Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Guðni Bergsson, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, KSÍ, ræddi við Eið Smára Gudjohn­sen, aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, vegna sögu­sagna um drykkju fyrir sjón­varps­út­send­ingu. Umtalað er að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsend­ingu sem knatt­spyrnu­sér­fræð­ingur í þætt­inum Vaktin í Sjón­varpi Símans. Myndbrot úr þætt­inum umdeilda má finna hér neðst.

Rætt um þöggun

Nokkur umræða hefur verið um atvikið á Twitter en sumir furða sig á því að ekk­ert hafi verið fjallað um það í fjöl­miðlum. Einn þeirra er Tómas Orri Hreins­son en hann hefur verið dóm­ari í knatt­spyrnu­leikjum öðru hvoru síð­asta ára­tug. Hann telur þögn um málið sýna að frétta­mat íþrótta­f­rétta­manna sé óeðli­legt.

„Íþrótta­f­réttir: tvær ungar stúlkur hitta enska lands­liðs­menn og fá mikla umfjöllun. Mjög eðli­legt imo. Lands­liðs­þjálf­ari Íslands mætir undir áhrifum í beina útsend­ingu sem sér­fræð­ingur. Enginn segir neitt. Mjög óeðli­legt imo,“ skrifar hann.

Tómas ítrekar þó að hann sé ekki að gagn­rýna Eið sér­stak­lega heldur við­brögðin. „Og svo ég sé skýr með þetta. Hann gerði ekk­ert vit­laust. Það að honum hafi verið hleypt í settið er hins­vegar glóru­laust. Tómas Þór hefði ein­fald­lega átt að grípa innî og meina honum aðgang, sem stjórn­andi þátt­ar­ins. Gagn­rýnin er ekki á ein­stak­ling­inn. Gagn­rýnin er á þögg­un­ina og með­virkn­ina í kringum þetta. Ég óska honum einskis ills eða ann­ara hrak­falla, gagn­rýnin snýr að Síminn Sport og KSÍ að láta eins og ekk­ert sé. Gangi honum sem allra best.“

Ræddi við Eið Smára

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, stað­festir að Guðni hafi rætt við Eið vegna máls­ins enda hafi í upp­hafi ekki verið ánægja með það inn­an­húss þegar sögu­sagn­irnar bár­ust þangað. Hún getur að öðru leyti ekki rætt ein­staka starfs­menn sam­bands­ins. „Okkur barst það til eyrna að þarna hafi hann ekki átt sinn besta leik og Guðni er búinn að vera í sam­bandi. Þar heyrði Guðni hans hlið á mál­inu varð­andi þennan til­tekna sjón­varps­þátt. Þarna er um að ræða sjón­varps­þátt þar sem við­kom­andi starfs­maður var ekki á vegum KSÍ. Hvað ger­ist þar er kannski eitt­hvað sem við vitum ekki nákvæm­lega hvað er. Full­trúar okkar eru hins vegar alltaf full­trúar KSÍ hvar sem þeir eru,“ segir Klara.

Guðni þrætir fyrir samtalið

Í sam­tali við Mannlíf neitar Guðni því aftur á móti að hafa rætt við Eið Smára. Hann telur að hér sé lítið annað en vanga­veltur á ferð­inni. „Nú, hvaðan færðu það að ég hafi sett mig í sam­band við Eið? Veistu, þetta hefur ekki komið neitt sér­stak­lega til tals og Eiður er bara að und­ir­búa sig fyrir verk­efnin framundan,“ segir Guðni.

Þegar blaða­maður ítrek­aði spurn­ing­una hvort hann hafi rætt við aðstoð­ar­lands­liðs­þjálf­ar­ann vegna sögu­sagn­anna sagði Guðni: „Ég hef bara í raun­inni rætt verk­efnin framundan en ekk­ert um þetta sér­stak­lega. Þetta eru vanga­veltur um sjón­varps­þátt sem ég hef ekki séð mikið af. Yfir­höfuð ræði ég ekki sam­töl við mína starfs­menn.“

Pálmi skellti á

Tómas Þór Þórð­ar­son, rit­stjóri Enska bolt­ans í Sjón­varpi Símans, vildi hvorki tjá sig um þær sögu­sagnir sem á sveimi eru um að Eiður Smári hafi verið undir áhrifum í þætt­inum hjá sér né hvernig hann liti til þess hafi lands­liðs­þjálf­ar­inn verið undir áhrifum í sett­inu. Sjálfur kom hann af fjöllum varð­andi umræð­una. „Bera undir mig hvaða umræðu? Hver er spurn­ingin? Ég get nátt­úr­lega ekki svarað fyrir neitt sem hann gerði eða á að hafa gert. Því miður, þá hef ég bara ekk­ert um þetta mál að segja og mæli með því að þið talið við hann,“ segir Tómas ákveð­inn.

Pálmi Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps Símans, vildi heldur ekk­ert ræða hinar háværu sögu­sagnir um Eið Smára í sjón­varps­sett­inu. „Þú ert búinn að tala við rit­stjór­ann minn og við látum það bara duga,“ sagði Pálmi og lauk sím­tal­inu í kjöl­farið með því að skella á.

Mannlíf hefur gert til­raunir til að fá við­brögð frá Eiði en án árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi