Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gunnar Örn gítarsmiður smíðaði sinn fyrsta gítar við eldhúsborðið: „Ég var aldrei í ballbransanum“

Gunnar Örn gítarsmiður smíðaði sinn fyrsta gítar við eldhúsborðið: „Ég var aldrei í ballbransanum“

„Ég smíð­aði minn fyrsta gítar árið 1998. Hug­myndin hafði blundað lengi í mér enda skorti ekki áhug­ann á hljóð­fær­inu. Ekki var þessi fyrsti gítar minn smíð­aður við merki­legar aðstæður, því eld­hús­borðið heima var eig­in­lega vinnu­bekk­ur­inn. Afurðin varð Telecaster-týpa með ein­hverjum til­brigðum en háls­inn eins og á Tele,“ segir Gunnar Örn Sig­urðs­son gít­ar­smiður með meiru.

Gunnar Örn ólst upp við Grund­ar­stíg­inn í Reykja­vík og gekk í Mið­bæj­ar­skóla. „Ég átti góða bernsku og það var margt brallað, eins og gutta er von og vísa. Síðan fluttum við í Vest­ur­bæ­inn og ég sótti nám í Mela­skóla þegar ég var 10-12, mér leist betur á hann en Haga­skóla. Mér leidd­ist í skóla, leið aldrei vel og var latur náms­maður.

Enda tók skóla­ganga mín enda eftir annan bekk gagn­fræða­skóla og ég fór á sjó­inn,“ segir Gunnar Örn um skóla­göngu sína.

Þegar þar var komið sögu var Gunnar Örn far­inn að neyta áfengis og fíkni­efna. „Eðli máls­ins sam­kvæmt hafði það mikil áhrif á líf mitt, allt þar til ég varð 27 ára.

Ég sett­ist þó aftur á skóla­bekk þegar ég var tví­tugur og lærði vél­virkjun, en ég vann í raun­inni ekk­ert við hana,“ segir Gunnar Örn.

Gítaráhuginn vaknar

Í föð­ur­ætt Gunnars Arnar var tón­list að finna og hann var ekki gam­all þegar áhugi hans á gít­ar­leik vakn­aði.

„Ég byrj­aði að spila á gítar þegar ég var tólf ára og eftir það varð ekki aftur snúið. Ég heill­að­ist að gítar sem hljóð­færi og við tóku nokkur ár þar sem áhug­inn var kannski meira en getan, en áhug­inn dvín­aði ekki, þvert á móti,” segir Gunnar Örn.

Þegar Gunnar Örn var 27 ára venti hann sínu kvæði í kross og ákvað að segja skilið við áfengið.

„Ég hafði nýlega lokið áfeng­is­með­ferð, 27 ára, og um það leyti byrja ég að spila svona fyrir alvöru, eins og hægt er að segja. Ég spil­aði í hljóm­sveit sem hét Trega­sveitin með félögum mínum sem, eins og ég, voru edrú. Í kjöl­far Trega­sveit­ar­innar fór ég í hljóm­sveit sem hét Strák­arnir hans Sævars, en sú hljóm­sveit var ansi lengi til. Í dag er ég í tveimur hljóm­sveitum, minna má það varla vera, en það eru Singleton og RPG 103.“

Það sem þessar hljóm­sveitir allar eiga sam­eig­in­legt er blús­inn, segir Gunnar og bætir við: „Ég var aldrei í ball­brans­anum. Það átti ekki við mig og hefði í raun verið stíl­brot.“

Gítarsmíðin

Víkur nú sög­unni að atvinnu Gunnars Arnar, gít­ar­smíð­inni. Sem fyrr segir smíð­aði hann sinn fyrsta gítar við eld­hús­borðið heima hjá sér árið 1998.

„Já, það er óhætt að segja að gítörum mínum hafi fjölgað síðan þá. Ætli ég hafi ekki smíðað um 130 gít­ara og eðli­lega hafa þeir flestir eign­ast heim­ili hér á landi. Engu að síður hafa þeir all­nokkrir fundið sér sama­stað erlendis og farið nokkuð víða.

Nokkrir hafa endað í Banda­ríkj­unum og Suður-Ameríku, en aðrir hér í Evrópu, þá einkum í Frakk­landi, Þýska­landi og Svíþjóð,“ segir Gunnar Örn.

Á gít­ar­sýn­ingu Gunnar með upp­á­halds­gít­arsmið sínum, Scott Walker.

Gunnar Örn hefur ekki látið þar við sitja, því hann hefur verið iðinn við að sækja gít­armessur hér og þar í heim­inum. Á þeim hefur hann átt þess kost að sjá það nýjasta í heimi gít­ars­ins auk þess sem hann hefur kynnt sína eigin gít­ar­smíð; Gunnar Orn Custom Guitars.

Gunnar Örn hefur vakið athygli fyrir frum­lega nálgun í smíði gít­ara, efni­við­inn og að sjálf­sögðu þá alúð sem hann leggur í hvern grip. Má í því sam­hengi nefna Mjölni, raf­magns­gítar sem vakið hefur verð­skuld­aða athygli, hér heima og utan land­stein­anna.

Mjölnir Hefur vakið athygli inn­an­lands sem utan.

„Já, ég hef farið með mína gít­ara á sýn­ingar erlendis, meðal ann­ars á NAMM-sýn­ing­una í Los Angeles í Banda­ríkj­unum og The Holy Grail Guitarshow í Berlín í Þýska­landi og ekki má gleyma Fuzz Guitarshow í Svíþjóð. Mér reikn­ast til að ég hafi sótt tólf sýn­ingar heim og á þeim hef ég kynnst frá­bærum og þekktum gít­ar­smiðum hvaðanæva úr heim­inum. Slíkt er að sjálf­sögðu ómet­an­legt og tengsla­netið nýtur góðs af.“

Gítarviðgerðir og -smíðanámskeið

Gunnar Örn hefur haft nóg að gera í við­gerðum á gítörum og sinni eigin gít­ar­smíði. Hann hefur þó ekki látið þar við sitja því árið 2007 hasl­aði hann sér völl í Tækni­skól­anum.

„Árið 2007 var ég með gít­ar­smíða­nám­skeið í Tækni­skól­anum og hef síðan þá boðið upp á þau, oft­ast tvisvar á ári. Þau hafa ávallt verið vel sótt, enda til­valið tæki­færi fyrir gít­ar­leik­ara, til dæmis, til að smíða sinn eigin gítar, frá a til ö eftir eigin höfði,“ segir Gunnar Örn.

Afrakstur nám­skeið­anna telur nú vel á annað hund­rað gít­ara og er vitn­is­burður um þann mikla áhuga sem fyrir hendi hjá fólki um að smíða sitt eigið hljóð­færi.

„En ekki aðeins hafa nám­skeiðin gefið þeim sem þau sækja mikið, því þau gefa mér heil­mikið einnig, enda gaman að geta miðlað af þekk­ingu sinni að ekki sé talað um þann mikla fjölda skemmti­legs fólks sem ég hef kynnst,“ segir Gunnar Örn.

„En ann­ars hefur þetta verið þrí­skipt hjá mér og þá mest að gera í gít­ar­við­gerðum, en gít­ar­smíðin hefur tekið æ stærri skerf af tíma mínum hin síð­ari ár. Nám­skeiðin taka einnig sinn tíma þannig að ég hef í raun ansi mikið fyrir stafni – mér leið­ist alla­vega ekki,“ segir Gunnar Örn og brosir gegnum skeggið.

Hitti Billy Gibbons

Í gegnum vinnu sína hefur Gunnar Örn hitt fjölda þekktra manna úr heimi tón­listar, hvort heldur sem er gít­arsmiðir, fram­leið­endur íhluta fyrir gít­ara eða tón­list­ar­menn. Gunnar nefnir til sög­unnar gít­ar­leik­ara rokk­hljóm­sveit­ar­innar heims­þekktu, ZZ Top.

„Árið 2012 varð ég þeirrar óvæntu ánægju aðnjót­andi að hitta engan annan en Billy Gibbons, hinn síð­skeggj­aða gít­ar­leik­ara ZZ Top. Billy er einn af mínum upp­á­halds­gít­ar­leik­urum og ég náði að spjalla við hann í um hálf­tíma – umræðu­efnið var að sjálf­sögðu gít­arar.

Gibbons og Gunnar Hár úr skeggi Gibbons er á vísum stað hjá Gunnari.

Þannig var mál með vexti að tveimur mán­uðum áður hafði ég eign­ast „Billy Bo-signat­ure“-gítar og að sjálf­sögðu bað ég Billy að árita grip­inn, sem hann gerði með glöðu geði. Þegar ég síðar opn­aði gít­ar­tösk­una blasti við mér hár úr skeggi kappans – það bara lá þarna ofan á gít­arnum. Ég tók skegg­hárið og festi það með lím­bandi á „certificate“-skjalið sem fylgdi gít­arnum og þar er það enn.“

Hendrix og Gallagher

Einn er sá gít­ar­leik­ari sem er í sér­stöku upp­á­haldi hjá Gunnari Erni, Írinn Rory Gallag­her heit­inn.

„Ég heyrði fyrst í Rory þegar ég var þrettán ára gam­all og enn þann dag í dag hlusta ég á tón­list hans og hef spilað nokkur af hans lögum gegnum árin,“ segir Gunnar Örn um Rory sem skildi við árið 1995 aðeins 47 ára að aldri.

„Rory var á sínum tíma einn af þeim bestu og fáir sem stóðu honum jafn­fætis þegar hann var upp á sitt besta.

Sagan segir, og ég hef alltaf gaman af þeirri sögu, að Jimi Hendrix, sá magn­aði gít­ar­leik­ari, hafi eitt sinn verið spurður hvernig það væri að vera besti gít­ar­leik­ari í heim. Hendrix svar­aði að bragði: „I don’t know, ask Rory Gallag­her.“

Ég held reyndar að hvergi sé að finna skot­helda heim­ild fyrir þessum orða­skiptum, en sagan er góð og eins og sagt er; það er óþarfi að láta sann­leik­ann eyði­leggja góða sögu.“

Bítlarnir eða Stóns

Það er ekki hjá því kom­ist að varpa fram spurn­ing­unni: Bítl­arnir eða Stóns? Svarið vefst ekki fyrir Gunnari Erni: „Ég er Bítla­maður, þeir voru ein­fald­lega betri en Stóns. Eins og allir á ég minn upp­á­halds­bítil; George Harrison. Eitt þeirra laga sem höfðu mikil áhrif á mig er lagið My Sweet Lord, eftir Harrison. Það er í raun lítið lag, en samt ein­hvern veg­inn svo stórt. Það sem ein­kennir lagið er „slide“-gít­ar­leikur Harrison; hljómur og stíll sem síðar varð vöru­merki hans.“

Eins og áður hefur komið fram hefur Gunnar Örn nóg við að vera. „Fram undan eru fleiri sýn­ingar að heim­sækja, fleiri gít­arar að gera við og síð­ast, en ekki síst, fleiri gít­arar að smíða,“ segir gít­ar­smið­ur­inn og Bítla­mað­ur­inn Gunnar Örn Sig­urðs­son að lokum.

Fræðast má frekar um smíði Gunnars Arnar

hér customguitarsiceland

og hér vikingguitarsiceland

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una