Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jakob Birgisson – „yngsti eldri borgari landsins“

Jakob Birgisson – „yngsti eldri borgari landsins“

Einn af fyndn­ustu mönnum Íslands, Jakob Birg­is­son, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs í þetta skipti.
Jakob sló heldur betur í gegn er hann þreytti frumraun sína í uppi­standi haustið 2018, með sýn­ing­unni Meistari Jakob. Leiðin hefur aðeins legið upp á við síðan hjá þessum unga manni, en hann var meðal ann­ars einn af hand­rits­höf­undum ára­mótaskaups­ins 2019.
Mannlíf komst að því að þessi dægrin dvelur Jakob á Tenerife ásamt fjöl­skyldu sinni, hann er ekki mikið fyrir að fara í bíó og seg­ist vera orð­inn hálf­ónæmur fyrir vand­ræða­legum augna­blikum.

Fjöl­skyldu­hagir? Ég bý með Sólveigu, unn­ustu minni, og saman eigum við Herdísi, eins árs.

Menntun/atvinna? Stúd­ents­próf frá MR, svo basla ég í Háskóla Íslands. Ég er uppi­stand­ari að atvinnu.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Succession. Stór­kost­legir þættir.

Leikari? Upp­á­halds íslensku leik­ar­arnir mínir eru Helga Braga, Ingvar E. og Katla Margrét. Jonah Hill er í upp­á­haldi utan land­stein­anna.

Rit­höf­undur? Allir eðli­legir mennta­skóla­nemar heill­ast af Þórbergi, ef þeir hafa gæfu til að kynn­ast verkum hans. En ég er voða­lega ómerki­legur les­andi: reyni að lesa slatta af því sem kemur út hver jól og blanda heims­bók­menntum inn í eftir atvikum. Hef nú orðið mest gaman af að lesa end­ur­minn­ingar.

Bók eða bíó? Ég hef aldrei verið spenntur fyrir bíói, þótt það geti verið skemmti­legt. Tek bók­ina fram yfir.

Besti matur? Segi eins og íslenskur, per­sónu­leika­laus karl­maður: pítsa

Kók eða pepsí? Hvorugt

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Ísa­fjörður og Vest­firðir í heild. Mér finnst líka umhverfið í gamla Vest­ur­bænum, þar sem ég bý, fal­legt.

Hvað er skemmti­legt? Er að vinna í þessu með sál­fræð­ingi. Reyna að heila­þvo mig svo mér finn­ist nán­ast allt skemmti­legt. Mér finnst flest fínt núorðið.

Hvað er leið­in­legt? Fólk sem mælir með sjón­varps­þáttum við mann.

Hvaða flokkur? Ég stend utan flokka, en hef gaman af mörgum póli­tíkusum og reyni auð­vitað að fylgj­ast með eftir bestu getu.

Hvaða skemmti­staður? Prikið í denn. Nú fer ég minna á skemmti­staði, finnst best að spjalla við vini í róleg­heitum.

Kostir? Hug­mynda­ríkur.

Lestir? Hug­mynda­ríkur.

Hver er fynd­inn? Inga Sæland.

Hver er leið­in­legur? Snorri Másson, frétta­maður Stöðvar 2.

Trúir þú á drauga? Nei.

Stærsta augna­blikið? Fæðing frum­burð­ar­ins.

Mestu von­brigðin? Covid.

Hver er draum­ur­inn? Draum­ur­inn er móðu­kenndur. Halda áfram með lífið.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Árið er nú bara rétt að byrja. En ætli afrekið sé ekki að verða yngsti eldri borg­ari lands­ins, 23 ára gam­all. Hef haldið mig á Tenerife það sem af er ári, í að verða þrjár vikur. Vinn héðan, fjargiggin eru jafn­vel betri í sól­inni. Annars hlakka ég til þess er þetta kemst í eðli­legri horfur aftur.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Fjarri lagi. Ég er samt ekki sér­lega mark­miða­drif­inn, meira með óljósar hug­myndir. En það er nóg eftir, bæði í vinnu og per­sónu­lega líf­inu.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ég vinn við að segja þá, þótt ótrú­legt megi virð­ast. Svo svarið er já.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þau eru mörg, en sitja ekki mikið í mér. Orðinn hálf­ónæmur fyrir slíku.

Sorg­leg­asta stundin? Ég veit það eig­in­lega ekki.

Mesta gleðin? Fæðing frum­burð­ar­ins.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Varla hægt að svara þess­ari spurn­ingu skemmti­lega. Fjöl­skylda og vinir. Og auð­vitað heilsan. Reyna að vera almenni­legur við fólk og gera eitt­hvað skemmti­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina