Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir nágranna taka þátt – „Sá aldrei nakinn líkama fyrr en ég flutti til London“

Segir nágranna taka þátt – „Sá aldrei nakinn líkama fyrr en ég flutti til London“

„Ekki datt mér í hug að þetta atvik gæti túlkast sem eitt­hvað ósóma­legt,“ segir Linda Mjöll Stef­áns­dóttir í yfir­lýs­ingu um atvik þar sem sonur nágrann­anna mætti nöktum manni við heim­ili hennar. Linda býr að Skraut­hólum 4  við Esjurætur en þar fór fram sam­koma síð­ast­liðna helgi á vegum Teja Doro. Samkoman hefur vakið mikla athygli og reiði á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga en í aug­lýs­ingu sam­kom­unnar kom fram að ofskynj­un­ar­lyf yrðu á boðstólnum og að ást og eró­tík væri það sem þátt­tak­endur skyldu kanna. Dv ræddi við Krist­jönu, nágranna Lindu Mjallar, í gær sem sögð­ust þreytt á ónæð­inu frá Skraut­hólum 4. Lýsir hún meðal ann­ars atviki sem sonur hennar lenti í nýverið. „Sonur okkar fór að leita að hund­inum okkar nýlega og þá mætti hann kviknöktum manni. Það er hrein­lega brot á lögum að bera sig framan annað fólk,“ sagði Krist­jana í við­tal­inu sem má lesa í heild sinni hér.

Linda talar um atvikin sem Krist­jana, nágranni hennar, nefnir í við­tal­inu í yfir­lýs­ing­unni hér að neðan. Þá segir hún að Krist­jana hafi tekið virkan þátt í árlegu föndri á hennar vegum og að hún hafi gæsað vin­konu sína hjá sér. Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild hér að neðan.

„Undir Esjunni er gott að vera – það þykir okkur öllum mér og minum

nágrönnum. Mín leið til þess að upp­lifa mig í takti við Esjuna hefur verið að

skoða mína eigin til­VIST og hver ég er í teng­ingu við mína nátt­úru, my nat­ure –

how to be In my nat­ure.

Ég fékk það hug/hjart­ans boð snemma á lífs­leið­inni að vilja skapa rými, lengi vel

var það í teng­ingu við að hanna bíó­myndir og sjón­varps­efni þar sem allur

umliggj­andi heimur skap­aði aðstaður til að ´saga´ gæti átt sér stað.

Skraut­hólar mættu mér á þeim tima þar sem þörf á að bjóða mér og öðrum upp á

vett­fang til að vaxa enn betur inn í sjálfið var æðsta óskin. Þetta er svo­kall­aður

og rétt­mæltur töfra­staður.

Ásamt fyrr­ver­andi eig­in­manni, settum við hér upp heim­ili í gömlum úthúsum,

heiloftum og fjósi. Það var nóg um verkin sem þurftu að ger­ast til að útbúa hér

sama­stað. Sem fyrr­ver­andi leik­mynda­hönn­uður get ég tæp­lega kall­ast

við­skipta­kona en öll min orka fór í að útbúa hér umhverfi sem gæti gefið kost á

að þjón­usta vellíðan á marg­vis­legan skap­andi máta.

Við erum svo hreykin af umbreyttu stræt­is­vögn­unum okkar og vorum ánægð

þegar Deilu­skipu­lag Reykja­vik­ur­borgar gaf því fullt leyfi fyrir Tjald­stæði sem og

að Heil­brygð­is­eft­ir­litið hafði haft gaman af þessu ævin­týri okkar og gáfu okkur

grænt ljós.

Fyrir nán­ast ára­tug fór ég með með öðrum góðum sam­starfs­konum með

hug­myndi í Nýsköp­un­ar­ferlið -Gul­leggið sem heitir Memmm og var það kosið eitt

af þrem bestu verk­efnum þess árs. Út frá þess­ari sam­fé­lags- fjöl­skyldu-hug­mynd,

sem varp­aði ljós á þá þörf sem við öll höfum á sam­veru þró­uð­ust margir

við­burðir, verk­efni og annað. Allt studdi það við skap­andi og skemmti­legum

sam­veru­stundum þar sem börn með sínum for­eldrum gætu átt kjarna góðar

upp­lif­anir. Það þarf heila vef­síðu til þess að upp­lýsa þá sögu og til þess skap­aði ég

krukka.is.

Skraut­hólar 4 eða Sól­setrið varð smá­saman ein­hvers­konar mið­stöð fyrir þróun á

leiðum til að mæta fjöl­skyldum, ein­stak­lingum og sam­fé­lag­inu með ýmsum

skap­andi smiðjum, nám­skeiðum og athöfnum sem köll­uðu fram heil­indi.

Vit­an­lega litum við stundum út og kannski hljóm­uðu eins og índjánar þegar við

settum td upp árlegan Eld Dans hér upp við rætur Esjunnar. Til­gang­ur­inn þar

var til að mynda innra sálar ferða­lag, svo kallar ´vision quest´- þar sem gist er í

tvo daga hring­inn í kring um litla varð­elda, fastað og með trommuslætti eru

þáttak­endur kall­aðir inn inn I dans ferli yfir þetta tíma­bil. Þetta höfum við gert í

mörg ár og ófári ein­stak­lingar sem hafa á þennan máta fundið fyrir eins­konar

nýju upp­hafi.

Á upp­hafs­árum okkar höfðum við alltaf sjálf­boða­liða hér á heim­il­inu því þetta er

dásam­leg leið til þess að vefa saman fjölda þjóða og menn­ing­ar­hópa sem og

miðla upp­lif­unum í gegn um sveita­lífið. Greinin sem vitnað er í var við­tal við

góðan vin sem bjó hér meira en ár en dvölin end­aði því miður í mik­illi reiði við

annan ein­stak­ling sem braust út í sögu­sögn sem á sér engan grunn, en ég skil að

margt er sagt þegar til­finn­ingar eru sárar. Við hjálp­uðum honum í öllu sinu ferli

að fá vinnu og heim­ili í bænum og þessa stund­ina er hann komin í verk­efni með

mér og heil­indi og vin­skapur á betri stað en nokk­urntiman áður.

Þegar ég fann mig sjalfa vilja setja alla mina orku í að þjón­usta á þennan máta var

ekki aftur farið í ´eðli­legt´ starf. Köllunin var djúp og sem betur fer (fyrir Covid)

vorum við í sam­hljóma við okkar kæru nágranna sem mættu jafn­vel sjálfir á

við­burði. Krist­jana bað mig eitt árið að skapa ´sham­an­iska´ athöfn fyrir hana og

hennar vin­konur sem vildu Gæsa/Blessa eina þeirra á sér­stakan máta, þetta voru

fagrar stundir. Hin nágranna­konan min mætti þegar Græn­lenski Sjaman­inn kom

og tók okkur í eins dags nám­skeið og fræðslu um hans heil­unar mátt og kúltúr.

Öll hafa þau mætt á fjöl­skyldu­við­burði, búið til jóla­föndur (sem ég set upp

árlega) og annað.

Sonur Krist­jönu var kær nem­andi minn hér í Klé­bergs­skóla og það var hann sem

sat með okkur einn sól­ríkan dag upp við Stræt­is­vagn­ana þegar Covið aðstæður

höfðu lokað fyrir alla ferða­mennski og í stað­inn hafði skap­ast nýr

raun­veru­leikur. Nokkrir af þeim vinum sem höfðu verið að ferð­ast um heim­inn

að halda nám­skeið gátu ekki lengur ferð­ast og því gat ég boðið þeim að staldra

við hjá mér þar til þessar aðstæður mundu breit­ast. Það tíma­bil varð eins langt

og við höfum öll upp­lifað. Einn af þessum kenn­urum er frá heitum slóðum og

ann­ari menn­ingu þar sem hann hefur alltaf búið við aðstæður sem tóku vel á

móti nekt og því var hann að labba á milli Bað­húss­ins og vagnar ein­ingar þegar

son­ur­inn sat á spjalli við okkur. Ekki datt mér í hug að þetta atvik gæti túlkast

sem eitt­hvað ósóma­legt.

Það er gott að hafa I huga að stað­setn­ingin þar sem hann skaust nokkur skref á

milli húsa er ekki sjá­an­leg frá minum nágrönnum, heldur alveg út af fyrir sig. Það

á einnig við þegar hann og einn annar vinur voru að baða sig í litlum læk hér fyrir

ofan húsið mitt. Sú stað­setn­ing er þannig að hugs­an­lega þyrfti á notkun kíki að

halda, á efri hæð húss­ins til að virða fyrir sér hver er uppi í fjalli. Þeir nutu

hress­ingar í læknum og klæddu sig svo áður en að labba aftur heim.

Ég ólst sjálf upp hjá ömmu og afa í litlu þorpi á aust­ur­landi og sá aldrei nak­inn

likama fyrr en ég flutti til London þar sem móðir min og stjúp faðir bjuggu. Það

hefur einnig reinst mér visst ferða­lag að nálg­ast minn lík­ama og að finn­ast það

eðli­legt og laust við skömm að vera í kring um nekt. Því er ég orðin nán­ast

fimm­tug þegar ég sjálf fer að vakna fyrir því að ég er í vissri mót­stöðu gegn mér

sjálfri, ég kann ekki að nálg­ast mitt eðli sem kyn­vera og á í mörgum til­finn­inga

flækjum vegna þess. Vanliðan var orðin mikil og var til dæmis stór partur af því

að ég og minn fyr­ver­andi skildum. Fyrir mig var því ekki spurn­ing hvort ég ætti

hugs­an­lega að skoða þessar ´flækjur og rang­hug­myndir´- heldur var ég mætt á

þungan stað þar sem ekk­ert annað var í boði til þess að ger­ast heilli og fyll­ast af

meiri lífs­orku. Það var á þeim tima­mótum að ég uppgvötaði ISTA, sem er

International School of Temple Arts.

Á Sól­heimum fór ég, eftir að vin­kona skor­aði á mig í 6 daga ferli til þess að skoða

min ´vanda­mál´- og finna leiðir og lausnir. Þetta tók á og ég vildi hætta við en úr

því létti með hverjum degi og ég ´utskrif­að­ist´ frá þessum fyrsta kafla merki­lega

vak­andi fyrir hver ég var. Út frá þessu per­sonu­lega ferli hefur fæðst hátíð sem

heitir Wild Love Festival Iceland og er marg­þátta Tantrísk upp­lifun sem sníst

fyrst og fremst um að finna rétt sam­band við mann sjálfan og einnig þjálfa skír­ari

og fal­legri mörk og sam­skipti við aðra. Það er því merki­legt að þegar þessi hátíð

tók sín fyrstu skref á Sól­setr­inu um sum­arið 2020 að það hafi á sama tima verið

hitt og þetta sem nágrannar mínir báru upp á borðið sem vanda­mál.

Ég er vissu­lega ennþá barns­leg á margan máta og er ennþá að þjálfa lifs­leikn­ina

en tel að ég hafi ætíð mætt minum nágrönnum eins vand­lega og ég get. Þetta er

hugs­an­lega ein­hver til­vísun í hinn stóra heim þar sem mis­mun­andi

hug­mynda­heimar og kúltúr þurfa að eiga heima hlið við hlið og finna frið innan

þess. Vissu­lega erum við ´öðru­vísi´- fólk í augum hvors ann­ars en innst inni er ég

virki­lega svo barns­leg að ýminda mér að við getum öll búið saman í sam­lindi og

sam­hljóma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina