Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi Einarsson var látinn dansa – Lenti illa í hruninu og fór beint á fund hjá stjórnmálaflokki

 „Málið er af þeirri stærðar­gráðu að það er ófært að láta það liggja og leyfa þjóðinni ekki að taka ákvörðun um fram­haldið,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, um ESB, í Mann­lífinu með Reyni Trausta­syni, en umræðan um aðild að ESB er komin aftur á dagskrá og formaðurinn spurður hversu bjartsýnn hann sé á að við náum að klára þetta mál.

„Það í rauninni liggur til grund­vallar þings­ályktunar­tillögu sem Samfylkingin, Píratar og Viðreisn leggja fram um að það verði þjóðar­atkvæða­greiðsla um að taka upp þráðinn og halda áfram. Bjarni hefur vissulega talað um þennan pólitíska ómöguleika sem hann kokkaði upp heima hjá sér eftir að 70% þjóðarinnar höfðu 2014 minnir mig lýst því yfir að þau vildu klára samninginn. En síðan er það auðvitað marklaust vegna þess að við erum með forsætis­ráðherra núna sem leiðir flokk sem er andvígur NATO en þjóðar­öryggis­stefnan er beinlínis nefnd í ríkis­stjórnar­sáttmálanum og hún hefur auðvitað mætt á alla leiðtoga­fundina. Þannig að ég held að það sé ekkert í veginum til að minnsta kosti að hún og hennar flokkur og jafnvel Framsóknar­flokkurinn taki undir þau sjónarmið með okkur. Katrín sjálf var aðili að svona þings­ályktunar­tillögu fyrir nokkrum árum og mælti fyrir henni. Þar talaði hún einmitt um að málið væri af þeirri stærðar­gráðu að það væri lýðræðismál að leyfa þjóðinni að segja sína skoðun á því.“

Er Logi tilbúinn að taka því ef þjóðin myndi síðan á endanum hafna aðild?

„Já. Það er þá bara komin ný staða upp og þá frestast málið um einhver ár. Sú umræða getur þá endurnýjað sig. Við sjáum hvernig þetta er í Noregi. Þeir reyndu tvisvar og það var fellt tvisvar í þjóðar­atkvæða­greiðslu; aðild að samningi reyndar. Við erum að tala um tvöfalda þjóðar­atkvæða­greiðslu. Við erum fyrst að tala um að þjóðin lýsi því yfir að hún vilji eða vilji ekki halda áfram viðræðum og ef hún vill það þá yrði kláraður samningur og þjóðin aftur spurð.“

Þegar Logi er spurður hverjir honum finnist vera mestu kostirnir við aðild að ESB nefnir hann að hann vilji fyrst halda því til haga að ESB sé frelsis- og friðar­bandalag Evrópu­þjóða þar sem þær leiti leiða til að vinna í sátt og samlyndi og opna til dæmis á viðskipti, för sín á milli og nám. Hann segir að það séu stærstu rökin og kannski ekki rökin sem voru mest rædd á sínum tíma, sem voru efnahags­rökin.

stærstu fyr­ir­tæki lands­ins eru löngu búin að yfir­gefa krón­una og gera öll upp í evru.

„Efnahags­rökin eru marg­vísleg. Það er auðvitað aðild okkar að ákvörðunum, það er aðild okkar að þessum risastóra 500 milljóna markaði og það er auðvitað möguleiki á að taka upp stóra og stöðuga mynt sem sveiflast ekki eins og lauf í vindi. Bara í dag er það til dæmis þannig að kostnaður vegna vaxta­greiðslna hjá fólki og fyrir­tækjum er um 200 milljónir. Þau sem eru á móti þessu segja á móti að það sé svo hagstætt að hafa svona litla mynt að það sé hægt að stýra henni og fella gengi og láta það falla hvernig sem menn gera það. En þá er allt í lagi að hafa það í huga í fyrsta lagi að það er alltaf almenningur sem blæðir þegar krónan veikist. Og stærstu fyrirtæki landsins eru löngu búin að yfirgefa krónuna og gera öll upp í evru.“ Logi nefnir líka nýja heimsmynd þar sem öryggis- og varnarmál og friðar­faktorar spila inn í.

Ég var látinn dansa

Logi Einarsson fæddist og ólst upp á Akureyri á 6. áratugnum. Árin liðu fyrir norðan og út um allan heim og strákurinn stækkaði og þroskaðist. Og hann var meðlimur hljóm­sveitarinnar Skrið­jökla um tíma.

Þetta varð furðu­lega vin­sælt miðað við hvað þetta var nú efn­is­rýrt.

„Við vorum ærsla­fullur hópur af ungum piltum. Þetta voru reyndar tveir hópar. Þetta voru tveir áberandi hópar sem voru báðir að fást við músík og elduðu svolítið grátt silfur saman og var svona frekar í nöp við hverja aðra; þessir hópar sem runnu svo saman í Skrið­jökla. Síðan held ég að það hafi verið einhvers staðar niðri í bæ í einhverju skemmtihúsi sem við hugsuðum að þetta væri óþarfi og við ættum að verða vinir og þá runnu saman tvær fimm til sex manna klíkur og við bjuggum til Skrið­jökla. Fyrst og fremst held ég nú að það hafi verið gert til þess að komast ókeypis inn í Atlavík og svo varð ekkert aftur snúið. Þetta varð furðulega vinsælt miðað við hvað þetta var nú efnisrýrt. En við höfðum gaman og í nokkur ár var þetta til og við ferðuðumst um landið og okkur gafst tækifæri til þess að vera í samvistum. Þetta var meira eins og félags­heimili. Við vorum orðnir 10 og það var ekki hægt að koma öllum á hljóðfæri og þá var farið í að velja þá sem voru skástir á hljóðfæri og við hinir fengum bara annað hlutverk. Ég var látinn dansa og einn annar, einn var í miða­sölunni og einn keyrði rútuna. Það var enginn skilinn út undan. Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið jafnaðar­mennskan í hnotskurn,“ segir formaðurinn sem segist vera slarkfær á gítar.

Logi flutti svo til Noregs tveimur eða þremur árum eftir stofnun Skrið­jökla þar sem hann lærði arkitektúr. „Það var samt þannig að þegar ég kom í jólafrí eða sumarfrí þá var alltaf kallað í mann „komdu með“.“

Fylgdi Skrið­jöklum mikið sukk?

„Jú, óþarflega mikið, sennilega. En eins og er hjá ungu fólki oft, en eftir á að hyggja þá óska ég þess ekki að börnin mín geri þetta. En flestir höfum við þroskast frá því. Við vorum margir í íþróttum líka samhliða þessu og það varð einhver hemill á þessu. Auðvitað ekki sá standard sem gerður er á íþrótta­menn í dag, enda urðum við ekkert sérstak­lega góðir, en það varð þó til þess að við urðum að passa okkur til að verða leikfærir. “

Þetta var alveg framandi fyrir mig

Jú, Norge var það.

„Ég var alltaf pólitískur. Ég var vinstri­sinnaðri en ég er í dag. Ég var sem mennta­skóla­strákur í Alþýðu­bandalaginu. Ég fór svo til náms í Noregi í sex ár og þar auðvitað fylgdist ég með stjórn­málum og þar aðhylltist ég hófsama miðju­vinstri­stefnu sósíal­demókrata og Gro Harlem Brundtland forsætis­ráðherra. Kom svo til baka pólitískur en ekki þátt­takandi í pólitík. Þegar ég fór að hugsa málin og búinn að vinna í nokkur ár sem arkitekt þá fannst mér það fag vera ágætis bakgrunnur og ekkert verri bakgrunnur inn í stjórn­málin en til dæmis stjórnmála­fræði og lögfræði. Þetta er einhvers konar vinna þar sem þú færð þjálfun í því að fá hugmynd og gera hana að veruleika og byggja á einhverjum strúktúr og konstrúksjónum. Það þarf að gera það í samvinnu við sveitar­félög, verkkaupa, iðnaðar­menn, verk­fræðinga og marga aðra. Þannig að að mörgu leyti fannst mér þetta henta mér. Síðan gerðist það í hruninu að ég lenti illa í því; búinn að byggja hús eins og margir og í staðinn fyrir að vera bitur þá fannst mér tvennt vera í stöðunni fyrir mig: Það var annaðhvort að fara niður á torg og berja á bumbur eins og margir gerðu sem betur fer, og það var gott hjá fólki að gera það, eða bara að fara beint á fund hjá stjórn­málaflokki og reyna að vinna þaðan. Það var enginn vafi í mínum huga hvorum megin ég ætti að vera, í Vinstri grænum eða Samfylkingunni. Samfylkingin talaði inn í mínar hugsjónir og það var bara byrjunin á þessu.“

Missti Logi þá allt í hruninu?

„Nei, alls ekki.“

Logi segist hafa farið í prófkjör eftir að hafa verið búinn að vera í flokknum í tvær vikur. „Ég fór í opið prófkjör hjá Samfylkingunni 2009 og lenti í 3. sæti í próf­kjörinu en settur niður um eitt sæti á lista bara vegna kynja­kvóta sem var ósköp eðlilegt. Og það gaf mér vara­þingmanns­sæti og ég held að á árunum 2009-2013 hafi ég ratað þrisvar eða fjórum sinnum inn án þess að vita mikið hvað ég væri að gera. Þetta var alveg framandi fyrir mig. Það varð síðan til þess að ég fór út í bæjar­málin og var þar í nokkur ár áður en ég tók svo við oddvita­sæti á landsvísu.“

Samfylkingin komin nær miðjunni

Fylgi Samfylkingarinnar var 32% þegar baráttan stóð sem hæst og svo hrundi allt. Logi var bjarg­hringurinn fyrir norðan sem bjargaði því að flokkurinn hvarf ekki. Hvað klikkaði?

„Ég held að það sé erfitt að svara því nákvæmlega hvað klikkaði. Ég held það hafi verið margir samverk­andi þættir, bara eins og alltaf þegar maður einhvern veginn lendir í óhappi. Við þekkjum öll þær aðstæður þegar maður stendur í eldhúsinu og maður sér að bollinn er að detta og í staðinn fyrir að láta hann bara detta þá seilist maður eftir honum og rífur í rafmagns­snúruna í leiðinni og rennur svo á kaffinu og slær niður borðið og allt. Ég held að við höfum færst of mikið í fang eftir hrun, þessi ríkis­stjórn sem þá var. Ég held að samtímis því að vera að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu, að ætla að gjör­breyta fiskveiði­stjórnunar­kerfinu og samþykkja nýja stjórnar­skrá hafi kannski verið of mikið fyrir þjóð sem auðvitað tróð bara marvaðann, var að vinna frá degi til dags og átti erfitt með að átta sig á því að hún lifði í samfélagi sem beinlínis fór á hausinn vegna óvarkárni og glæfra­mennsku hjá banka­fólki.“

Logi segist halda að það hafi verið of margir boltar á lofti í einu. „Og ég held til dæmis að það hafi verið býsna mikið verkefni að rétta við þjóðar­búið, reisa grunninn að nýrri uppsveiflu og velsæld og ég held að, að mörgu leyti hafi þessari ríkis­stjórn tekist mjög vel upp þar. Ég held að sagan muni dæma hana miklu betur en ræðu­skrif­ararnir í Valhöll eru að gera núna. Ég held að þær aðgerðir sem ráðist var í við fordæma­lausar aðstæður þar sem ekki var lánsfé, þar sem þjóðin var nánast gjald­þrota og ríkis­sjóður, og það þurfti að grípa til margra aðgerða sem voru vissulega sársauka­miklar; það var þó gert á þann hátt að það var reynt að hlífa þeim sem höllustum fæti standa og enginn skal halda öðru fram en að það hafi verið sjónar­miðið sem hafi verið ráðandi hjá Jóhönnu Sigurðar­dóttur og Steingrími J. Sigfús­syni, hvað sem fólki finnst svo um þau annars.“

Við töldum að Vinstri græn vildu vinna til vinstri frá miðju.

Logi segir að það eigi ekki að loka augunum fyrir því að svipuð þróun hefur átt sér stað mjög víða. „Það verða til fleiri og fleiri flokkar; flokkar um kannski þrengri málefni. Við sjáum nátt­úrlega Pírata, Viðreisn, Bjarta framtíð, Flokk fólksins og Sósíal­ista; innan um er þarna að minnsta kosti fjöldi fólks sem getur verið sammála okkur um mjög stór mál. Mín skoðun er sú að það verkefni okkar að reyna einhvern veginn –fyrst við gátum ekki sameinað alla jafnaðar­menn innan flokksins – að sameina þá í ríkis­stjórn. Það tókst ekki. Við töldum að Vinstri græn vildu vinna til vinstri frá miðju. Það virtist ekki vera; þau gáfu nú bara út yfir­lýsingu viku fyrir kosningar að óska­stjórnin væru sú sama og þau sátu í. Og þá þurfum við bara að prófa nýtt leik­skipulag.“

Logi segir að margir hafa talað um að hann eða þing­flokkurinn hafi fært flokkinn til vinstri. „Ég held að þetta sé allt ofmetið. Einn maður eða nokkrir færa ekkert flokk svona einn, tveir og þrír. Við erum auðvitað með mjög stórt og þungt batterí sem heitir flokks­stjórnir og lands­fundir og annað slíkt og við höldum okkur við ályktanir þaðan. En það er auðvitað þekkt hins vegar bara í nátt­úrunni, að það er kannski umhverfið sem er á fleygi­ferð í kringum þig og ég held að við það að ganga í svona ríkis­stjórn, ekki einu sinni heldur í tvígang, þá hafi Vinstri græn miklu frekar skilgreint sig á öðrum stað en þau voru á.“

Er Samfylkingin kannski komin nær miðjunni?

„Já.“

Logi sagði að þetta snúist ekki um einstaklinga, en snýst þessi ríkis­stjórn ekki fyrst og fremst um Katrínu Jakobs­dóttur og það sem hún vill?

„Jú, ég held hún hafi þann stuðning í sínum flokki að hún getur gert nánast hvað sem er. Ég held að reynslan sýni okkur það. Mér finnst til umhugsunar einhvern veginn hvernig stjórnmál hafa verið að breytast á liðnum áratugum frá því að forysta flokka í rauninni talaði fyrir stórum samfélags­breytingum, framtíðar­málum og öfluðu sér til fylgis­manna sem fylktu sér á bak við þá, að þá höguðu þeir sér frekar eins og vatnið núna; þeir leituðu að þeim leiðum þar sem var líklegast að það færi, hvað er líklegast að fólk vilji og hvað er líklegast að verði vinsælt. Ég held að þetta í rauninni endur­spegli stjórnmál dálítið vel í dag, því miður.“

Ná hreðjatökum á samfélaginu

Logi er jú að norðan, úr höfuðvígi Samherja. Hvað finnst honum um Samherja­málið?

„Ég held að ég sé á ólíkri skoðun miðað við marga í kjör­dæminu og ekki síst í sjávar­útvegs­málum. Ég hef aldrei farið dult með það að mér finnst sjávar­útvegs­kerfið ósann­gjarnt. Mér finnst sjávar­útvegs­kerfið líka hættulegt, vegna þess að í skjóli þessara ódýru afla­heimilda sem útgerðar­fyrirtækin fá, þá hafa þau getað vaxið gríðar­lega. Þau hafa getað hreiðrað um sig í alls konar atvinnu­greinum og þau ná hreðja­tökum á samfélaginu hvort sem þau beiti því meðvitað eða ómeðvitað. Vegna þess að völd eru af mörgu tagi; það er til beint vald, en það er líka til áhrifa­vald og það er hættulegt. Þannig að ég er ekkert feiminn við að segja það, að þó að Samherji sé í mínu kjördæmi, þó að Síldar­vinnslan sé í mínu kjördæmi og þó að Brim sé stór leikandi líka á norð­austur­svæðinu, þá telji ég að það þurfi að endur­hugsa þetta kerfi með meira réttlæti í huga, þannig að þjóðin fái meira af auðlindinni. En af því að þú nefndir Samherja, þá geri ég ráð fyrir að þú sért líka að hugsa um Namibíu­málið. Það mál er í rannsókn en ýmislegt bendir til þess að þar hafi mjög óhuggulegir hlutir verið framkvæmdir.“

Hverju myndi Logi breyta fyrst í sjávar­útvegs­kerfinu, kvóta­kerfinu, ef hann hefði völd til þess?

Það er ákvæði um sjálf­bærni og auð­vitað þjóð­ar­eign­ina.

„Það er þrennt sem þarf að koma inn í stjórnar­skrá fyrir það fyrsta. Það er ákvæði um sjálfbærni og auðvitað þjóðar­eignina. Síðan er það ákvæði um tíma­bindingu afla­heimilda og loks er það ákvæði um gjaldtöku. Ákvæðið sem Katrín lagði ein og sér á borðið síðasta vor talaði meira að segja um það að það mætti taka gjald vegna afla­nýtingar í ágóða­skyni. Ég vil meina að ef hún er búin að skilgreina gjaldtöku vegna veiða í ábáta­skyni þá eigi ekki að gefa neinn afslátt frá fullu gjaldi. Fólk getur svo deilt um hvaða leið sé best að því. Er það gert með veiði­gjöldum? Ég hallast að því að markaðs­leið sé einna gáfulegust til þess. Þar tryggjum við að minnsta kosti að útgerðirnar borgi nógu hátt verð til þess að það sé einhver trygging fyrir því að þjóðin sé að fá það sem hún á skilið.“

Hvað með strand­veiðiskipin? Hvað vill Logi gera varðandi þau?

„Við eigum að horfa á strand­veiðar með víðari augum eins og stærri útgerðirnar vilja gera; hvað sé líklegast til að skila hámarks­verðmæti afla. Þetta er líka menningarlegt fyrirbæri. Þetta er líka spurning um byggð í öllu landinu. Þannig að ég held að það verði að taka það allt með í reikninginn. Ég held að það hafi verið afskaplega vont skref hjá ráðherra núna að draga úr afla­heimildunum, meira að segja án þess að breyta nokkuð kerfinu sem er til staðar vegna þess að það eru miklar líkur á því að um miðjan júlí verði búið að veiða allt í þessu kerfi áður en fiskurinn er genginn austur fyrir land. Þannig að það þarf einhvern veginn að brjóta þetta upp samhliða. Það þýðir ekki að hræra bara í þessum tonna­tölum. Það þarf einhvern veginn að hugsa kerfið heild­stætt.“

Aftur að Samherja­málinu. Það var svolítið hjólað í Loga varðandi skipstjóra­málið og símann sem tengist því. Eiginkona Loga er dómari á Akureyri og dæmir í málinu og einhverjir reyndu að gera málið pólitískt og sögðu að þarna væri Logi Einarsson að baki.

„Þegar við hittumst um helgar þá er ég á útopnu og tala mikið um mitt starf en hún talar aldrei um sitt. Þannig að allt svona er úr lausu lofti gripið og á þessum tíma ræddum við þetta mál ekki.“

Mikil vonbrigði

Hvað svo með fram­haldið?

„Ég er formaður og ég mun í sumar ákveða hvað ég geri. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé ótrúlega gefandi að vera í liði með mörgum flinkum spilurum; það sé aldrei útilokað að menn skipti um stöðu á vellinum ef það er líklegt til að bæta árangurinn. í augna­blikinu er ég formaður og verð það þangað til ég tilkynni annað.“

Voru kosninga­úrslitin eða ríkis­stjórnar­myndunin þungbær fyrir formanninn?

„Já, kosninga­úrslitin voru mjög mikil vonbrigði. Ég taldi að við ættum meira inni; að við ættum að geta landað betri úrslitum. Það er nú það fyrsta. Ástæðuna fyrir því hef ég eytt tugum klukku­tíma í að velta fyrir mér og á endanum ber ég ábyrgð á því fyrst og fremst.“

Og á því ber ég ábyrgð.

Logi segir að önnur vonbrigði hafi tengst því að enginn vilji var hjá hvorki Framsókn né Vinstri grænum að heyra í Samfylkingar­fólki eða ræða grundvöll fyrir ríkis­stjórn. „Það hefur svo orðið til þess að maður hlýtur auðvitað að breyta sinni sýn á hvernig eigi að fara inn í kosningar. Ég er ennþá alveg sann­færður um að það var rétt afstaða að segjast til dæmis ekki vinna með Sjálfstæðis­flokknum, af því að ég vissi að það myndi innibera að við þyrftum að gefa frá okkur öll lykilmál. Það kunna hins vegar að hafa verið mistök ef menn eru bara að hugsa um prósenturnar. Og á því ber ég ábyrgð. Og enginn annar.“

Þannig að Logi telur prinsippin vera dýrmætari en að skipta út svona hjartans málum flokksins?

„Já, auðvitað er það þannig að í fjöl­flokka­stjórnum þurfa menn að vera tilbúnir til þess að gefa frá sér einhver mál, en til þess að ná sem flestum af þeim fram þá hlýtur þú að vinna frekar með líkum flokkum heldur en ólíkum flokkum. Það liggur í hlutarins eðli. Og við getum alveg orðað þetta þannig: Ég nenni ekki að vera í stjórn­málum ef ég þarf að haga mér eins og vatnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá