Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Formaður VR gagnrýnir sölu Íslandsbanka og kallar eftir afsögn fjármálaráðherra

Íslenska ríkið á í fyrsta skipti frá því eftir hrun minni­hluta í viðskipta­bönkunum þremur. Umfram eftir­spurn var í útboði fyrir fagfjárfesta á hlut ríkisins í Íslands­banka og gagnrýnir formaður VR að hluturinn hafi ekki verið seldur á markaðs­virði og kallar eftir afsögn fjármála­ráðherra í viðtali við frétta­stofu Stöðvar 2.

Formaður VR gagnrýnir harðlega að hlutur ríkisins í Íslands­banka hafi ekki verið seldur á markaðs­virði og kallar eftir afsögn fjármála­ráðherra.

Mikil umfram eftir­spurn var í fagfjárfesta útboði Banka­sýslunnar á tæplega fjórðungs hlut ríkisins í Íslands­banka sem hófst í vikunni og lauk klukkan sex í gærmorgun.

Velflestir lífeyris­sjóðir og verðbréfa­sjóðir hér sýndu útboðinu áhuga ásamt erlendum fjár­festum.

Söluverð á hvern hlut var 117 kr.  en Banka­sýslan, Verðbréfa­miðlun Íslands­banka, JP Morgan og Citigroup sáu m.a. um verðmatið.

Fram kemur í upplýsingum frá Banka­sýslunni að endanleg ákvörðun um verðið hafi verið í höndum fjármála­ráðherra.

Athygli hefur vakið að markaðs­verð á hvern hlut í bankanum í Kaup­höllinni í gær var hærra eða 122 kr.  á hvern hlut og hafa greiningar­aðilar sagt að óánægju gæti vegna afsláttarins einkum þar sem umfram eftir­spurn hafi verið eftir hlutum.  Einhver tilboð hafi verið hærra en þetta verð. Þá hækkaði verð í bankanum í dag um tvö prósent.

Ríkið fær með sölunni tæplega 53 milljarða króna en hefði fengið um tveimur milljörðum hærra verð hefði markaðs­gengi dagsins í gær gilt.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR telur söluverð á hlutum ríkisins í  bankanum í fyrra og núna óeðlilegt.

„Þetta er enn einn skandall fjármála­ráðherra,  að gefa fjár­festum ríflegan afslátt af kaupverði og selja eignir ríkisins á undir­verði. Það þarf að skoða og rannsaka af hverju verið er að selja hlut ríkisins með afslætti að næturlagi. Þá er vert að benda á að verð á hluta­bréfum í bankanum hefur hækkað um 60% frá því ríkið seldi þriðjungs hlut í honum fyrir tíu mánuðum síðan.  Sex erlendir fjár­festar seldu til að mynda í bankanum  nokkrum dögum eftir fyrra útboðið með gríðar­legum hagnaði.  Í heild hefur almenningur nú þegar orðið af tugum milljarða króna hefði bankinn verið seldur á réttu verði í fyrra útboðinu og því sem fór fram í gær. Almenningur hlýtur að krefjast þess að fjármála­ráðherra segi af sér, þetta er bara spilling,“ segir Ragnar fréttinni.

Með viðskiptunum fer hlutur ríkis­sjóðs í bankanum úr 65,0 í 42,5 prósent. Íslenska ríkið er í fyrsta skipti frá banka­hruni orðið minnihluta­eigandi í viðskipta­bönkunum þremur eftir söluna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá