Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær

Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr­verandi ráðherra, sem lagt hefur upp í hvern leiðangurinn á fætur öðrum til að reyna verjast konum sem hafa ásakað hann um alvarlegt kynferðislegt ofbeldi, varð fyrir áfalli er Lands­réttur úrskurðaði að Héraðs­dómur Reykja­víkur skuli taka fyrir að nýju frávísunar­kröfu Jóns Baldvins. Jón Baldvin hafði vonast til spænsk löggjöf myndi bjarga honum frá ákæru en Carmen Jóhanns­dóttir hafði ásakað Jón Baldvin um kynferðis­brot og sagði hann hafa káfað á sér í vitna viðurvist á heimili Jóns og Bryndísar á Spáni. Carmen er æsku­vinkona Aldísar, dóttur Jóns.

Við þing­festingu málsins í Héraðs­dómi Reykja­víkur á sínum tíma krafðist sendi­herrann fyrr­verandi að ákærunni yrði vísað frá. Frávísunar­krafan byggði á svokallaðri þegnreglu sem varðar lögsögu ríkja. Megin­inntak hennar er að ríkið getur almennt tekið lögsögu yfir íslenskum ríkis­borgurum, eða þeim sem búsettir eru á Íslandi, vegna brota sem framin eru erlendis, ef brotið er jafnframt refsivert þar.

Héraðs­dómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim forsendum að dómstólar hérlendis hafi ekki lögsögu í málinu.

Þessu fagnaði Jón Baldin og Bryndís með skrifum á samfélags­miðlum og víðar. Nú hefur enn eitt áfallið riðið yfir Jón Baldvin á skömmum tíma. Fyrir tæpri viku stigu þrjár nafn­greindar konur, Ragna Björg Björns­dóttir, Sigur­björg Jóns­dóttir og Elísabet Sif Helga­dóttir fram í Frétta­blaðinu og lýstu kynferðislegri áreitni sem þær sögðust hafa orðið vitni að eða verið þolendur hans. Konurnar eiga það sameiginlegt að vera óumdeildar.

Í liðnum Orðrómur hér á síðu Mannlífs segir um umfjöllun Frétta­blaðsins:

„Sigur­björg var 15 ára nemandi í Hagaskóla þegar hún segir að Jón Baldvin, kennari hennar, hafi áreitt sig gróflega og farið ítrekað á fjörur við sig. Tugir kvenna hafa sömu sögu að segja. Jón Baldvin segir þær ljúga allar. Meðal þeirra sem segjast vera fórnar­lamb Jóns Baldvins er Aldís Schram, dóttir hans, sem hann er nú í meiðyrða­máli við. Fram­burður kvennanna þriggja í Frétta­blaðinu í dag er áfall fyrir Jón Baldvin.“

Nú tæpri vikur síðar fékk Jón Baldvin þær fréttir að Lands­réttur hafi úrskurðað í gær að Héraðs­dómur Reykja­víkur skuli taka mál Carmen aftur fyrir. Í úrskurði Lands­réttar segir að þar sem hafi liðið meira en fjórar vikur frá því að munnlegur málflutningur um frávísunar­kröfuna lauk og þar til úrskurður lá fyrir skulu mál Carmen gegn Jóni Baldvin vera tekið fyrir að nýju. Landsréttar­dómararnir Jón Höskuldsson, Krist­björg Stephensen og Ragn­heiður Harðar­dóttir Kváðu upp eftir­farandi úrskurð:

„Lengri tími en fjórar vikur liðu frá munnlegum málflutningi um frávísunar­kröfu X þar til úrskurður var kveðinn upp. Þar sem málið var ekki flutt að nýju og ekki mátti ráða að aðilum hefði verið gefinn kostur á því né að þeir hefðu lýst því yfir að þess gerðist ekki þörf og að dómari væri því sammála, var hinn kærði úrskurður ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og uppkvaðningar úrskurðar að nýju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra