Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Margir minnast Leifs – stórmerkilegur ferill einstaks manns

Margir minnast Leifs – stórmerkilegur ferill einstaks manns

Leifur Hauksson útvarps­maður lést á laug­ar­dag­inn, sjö­tugur að aldri, eftir veik­indi. Leifur fædd­ist 11. októ­ber 1951 í Kópavogi, en Guðrún Bachmann, ekkja Leifs, greindi frá and­láti hans.

Leifur sinnti dag­skrár­gerð á báðum rásum Rík­is­út­varps­ins um margra ára skeið og var einn af reynd­ustu útvarps­mönnum lands­ins. Hann var þekktur fyrir áhuga sinn á fólki og ein­stakri natni við að taka við­töl. Stjórn­aði hann meðal ann­ars morg­un­út­varpi Rásar 2 ásamt Kristínu Ólafs­dóttur og Sam­fé­lag­inu í nær­mynd á Rás eitt ásamt fleira dag­skrár­gerð­ar­fólki útvarps­ins.

Þótt flestir minn­ist hans fyrir þætti hans á rík­is­út­varp­inu var hann einnig tón­list­ar­maður og leik­ari.

Þá var Leifur með­limur í hljóm­sveit­unum Þokkabót og Hrekkju­svín en síð­ar­nefnda hljóm­sveitin var sam­starfs­verk­efni Þokka­bótar og Spil­verks þjóð­anna. Plata þeirra Valgeirs Guð­jóns­sonar; Lög unga fólks­ins naut tölu­verðra vin­sælda á sínum tíma. Hann lék á gít­ar í hljóm­sveit­inni Þokka­bót og var einn leik­ara í söng­leikn­um Hár­inu þegar hann var sýnd­ur í Glaum­bæ.

Leifur lék einnig í kvik­myndum og kom fram í sjón­varps­þátt­unum. Hann lék til að mynda Baldur, eitt aðal­hlut­verkið, í Litlu hryll­ings­búð­inni í Íslensku óper­unni árið 1985.og í sjón­varps­þátt­unum Kötlu sem frum­sýndir voru síð­asta sumar.

Þau Guðrún bjuggu norður á Ströndum um tíma þar sem Leifur kenndi við Klúku­skóla. Hann var jafn­framt skóla­stjóri þar um hríð. Þau hjónin ráku einnig garð­yrkju­býli á bænum Bakka í Bjarn­ar­firði ásamt vina­fólki sínu. Leifur lék eitt burð­ar­hlut­verk­anna í Litlu hryll­ings­búð­inni þegar hún var sett upp um miðjan níunda ára­tug­inn og var í hljóm­sveit­inni Þyrlum frá Hólmavík.

Leifur og Guðrún elsk­uðu að ferð­ast en þau lýstu ferða­lögum sínum í við­tali hjá Lifðu núna árið 2017. Þar segja þau frá ferðum sínu og hvað þau voru ánægð með að geta nýtt sér fyr­ir­komu­lagið heim­ila­skipti á ferðum sínum. Þau segj­ast hafa: „ferð­ast mikið um dag­ana og hefðu upp­lifað ferða­lög þar sem gist var á tjald­stæði eða far­fugla­heim­ilum, á hót­elum og Airbnb íbúðum; „Við sjáum þetta sem tæki­færi til að ferð­ast meira, án þess að borga stórfé í gist­ingu og ég er ekki spennt fyrir því lengur gista á tjald­stæðum“, sagði Guðrún í við­tal­inu þegar þú voru spurð út í heim­ilis­kiptin.  „Auk þess viljum við frekar nota pen­ing­ana í að gera eitt­hvað skemmti­legt í ferð­inni en borga fyrir dýra gist­ingu.“

Árið 2016 hlytu Leifur ásamt Þórhildi Ólafs­dóttur og Birni Þór Sig­björns­syni fjöl­miðla­verð­laun umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins á Degi íslenskrar nátt­úru fjöl­miðla­verð­laun fyrir útvarps­þátt­inn sinn Sam­fé­lagið sem var á dag­skrá Rásar 1.

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir m.a.: Sam­fé­lagið á Rás 1, RÚV hljóð­varpi, hlýtur fjöl­miðla­verð­laun umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins árið 2016 fyrir að gefa íslenskri nátt­úru rödd á öldum ljós­vakans með því að gera umhverf­is­mál að þunga­miðju í rit­stjórn­ar­stefnu sinni. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins, þau Leifur Hauksson, Þór­hildur Ólafs­dóttir og Björn Þór Sig­björns­son, hafa ásamt sér­fræð­ingum, sem þau hafa fengið til liðs við sig unnið fram­úr­skar­andi starf við að fjalla um nátt­úru­vernd í víðum skiln­ingi og benda á ógnir sem steðja að nátt­úr­unni, en einnig að tengja þá umfjöllun öðrum mál­efnum, sem eru efst á baugi, og vekja hlust­endur til vit­undar um hve mik­il­væg umhverf­is­mál eru í dag­legu lífi þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti