Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Læsti son sinn úti á aðfangadagskvöld vegna seinkomu – Þá sagði faðirinn: „Hingað og ekki lengra!“

Læsti son sinn úti á aðfangadagskvöld vegna seinkomu – Þá sagði faðirinn: „Hingað og ekki lengra!“

Fjögurra barna banda­rísk móðir læsti son sinn úti á jól­unum.

Móðirin seg­ist alls ekki vera ströng, svo lengi sem börnin komi heim á réttum tíma.

Geri heim­il­is­verkin og sýni for­eldrum sínum virð­ingu.

Afleið­ingar þess að brjóta þessar reglur eru þó ekki vægar, væg­ast sagt.

16 ára sonur hennar kom heim klukku­tíma of seint á aðfanga­dag eftir að hafa farið á stefnu­mót.

Þá var móð­irin stranga búin að læsa úti­dyra­hurð­inni.

Þegar son­ur­inn bank­aði á úti­dyra­hurð­ina á heim­ili sínu sagði móð­irin honum að sofa úti í tré­hús­inu í garði fjöl­skyld­unnar.

Hann átti að læra af því að virða ekki úti­vist­ar­tíma; læra að taka afleið­ingum þess að fara ekki í einu og öllu eftir lögum og reglum hinnar ströngu móður hans.

Svo fór að syn­inum sein­heppna var hleypt aftur inn á heim­ilið sitt klukkan sex á jóla­dags­morgun.

Og ekki er allt búið, ónei!

Móðirin stranga var mjög reið og ósátt með að sonur hennar hafi farið að sofa, þegar honum var hleypt aftur inná heim­ili sitt, og inn í her­bergið sitt, og ekki komið fram úr rúm­inu og út úr her­bergi sínu, fyrr en um hádegið.

Hann hafi látið systk­ini sín bíða með að opna jóla­gjaf­irnar og vildi refsa syni sínum enn og aftur, jafn­vel með enn verri hætti, þótt það væru jól.

En þá setti faðir drengs­ins konu sinni fót­inn fyrir dyrnar, og sagði:

„Hingað og ekki lengra!“

Tjáði konu sinni á svo ákveð­inn hátt, án alls ofbeldis, að það að refsa drengnum annan dag­inn í röð á sjálfum jól­unum með grimmi­legum hætti væri aðeins of mikið af því góða og gott betur.

Faðirinn sagði það ekki koma til greina.

Var mjög ákveð­inn og stað­fastur og stóð sem klettur við hlið sonar sín, og sagði það grimmi­legt, og hrein­lega hálf­gert ill­virki, að refsa syn­inum fyrir að sofa lengur eða út um jólin; eitt­hvað sem flestir nem­endur og aðrir sem eru í fríi þá dag­ana, gera statt og stöðugt, og fáum þykir það vera neitt til­töku­mál.

Faðir drengs­ins fékk sitt fram og kom alltof strangri konu sinni í skiln­ing um að hann myndi ekki upp frá þessu láta við­gang­ast grimmar refs­ingar til handa börnum sínum af hendi móður þeirra og konu hans.

Faðirinn sagði síðan að sonur þeirra hafi ein­fald­lega gert mis­tök, og að allir geri mörg mis­tök í líf­inu.

Sagði síðan að lokum við konu sína að hún gerði ekk­ert færri mis­tök en aðrir; að hún skyldi ein­fald­lega hætta að ein­blína á mis­tök ann­arra og refs­ingar vegna strangra og grimmi­legra reglna hennar gagn­vart börnum sínum.

Sagði henni líka að byrja að læra að meta börnin sín meira og fara að slaka aðeins á og njóta lífs­ins, því það væru ekki allir í heim­inum sem hefðu það eins gott og fjöl­skyldan þeirra.

Upp frá þessu varð and­rúms­loftið á heim­il­inu smátt og smátt meira afslapp­andi og skemmti­legt og öllum grimmi­legum refs­ingum hætt.

En þrátt fyrir þetta, og kannski bara ekk­ert annað en eðli­legt og jákvætt dæmi, þá hélt móð­irin áfram að vera ströng við börnin sín.

En á allt annan hátt; hún breytti sjálfri sér úr grimmri mann­eskju sem vildi refsa börnum sínum harð­lega ef ekki væri farið í einu og öllu eftir því sem hún fyr­ir­skip­aði.

Hún breytt­ist á þann máta að gagn­rýni hennar á alla í fjöl­skyld­unni varð upp­byggi­leg.

Og ströngu regl­urnar hennar urðu að upp­byggi­legum kröfum um að gera vel í líf­inu og voru settar fram með rök­stuðn­ingi og fræðslu; og ef ein­hver gerði mis­tök eða gerði eitt­hvað af sér í fjöl­skyld­unni; fór ekki eftir upp­byggi­legu regl­unum sem móð­irin hafði sett fram þá var ekki lengur beitt refs­ingum, heldur rætt opin­skátt um vanda­málið og það leyst á sann­gjarnan og eðli­legan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar