Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ómar braut reglur – Landsréttur taldi vinnubrögðin ámælisverð

Ómar R. Valdimarsson
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Lands­réttur taldi vinnu­brögð Ómars R. Valdimars­sonar, lögmanns, sérstak­lega aðfinnslu­verð í dómi þann 25. mars síðastliðinn. Ómar áfrýjaði dómi héraðs­dóms þar sem byggt var á því að lögmaður skjólstæðings hans hafi sýnt af sér saknæma háttsemi við vinnslu og frágang kaupmála. Niður­staða héraðs­dóms sem var stað­festur af Lands­rétti var að lögmaðurinn hafi ekki sýnt af sér saknæma háttsemi og var hann sýknaður af kröfum skjólstæðings Ómars.

Lands­réttur tiltók sérstak­lega í niður­stöðu sinni að endurrit frá Ómari fyrir Lands­rétti af aðila- og vitna­skýrslum í héraði voru afar ónákvæm og á köflum villandi. Var lögmanninum sem Ómar höfðaði málið gegn því nauðsynlegt að leggja fram rétt endurrit. Lands­réttur taldi þennan frágang á gerð endur­ritanna sérstak­lega aðfinnslu­verðan.

Þá braut Ómar einnig gegn reglum nr. 2/2018 um málsgögn í einka­málum. Samkvæmt reglunum ber lögmanni að hafa samráð við lögmann gagnaðila um gerð málsgagna og hvaða skjölum sem lögð voru fram í héraði væri ofaukið vegna flutnings málsins fyrir Lands­rétti. Ómar staðfesti við aðal­meðferð málsins að hann hafi ekki gætt að þessu. Þá hafi Ómar einnig án nokkurs samráðs sleppt því að leggja fram þrjú héraðsdóms­skjöl án þess þó að vekja athygli á því með því að geta þeirra í efnisskrá fremst í máls­gögnum sem yfir­strikaðra skjala. Lands­réttur sá sig knúinn til að átelja þessi vinnu­brögð sérstak­lega í niður­stöðum sínum. Skjólstæðingur Ómars var dæmdur til að greiða lögmanninum og tryggingar­félagi hans 1.000.000 kr. í máls­kostnað.
Dóminn má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá