Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

„Ríkisstjórnin vill hengja brotalamir á Bankasýsluna – með því að kasta henni fyrir lestina”

„Ríkisstjórnin vill hengja brotalamir á Bankasýsluna – með því að kasta henni fyrir lestina”

Rík­is­stjórn­in hef­ur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþing­is og að styrk­ari stoðum verði skotið und­ir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræðis­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings, að því er fram kem­ur á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í sam­tali við Mannlíf að:

„Rík­is­stjórnin við­ur­kennir greini­lega að brotala­mir hafi verið á sölu­ferl­inu – en vill hengja þær allar um háls­inn á Banka­sýsl­unni þótt það sé hafið yfir allan vafa að laga­lega og póli­tíska ábyrgðin liggur hjá fjár­mála­ráð­herra og að það er hann sem ræður ferð­inni og fer með end­an­legt ákvörð­un­ar­vald um sölu banka. Fjár­mála­ráð­herra virð­ist hafa umgeng­ist lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum af léttúð og sett sölu­ferlið á hálf­gerða sjálf­stýr­ingu ólíkt því sem núver­andi lag­ara­mmi gerir ráð fyrir. Þetta er alvar­legt og rík­is­stjórnin getur ekki bara afgreitt þetta með því að kasta Banka­sýsl­unni fyrir lest­ina.”

Þar seg­ir að for­menn stjórn­ar­flokk­anna, Katrín Jak­obs­dótt­ir, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­urður Ingi Jó­hanns­son séu sam­mála um þessi atriði.

Frum­varp þessa efn­is verður lagt fyr­ir Alþingi svo fljótt sem auðið er.

„Ekki verður ráð­ist í frek­ari sölu á hlut­um rík­is­ins í Íslands­banka að sinni. Þegar ný lög­gjöf ligg­ur fyr­ir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tek­in fyr­ir á Alþingi. Rík­is­stjórn­in legg­ur hér eft­ir sem hingað til áherslu á óbreytt eign­ar­hald rík­is­ins á hlut sín­um í Lands­bank­an­um,“ seg­ir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Enn frem­ur seg­ir að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eign­um rík­is­ins. Al­menn­ing­ur eigi skýra og óum­deilda kröfu um að all­ar upp­lýs­ing­ar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.

Til­kynn­ing­una má sjá í heild sinni hér að neðan:

For­menn stjórn­ar­flokk­anna eru sam­mála um eft­ir­far­andi atriði í tengsl­um við sölu á 22,5% hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór í mars.

Við sölu á eign­ar­hlut­um rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um er gerð rík krafa um gagn­sæi, jafn­ræði og ít­ar­lega upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings. Ljóst er að fram­kvæmd söl­unn­ar stóð ekki að öllu leyti und­ir vænt­ing­um stjórn­valda, m.a. um gagn­sæi og skýra upp­lýs­inga­gjöf.

Þá hafa komið upp spurn­ing­ar, álita­mál og gagn­rýni um fram­kvæmd söl­unn­ar sem fór fram sem nauð­syn­legt er að rann­saka og upp­lýsa al­menn­ing um.

Rík­is­end­ur­skoðun hef­ur þegar hafið út­tekt á því hvort sal­an hafi sam­rýmst lög­um og góðum stjórn­sýslu­hátt­um. Þá hef­ur fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hafið rann­sókn á til­tekn­um þátt­um tengd­um söl­unni.

Komi fram þörf fyr­ir frek­ari rann­sókn­ir þegar niður­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og Seðla­bank­ans liggja fyr­ir mun rík­is­stjórn­in beita sér fyr­ir slíku á vett­vangi Alþing­is.

Þeir ann­mark­ar sem í ljós hafa komið við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu á eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um hafa leitt í ljós þörf­ina fyr­ir end­ur­skoðun á lagaum­gjörð og stofn­ana­fyr­ir­komu­lagi.

Rík­is­stjórn­in hef­ur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþing­is og að styrk­ari stoðum verði skotið und­ir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræðis­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings. Frum­varp þessa efn­is verður lagt fyr­ir Alþingi svo fljótt sem auðið er.

Ekki verður ráð­ist í frek­ari sölu á hlut­um rík­is­ins í Íslands­banka að sinni. Þegar ný lög­gjöf ligg­ur fyr­ir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tek­in fyr­ir á Alþingi. Rík­is­stjórn­in legg­ur hér eft­ir sem hingað til áherslu á óbreytt eign­ar­hald rík­is­ins á hlut sín­um í Lands­bank­an­um.

Traust og gagn­sæi verður að ríkja um sölu á eign­um rík­is­ins. Al­menn­ing­ur á skýra og óum­deilda kröfu um að all­ar upp­lýs­ing­ar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.

Hluta­fjárút­boð Íslands­banka og skrán­ing á markað í fyrra skil­aði mark­miðum stjórn­valda, svo sem eins og dreifðu eign­ar­haldi og fjöl­breytni í eig­enda­hópn­um. Þá hef­ur mik­il aukn­ing á verð­mæti fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­is­eigu und­an­farið ár styrkt stöðu rík­is­sjóðs til að gera enn bet­ur og fjár­festa til fram­tíðar.

Rík­is­stjórn­in hef­ur haft það leið­ar­ljós að ávinn­ing­ur af eign­ar­hlut­um rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um og sölu þeirra sé nýtt­ur í þágu al­menn­ings. Meðal ann­ars með því að nýta hann með bein­um hætti til upp­bygg­ing­ar inn­viða í al­manna­þágu eða til að styrkja stöðu rík­is­sjóðs til að veita mik­il­væga þjón­ustu.

Rík­is­stjórnin fundar ekki í dag, en alla jafna eru rík­is­stjórn­ar­fundir haldnir þriðju­daga og föstu­daga. Síðast var rík­is­stjórn­ar­fundur fyrir ell­efu dögum, þann 8. apríl.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra er eng­inn rík­is­stjórn­ar­fundur í dag.

Mörg spjót standa á rík­is­stjórn­inni þessi dægrin. Sala á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka stendur þar hæst. Rík­is­end­ur­skoðun hefur verið falið að skoða sölu­ferlið, Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur hafið frum­kvæð­is­rann­sókn á ákveðnum þáttum söl­unnar, og stjórn­ar­and­staðan á þingi hefur kraf­ist þess að sett verði á fót sér­stök rann­sókn­ar­nefnd sem hafi víð­tæk­ari heim­ildir til rann­sóknar ef Rík­is­end­ur­skoð­andi hefur lögum sam­kvæmt.

Á föstu­dag voru fjöl­menn mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem afsagnar fjár­mála­ráð­herra var kraf­ist vegna máls­ins.

Formenn stjórn­ar­flokk­anna; Katrín Jak­obs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, hafa ekki gefið kost á við­tali í meira en viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu