Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Merkúr í afturhvarfi – Tímabilið þegar allt fer úrskeiðis

Merkúr í afturhvarfi – Tímabilið þegar allt fer úrskeiðis

Gengur allt á aft­ur­fót­unum hjá þér þessa dag­ana? Kannski finnst þér eins og eng­inn skilji þig, eða að þú lendir stans­laust í vand­ræðum í sam­skiptum. Ef til vill fara samn­ingar út um þúfur, ferða­lög ganga ekki eftir eða fara hrapal­lega úrskeiðis, tæknin bregst þér hvað eftir annað og tæki bila. Mikilvæg gögn týn­ast eða lenda í röngum höndum.

Nokkrum sinnum á ári fer plánetan Merkúr í „aft­ur­hvarf“ eða „við­snún­ing“. Séð frá jörðu virð­ist okkur þá plánetan snúa við á braut sinni um sólu. Allar plánet­urnar snú­ast rang­sælis um sól­ina en nokkrum sinnum á ári, í nokkrar vikur í senn, virð­ist Merkúr snú­ast rétt­sælis. Í raun­inni er um að ræða ákveðna sjón­hverf­ingu; Merkúr er ekki raun­veru­lega að fara aftur á bak. Hins vegar fer plánetan fram úr jörð­inni fjórum sinnum á ári og afstaða hennar gagn­vart jörð­inni breyt­ist.

Hvernig sem vís­indin útskýra fyr­ir­bærið og hvað sem það heitir, getur það haft tölu­verð áhrif á okkar dag­lega líf, sam­kvæmt stjörnu­spek­inni.

Samskiptaplánetan

Samkvæmt stjörnu­speki er Merkúr sú pláneta sem hefur mest áhrif á sam­skipti okkar. Merkúr hefur mikið að gera með tján­ingu, hvernig við lærum, störfum og eigum sam­skipti við annað fólk. Merkúr stjórnar hinu tal­aða og rit­aða orði. Sömu­leiðis hefur hann tölu­verð áhrif á tæki og tækni, sem og ferða­lög.

Þegar Merkúr er í aft­ur­hvarfi getur því allt sem hefur með þessa hluti að gera, farið for­görðum. Fólk er í dag­legu tali oft farið að kenna þessu fyr­ir­bæri um margt sem aflaga fer. Sam­skipti verða oft rugl­ings­leg, rifr­ildi og mis­skiln­ingur eykst, munn­legir samn­ingar ganga ekki eftir, tölvur og tæki bila, inter­netið virð­ist ekki geta verið til friðs, síður liggja niðri, við­kvæmur tölvu­póstur send­ist óvart á ranga aðila og svo mætti lengi telja.

Þegar þessi grein kemur út erum við einmitt stödd í einu slíku aft­ur­hvarfi Merkúrs. Þetta aft­ur­hvarf stendur frá 14. jan­úar til 3. febr­úar. Þetta fer því að stytt­ast í annan end­ann.

Yfir­leitt er talað um að svokölluð skugga­tíma­bil geti fylgt aft­ur­hvarf­inu og því getum við fundið fyrir örlitlum áhrifum þess rétt áður en það hefst og í stuttan tíma eftir að því lýkur. Þetta er ein­ungis fyrsta aft­ur­hvarf Merkúrs af fjórum árið 2022. Hin tíma­bilin eru:

10. maí–3. júní

8. september–2. október

29. desember–18. janúar 2023

Ástarsambönd í brennidepli

Þar sem plánetan Venus er líka í aft­ur­hvarfi núna ýtir það undir flækjur tengdar ást­ar­sam­böndum. Þar sem Venus stjórnar ást­inni og Merkúr sam­skiptum er þetta því lík­lega ekki besti tím­inn til að eiga mik­il­væg, alvar­leg og magn­þrungin sam­töl í para­sam­böndum okkar.

Venus hefur líka mikið með fjár­muni að gera og því er lík­lega far­sæl­ast að rukka ekki gamlar skuldir eða halda stóra fundi er varða starfs­frama. Það er auð­vitað ekk­ert bannað undir sól­inni, en það er þá rétt­ast að búa sig undir að hlut­irnir gangi ekki endi­lega eins og þú hefðir helst viljað.

Vatnsberar og steingeitur finna fyrir mestum áhrifum

Þegar Merkúr er í aft­ur­hvarfi fær­ist hann aftur á bak í stjörnu­merkjum í afstöðu sinni til jarð­ar­innar. Í því aft­ur­hvarfi sem við erum nú stödd í byrj­aði Merkúr því í stjörnu­merki Vatns­ber­ans en færð­ist svo nýverið, þann 25. jan­úar, í merki Stein­geit­ar­innar. Þetta þýðir að búast má við að aft­ur­hvarf Merkúrs hafi hvað mest áhrif á fólk í þessum tveimur merkjum og fólk sem er með Merkúr í sínu eigin stjörnu­korti í Vatns­bera eða Stein­geit. Öll áhrif aft­ur­hvarfs­ins verða með öðrum orðum sterk­ari fyrir þetta fólk.

En hvernig komumst við í gegnum svona tímabil?

Við gerum það auð­vitað nú þegar, nokkrum sinnum á ári, en til þess að sigla á sem far­sælastan hátt í gegnum aft­ur­hvarf Merkúrs er best að nýta tím­ann í sjálfs­skoðun, fara vand­lega yfir öll sam­skipti og sitt eigið sam­skipta­form, lesa vel yfir allan tölvu­póst og passa að allir samn­ingar og sam­komu­lög séu afar nákvæm og gefi ekk­ert rými fyrir mis­skiln­ing eða glufur.

Ef fólk er til dæmis að gera til­boð í hús­næði er best að hafa kauptil­boðið nákvæmt niður í öreindir, passa upp á allar klausur, lesa vel yfir allt sem kemur frá hinni hlið­inni og umfram allt – gera ítar­lega ástands­skoðun með hjálp fag­manns á eign­inni. Skoðið vand­lega sam­skipti fólks í hús­inu ef um er að ræða fjöl­býli, farið yfir hús­sjóð og fáið fund­ar­gerðir og upp­lýs­ingar um við­hald. Allt eru þetta hlutir sem stjörnu­spekin segir okkur að kraftur Merkúrs geti haft áhrif á.

Passið að lesa ávallt smáa letrið, útskýrið ásetn­ing og mein­ingu ykkar vand­lega fyrir fólki til þess að forð­ast mis­skiln­ing, ekki kaupa dýr raf­tæki nema með tryggri ábyrgð og gerið ráð fyrir seinkun, aflýs­ingu og ves­eni á ferða­lögum. Takið afrit af öllum mik­il­vægum gögnum.

Tíma­bilin þegar Merkúr er í aft­ur­hvarfi geta raunar verið góður tími til þess að velta fyrir sér hvernig við komum fram og hvernig við bregð­umst við óvæntum flækjum og vanda­málum. Það má læra sitt­hvað á þessum tíma.

Og ef allt fer í klessu – þá get­urðu alltaf kennt Merkúr um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar