Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Læknir ósáttur með Parkódín-umræðu: „Þúsundir Íslendinga eru með langvarandi verki“

Læknir ósáttur með Parkódín-umræðu: „Þúsundir Íslendinga eru með langvarandi verki“
Árni Tómas Ragn­ars­son og Hjalti Már Björns­son eru ekki sam­mála þegar kemur að verkja­lyf­inu Park­ódíni.

Lækn­ir­inn Árni Tómas Ragn­ars­son er ósáttur við mál­flutn­ing kollega síns og segir ljótt að hræða fólk frá því að nota Parkódín í hófi ef lyfið láti því líða betur.

Hjalti Már Björns­son, yfir­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, hefur und­an­farið komið fram í fjöl­miðlum þar sem hann ræðir um að ótækt sé að Covid-19 sjúk­lingum sé ávísað verkja­lyf­inu Park­ódíni. „Þvæla“ er orðið sem Hjalti Már hefur sjálfur notað. Hann birti fyrst færslur á Twitter um málið, en fór síðan í við­töl við Frétta­blaðið og svo í Kastljós, þar sem hann gagn­rýndi þá ákvörðun Lyfja­stofn­unar að veita Covid-sjúk­lingum tíma­bundna heim­ild til þess að kaupa verkja­lyfið Parkódín án lyf­seð­ils. Heim­ildin hefur verið veitt að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum, til að mynda nýju vott­orði sem sýnir fram á Covid-19 smit. Rök­stuðn­ingur fyrir heim­ild­inni var meðal ann­ars sá að Parkódín væri vel til þess fallið að slá á hósta Covid-sjúk­linga og vegna mik­ils álags á Heilsu­gæsl­una mætti með þessum hætti beina þeim Covid-smit­uðu ein­stak­lingum beint í apó­tekin, sem ein­ungis þurfa að leita til læknis til þess að fá Park­ódíni ávísað vegna ein­kenna sinna.

Ópíóíði ætti ekki að vera ráð við hósta

Hjalti Már sagði meðal ann­ars, í við­tali við Frétta­blaðið, að notkun á Park­ódíni við hósta væri gömul hefð sem að öllum lík­indum væri ekki jafn gagn­leg og talið hafði verið. Hann sagði nýjar rann­sóknir styðja það.
„Í ljósi þess að við vitum líka meira núna um skað­semi ópíóíða finnst mér ekki að þetta eigi að vera ofar­lega á blaði sem ráð við hósta,“ sagði Hjalti Már í sam­tali við Frétta­blaðið á dög­unum.

Árni Tómas er ekki ánægður með ummæli Hjalta Más, ef marka má nýjan pistil hans í Morg­un­blað­inu, og segir ýmis­legt við mál­flutn­ing hans að athuga. „Í fyrsta lagi að lækn­ir­inn, að ég held, hef­ur enga reynslu af því sjálf­ur að ann­ast sjúk­linga með langvar­andi verkja­vanda­mál. Í öðru lagi stíg­ur hann mjög bratt­ur fram og hræðir að óþörfu þær þús­und­ir Íslend­inga, sem nota lyfið til að stilla verki (og fleira).“ Hann segir Hjalta Má vísa til erlendra rann­sókna sem sýni fram á gagn­leysi Park­ódíns, og að hann vísi til hættu á ávana­bind­ingu. Árni Tómas segir nokkuð vera til í því, en ekki mikið.

Aldrei verið sýnt fram á skaðleg áhrif ráðlagðra skammta

„Parkó­dín er sam­sett lyf, sem inni­held­ur að hluta til lyfið kó­dín, sem hef­ur verið notað í ára­tugi til að stilla verki. Það er eitt elsta verkja­lyfið, sem enn er notað í dag og því mik­il reynsla kom­in á notk­un þess. Það hef­ur aldrei verið sýnt fram á skað­leg áhrif þess sé það notað í ráð­lögðum skömmt­um, sem lang­flest­ir gera,“ segir Árni Tómas í pistl­inum. Hann segir ein­ungis örfáa ein­stak­linga ofnota lyfið en að flestir þeirra ein­stak­linga myndu finna sér önnur og skað­legri lyf ef notkun Park­ódíns væri bönnuð.

„Það væri voða gott ef eng­ir hefðu verki, sér­stak­lega ekki til langs tíma. En því miður er staðan ekki þannig. Þúsund­ir Íslend­inga eru með langvar­andi verki og finnst Parkó­dín lina þá. Þeir gefa lítið fyr­ir rann­sókn­ir sem sýna annað. Það er nefni­lega þannig að það er eng­inn, sem veit hvernig öðrum líður á sál og lík­ama en sá sem á þá sál og lík­ama. Og þar af leið­andi er eng­inn, sem veit hvað virk­ar best gagn­vart t.d. verkj­um, kvíða, þung­lyndi og svefn­leysi, nema þeir sem þurfa að búa við þá kvilla. Það er því miður svo að ör­lít­ill hluti fólks, sem er ávísað lyfj­um við þess­um kvill­um, get­ur leiðst út í of­notk­un þeirra.“

Árni Tómas slær því föstu að lang­flestir fari eftir settum leið­bein­ingum um notkun lyfj­anna og hljóti þar með engan skaða af. Hins vegar upp­skeri við­kom­andi aðilar mun meiri lífs­gæði en áður, „sem við öll sækj­umst eftir.“

Segir það ljótt að hræða fólk

„Það er ljótt að hræða fólk frá því að nota lyf í hófi, sem því finnst sjálfu að því líði bet­ur af. Ég hef starfað sem lækn­ir í 50 ár og hef mikla reynslu af notk­un þess­ara lyfja og sára­sjald­an séð nei­kvæðar af­leið­ing­ar af því að ég ávísi þeim til skjól­stæð­inga minna. En for­dóm­arn­ir meðal margra lækna og al­menn­ings eru mikl­ir,“ segir Árni Tómas. Hann minnir á að fyrir árið 1940 hafi nán­ast engin lyf verið til á borð við þau sem við not­umst við í dag.

„Aðeins gagns­laus­ar mixt­úr­ur, sem lækn­ar skrif­uðu út til frið­þæg­ing­ar skjól­stæð­inga sinna. Um og eft­ir 1950 hófst „lyfja­bylt­ing­in“ – fund­in voru upp lyf við alls kyns sjúk­dóm­um og kvill­um, sem bættu líðan fólks eða forð­uðu því frá bana. Við lif­um því góða tíma hvað lyf varðar, lyf sem hafa bætt líðan og lífs­lík­ur fólks í rúm 80 ár, – lyf, sem ekki voru til áður. Við erum hepp­in að vera uppi á þess­um tím­um, en ger­um okk­ur ekki alltaf grein fyr­ir því!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti