Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Gabríel Benjamin telur félagsfund Eflingar geta breytt stöðunni: „Allir vita að þetta voru mistök“

Gabríel Benjamin. Mynd/skjáskot: RÚV
Gabríel Benjamin. Mynd/skjá­skot: RÚV Mynd: Bragi Valgeirsson

„Ég fagna því að þarna fái félags­menn í raun og veru að láta í sér heyra, segja hvað þeim finnst um þennan gjörning,“ segir Gabríel Benjamin, kjaramála­fulltrúi hjá Eflingu, um fyrir­hugaðan félags­fund stéttar­félagsins. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl klukkan 18, í Vals­heimilinu.

Gabríel Benjamin er trúnaðar­maður þess starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sem er skráð í stéttar­félagið VR og tekur það skýrt fram að hann komi þess vegna ekki nálægt skipulagningu félags­fundarins. Honum þyki þetta hins vegar mikilvægt tækifæri fyrir félags­menn Eflingar til að segja hug sinn í tengslum við þá elda sem logað hafa innan félagsins og hópuppsagnirnar sem ný stjórn undir forystu Sólveigar Önnu Jóns­dóttur greip nýverið til. Hann segist telja allar líkur á að þær hópuppsagnir muni hafa áhrif langt út fyrir raðir Eflingar.

„Áhrif sem vara mun lengur heldur en stjórnartíð núverandi stjórnar. Hvort sem hún er í sex mánuði til viðbótar eða tíu ár. Þetta er áfall fyrir félags­menn allra stéttar­félaga og verkalýðs­félaga á landinu.

Miðað við þá þjónustu og skerðingu sem félags­menn verða fyrir núna í þessu ástandi, þar sem skrif­stofan er svo gott sem óstarfhæf, þá sé ég ekki að þessi auglýsti ávinningur nái að dekka það tap sem mun skapast á þessum mánuðum.“

„Þetta er áfall fyrir félags­menn allra stétt­ar­fé­laga og verka­lýðs­fé­laga á land­inu“

Skert þjónusta sem stjórnin ber ábyrgð á

Í dag er Gabríel sjálfur staddur á skrif­stofunni og segir ekki margt starfs­fólk í vinnu. „Það eru mjög fáir eftir hér. Heilu sviðin liggja niðri.“

Gabríel segir að reynt sé að bjóða upp á bestu þjónustu sem hægt er undir þessum kringum­stæðum. „Ég er kjaramála­fulltrúi og sé meðal annars um ráðgjöf við félags­menn og að senda út launa­kröfur. Fyrir þetta var ég með 14 launa­kröfur sem ég átti eftir að setja mig inn í. Þetta er 11 manna svið, þannig að það eru einhversstaðar á milli 80 til 150 launa­kröfur sem sitja og bíða eftir því að fólk hafi tíma til að sinna þeim. Við erum að tala um tugi ef ekki hundruði milljóna í launa­kröfum sem við náum líklegast ekki að fara í.

„Heilu sviðin liggja niðri“

Ég geri ráð fyrir því eins og ástandið er núna að vera bara að taka á móti fólki, svara símanum og reyna að halda í við tölvu­póstinn. Ég sé ekki fyrir mér að í núverandi ástandi getum við haft tíma til þess að sinna launa­kröfum. Þær launa­kröfur sem ekki er búið að ráðast í geta þurft að bíða í marga mánuði, jafnvel hálft ár, sem er ólíðandi fyrir félags­menn Eflingar. Kröfurnar geta líka margar hverjar fallið niður eða fyrnst og það eru vinnu­brögð sem stjórn Eflingar ber ábyrgð á.“

Sólveig Anna hafi ekki innsýn í ástandið

Hann segir Sólveigu Önnu ekki enn hafa mætt á skrif­stofuna og því sé undarlegt að hún tali um að endur­skipulagningin fylgi áætlun og að allt gangi rétt fyrir sig. „Hún hefur ekki tekið á móti félags­mönnum. Hún hefur enga raun­verulega innsýn í það hver staðan er.“

Hann segir hana ekki hafa haft samband við starfs­fólk um þessar breytingar og að engin yfirsýn sé í rauninni til staðar. Hún sjái ekki með eigin augum hvað sé að gerast. „Enn og aftur leggur hún meiri áherslu á að virðast hafa allt undir stjórn. Að hafa þá ásýnd að það sé verið að vinna þetta faglega frekar en í raun og veru að mæta og sjá til þess að þetta sé unnið faglega. Að félags­menn verði ekki fyrir skerðingu. Það eru þeir sem eru að súpa seyðið af þessari ákvörðun.“

Fundurinn gæti haft áhrif

„Ég get sagt það fyrir mig sjálfan að ég sá enga uppreisn gegn Sólveigu Önnu,“ segir Gabríel. „Það voru yfir 40 manns sem voru ennþá eftir á skrif­stofunni, sem voru ekki búnir að segja upp. Þeir voru reiðu­búnir til þess að vinna fyrir félags­mennina. Hér er eitthvað óöryggi í stjórninni, sem telur sig ekki geta treyst öllum eða telur líklegt að einhverjir muni bregða fæti fyrir þau. Þá er ráðist í einhverjar risa­stórar aðgerðir.“

„Ég sá enga upp­reisn gegn Sólveigu Önnu“

Sá félags­fundur sem fyrir­hugaður er á miðvikudaginn gæti haft áhrif á stöðuna. „Þær ákvarðanir sem eru teknar á félags­fundi verður stjórnin að virða. Ef félags­fundur kemst að þeirri niður­stöðu að það eigi að draga hópuppsagnir til baka, þá ber stjórninni samkvæmt lögum að fylgja þeim fyrir­mælum. Ef það er lagt fram vantraust, þá situr stjórnin undir vantrausti. Öll fundar­sköp gera ráð fyrir því að stjórn ætti nú bara að segja af sér ef það gerist.“

Gabríel segir alltaf ómögulegt að segja til um hvað gerist þegar fundir sem þessir séu kallaðir fram. „Ég veit ekkert hvað mun gerast. Ég hef enga stjórn á því og stjórnin hefur það ekki heldur. Það getur alveg verið að stjórnin fái uppreist æru með þessu móti en það getur líka verið að hún verði undir í þessum umræðum. Mér finnst frábært að félags­menn fái að láta í sér heyra og fái að hafa áhrif en ég er smá hræddur um það hver lang­varandi áhrif verða fyrir verkalýðs­félög. Hvort við séum að stefna í það að hér verði bara eitthvað heilagt stríð stjórnar­meðlima gegn vind­myllum. Sú barátta byggir á samsæris­kenningum. Hvort þetta snúist um einhver meint yfirráð skrifstofu­fólks. Ég vísa því bara til föður­húsanna.“

Gabríel segist hafa áhyggjur af því í stóra samhenginu hvað gerist ef ástandið sem nú er við lýði haldi áfram. „Hvaða áhrif hefur það á alla verkalýðs­hreyfinguna og fyrir kjara­samninga? Það hefur enginn verkalýðs­leiðtogi stigið fram og lagt traust eða sett fram stuðning við þessar aðgerðir. Það er enginn að fara að gera það. Allir vita að þetta voru mistök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá