Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Steingrímur Helgu Jóhannesson: „Ég gjörsamlega gargaði á hafið og kallaði nafn hans“

Steingrímur Helgu Jóhannesson: „Ég gjörsamlega gargaði á hafið og kallaði nafn hans“
Stein­grímur Helgu Jóhann­es­son

„Ég stopp­aði í fjörum hér og þar og gjör­sam­lega garg­aði á hafið og kall­aði nafn hans,“ segir Stein­grímur Helgu Jóhann­es­son í við­tali við Reyni Trausta­son. Stein­grímur var á sjónum um ára­bil og í hitti­fyrra var hann í túr á skut­tog­ar­anum Tómasi Þor­valds­syni. Þetta átti að vera 40 daga túr á grá­lúðu. „Á 37. degi kom atvik upp,“ segir Stein­grímur, en í kaffi­tím­anum snemma morg­uns sá hann SMS frá föður sínum sem bað hann um að hringja í sig sem allra fyrst; þetta tengd­ist bróður Stein­gríms.

„Hann hafði átt erfitt og honum leið ekki vel,“ segir Stein­grímur um bróður sinn, „þannig að mig grun­aði hvað væri á bak við þessi skila­boð. Við Hörður bróðir vorum bara tveir og við misstum móður okkar ungir. Þetta hefur allt verið erfitt fyrir okkur öll þessi ár; við vorum bara tveir og vorum nánir. Það tók mig 10 mín­útur að taka upp tólið og hringja í pabba. Ég vissi nákvæm­lega  hvað þetta var þegar hann svar­aði. Hann sagði „Hörður, bróðir þinn, er dáinn.“ Þegar svona ger­ist og að vera úti á sjó; það bara hrundi allt ein­hvern veg­inn. Ég hrundi sjálfur. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég sett­ist niður og fór að gráta.

Ég fór til stýri­manns­ins og sagði hvað hefði gerst og spurði hvort ég gæti fengið eitt­hvað róandi. Svo fór ég niður í klefa og ég mætti ekk­ert niður á vakt eftir kaffi. Svo kom Bessi skip­stjóri og tal­aði við mig og sagði að hann ætl­aði að skutla mér í land. Þarna vorum við úti á Hala. Hann skutl­aði mér upp á grunn og þar var fullt af snur­voða­bátum og það átti að henda mér í bát sem var fyrstur til að fylla og svo átti ég að fara með honum í land sem var gert. Ég kom í land í Bol­ung­ar­vík,“ segir Stein­grímur sem leigði bíla­leigu­bíl og seg­ist hafa ekið áleiðis suður með augun stút­full af tárum og reiði. „Ég vissi ekki almenni­lega hvað hafði gerst hjá honum,“ segir hann og á við lát­inn bróður sinn. Í þess­ari ferð suður stopp­aði hann svo í fjörum hér og þar og gjör­sam­lega garg­aði á hafið og kall­aði nafn lát­ins bróður síns.

Hörður.

Eig­in­kona Stein­gríms ók á móti honum og hitt­ust þau í Bjark­ar­lundi og það hjálp­aði mikið. „Hún stóð mikið við bakið á mér. Ég þakka áhöfn­inni fyrir en þeir voru mikið að aðstoða mig.“

Ég var ekki til­bú­inn til að gera neitt.

Stein­grímur ákvað eftir þetta að koma sér í land. „Ég var ekki til­bú­inn til að gera neitt. Ég var heima í um fjóra mán­uði og fór að vinna í landi sem vinnslu­tæknir. Ég held ég hafi verið þar í mánuð og svo gafst ég upp. Ég var ekki með haus­inn í takt við lífið.“

Stein­grímur, sem segir að Hörður hafi lát­ist af völdum hjarta­á­falls, segir að það hafi verið búið að reyna að hjálpa honum mikið. „Sumt fólk er þannig að það vill ekki láta hjálpa sér. Ég reyndi eins og ég gat.“

Hörður hafði búið á Spáni og segir Stein­grímur að það hafi tekið um sex vikur að koma líki hans til Íslands.

3.600 tonna togari

Stein­grímur fædd­ist í Vest­manna­eyjum. Svo flutti fjöl­skyldan norður og árið 2004 flutti Stein­grímur svo í Eyjar til að fara á sjó­inn. Faðir hans var sjó­maður og var þá á Snorra Sturlu­syni og hringdi Stein­grímur í föður sinn og bað um að fá pláss. „Ég fékk þetta „ætlar þú á sjó­inn?“. Stein­grímur segir að það séu margir sjó­menn í ætt­inni. „Bróðir minn, Hörður heit­inn, var sjó­maður.

Ég var á Snorra Sturlu­syni þangað til hann var seldur. Mér gekk mjög vel þarna um borð og hafði aldrei unnið þessa vinnu áður og fékk fast pláss bara strax. Svo var Snorrinn seldur og þá fór ég á Þór í Hafn­ar­firði hjá Guðrúnu og Gústa og var þar í þrjú ár. Flott áhöfn. Topppláss og allt magnað þarna um borð.“

Hafið lokkar og laðar en það gera líka útlönd stundum og Stein­grímur vildi út. Út til Noregs. Hann vildi fara á sjó­inn með frændum vorum Norð­mönnum. Hörður bjó þá í Haugesund.

„Ég sagði upp á Þór, fór út og var kom­inn með vinnu innan tveggja vikna á einum stærsta tog­ara í Noregi. Tvö milli­dekk og hvað eina. 3.600 tonna tog­ari.“ Stein­grímur varð vinnslu­stjóri; fékk þá stöðu í þriðja túr.

„Það er gríð­ar­leg ábyrgð að vera vinnslu­stjóri á svona stórum tog­ara og úti í Noregi. Þetta er svo­lítið svart og hvítt að vera í þess­ari stöðu hérna heima og úti því þarna úti ertu með alla ábyrgð undir skip­stjór­anum. Ábyrgðin var mín að skila góðum afurðum og bera ábyrgð á báðum vöktum.“ Hann segir að þarna hafi hann fílað sig í tætlur. Þarna var hann í þrjú ár og svo var skipið selt.

Á reki í fárviðri

Stein­grímur segir frá minn­is­stæðum túr á þessum norska tog­ara. Þeir voru í Flæmska hatt­inum í jan­úar. Kvöldið áður en tog­ar­inn átti að láta frá höfn kíkti Stein­grímur á pöbb og hitti þar gamlan, norskan sjó­mann. Síð­hærðan og tann­lausan.

„Hann spurði mig hvað ég væri að gera og ég sagði það og að ég væri að fara í Flæmska hatt­inn og myndi leggja af stað morg­un­inn eftir. Þá reif hann í öxl­ina á mér: „Ekki fara. Ég er búinn að fara þangað og ég ætla aldrei aftur þangað.“ Hvaða bull var þetta? Ég vissi að þetta væri slæmt haf­svæði en við fórum þangað á versta tíma árs­ins og það er eng­inn þarna í jan­ú­ar­mán­uði.“

Svo lagði tog­ar­inn frá bryggju.

Ég man að það var kolniða­myrkur, snjó­hríð, 20 stiga frost.

„Þetta var níu daga sigl­ing og þegar við mættum út þá var veður eins og ég hafði aldrei séð áður. Öldu­hæðin var svo mikil. Ég man að það var kolniða­myrkur, snjó­hríð, 20 stiga frost og bara klikkað veður. Kallinn ákvað að láta þá fara. Það hristu allir haus­inn. En eftir um hálf­tíma til klukku­tíma kall­aði hann niður: „Það verður að hífa þetta; það er eitt­hvað að.“ Svo var byrjað að hífa og hler­arnir komu upp. Ég var á dekki þarna og þá var annar grand­ar­inn slit­inn þannig að það var híft upp á öðrum og reynt að koma þessu inn og granda­spilin voru ekki að hafa þetta. Lengjan var svo komin inn og það var ákveðið að hjálpa þessu að kom­ast inn með gilsum og öðru.“

Svo drapst á skip­inu. Í þessu fár­viðri.

„Meira að segja neyð­ar­ljósin kvikn­uðu ekki og á sama tíma fengum við brot á okkur. Ég og Otto Svalbard, Fær­ey­ingur, vorum stjórn­borðs­megin og fundum að það flaug ein­hver and­skot­inn yfir okkur. Við vorum heppnir að vera lif­andi eftir þetta því þegar ljósið var komið á þá var þetta grand­ari sem hafði flogið úr stæði hinum megin og skór sem eru not­aðir á hler­ana. Þetta flaug yfir. Skórnir smöll­uð­ust, grand­ar­inn nátt­úr­lega losn­aði allur en við sluppum furðu vel.

Það sem gerð­ist þarna er að við fengum í skrúf­una.“

Stein­grímur segir að hann hafi hugsað í þessum aðstæðum að þetta yrði sitt síð­asta. Til­finn­ingin var þannig.

„Svo ákvað kall­inn að reyna að slaka kran­anum aftur niður og reyna að húkka í eitt­hvað í skrúf­unni þannig að hann fest­ist líka og kran­inn var pikk­fastur. Við vorum bara vél­ar­vana úti. Og stopp. Bara á reki. Svo var fær­eyskur tog­ari á leið­inni út og það voru tveir sól­ar­hringar í hann. Það var fljót­ara að bíða eftir honum heldur en að fá skip úr landi. Við biðum og þegar þeir komu var skotið úr línu og það tók heilan dag að ná lín­unni yfir; það var svo vont veður. Loksins heppn­að­ist það og við vorum drengir í land og vorum í St. Jones í fjóra daga.

Við vorum uppi í bæ að fá okkur og menn að taka úr skrúf­unni. Það fór allt í skrúf­una.

Svo fórum við aftur út á sjó og kláruðum túr­inn og náðum að fylla togar­ann af þorski. Þetta var einn stærsti túr sem ég hef farið í.“

Svo kom að því að tog­ar­inn var seldur til Rúss­lands.

Stein­grímur fór á annað skip hjá stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki Noregs og var þar vinnslu­stjóri í þrjú ár en svo flutti hann til Íslands og fór að vinna hjá Samherja.

Maður er búinn að heyra margar sögur af þeim.

Var ekki gott að vinna hjá þeim?

„Jú, jú. Maður er búinn að heyra margar sögur af þeim hvað þetta sé mikið skíta­batt­erí og hitt og þetta. Maður heyrði sögur af því að það var hringt frá útgerð­inni og sagt „þú ert að fara þangað“ og ef þú sagðir „nei“ þá varstu rek­inn. En ég lenti aldrei í svo­leiðis þannig að ég hef ekk­ert út á það að setja. Ég hef ekk­ert út á þessa útgerð að setja þannig. Ég fór á Odd­eyr­ina.“

Allt í brúnum reyk

Oddeyrin var einu sinni á Barents­hafi á leið til Íslands. „Þetta var des­em­ber­túr. Jólatúr. Það var búið að þrífa allt og græja allt. Það voru flest allir sof­andi þessa nóttu en ég var uppi í setu­stofu að horfa á bíó. Ég var að horfa á Suð­ur­landið. Myndina. Ég hafði ekki séð þessa mynd áður og vissi lítið um þetta slys. Þarna komst ég að því að þeir höfðu verið að sigla sömu sigl­inga­leið og við til Íslands. Og þarna vorum við um 100 mílur frá Langa­nesi. Ég var nýbú­inn að klára að horfa á mynd­ina og kom­inn í koju og það liðu svona 10 mín­útur þangað til alar­mið um borð fór í gangi; bruna­varn­ar­kerfið. Það kom óhugur í mann; ennþá með þessa mynd í huga. Ég henti mér í fötin og fór beint upp í brú og þá var manni til­kynnt að það hefði kviknað í. Það var allt í brúnum reyk. Það hafði kviknað í niðri í vél; í rafalnum. Við náðum að slökkva í þessu sem betur fer. Það var magnað hvernig þetta hitti í mark; á sama tíma. Svolítið sér­stakt.“

Þetta er eins og ein fjöl­skylda.

Stein­grímur var á Odd­eyr­inni þangað til hún var seld til Noregs. „Mér var boðið að fara með skip­inu og ég gerði það. Við fórum þrír út með skip­inu; ég átti að sjá um vinnsl­una, svo var það vél­stjóri og stýri­maður. Og svo einn á dekki. Við áttum að koma nýrri áhöfn af stað. Ég var þarna í þrjá túra og svo fór ég aftur heim. Ég fór svo á Björk hjá Samherja. Ég fór þaðan 2019 og fór svo að vinna hjá Brim; var á Helgu Maríu.“ Hann segir að þar sé topp­á­höfn frá brú og niður í vél. „Þarna leið mér best af öllum skipum sem ég hef verið á. Þetta er eins og ein fjöl­skylda. Heil­steypt fjöl­skylda.“

Svo seg­ist hann hafa verið á flakki; nefnir Hrafn Svein­bjarn­ar­son.

Hættur á sjónum

Stein­grímur sá um tíma um hlað­varps­þætti, Sjóarann, þar sem hann tók við­töl við sjó­menn en hann er hættur því. Hann seg­ist hafa tekið við­töl við um 40 sjó­menn sem muna tím­ana tvenna frá því jafn­vel fyrir ára­tugum síðan. „Þetta er tími sem maður þekkti ekki áður og að heyra þessar minn­ingar og um þessa háska; það er magnað að heyra þetta frá þessum mönnum.“

Hann er ekki bara að hætta með þætt­ina heldur er hann líka að hætta á sjónum. „Ég ætla að fara að gera eitt­hvað annað. Ég ætla að vera meira með fjöl­skyld­unni,“ segir Stein­grímur sem á tvo syni og tvö stjúp­börn. „Ég er búinn að vera á sjónum í 18 ár. Þetta er ekk­ert ægi­leg saga miðað við þessa kalla sem ég hef talað við en mér finnst það slatti fyrir mig og ég ætla að prófa eitt­hvað nýtt.“

Hann skráði sig í nám. „Það heitir gæða­stjórnun og ég er búinn með hluta af því, diplóma, í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina