Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sakar lækna um hræðsluáróður til að fá meira fjármagn: „Þeir viti betur en sauðsvartur almúginn“

Sakar lækna um hræðsluáróður til að fá meira fjármagn: „Þeir viti betur en sauðsvartur almúginn“
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Jón Steinar Gunn­laugs­son lög­maður skrif­aði pistil og birti bæði í Morg­un­blað­inu í dag og á heima­síðu sinni, undir heit­inu Frelsi í stað vald­beit­ingar. Þar gagn­rýnir hann sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda og sakar lækna um að tala fyrir hörðum að­gerðum til að fá meira fjár­magn til Land­spít­al­ans.

Jón Steinar er partur af sístækk­andi hópi fólks, oftar en ekki úr Sjálf­stæð­is­flokknum, sem vill stytta eða afnema flest boð og bönn sem sett hafa verið á í bar­átt­unni við heims­far­ald­ur­inn. Fleiri úr þessum hópi eru til að mynda Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, Utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra sem öll hafa talað fyrir til­slök­unum á sótt­varn­ar­lögum.

Í byrjun pistils­ins talar Jón Steinar um Omicron afbrigðið sem hann telur hættu­lítið fyrir 99% þeirra sem smit­ast.

„Nú hefur legið fyrir um hríð að smit af kór­ónu­veirunni verða nær ein­göngu af því afbrigði sem nefnt hefur verið Omicron. Þar með liggur fyrir að vel yfir 99% af þeim sem smit­ast verða lítt eða ekki veikir. Samt er haldið áfram að skerða frelsi manna í stórum stíl.“

Jón heldur áfram og talar um hræðslu­á­róður.

„Atvinnu­fyr­ir­tækjum er lokað og ein­stak­lingum er bannað að fara út úr húsi. Þetta er allt saman full­frískt fólk sem stjórn­völd segj­ast beita þessu valdi til að forð­ast útbreiðslu smits. Beitt er hræðslu­á­róðri til að halda þessum stjórn­tökum uppi. Talað er um að „hópsmit“ sé yfir­vof­andi, án þess að gera grein fyrir hætt­unni sem af því á að stafa. Það er eins og sumir læknar telji sjálf­sagt að beita menn þessu valdi. Þeir viti betur en sauð­svartur almúg­inn hvað honum er fyrir bestu. Samt eru það gömul og ný sann­indi að bestu varð­menn hags­muna ein­stak­linga eru þeir sjálfir.“

Jón Steinar telur mögu­lega best ef sem allir smit­uð­ust til að ná hjarð­ó­næm­inu.

„Eins og bent hefur verið á, er ekki nein þörf á að beita þessum brögðum til að hindra útbreiðslu smits­ins. Ein­fald­lega vegna þess að lítil sem engin áhætta fylgir því að smit­ast. Kannski er bara best að sem flestir smit­ist af veirunni sem nú orðið má telja sak­lausa. Þannig hlýtur svo­nefnt hjarð­ó­næmi að nást fyrr en ella.“

Í loka­orðum sínum skýtur Jón föstum skotum á lækna og veltir því fyrir sér hvort þeir séu að búa til stöðu til þess að þrýsta á hærri fram­lög úr rík­is­sjóði.

„Hér er alltof miklu fórnað fyrir lítið. Per­sónu­legt frelsi með ábyrgð telst til þeirra lífs­hátta sem við viljum við­hafa. Látum ekki ein­sýna lækna villa okkur sýn. Kannski eru þeir bara að búa til stöðu sem þeir telja að þrýsti á um hærri fram­lög úr rík­is­sjóði (les: frá skatt­greið­endum) til Land­spít­al­ans? Hlustum frekar á þá virð­ing­ar­verðu starfs­bræður þeirra sem vilja ekki taka þátt í þessu ofríki og mæla með aflétt­ingu vald­beit­ing­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við