Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Helgi missti son sinn og vinnuna: „Ég myndi gefa allar eigur mínar til að geta bætt fyrir mín brot“

Helgi missti son sinn og vinnuna: „Ég myndi gefa allar eigur mínar til að geta bætt fyrir mín brot“
Helgi Jóhann­es­son

„Ég er hættur að þykj­ast vera annar en ég er,“ segir Helgi Jóhann­es­son lög­maður í fyr­ir­lestri sínum þar sem hann gerir upp áföll und­an­far­ins árs að við­stöddu marg­menni í safn­að­ar­heim­ili Reyð­ar­fjarð­ar­kirkju. Hlust­endur voru flestir djúpt snortnir, og sjá mátti tár á hvarmi gesta.

Allir verða fyrir áfalli og sorg ein­hvern tíman á lífs­leið­inni. Fáir upp­lifa þó jafn mikið, á jafn stuttum tíma, og Helgi Jóhann­es­son og fjöl­skylda hans. Á einu ári missti Helgi son sinn, gerð­ist brot­legur í sam­skiptum við sam­starfs­konu, undir merkjum mis­heppn­aðs húmors og missti vinn­una í kjöl­farið.

Fór yfir mörk sam­starfs­konu

Helgi hefur fús­lega geng­ist við því að hafa farið yfir mörk í sam­skiptum, einkum við konur, hann kveðst sjá það núna þó mein­ing hans hafi aldrei verið að meiða eða særa nokkurn mann.  Hans við­brögð við ásök­unum á hendur honum voru að biðj­ast afsök­unnar og leggj­ast í mikla sjálfs­vinnu, hann leit­aði sér aðstoðar sér­fræð­inga til að skilja hvað í hans fari gerði það að verkum að hann átt­aði sig svo illa á því að hans sam­skipta­munstur hefði haft þessi áhrif á sam­ferða­fólk hans.

Helgi ákvað að nýta reynslu sína til góðs, hans leið í gegnum sorg­ina er að hjálpa öðrum. Það gerir hann með því að halda fyr­ir­lestra undir heit­inu „Brim­skaflar í boði lífs­ins“.

Fyr­ir­lest­ur­inn var hald­inn í safn­að­ar­heim­il­inu á Reyð­ar­firði síð­asta dag vetrar, þann 20. apríl. Veðrið var eins leið­in­legt og það verður; rign­ing, rok og kalt. Vænt­ingar und­ir­rit­aðrar voru í takt við það; engar.

En inni í safn­að­ar­heim­il­inu var upp­lifunin allt önnur. Hlýlegt and­rúms­loft og heim­il­is­legt umhverfi tók á móti mér.

Dóra Sólrún Krist­ins­dóttir, djákni, setti fyr­ir­lest­ur­inn með sögum úr eigin lífi, sorgum og við­brögðum. Þrátt fyrir að margt væri um mann­inn í salnum setti hún strax per­sónu­legt and­rúms­loft og heið­ar­legt.

Ekki að biðja um vor­kunn

Þegar Helgi steig í pontu hóf hann fyr­ir­lest­ur­inn með sama hætti og Dóra Sólrún, með hisp­urs­lausri frá­sögn sem snerti strengi flestra, ef ekki allra inni í salnum.

Hann gerði okkur hlust­endum strax ljóst að fyr­ir­lest­ur­inn væri ekki til að afsaka neitt né biðja um vor­kunn;

„Þessi fyr­ir­lestur á ekki að vera sjálfs­vork­un­ar­ræða eða afláts­bréf, þetta er raun­veru­lega upp­lýs­inga­gjöf um hvernig er hægt að díla við svona og hvað gerð­ist“

Erf­ið­leik­arnir nán­ast óyf­ir­stíg­an­legir

Árið 2020 hófst í faðmi fjöl­skyld­unnar, jákvæðni og gleði ein­kenndu þessi tíma­mót hjá þeim öllum, enda ekki ástæða til ann­ars. Helgi var sjálfur í góðu starfi sem lög­fræð­ingur hjá Lands­virkjun, börnin þrjú á góðri leið í sínu námi, og allir ánægðir með stöð­una í líf­inu almennt. Það var engin ástæða til að ætla að árið 2021 færði þeim annað en áfram­hald­andi sigra á lífs­braut­inni.

Annað átti eftir að koma á dag­inn. Í hönd fór tími þar sem allt fór úrskeiðs sem mögu­lega gat farið úrskeiðis – erf­ið­leik­arnir virt­ust nán­ast óyf­ir­stíg­an­legir.

Í mars kom fyrsta áfallið þegar Helgi kom að syni sínum látnum á heim­ili þeirra. Sonur hans féll fyrir eigin hendi.

Í hönd fór mik­ill sorg­ar­tími sem ekki sér fyrir end­ann á.

Snerti mörg hjörtu

Þó reiði fylgi oft sjálfs­vígum hefur Helgi náð að lifa með þeirri vissu að ef sonur hans hefði séð aðrar mögu­legar leiðir hefði hann farið þær. Honum voru gefin krefj­andi spil þó hann hafi spilað ótrú­lega vel úr þeim spilum. Hann fædd­ist í Kína, dvaldi þar á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í 11 mán­uði áður en hann var ætt­leiddur, hann var trans strákur. Hans lífs­ins áskor­anir voru ótrú­lega miklar og stórar. Það voru hins vegar margir sem ekki átt­uðu sig á þessu því hann var svo vel heppn­aður ein­stak­lingur og skar­aði framúr á svo mörgum sviðum. Hann var til að mynda björg­un­ar­sveit­ar­maður og þjálf­ari hjá Mjölni svo eitt­hvað sé nefnt. Hann snerti mörg hjörtu á sinni stuttu ævi og var elsk­aður af öllum sem honum kynnt­ust.

Helgi og Sigurður Jóhann sonur hans voru miklir mátar. Þeir gengu mikið til fjalla saman og áttu vel skap saman. Sigurður Jóhann átti alltaf vísan stuðn­ing hjá föður sínum og öðrum fjöl­skyldu­með­l­inum. Allir lögðu sig fram að styðja hann og styrkja í hverju því sem hann var að mæta í líf­inu.

Helgi gefur sig alls ekki út fyrir að vera neinn sér­fræð­ingur á sviði sorgar og sorg­ar­við­bragða;

„Hvað er ég þá að vilja upp á dekk hér? Ég hef lent í því versta sem hægt er að lenda í, mig langar að miðla reynslu minni af þessum áföllum. Ég er ekki með svör, en ég er með leiðir sem ég nota til að vinna úr áföll­unum. Ég er í miðju snjó­flóð­inu núna, ég er enn graf­inn og er að reyna að átta mig á hvað snýr upp og hvað niður“

Það sem hann gaf okkur var nákvæm­lega þetta; hann miðl­aði af reynslu sinni. Sem honum tókst með því að galopna sjálfan sig og játa mis­gjörðir sínar án und­an­bragða og ein­lægt.

Skiptir máli að fá sam­hug

Helgi bendir fólki á að hika ekki við að nálg­ast sam­ferða­menn sína sem eru í sorg, fyrir honum skipti það miklu máli að fá sam­hug og stuðn­ing frá fólki, þar fékk hann ork­una til að halda áfram.

Í maí var honum bent á að fram­koma hans við sam­starfs­konu hjá Lands­virkjun færu yfir hennar mörk og hefðu valdið henni van­líðan. Í kjöl­farið fékk hann áminn­ingu í starfi, baðst afsök­unnar og taldi málið afgreitt, svo var því miður ekki og í nóv­em­ber gerði hann starfs­loka­samn­ing við Lands­virkjun

Helgi skil­greinir þetta áfall ekki sem sorg­ar­á­fall, en engu að síður mikið áfall. Úrvinnslan tók sinn tíma, eða heilt sumar. Á meðan var Helgi í miðri sorg­ar­vinnu og var við það að brenna út.

„Þetta var hræði­legt, mér þótti svo leið­in­legt að hafa gert þetta, og leið­in­legt að hafa valdið henni þessum þján­ingum“

Játar að hafa orsakað van­líðan

Í kjöl­farið fylgdu fleiri sögur, sumar réttar, aðrar ekki. En Helgi játar ský­laust að hafa með hegðun sinni og ósmekk­legu orð­færi orsakað van­líðan, það hafi aldrei verið ætl­unin, en gerð­ist samt.

„Ég tek ábyrð á því sem ég hef gert en þurfti að gef­ast upp fyrir ósönnum sögu­sögnum um atvik úr for­tíð­inni sem gengu fjöll­unum hærra meðan stormur þessi geys­aði sem mest. Það hafði engan til­gang að reyna að koma á fram­færi leið­rétt­ingum á þeim. Um það voru allir sam­mála sem ég leit­aði til. Ég ætla samt ekki að dvelja við það heldur horfa fram á við“

Með aðstoð sér­fræð­inga hefur Helgi kafað í ástæður þess að hann hafi farið yfir mörk sam­ferð­ar­fólks síns, hann hefur reynt eftir fremsta megni að leið­rétta brot sín með því að biðj­ast afsök­unnar og breyta hegðun sinni.

„Ég iðr­ast þess sem ég hef gert, og ég myndi gefa allar eigur mínar til að geta bætt fyrir mín brot, en ég get ekki gert annað en það sem ég er að gera, það er að segja horfa fram á við með breytta hegðun, ég get ekki snúið tím­ans hjóli til baka“

Það er skammt frá því að segja að stundin sem ég ætl­aði að nota fjarri heim­ili og áreiti til að prjóna, varð allt önnur. Ég geng rík­ari frá Helga, með betri skiln­ing á sorg, áföllum og mann­legum breisk­leika.

„Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er ég þakk­látur fyrir þetta tæki­færi til að bæta mig og verða betri maður“

Texti: Hrefna Sigríður Reyn­is­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð