Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekkert hæft í orðrómi um framhjáhald A$AP Rocky – Hjúin flogin til Barbados í ró og næði

Ekkert hæft í orðrómi um framhjáhald A$AP Rocky – Hjúin flogin til Barbados í ró og næði
Verðandi for­eldrar Mynd: E!online skjáskot

Söng­konan Rihanna og rapp­ar­inn A$AP Rocky sáust á alþjóða­flug­vell­inum Grantly Adams á Kar­ab­ísku eyj­unni Barbados í fyrra­dag en eyjan er heima­land Rihönnu. Hjúin eiga von á sínu fyrsta barni á allra næstu mán­uðum. Orðrómur um fram­hjá­hald rapp­ar­ans komst í hámæli dag­inn áður.

Þann 14 apríl var því haldið fram í færslu á Twitter að A$AP Rocky hefði haldið fram­hjá Rihönnu með Aminu Muaddi, hönnuð sem hannar Fenty skó Rihönnu. Amina var fljót að skjóta niður orðróm­inn og sagði hann ill­gjarnan og ástæðu­lausar lygar.

Orðróm­ur­inn fór sem eldur í sinu um sam­fé­lags­miðl­ana vest­an­hafs þar til Amina fann sig knúna til að birta yfir­lýs­ingu á Instagram þar sem hún neit­aði slúðr­inu. „Í upp­hafi bjóst ég við að þetta gervi­slúður, sem var búið til með svo ill­gjörnum ásetn­ingi, yrði ekki tekið alvar­lega. En ég sé nú að við lifum í sam­fé­lagi þar sem fólk er fljótt að stökkva á slúðrin, burt­séð frá stað­reyndum og að ekk­ert sé heil­lagt í þeim efnum. Ekki einu sinni þegar um er að ræða konu sem er að upp­lifa fal­leg­ustu og hátíð­leg­ustu tíma lífs síns,“ sagði hún meðal ann­ars og átti þá við óléttu Rihönnu.

Sá sem bar ábyrgð á orðróm­inum ósanna, tísku­á­hrifa­vald­ur­inn Louis Pisano sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann baðst afsök­unar. „Í gær tók ég þá heimsku­legu ákvörðun að tvíta smá upp­lýs­ingum sem mér barst til eyrna. Ég ætla ekki að tala um heim­ildir mínar, kenna öðrum um umræð­urnar sem sköp­uð­ust og svo fram­vegis, því þegar allt er á botn­inn hvolft er það ég sem tók þá ákvörðun að skrifa tví­tið, ýta á senda og setja það á netið undir mínu nafni.“

Sjálf hafa Rihanna og A$AP Rocky ekk­ert tjáð sig um málið en ástæða þess að þau dvelja nú á Barbados ku vera sú að þau vildu fá hvíld og ró.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar