Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Séra Jóna Hrönn Bolladóttir: „Ég lærði að biðja í Kolaportinu“

Séra Jóna Hrönn Bolladóttir: „Ég lærði að biðja í Kolaportinu“
„Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

„Var Jesús ein­get­inn? Mér er drullu­sama en mér er alveg ljóst eftir sam­leið mína með honum í líf­inu að hann er svo sann­ar­lega ein­stakur sonur Guðs því hann hefur breytt mann­kyns­sög­unni og hefur alla daga áhrif á mína sögu,“ segir séra Jóna Hrönn Bolla­dóttir, sókn­ar­prestur í Vídalíns­kirkju. „Það eft­ir­minni­leg­asta eftir öll þessi ár í starfi er að sjá svo margt fólk rísa á fætur í eigin lífi þrátt fyrir bylm­ings­högg örlag­anna. Ég hef stöðugt og ítrekað orðið vitni að upp­risu­kraft­inum eins og hann birt­ist í raun­veru­legri reynslu.“

Skír­dag­ur­inn. Föstu­dag­ur­inn langi. Pásk­arnir. Reis Jesú upp frá dauðum?

„Aug­ljós­lega reis hann upp því ann­ars værum við ekki að ræða þetta tvö þús­und árum síðar. Ef hann væri bara graf­inn og gleymdur væru ekki millj­ónir manna í vit­und­ar­sam­bandi við hann um allan heim. Það hefur eitt­hvað stór­kost­legt gerst. Ég gæti ekki hafa staðið við lík­börur í yfir þrjá­tíu ár nema vegna þess að ég á upp­risu­trú í hjarta mínu. Upprisa Jesú er ekki bók­staf­leg gagn­reynd þekk­ing heldur Guðs­þekk­ing. Hún er reynslan af mætti líf­is­ins í veru­leik­anum, hvernig ljós himn­anna mætir fólki í erf­ið­leikum, þján­ingu, von­leysi og missi. Þetta blasir við mér í dag­legu lífi, ekki síst í gegnum sál­gæsl­una. Ég ætla að fá að eiga þá trú að Guð leiði okkur í gegnum dán­ar­heim­inn og inn í sitt eilífa ljós. Þannig bið ég fyrir öllum sem ég jarða. Ég trúi á hinn upp risna frels­ara Jesú Krist og blygð­ast mín ekki fyrir það.

Hvaða félags­legu og til­finn­inga­legu áhrif má það hafa að Guðs syni skuli hafa verið þröngvað og hann níddur með nákvæm­lega sama hætti og líkin sem nú blasa við í Úkraínu? Hvers konar átrún­aður er það? Grátandi, hand­ó­nýtur Guð sem hrópar í ýtr­ustu neyð nak­inn og upp hengdur til háð­ungar í allra aug­sýn: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfir­gefið mig!? Trúin er ekki heimsk. Biblían gefur engar myndir af sjálfri upp­ris­unni. Engar bók­stafs­lýs­ingar handa trú­ar­þjösnurum að töngl­ast á eða and­trú­ar­dólgum að hæð­ast að.“

„Ef hann væri bara graf­inn og gleymdur væru ekki millj­ónir manna í vit­und­ar­sam­bandi við hann um allan heim.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Jesús fæddist ekki í Betlehem

Hver er skoðun sókn­ar­prests­ins varð­andi fað­erni Jesú? Var Jesús ein­get­inn sonur Guðs eða góður maður með mik­inn boð­skap?

„Þetta er mik­il­væg spurn­ing í dag en fyrir tvö hund­ruð árum hefði ekki þurft að spyrja hennar vegna þess að fyr­ir­bærið bók­stafs­trú hefur ekki verið vanda­mál nema þessi síð­ustu árhund­ruð. Alveg þar til nútím­inn kom til sög­unnar skildi fólk eðli helgi­sagn­anna, að þær eru ekki bók­staf­legar heldur fjalla þær um hið ósegj­an­lega í raun­veru­leik­anum. Adam og Eva eru ekki bók­staf­legar eða sögu­legar per­sónur. Þau eru tákn­myndir fyrir mann­kynið og mann­leg kjör. Nói var aldrei í örk­inni og Jesús fædd­ist ekki í Betlehem. Helgi­sagnir eru miklu stærri en okkar hug­myndir um raun­veru­leik­ann. Þær eru mik­il­vægur hluti af lang­tíma­minni mann­kyns og fjalla um ýmis aðal­at­riði sem ekki mega gleym­ast þótt annað fyrn­ist. Hversu mik­ils virði er að Guðs sonur hafi fæðst inn í ósta­bílt ást­ar­sam­band og fað­erni hans verið í upp­námi? Hvaða félags­legu afleið­ingar hefur átrún­aður þar sem guð­inn fæð­ist í hendur valda­lauss fólks sem býr á merk­ing­ar­lausum stað eins og Nasaret var og þegar barnið á að koma í heim­inn er það á hrak­hólum vegna vald­níðslu yfir­valda og fjöl­skyldan endar sem ólög­legir inn­flytj­endur í Afríku? Aldrei hafa fleiri börn verið á flótta í ver­öld­inni en einmitt þessa páska. Var Jesús ein­get­inn? Mér er drullu­sama en mér er alveg ljóst eftir sam­leið mína með honum í líf­inu að hann er svo sann­ar­lega ein­stakur sonur Guðs því hann hefur breytt mann­kyns­sög­unni og hefur alla daga áhrif á mína sögu.“

„Helgi­sagnir eru miklu stærri en okkar hug­myndir um raun­veru­leik­ann.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Andardráttur trúarinnar er bænin

Hvað er Guð í huga Jónu Hrannar?

„Sem trú­aðri mann­eskju er mér hollt að segja: Ef Guð er til þá eru allar mínar hug­myndir um hann rang­hug­myndir. Það skýrist af því að tungu­málið okkar og mynd­irnar sem við búum til í eigin höfði eru ekk­ert nema speg­il­myndir af okkar eigin skynjun. Hvað sem mér kynni að detta í hug að segja um Guð myndi aldrei námunda sann­leik­ann. „Mínir vegir eru ofar ykkar vegum og mínar hugs­anir ofar ykkar hugs­unum“ segir Guð hjá spá­mann­inum Jesaja.  Ég held að við verðum að slaka á með allar hug­myndir og kenn­ingar um Guð. Trúin er ekki það að trúa ein­hverju upp á Guð. Trúin er reynslan af því að Guð hafi trú á fólki og öllu sem lifir. Trúin er ekki að höndla sann­leik­ann heldur bæn um það að mega vera höndluð af sann­leik­anum. And­ar­dráttur trú­ar­innar er bænin. Mín skynjun af nær­veru Guðs er fyrst og fremst í bæna­sam­fé­lagi og fyr­ir­bæna­þjón­ustu. Ég hef til­heyrt bæna­hópi kvenna í fjórtán ár í Vídalíns­kirkju og við höfum komið saman viku­lega. Þótt flest viki til hliðar féllu þessar stundir aldrei niður í COVID. Ég veit í hjarta mér að allar þessar konur sem þarna koma saman hafa verið kallað af Guði til þjón­ustu. Bænin breytir ekki Guði en hún breytir þeim sem biður. Það að biðja stöðugt fyrir fólki í sam­fé­lagi við aðra veitir manni þekk­ingu á eðli Guðs­ríkis. Guðs­þekk­ing er hag­nýt þekk­ing. Það skiptir mig óend­an­lega miklu máli að vita að það er beðið fyrir mér. Án fyr­ir­bænar myndi ég ekki treysta mér til starfa.“

„Mín skynjun af nær­veru Guðs er fyrst og fremst í bæna­sam­fé­lagi og fyr­ir­bæna­þjón­ustu.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Kartöflur og helgihald

Jóna Hrönn Bolla­dóttir fædd­ist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjón­anna Bolla Þóris Gúst­avs­sonar, fyrrum vígslu­bisk­ups að Hólum í Hjalta­dal, og Matt­hildar Jóns­dóttur hár­greiðslu­meist­ara og hús­móður. Jóna Hrönn er ein af sex systk­inum og þegar hún var tveggja ára flutti fjöl­skyldan að Laufási við Eyja­fjörð.

„Ég get aldrei full­þakkað að hafa fengið að alast upp á slíkum stað sem ilm­aði af feg­urð og sögu. Það er magnað að fá að alast upp í íslenskri sveit, vera í tengslum við nátt­úr­una, sinna dýr­unum og taka þátt í því að hjálp­ast að. Upp­vöxtur minn mót­að­ist meðal ann­ars af því að sitja á kart­öflu­vél­inni á vorin og standa á henni á haustin þegar upp­skeran kom því að pabbi rækt­aði kart­öflur í því skyni að auka tekj­urnar því að prests­launin voru lág og börnin mörg. Ég lyfti ekki lóðum á ung­lings­árum en ég lyfti ótöldum pokum af vöru­bíl­spöllum og var alveg naut­sterk. Það má segja um heim­il­is­lífið í Laufási að við vorum öll að vasast í þeim verk­efnum sem komu upp. Ég fylgdi meðal ann­ars pabba tölu­vert í hans starfi, lék á gítar í sunnu­daga­skól­anum og fór með honum á snjó­þungum vetrum til messu svo hann hefði ein­hvern til að ýta bílnum ef hann fest­ist í snjó. Þannig sner­ist æska mín nokkuð jafnt um kart­öflur og helgi­hald.“

Jóna Hrönn rifjar upp hvernig trúin hafi orðið eðli­legur hluti af dag­legu lífi. Laufás er kirkju­staður og hún hafði þann starfa að sýna kirkj­una og þrífa hana ásamt móður sinni. Messu­kaffi og erfi­drykkjur voru líka haldnar heima í stofu.

„Hvern messu­dag í Lauf­áss­kirkju útbjó mamma veislu fyrir alla sveit­ina. Þar voru mar­egns- og marsip­antertur sem mamma hafði bakað og pabbi hafði skreytt af því hann var svo flinkur í hönd­unum. Svo bak­aði hún alltaf ger­bollur og bar fram með blá­berja- og rabar­bara­sultu sem hún hafði búið til og alltaf voru fyrir hendi í búr­inu.

Það var ekki alltaf auð­velt að vera dóttir prests­ins af því að hann hafði svo mikla sér­stöðu í sveit­inni og hlut­verk hans var ólíkt mörgum öðrum. Stundum var manni strítt á því að eiga pabba sem ynni ekki neitt en væri alltaf í spari­föt­unum.

Í barna­skóla las maður bláu og bleiku bók­ina í krist­in­fræði og ég drakk í mig bibl­íu­sög­unar og fékk alltaf hæstu ein­kunn þar. Það er svo skrýtið að Jesús hefur verið órjúf­an­legur hluti af lífi mínu alla tíð og boð­skapur hans hefur fylgt mér frá unga­aldri.

Ég á sterka minn­ingu af því að það dó lít­ill drengur og það hafði mikil áhrif á okkur systk­inin og ég man eftir mér fara aftur og aftur til að standa við litla gröf í kirkju­garð­inum sem klædd hafði verið svo fal­lega með greni. Ég man hvað ég fann mikið til. Það hafði mikil áhrif á mig að sjá for­eldra mína vera að hjálpa fólk­inu í þessum aðstæðum. Pabbi að semja ræðu og tala til fólks­ins og mamma að und­ir­búa mót­tök­una og senda okkur í alls kyns verk­efni. Ég veit að svona stundir, sem voru ekki fáar, höfðu djúp­stæð áhrif á okkur öll börnin á heim­il­inu. Svo var maður með í kaff­inu eftir athöfn að hjálpa til. Maður skynj­aði sorg­ar­þung­ann og fann gildi þess að standa saman og hlúa að. Gildi sál­gæsl­unnar tók sér ból­stað í manni. Ég held að svona stundir séu ástæðan fyrir því að helm­ing­ur­inn af þessum systk­ina­hópi fór í prest­skap.“

Kazuma Takigawa

Jeppi á Fjalli

Svo varð prests­dóttirin ung­lingur. Hún segir að ung­lings­árin hafi verið góð ekki síst vegna þess að hún ákvað að drekka ekki áfengi á ung­lings­aldri; segir að hún hafi verið svo mik­ill brjál­æð­ingur að það hefði getað farið illa.

„Mér datt ýmis­legt í hug og hafði gaman af að vera innan um fólk og skemmta mér. Ég fór í Mennta­skól­ann á Akureyri og það verður að við­ur­kenn­ast að ég sinnti nám­inu ekki vel en ég var þeim mun dug­legri í félags­líf­inu,“ segir Jóna Hrönn og hlær. „Mitt stóra áhuga­mál á mennta­skóla­ár­unum var leik­fé­lagið og ég bæði lék og sat í stjórn félags­ins. Þetta voru gríð­ar­skemmti­leg verk­efni og eftir á sá ég hve mikil menntun var fólgin í því að starfa undir stjórn fólks eins og Ragn­heiðar Stein­dórs­dóttur leikkonu og Jónasar Jón­as­sonar útvarps­manns en við fengum alltaf menntað leik­hús­fólk sem verk­stjóra í leik­fé­lagi MA.

Ég hafði tekið þá ákvörðun sjö ára gömul að ég skyldi verða prestur og ég man eftir því að til­kynna pabba og ein­hverjum hópi presta þessa fyr­ir­ætlun mína en á þeim tíma sem ég sagði þetta var engin kona prestur og ég virði það alltaf við pabba hvað hann tók þessu ljúf­lega og eng­inn við­staddra hafði orð á neinum hindr­unum. Þremur árum síðar var fyrsta konan vígð svo ekki þurfti ég að ryðja braut­ina. Stafið í LMA hafði þau áhrif að hjá mér kvikn­aði draumur um að kannski gæti ég bara orðið leik­kona enda átti ég stór­kost­lega fyr­ir­mynd í afa­systur minni, Emillíu Jón­as­dóttur, sem ég dáði mjög líkt og þjóðin öll. Hún var okkar fyrsta Soffía frænka. Leik­list­ar­á­hug­inn var svo mik­ill að eftir stúd­ent ákvað ég að fara á lýð­há­skóla í Ósló þar sem boðið var upp á leik­list­ar­braut. Hápunktur tím­ans þar var þegar ég var valin til að leika Jeppa á Fjalli þar sem ég bæði röfl­aði, drakk og söng. Það var mikið hlegið í sýn­ing­unni því Jebbi á Fjalli var auð­vitað enn kostu­legri í flutn­ingi þess­arar þybbnu íslensku sveita­stelpu. Ég er alltaf þakk­lát fyrir þennan tíma. Síðan flutti ég til Reykja­víkur og fór að vinna á Kleppi og sótti kvöld­tíma í leik­list­ar­skóla Helga Skúla­sonar. Það var magnað nám. En nið­ur­staðan varð nú samt sú að ég fór ekki í leik­list heldur í guð­fræði­nám við HÍ.“

Ástin

Jóna Hrönn seg­ist hafa séð eig­in­mann sinn, séra Bjarna Karlsson, í fyrsta skipti þar sem hann stóð við syðri stig­ann í aðal­bygg­ingu Háskól­ans fyrsta dag­inn í guð­fræði­nám­inu. „Ég man meðal ann­ars hvernig hann var klæddur: Í brúnar flauels­buxur, rúllu­kraga­bol, í sand­ölum og með íþrótta­peysu bundna um herð­arnar og ég hugs­aði: Hversu hall­æris­legur getur maður verið? En mér fannst hann líka sjar­mer­andi af því að hann var svo öruggur með sig með fal­legt bros og ég vissi strax að við ættum eftir að verða vinir. En ég vissi líka að mig dauð­lang­aði að stríða honum sem varð raunin því að fyrsta vet­ur­inn í guð­fræði­deild­inni var ég sístríð­andi KFUM-drengnum Bjarna. Eftir vet­ur­inn unnum við saman í sum­ar­búðum á Snæ­fells­nesi og um haustið varð ekki aftur snúið. Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður. Hann vaknar ekki eins og ég í mis­jöfnu skapi á morgn­ana. Nei, hann er alltaf til í næsta dag fullur af áhuga fyrir líf­inu og sam­ferða­fólk­inu.“

Hvað er ástin í huga sókn­ar­prests­ins?

„Ég tel ást­ina vera sterkasta og mik­il­væg­asta aflið í heim­inum. Gunnar Her­sveinn segir í einni bók sinni að and­stæða ástar sé ekki hatur heldur skeyt­ing­ar­leysi. Ég er svo inni­lega sam­mála því. Hugsið ykkur ef Evr­ópu­búar ákvæðu núna að taka ekki á móti flótta­mönnum frá Úkraínu. Í því ljósi blasir við að skeyt­ing­ar­leysi er einmitt and­stæða ástar. Gunnar segir líka að skeyt­ing­ar­laust sam­fé­lag sé eins og hurð­ar­laust hel­víti. Ég hall­ast að því. Kristur sendir stöðug skila­boð í boð­skap sínum í þá veru að við skulum þjóna hvert öðru. Ástin er að þjóna öðrum. Þannig er það í hjóna­band­inu. Fólk sem vill þjóna hvert öðru, ekki bara taka til sín heldur skipt­ast á gæðum og vera raun­veru­lega vitni að lífi hvort ann­ars, finnur hjóna­sælu. Þar verður ekki bara ást í sam­skiptum heldur enn fremur trún­aður og virð­ing sem nær­ist í nánum tengslum. Hvað er ást? Ást er vinna, gleði­rík og grjót­hörð vinna.“

Prests­hjónin búa við barna­lán. Eiga þrjú börn. „Elstur er Andri sem starfar sem sál­fræð­ingur í Reykja­vík. Kona hans er Unnur Bryndís Guð­munds­dóttir sem starfar sem sjúkra­þjálfi. Önnur er Matt­hildur Bjarna­dóttir sem er prestur og heldur meðal ann­ars utan um verk­efnið Örninn sem er starf fyrir börn og ung­linga sem hafa orðið fyrir missi. Þar höfum við fjöl­skyldan verið sjálf­boða­liðar sem hefur verið dýr­mætt fyrir okkur. Maðurinn hennar er Daði Guð­jóns­son kenn­ari. Yngstur er Bolli Már sem vinnur við aug­lýs­inga- og efn­is­gerð meðal ann­ars hjá aug­lýs­inga­stof­unni Pipar. Maki hans er Berglind Halla Elí­as­dóttir leik­kona. Öll hafa börnin fært okkur barna­börn. Þau eru orðin fimm tals­ins og eru í raun okkar stóra áhuga­mál og þakk­ar­efni.“

„Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Upprisukrafturinn

Ferill sókn­ar­prests­ins er fjöl­breyttur. Jóna Hrönn starf­aði sem æsku­lýðs­full­trúi við Laug­ar­nes­kirkju meðan á guð­fræði­nám­inu stóð. Hún vígð­ist síðan til prests­þjón­ustu í Vest­manna­eyjum árið 1991 og svo starf­aði hún sem prestur við Dóm­kirkj­una í Reykja­vík í hálfu starfi árið 1998 og í hálfu starfi sem mið­borgar­prestur KFUM/K til árs­ins 2001. Þá var hún var í fullu starfi sem mið­borgar­prestur þjóð­kirkj­unnar frá 2001 til 2005. Árið 2005 var hún svo ráðin sókn­ar­prestur Garða­presta­kalls í Garðabæ og Álfta­nesi.“

Hvað er eft­ir­minni­leg­ast frá ferl­inum?

„Eitt það dýr­mætasta á starfs­ferli mínum var það að fá að hefja mína prests­þjón­ustu í Vest­manna­eyjum. Eyjamenn urðu mínir helstu læri­meist­arar í sál­gæslu­fræðum vegna þess að ungur prestur var óreyndur á sviði mann­legra harm­leikja. Hver Eyja­mað­ur­inn af öðrum leiddi mig í gegnum sárs­auka­full emb­ætt­is­verk, vit­urt fólk sem mót­ast hafði af því að búa á þessum ber­skjald­aða stað. Þar varð ég aftur og aftur vitni að því hvernig lifa skuli af.

Það eft­ir­minni­leg­asta eftir öll þessi ár í starfi er að sjá svo margt fólk rísa á fætur í eigin lífi þrátt fyrir bylm­ings­högg örlag­anna. Ég hef stöðugt og ítrekað orðið vitni að upp­risu­kraft­inum eins og hann birt­ist í raun­veru­legri reynslu. Enn frekar undr­ast ég hvernig fólk fer að því að nýta sárs­auka sinn og þján­ingu til að styrkja aðra þegar það kemur út úr dýpstu þján­ingu og hefur borið gæfu til að hlusta eftir anda Guðs og verður síðan far­vegur hug­mynda að starfi eða verk­efnum sem verður til ríku­legrar bless­unar fyrir aðra. Af ótal dæmum ætla ég bara nefna hér vin­konu mína Heiðrúnu Jens­dóttur sem fékk mig til liðs við sig að stofna Örninn, starf fyrir börn og ung­linga sem hafa misst náinn ást­vin. Á stuttum tíma hefur þetta starf borið mik­inn ávöxt í sam­vinnu við hóp af sjálf­boða­liðum. Bara í síð­asta mán­uði kom til mín kona með hug­mynd sem ég veit að er frá Guði og við erum farnar á stað að vinna með efnið.“

Jóna Hrönn var Mið­borgar­prestur árið 1998-2005. Hvað er eft­ir­minni­leg­ast frá þeim tíma?

„Ástandið var slæmt í mið­bænum um síð­ustu alda­mót. Ég man að það fór um mig hrollur þegar vinnu­veit­endur mínir fóru fram á að keypt yrði fyrir mig sér­stök slysa­trygg­ing á meðan ég gegndi þessu emb­ætti. Ég varð aldrei fyrir lík­ams­tjóni í starf­inu en margoft var ég ótta­slegin og mér var hótað.

Á þessum árum var mikil ung­linga­drykkja í mið­borg­inni og hörð fíkni­efni flæddu yfir. Þá voru líka opn­aðir nokkrir nekt­ar­dans­staðir og þeim fylgdi mikil þján­ing og sorg. Líkt og í Erninum í dag voru magn­aðir sjálf­boða­liðar sem komu til sam­starfs við mig hverja helgi á efri hæð­inni í Aust­ur­stræti 20 þar sem Mið­borg­ar­starfið hafði afdrep. Árið 2001 fórum við í það að inn­rétta neðri hæð húss­ins sem kaffi­hús sem fékk nafnið Ömmu­kaffi. Þetta var kostn­að­ar­samt verk­efni enda var þetta full­búið kaffi­hús sem hafði ásýnd heim­ilis eldri konu. Hug­myndin var að hluta til fengin frá finnsku kirkj­unni en einnig frá þeim fjöl­mörgu ung­lingum sem höfðu sagt okkur að þeir ættu alltaf afdrep hjá ömmu sinni þegar allt annað þryti. Um helgar komu að með­al­tali 50–100 ung­lingar til okkar í Ömmu­kaffi. Á dag­inn var rekið venju­legt kaffi­hús sem átti marga fasta­gesti því veit­ingar voru ljúf­fengar og stað­ur­inn bar með sér yfir­bragð mann­gæsku og trúar.

Í starfi mínu sem mið­borgar­prestur horfði ég oft til Kola­ports­ins og velti því fyrir mér hvort hægt væri að koma til sam­starfs við það mikla mann­lífs­torg. Ég vandi þangað komur mínar um helgar og fann innra með mér að vissu­lega ætti kirkjan þar erindi. Svo þegar ég kom að máli við Jónu Ásgríms­dóttur, sem þá rak kaffi­húsið á svæð­inu, og bar undir hana þá hug­mynd að hafa guðs­þjón­ustur í kaffi­hús­inu hjá henni tók hún mér afar vel. Ég fékk með mér presta, djákna og tón­list­ar­fólk til að þjóna við athafn­irnar. Bjarni minn var ævin­lega með mér í þessu helgi­haldi og einnig Þor­valdur Hall­dórs­son tón­list­ar­maður og Ragn­heiður Sverr­is­dóttir djákni auk ann­ara. Mér þykir óend­an­lega vænt um það að Bjarni og Ragn­heiður skuli halda utan um þessar messur núna 22 árum seinna ásamt Guðrúnu Árnýju Karls­dóttur tón­list­ar­manni. Og eitt verð ég að segja til við­bótar: Ég lærði að biðja í Kola­port­inu. Hvergi hefur mér reynst auð­veld­ara að bera þar upp bæn­ar­efni. Þar ríkir mikil sam­staða og klið­ur­inn og köllin um kart­öflur og hákarl til sölu er eðli­leg stað­fest­ing á því að það skiptir máli að taka þátt í líf­inu og að veru­leik­inn sjálfur er hinn rétti vett­vangur bæn­ar­innar. Mitt í hinu lif­aða lífi er hjart­sláttur trú­ar­innar heitur og ör í Kola­ports­mess­unum.“

„Þá voru líka opn­aðir nokkrir nekt­ar­dans­staðir og þeim fylgdi mikil þján­ing og sorg.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Barna- og unglingastarf

Jóna Hrönn hefur í gegnum árin lagt mikla áherslu á barna- og ung­linga­starf.

„Leiðin að hjarta safn­að­ar­ins er í gegnum barna- og ung­linga­starf. Kirkja sem sinnir ekki þeim þáttum deyr rétt eins og kirkja þar sem ekki er iðkað bæna­líf.

Við lifum í sam­fé­lagi þar sem sig­ur­veg­ara­menn­ing ræður ríkjum. Ég ótt­ast þær ein­hliða áherslur. Það er mik­il­vægt að vera í íþróttum og hreyfa sig og það að vera hluti af liðs­heild er upp­byggi­leg reynsla. En áherslan á afburð­ina og það að skara fram úr í sam­an­burði við aðra verður oft fyr­ir­ferða­mikil. Börn þurfa að geta komið á stað þar sem þau þurfa ekki að keppa eða vera „betri en“ heldur mega hvíla í þeirri reynslu að vera dýr­mæt, elskuð og ein­stök í sjálfu sér.

Kristið æsku­lýðs­starf leggur áherslu á dýr­mæti ein­stak­lings­ins og feg­urð­ina í sam­skiptum. Þar ríkir hvatn­ing til að sýna náunga­kær­leika og varð­veita heil­brigð og sveigj­an­leg per­són­u­mörk. Það hvernig kristin trú hefur verið töluð niður í sam­fé­lagi okkar og gerð að vanda­máli í opin­bera rým­inu er mikið menn­ing­ar­slys byggt á þröngu heim­ilda­vali og skorti á félags­legu inn­sæi. Vita­skuld þarf æsku­lýðs­starf kirkj­unnar aðhald og siða­reglur líkt og allt starf með ungu fólki en það þarf víð­áttu­mikla van­þekk­ingu til að sjá ekki hvernig félag­s­auður vex og hrok­inn í sam­fé­lag­inu minnkar við það að meist­ar­inn frá Nasaret sé sýni­legur á torg­inu.“

Fæðing. Dauði. Hver er til­gangur lífs­ins?

„Við erum eina dýra­teg­undin sem getur dáið af til­gangs­leysi. Það er erfitt og óger­legt að finna til­gang lífs­ins ef frum­þarfir okkar fá ekki að blómstra: Að eiga tengsl við aðra og njóta frelsis til athafna eru hinar félags­legu for­sendur alls til­gangs. Eins mun fólk sem ekki ræktar þakk­læti í hjarta aldrei geta fundið full­nægj­andi til­gang með lífi sínu. Það getur orðið ánægt á köflum en það verður aldrei ham­ingju­samt. Tilgang lífs­ins finna þau sem af öllu hjarta spyrja spurn­ing­ar­innar hver er til­gangur lífs­ins?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ