Selma Björnsdóttir er handhafi margra titla. Hún er ein okkar besta söngkona, frábær leikkona og þá hefur hún raðað sér á bekk með okkar bestu leikstjórum. Selma er líka athafnarstjóri hjá Siðmennt og nú hefur komið í ljós að hún kann listina að segja góða sögu.
Selma segir frá því á Facebook að hún hafi skellt sér í Álftaneslaug. Hún fór svo í heitan pott og lá þar í mestu makindum þegar draumaprinsinn ákvað að láta til skarar skríða. Við gefum Selmu orðið:
„Ég lá í mestu makindum í heita pottinum í Álftaneslauginni þegar sirka 3 ára prins fikraði sig hægt í áttina að mér, settist við hlið mér, lyfti handleggnum á mér upp á yfirborð vatnsins og kyssti mig létt á handarbakið.“ Selma segir að strákurinn hafi síðan fikrað sig aftur til föður síns. Aðspurð hvernig pabbi drengsins hafi tekið uppátæki sonar síns, svarar Selma: „Hann varð bara vandræðalegur hahahahaha. Þetta er greinilega ekki eitthvað sem sonur hans gerir reglulega. […] Klárlega hápunktur vikunnar hjá mér,“ bætir Selma við en þessi jákvæða og skemmtilega frásögn hefur vakið mikla lukku á Facebook-síðu hennar. Þá bendir Selma á að það séu litlu hlutirnir sem skipti máli og útskýringin er einföld.
„Hann fékk mig til að brosa hringinn þessi litli draumaprins.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir