Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ofbeldismaðurinn og þerapistinn höfðu samband við Eddu Falak fyrir viðtalið-Bryndís segir sína sögu

Ofbeldismaðurinn og þerapistinn höfðu samband við Eddu Falak fyrir viðtalið-Bryndís segir sína sögu

Leik- og söng­konan Bryndís Ásmunds­dóttir sagði frá sögu sinni í við­tali við Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur en Bryndís var í ofbeld­is­sam­bandi og leit­aði í kjöl­farið aðstoðar þerapista sem braut ítrekað trúnað og siða­reglur. Þerapist­inn og ofbeld­is­mað­ur­inn eru sögð hafa „varað“ Eddu við Bryndísi fyrir við­talið.

Bryndís steig fyrst fram með sög­una af þriggja ára sam­bandi hennar við ofbeld­is­mann í við­tali við Bleikt árið 2016. „Þarna er ég búin að átta mig á þeirri stað­reynd að ég bjó við mjög alvar­legt ofbeldi“ Hún segir við­talið hafa vakið gríð­ar­lega athygli og að margar konur hafi leitað til sín með stuðn­ing og fengið hjá henni ráð. „Það gaf mér svo mikið að geta verið til staðar“

Bryndís segir sam­bandið hafa byrjað vel, hún hafi verið á bleiku skýi, í tvo mán­uði var þetta stór­kost­legt.

„Ég labb­aði sjálf inn í ginið á ljóni, fyrir mér eru ljón fal­leg og heill­andi en stór­hættu­leg“

Sumir furð­uðu sig á ákvörðun Bryn­dísar að vera með þessum manni, hann sé þekktur ofbeld­is­maður en hún segir það hafa vökvað skömm­ina sem hún var nú þegar að eiga við.

Hann beitti hana and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. „Maður er fljótur að hugsa, ég átti þetta skilið“ Einnig skammt­aði hann Bryndísi pen­inga viku­lega, hún var búin að missa allt fjár­hags­legt sjálf­stæði. Fyrr­ver­andi maður Bryn­dísar tryllt­ist við ýmis til­efni, hann setti á hana þau skil­yrði að halda heim­il­inu hreinu, eiga alltaf til­bú­inn kaldan bjór fyrir hann, heiti pott­ur­inn átti einnig að vera þrif­inn og til­bú­inn til notk­unar þegar hann kom heim úr vinnu. Bryndís segir hann hafa tryllst við minnstu til­efni, til dæmis þegar hún borð­aði hrökk­brauð því það heyrð­ist svo hátt í henni. Hún glýmdi við ýmsar rang­hug­myndir eins og algengt er hjá fórna­lömbum ofbeldis, að þetta væri henni að kenna og að hún þyrfti bara að standa sig betur.

„Ég ætla ekki að gef­ast upp, þetta mun verða betra. Ég þarf bara að standa mig betur“

Bryndís segir frá því þegar sam­band­inu lauk, þá hafi mað­ur­inn tryllst yfir súpu sem hann krafð­ist en hún hafi keypt hana til­búna í stað þess að gera hana frá grunni. „Það gerði loka­úts­lagið fyrir honum“

Hann skyldi Bryndísi eftir með ekk­ert, hann var búin að hafa allt af henni nema 3000 krónur í vesk­inu, hún segir sig þó ekki hafa losnað við hann eftir að sam­band­inu lauk.

„Þá tekur við umsátur, hann fær mig á heil­ann, elti mig eða lét fylgj­ast með mér, ég þorði varla út úr húsi“

Við tekur erf­iður tími, hún deyfði sig með áfeng­is­drykkju og lok­aði sig af þar til hún fann kraft­inn til að leita sér hjálpar, við tók áfallastreitu­með­ferð og við­töl hjá Stiga­mótum og í Bjarka­hlíð. Bryndís kærir ofbeldið og leitar sér svo hjálpar hjá sál­fræð­ingi fyrir sig og börnin sín.

„Stað­reyndin er sú, og allir vita, að það er mjög erfitt að kom­ast að hjá sál­fræð­ing og sér í lagi barna­sál­fræð­ing. En ég leita þarna til þess­ara konu sem að var að starfa þá á stað sem heitir Lausnin í Kópavogi. Þarna er ég mjög örvænt­ing­ar­full, ég er að fá upp­lýs­ingar þess efnis að fólk hefur gríð­ar­legar áhyggjur af barn­inu mínu, ver­andi heima hjá föður sínum þar sem er ofbeldi á því heim­ili. Fólk hefur áhyggjur, heyrir lætin, það er bara garg­andi ofbeldi í gangi,“ segir Bryndís. Konan var þó ekki sál­fræð­ingur heldur titl­aði sig sem „þerapista“

„Hann segir mér hvað hann gerir þegar pabbi verður brjál­aður“

„Ég byrja á því að tala við barnið, svona aðeins að athuga. En áttum okkur á því líka að þarna er hann mjög hræddur að segja mér frá hvað gengur á inni á heim­ili hjá pabba sínum, því þar er hann þjálf­aður í því að hann má ekki segja frá. En hann opnar sig og fer aðeins að tala um þetta og segir mér hvað hann gerir þegar pabbi verður brjál­aður,“

„Þarna er ég að treysta þess­ari konu fyrir börn­unum mínum. Ég hringi í þessa konu, eins og ég segi við vorum kunn­ingjar, og ég spyr hana um að hjálpa mér og að ég hafi áhyggjur af barn­inu mínu og segi henni frá þessu og minni fyrri reynslu af þessum manni, og að ég sé ekki ein og þetta sé ekki eina barnið. Þannig það er líka áríð­andi því þetta er mynstur. Hún bara alveg miður sín yfir þessu og að sjálf­sögðu ætl­aði hún að taka á móti drengnum. En ég spurði hana hvort hún væri búin að láta pabbann vita, þarna fannst henni það ekki áríð­andi, en henni bar skylda til að gera það.“ Bryndís og mað­ur­inn voru með sam­eig­in­lega for­sjá.

Bryndís segir þerapist­ann hafa endað á því að láta barns­föður sinn vita, sagt svo Bryndísi allt sem þeirra fór á milli og þar með brotið trúnað og siða­reglur.

„Ég átt­aði mig ekki á því strax því ég var svo mikið að hugsa hvort hún gæti ekki hjálpað drengnum mínum.“

„Í þessu ferli er hún algjör­lega sam­mála um að þetta sé áhyggju­efni, hún hefur áhyggjur af barn­inu. Hún var mjög dug­leg að tala við mig á Messen­ger á Facebook, og hringja. Og ég gat hringt í hana hvenær sem var, sem er eftir að hyggja mjög ófag­legt líka. Svo sagði hún við mig á ákveðnum tíma­punkti: „Ég var að spá í, á ég ekki að hringja í karl­inn.“ Og ég segi við hana: „Jújú, ég meina þú getur reynt það, en ég ætla að vara þig við, þetta er maður sem hatar konur eins og maður segir, hann á eftir að ná þér, hann á eftir að ná að snúa þér við og sann­færa þig um annað.““

Þerapist­inn hringir í hann og svo strax aftur í Bryndísi þar sem hún segir henni allt sem kom fram í sam­tal­inu við barns­föður hennar, þar með braut hún trúnað aftur. Bryndís til­kynnti atvikið til Lausn­ar­innar og þerapist­inn hættir störfum stuttu síð­arþ

„Þarna eru þau aug­ljós­lega að vinna saman eitt­hvað.“

Edda Falak segir að fyrir við­talið hafi umræddur þerapisti haft sam­band við sig.„Hún finnur sig knúna til að senda mér skila­boð, ég þekki hana ekki neitt, og segja mér trún­að­ar­upp­lýs­ingar um þig. Og þarna finnst mér þetta svo skýrt, þarna er hún í ein­hverri her­ferð, en hún finnur sig knúna til að segja mér hvað þú ert „algjör­lega biluð“. Nafn­greinir þig og seg­ist vera með börnin þín í með­ferð. Þetta er svo súr­r­eal­ískt. Bara það eitt og sér, en þá fer maður [að hugsa], hún er ekki sál­fræði­menntuð þannig það er ekki hægt að svipta hana ein­hverjum [rétt­indum], hún kallar sig ein­hvern þerapista. En þetta er ekki í lagi,“ segir Edda.

Einnig hafi barns­fað­ir­inn haft sam­band, þau hafi til skiptis sent ótal skila­boð á Eddu.

„Þarna eru þau aug­ljós­lega að vinna saman eitt­hvað.“ Segir Edda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi