Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vigdís Hauksdóttir er hætt við að gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosningum

Vigdîs Hauks­dóttir, borgar­fulltrúi Miðflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á ser að leiða flokkinn í sveita­stjórnar­kosningunum sem framundan eru.

Þetta kemur fram í tilkynningu Vigdísar á Facebook. Hún segir ástæðurnar vera nokkrar fyrir brott­hvarfi sinu og til að skýra betur hvers vegna skulum við gefa Vigdísi orðið:

“Kæru stuðnings­menn og Reyk­víkingar

Ég þakka ykkur fyrir að veita mér brautar­gengi í Alþingis­kosningum 2009 og 2013 og borgar­stjórnar­kosningum 2018.
Að sitja í tæp tólf ár sem kjörinn fulltrúi í umboði ykkar hefur verið afar lærdóms­ríkt og ekki síður gefandi.
Ég hef alltaf sagt að vika er langur tími í pólitík og hef nú tekið ákvörðun um að sækjast ekki eftir að leiða Miðflokkinn í borgar­stjórnar­kosningum í vor.

Ástæðurnar eru margar.
Í fyrsta lagi hefur kjör­tímabilið verið mjög krefjandi pólitískt séð. Ég hef flett ofan af fjármála­sukki í fjölda mála­flokka í borgar­rekstrinum án nokkurra afleiðinga fyrir borgar­stjóra og meirihlutann.
Í öðru lagi er fjárhags­staða Reykja­víkur komin langt yfir hættumörk. Skuldirnar eru stjarnfræðilegar og áætlað er að þær verði 240 milljarðar í árslok 2026. Þar af er búið að skuld­setja næsta kjör­tímabil upp á 92 milljarða samkvæmt lántöku­áætlun. Það er sérlega ósvífið.
Í þriðja lagi þá hefur viðhald skóla­húsnæðis verið ófullnægjandi og grunn­skólabörn eru á hrakhólum út um alla borg. Ekki hefur verið staðið við uppbyggingu leikskóla og borginni er haldið í heima­tilbúnum lóða­skorti sem leiðir til fasteigna­verðs í hæstu hæðum.
Í fjórða lagi bendir ekkert annað til þess en að borgar­stjóri ætli sér að halda völdum með einhverjum útfærslum að nýjum viðreistum meirihluta eins og í kosningunum 2014 og 2018.

Ég sé því ekki fyrir mér að nokkuð breytist á næsta kjör­tímabili.
Ég met það svo að gagnrýni mín á rekstur borgarinnar með tillögum til úrbóta fái ekki hljóm­grunn að kosningum loknum.

Með hlýjum vorkveðjum “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá