annað, elskað hvert annað og verið saman.“

Aska Helga var jarð­sett í duft­keri í kirkju­garð­inum Sóllandi. „Ég keypti hjarta­laga jóla­ljós fyrir jólin í fyrra en núna er ég búin að kaupa ljósakross sem ég ætla að setja upp hjá honum. Ég hef svo farið á aðfanga­dag og kveikt á kerti sem ég set niður. Mér fannst það vera mjög erfitt. Í fyrra hágrét ég í kirkju­garð­inum og oft­ast þegar ég fer þangað. Mig langar ekki til að vera í þessum sporum í líf­inu en maður þarf ein­hvern veg­inn að lifa með því. Ekki gef­ast upp.“

Sesselja er spurð hvað hún hafi lært af þessu öllu saman. Son­ar­miss­inum. Sorginni.

„Ég hef áttað mig á því að lífið er ekki sjálf­sagður hlutur.“

Maður er ekki sama mann­eskjan eftir svona áfall
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una