Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mest lesnu fréttir Mannlífs frá upphafi – Harmleikir, kynferðisbrot og Eiður Smári

Mest lesnu fréttir Mannlífs frá upphafi – Harmleikir, kynferðisbrot og Eiður Smári

Mannlíf óskar öllum gleði­legrar hátíðar. Rit­stjórn Mannlífs þakkar les­endum sínum góða sam­leið og stór­auk­inn lestur.

Fjöl­margar fréttir Mannlífs hafa vakið mikla athygli og hefur mið­ill­inn verið leið­andi í stórum frétta­málum á árinu. Það eru síðan les­endur sem segja hug sinn og þessar fréttir eru þær sem hafa fengið mestan lestur frá upp­hafi:

1. Stefán Karlsson er lát­inn: Minning um leið­toga og ynd­is­lega mann­eskju lifir

106.300 les­endur. 

Stefán Karlsson lést langt fyrir aldur fram. Hann var fram­kvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórn­ar­maður í hand­knatt­leiks­deild félags­ins.

Blessuð sé minn­ing Stefáns.

Stefáni var lýst sem afar vönd­uðum manni, góð­hjört­uðum og ráða­góðum. Stefán var einnig mik­ill leið­togi og tók hann á móti öllum glað­beittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Fjöl­margir minnt­ust Stefáns á sam­fé­lags­miðlum.

„Minning um frá­bæran leið­toga og ynd­is­legan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Vals­sam­fé­lag­inu.“

„Þetta eru skelfi­legar fréttir. Stefán var ein­stak­lega góður og vand­aður maður. Hans verður sárt saknað en minn­ingin um góðan dreng lifa. Inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu hans og vina.“

2. Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

103.700 les­endur.

Mannlíf greindi fyrst allra miðla frá hand­töku lands­liðs­manns­ins Gylfa Þór Sig­urðs­sonar og meintu kyn­ferð­is­broti hans gegn ólög­ráða stúlku.

Frægt var þegar Alex­andra og Gylfi gengu í hjóna­band á Ítalíu.

Mannlíf greindi frá því að eig­in­kona Gylfa – Alex­andra Helga Ívars­dóttir – væri komin til lands­ins. Á sama tíma var nán­asta fjöl­skylda Gylfa komin til Englands, og Gylfi sagður vera kom­inn með hóp lög­fræð­inga til að verja sig.

Í sam­tali við Mannlíf bar tengda­faðir Gylfa þær sögu­sagnir til baka að þau stæðu í hjóna­skiln­aði vegna máls­ins.

3. Selma Björns hitti drauma­prins­inn í Álfta­neslaug: Faðirinn fór hjá sér – „Hápunktur vik­unnar“

94.900 les­endur.

Selma Björns­dóttir er ein okkar besta söng­kona, frá­bær leik­kona og þá hefur hún raðað sér á bekk með okkar bestu leik­stjórum. Hún sagði frá því að hún hafi skellt sér í Álfta­neslaug.

Selma Björns­dóttir.

Selma fór í heitan pott og lá þar í mestu mak­indum þegar drauma­prins­inn ákvað að láta til skarar skríða. Við gefum Selmu orðið:

„Ég lá í mestu mak­indum í heita pott­inum í Álfta­neslaug­inni þegar sirka 3 ára prins fikraði sig hægt í átt­ina að mér, sett­ist við hlið mér, lyfti hand­leggnum á mér upp á yfir­borð vatns­ins og kyssti mig létt á hand­ar­bakið.“ Selma segir að strák­ur­inn hafi síðan fikrað sig aftur til föður síns. Aðspurð hvernig pabbi drengs­ins hafi tekið upp­á­tæki sonar síns, svarar Selma: „Hann varð bara vand­ræða­legur hahahahaha. Þetta er greini­lega ekki eitt­hvað sem sonur hans gerir reglu­lega. […] Klárlega hápunktur vik­unnar hjá mér,“ bætir Selma við en þessi jákvæða og skemmti­lega frá­sögn vakti mikla lukku á Facebook-síðu hennar.

Þá benti Selma á að það séu litlu hlut­irnir sem skipti máli og útskýr­ingin er ein­föld. „Hann fékk mig til að brosa hring­inn þessi litli drauma­prins.“

4. Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær

89.800 les­endur. 

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, sem lagt hefur upp í hvern leið­ang­ur­inn á fætur öðrum til að reyna verj­ast konum sem hafa ásakað hann um alvar­legt kyn­ferð­is­legt ofbeldi, varð fyrir áfalli er Lands­réttur úrskurð­aði að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur skuli taka fyrir að nýju frá­vís­un­ar­kröfu Jóns Baldvins.

Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin hafði von­ast til spænsk lög­gjöf myndi bjarga honum frá ákæru en Carmen Jóhanns­dóttir hafði ásakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­brot og sagði hann hafa káfað á sér í vitna við­ur­vist á heim­ili Jóns og Bryn­dísar á Spáni. Carmen er æsku­vin­kona Aldísar, dóttur Jóns.

Hér­aðs­dómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim for­sendum að dóm­stólar hér­lendis hafi ekki lög­sögu í mál­inu.

5. Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsend­ingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

82.100 les­endur. 

Guðni Bergsson, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, KSÍ, ræddi við Eið Smára Gudjohn­sen, aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, vegna sögu­sagna um drykkju fyrir sjón­varps­út­send­ingu. Umtalað er að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsend­ingu sem knatt­spyrnu­sér­fræð­ingur í þætt­inum Vaktin í Sjón­varpi Símans. Myndbrot úr þætt­inum umdeilda má finna hér neðst.

Eiður Smári Guð­jón­sen

Talsverð umræða var um atvikið á sam­fé­lags­miðlum þar sem margir furð­uðu sig á því að ekk­ert hafi verið fjallað um það í fjöl­miðlum. Þar til Mannlíf sagði frá.

Eins og frægt er var Eiður Smári á end­anum sendur í leyfi vegna áfeng­is­vanda­mála sinna og á end­anum rek­inn af KSÍ úr starfi sínum sem aðstoð­ar­þjálf­ari.

6. Kara Kristel sýnir brjóstið og ávarpar þjóð­ina: „Kemur okkur öllum við“

78.900 les­endur.

„Þetta er eitt­hvað sem kemur okkur öllum við,“ sagði áhrifa­vald­ur­inn Kara Kristel í sam­tali við Mannlíf. Hún er ein af þeim sem voru rang­lega greindar í leg­háls­skimun Krabba­meins­fé­lags Íslands.

Kara Kristel áhrifa­valdur.

Á tveimur árum fór Kara tvisvar. Hana grun­aði að eitt­hvað amaði að en það var ekki fyrr en ári síðar að sím­talið kom. Þá hafði sýni Köru verið end­ur­skoðað eftir að ung kona lést úr leg­hálskrabba­meini. Kara opn­aði sig um reynslu sína og sagði:

„Seinasta sumar lést ung kona vegna þeirra mis­taka og í kjöl­farið hófst rann­sókn­ar­ferli. Ég var kölluð inn strax og í for­gangs­röð vegna aðstæðna. Nið­ur­stöður komu hratt og voru ekki beint fal­legar og lof­uðu alls ekki góðu.

„Þetta eru ekki skemmti­leg­ustu frétt­ir heims­ins. Ég var ekki leið eða reið, þetta kom mér eig­in­lega ekki á óvart vegna þess að ég þekki lík­amann minn mjög vel og ég fann að það var eitt­hvað að.“

7.

Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

74.500 les­endur.

Mikið hefur verið bent á það að þolendur komi ekki fram undir nafni í tengslum við hina svo köll­uðu Meetoo bylt­ingu og virð­ist fólk alls ekki skilja af hverju þolendur eða meintir þolendur kjósi nafn­leynd. Á þessu er engin breyt­ing ef horft er til fjölda mála sem upp hafa komið í tengslum við þekktan tón­list­ar­mann, Ingó Veðurguð.Andrea Aldan Hauks­dóttir steig fram undir nafni og hafði hún greini­lega fengið nóg af þeirri umræðu að meint fórn­ar­lömb Ingós komi ekki fram undir nafni. Hún sagði frá sínum kynnum við Ingó, þá 19 ára gömul. Við skulum gefa Andreu orðið:

Andrea Aldan Hauks­dóttir.

„..kom mér á ó­vart er hversu ljóta hluti er hægt að setja fram um fólk án þess að borin sé á­byrgð á því. Það kemur mér líka á óvart hvað er hægt að ganga langt og taka ekki ábyrgð á því hvernig þú hefur hagað þér. Ef það er erfitt að þetta sé nafn­laust þá skal ég koma fram undir nafni.Ég var 19 ára og var að vinna á Oliver þar sem hann tróð upp viku­lega. Það var bún­inga­staffa­p­artí og ég var í skóla­stelpu­bún­ing. Ég stend við bar­inn og finn að það er ein­hver að taka upp pilsið mitt. Svo aftur. Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt.“8.

Litli dreng­ur­inn jarð­sung­inn á föstu­dag

72.200 les­endur. 

Mannlíf greindi frá útför ungs drengs sem fannst lát­inn í heima­húsi í Garðabæ í sept­em­ber síð­ast­lið­inum. Max­im­il­ian Helgi Ívarsson var aðeins ell­efu ára gam­all þegar hann lést með svip­legum hætti.

Sam­fé­lagið var í sárum vegna and­láts Max­im­illian og var málið mjög umtalað á meðal barna í Garðabæ. Ekkert hefur verið gefið upp um málið annað en að ekki sé grunur uppi um neitt sak­næmt.

9. Nafn manns­ins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elsk­aður, átti konu og barn og von á öðru

71.300 les­endur. 

Aftaka var framin við Rauða­gerði um mið­nætti á laug­ar­dag. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur.

Blessuð sé minn­ing Armando.

Armando virt­ist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leið­inni er hann stakk kjör­seðli í kass­ann í þing­kosn­ingum hér á landi. Armando var líka harður stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins.

Skömmu fyrir mið­nætti lagði Armando bíl sínum inn í bíl­skúr og á sömu stundu og hann var að ganga að úti­dyr­unum er talið að bíl hafi verið ekið fram­hjá hús­inu og þaðan hafi hverju byssu­skot­inu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hæfðu kúl­urnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vett­vangi fannst Armando liggj­andi í blóði sínu og var reynt end­ur­lífgun og hann fluttur á spít­ala.

Armando komst aldrei til með­vit­undar og var hann úrskurð­aður lát­inn á Land­spít­al­anum stuttu eftir komu þangað.

10.  Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum

70.600 les­endur. 

Fyrst allra fjöl­miðla heims greindi Mannlíf frá ásök­unum á hendur fót­bolta­kapp­anum og lands­liðs­mann­inum Gylfa Þór Sig­urðs­syni. Sögur flökk­uðu um sam­fé­lags­miðla og því haldið fram að hann hafi verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósið­sam­leg skila­boð.

Síðar kom í ljós að Gylfi Þór var hand­tek­inn af bresku lög­regl­unni grun­aður um brot gegn ólög­ráða stúlku. Rannsókn máls­ins stendur enn yfir og hefur lög­reglan gefið sér frest fram í jan­úar að klára hana.

Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu og verstu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun um hræði­legt athæfi en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sig­urðs­son sé sak­laus af því sem á hann er borið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi