Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk lendir í ruslflokki hjá Creditinfo þrátt fyrir vafamál hjá Motus: „Ég er bara manneskja, sko“

Fólk lendir í ruslflokki hjá Creditinfo þrátt fyrir vafamál hjá Motus: „Ég er bara manneskja, sko“

Láns­hæf­is­mat ein­stak­lings hrapar hjá Creditinfo þegar við­kom­andi fær rukkun frá inn­heimtu­fyr­ir­tæki á borð við Motus og er settur í vöktun. Þetta er óháð því hvort deilur séu um rétt­mæti reikn­ings­ins. Fólk getur því lent í skertu láns­hæf­is­mati vegna til­hæfu­lausra reikn­inga. Þetta getur haft mikil áhrif ef fólk er að reyna að kaupa fast­eign, að end­ur­fjár­magna eign eða í ann­ars konar við­skiptum.

Blaða­maður Mannlífs sendi fyr­ir­spurn á Motus um verk­ferla varð­andi inn­heimtu og vakt­anir sem settar eru á þegar fólk greiðir ekki reikn­ing­ana fljótt og örugg­lega. Blaða­maður spurði meðal ann­ars hvort hægt væri að senda reikn­ing á hvern sem er, fyrir hverju sem er, og fá Motus til að sjá um inn­heimt­una, án þess að Motus kann­aði sér­stak­lega rétt­mæti reikn­ings.

Til­greint var dæmi þar sem reikn­ingur fór í inn­heimtu hjá Motus en sá sem fékk kröf­una taldi reikn­ing­inn ekki eiga rétt á sér og fór með málið fyrir Kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa. Þrátt fyrir að hafa greint Motus frá því var við­kom­andi aðili settur í vöktun og hrap­aði niður flokka í láns­hæf­is­mati hjá Creditinfo. Þegar við­kom­andi spurði hvort hægt væri að greiða kröf­una og fá hana svo end­ur­greidda ef kæru­nefndin úrskurð­aði honum í vil, voru svörin á þá leið að ekki væri hægt að ábyrgj­ast það; með því að greiða reikn­ing­inn væri við­kom­andi að stað­festa rétt­mæti hans.

Þess ber að geta að nokkuð basl er að kom­ast í sam­band við Motus sím­leiðis. Sím­svar­inn er langur og flók­inn, og nán­ast óskilj­an­legt hvað skal velja til þess að kom­ast í sam­band við lif­andi mann­eskju. Aldrei er bent á skipti­borð og fólki ítrekað vísað á heima­síð­una. Mannlíf hefur áður unnið fréttir sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu og afar langan tíma tók að kom­ast í sam­band við ein­hvern, þrátt fyrir ítrek­aða tölvu­pósta og sím­töl.

Fljót­lega eftir að blaða­maður sendi tölvu­póst á stjórn­anda innan Motus barst hins vegar sím­tal frá lög­manni vegna fyr­ir­spurn­ar­innar.

Motus bendir á Creditinfo

Lög­mað­ur­inn byrj­aði á því að segja að starf lög­manna væri að vera á milli aðila sem ættu í deilum. „Flest okkar eru að reyna að leysa hluti en svo gengur það svona mis­mun­andi,“ sagði hann.

„Þegar það er ágrein­ingur og við erum með mál í fang­inu þá þurfum við að fylgj­ast með hlutum eins og því sem er að ger­ast hjá Creditinfo. Ef ágrein­ingur er uppi, þá er látið vita af því til Creditinfo. Engu að síður láta þeir það hafa áhrif á láns­hæf­is­matið.“

Lög­mað­ur­inn sagði að ein­hvern veg­inn yrði inn­heimtu­fyr­ir­tækið að vinna sína vinnu.

„Ef við gerum þetta ekki, þá erum við að bregð­ast okkar skjól­stæð­ingum. Það að við séum með ein­hvern á vakt er eitt­hvað sem Creditinfo ákveður að skipti máli.“

Hann sagði að í málum sem þessum fái Creditinfo að vita að um ágrein­ing sé að ræða. „Af hverju eru þeir að láta það hafa áhrif á láns­hæf­is­matið ef tveir ein­stak­lingar eru að ríf­ast um það?“

Hann sagði að inn­heimtu­fyr­ir­tæki eigi að láta Creditinfo vita ef um ágrein­ings­mál sé að ræða. Það séu ákveðnar aðferðir sem séu í verk­ferlum. „Við megum skrá við­kom­andi á van­skila­skrá þegar við erum búin að birta greiðslu­á­skorun eða birta stefnu, eða þegar kom­inn er dómur. En síðan, þegar það er ágrein­ingur, þá tökum við þá skrán­ingu út. Þá á það ekki að hafa áhrif lengur, skrán­ingin sem slík. Hins vegar er vökt­unin ennþá til staðar, vegna þess að ef við vöktum ekki þá vitum við ekk­ert hvað er að ger­ast, hvort það kemur inn­köllun eða eitt­hvað annað. En aftur á móti ákvörð­unin að það sé síðan að markera fólk, það er Creditinfo, ekki í sjálfu sér okkar.“ 

Hvað varðar fyr­ir­spurn um það hvort hvað sem er sé tekið til inn­heimtu sagði hann að reynt sé að flokka það. „Því ekki vill maður alltaf vera með glat­aðan mál­stað heldur vill maður frekar vera í vinn­ings­lið­inu. En auð­vitað getum við ekki alveg stimplað það út að við séum ekki stundum með eitt­hvað sem er ekki gott og ef þú fylgist með heima­síðu dómanna, þá eru þetta miklar sveiflur. Maður veit aldrei hvort maður er með góðan mál­stað. En við auð­vitað reynum að taka ekki ein­hverja dellu í inn­heimtu vegna þess að við viljum vera að vinna vinnu sem skilar árangri en ágrein­ing­ur­inn getur átt full­kom­inn rétt á sér.“

Motus og Lögheimtan

Blaða­maður spurði næst út í tengsl Motus og Lög­heimt­unnar. Mörg dæmi eru um að mál byrji í inn­heimtu hjá Motus en séu síðan flutt yfir til Lög­heimt­unnar. Aðspurður sagði lög­mað­ur­inn að ekki væri um að ræða sama fyr­ir­tækið heldur vinni fyr­ir­tækin tvö saman. Hann útskýrði að Lög­heimtan væri lög­fræði­fyr­ir­tæki en Motus milli­inn­heimtu­fyr­ir­tæki. Þannig flytj­ist reikn­ingar frekar yfir til Lög­heimt­unnar sem stefni ef til vill í dóms­mál. „Lög­heimtan sinnir inn­heimtum fyrir dóm­stólum og sýslu­mönnum.“

Þegar þarna var komið sögu kom í ljós að lög­mað­ur­inn starfar hjá Lög­heimt­unni, ekki Motus. „Fólk sam­samar þetta oft mikið, enda erum við á sama staðnum.“ Þegar blaða­maður furð­aði sig á því að hafa sent tölvu­póst á stjórn­anda hjá Motus en fengið sím­tal frá starfs­manni Lög­heimt­unnar var svar hans: „Þú færð sím­tal frá mér. Ég er bara mann­eskja, sko.“ Aðspurður frekar um það hvernig þetta fyr­ir­komu­lag virk­aði hjá þeim sagði hann fyr­ir­tækin ein­fald­lega vinna saman. „Við erum hér í sama húsi og ég tók ákvörðun um að hringja í þig vegna þess að ég hélt að þig vant­aði upp­lýs­ingar. Mér fannst það ekki flókið í sjálfu sér.“ Þegar honum var bent á að ef til vill væri erfitt fyrir leik­mann að átta sig á fyr­ir­komu­lagi fyr­ir­tækj­anna þegar tölvu­póstur væri sendur á Motus og sím­tal bær­ist frá Lög­heimt­unni, þrátt fyrir að ekki væri um að ræða sama fyr­ir­tæki sagð­ist hann líka starfa fyrir Motus. „Ég starfa fyrir bæði félögin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við