Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sólveig segir Agnieszku ljúga: „Einstaklega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða“

Sólveig segir Agnieszku ljúga: „Einstaklega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég get ekki annað en spurt mig hvort að vara­for­manni sé sjálfrátt þegar hún tekur ákvörðun um að láta hafa eftir sér ósann­indin í blaða­við­tali,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar í Facebook færslu í dag. Í færsl­unni segir Sólveig vara­for­mann ljúga.

Agnieszka Ewa Ziolkowska, vara­for­maður Eflingar, segir frá atvikum og sam­skiptum innan Eflingar í helg­ar­við­tali Frétta­blaðs­ins. Heldur Sólveig því nú fram að Agnieszka ljúgi í við­tal­inu. Þá bætir hún því við að sýn Agnieszku á bæði félags­störf og rétt félags­fólks sé „ein­stak­lega van­þroskuð, svo vægt sé tekið til orða.“

Hér að neðan má lesa Facebook færslu Sól­veigar í heild sinni.

„Ég var að enda við að lesa við­tal við vara­for­mann Eflingar í Frétta­blað­inu. Rang­færsl­urnar og ósann­indin eru fjöl­mörg. Það er engu lík­ara en að ég og hún höfum síð­ustu ár ekki dvalið í sama veru­leika. Til dæmis er afskap­lega und­ar­legt að lesa frá­sögn Agnieszku af atburða­rás þeirri sem fór af stað þegar að starfs­maður á skrif­stof­unni sak­aði hana um ein­elti. Ég get ekki annað en spurt mig hvort að vara­for­manni sé sjálfrátt þegar hún tekur ákvörðun um að láta hafa eftir sér ósann­indin í blaða­við­tali. Tilraun mín til að lið­sinna henni og finna lausn svo að ekki kæmi til form­legrar ein­eltiskvört­unar gegn henni er nú máluð upp sem ill­vilji minn gagn­vart henni, og sam­sær­is­kenn­ing útbúin þar sem kvörtunin er í raun runnin undan mínum rifjum til að koma í veg fyrir að Agnieszka gæti setið fundi. Sams­konar furðu­lega afbökun á raun­veru­leik­anum má lesa í frá­sögn vara­for­manns af fundi sem við áttum síðar. Hún virð­ist trúa því að ég hafi óskað eftir fundi með henni til að koma í veg fyrir að hún sæti fund um vinnu við vef­síðu félags­ins. Ástæða þess að ég átti með henni sam­tal var fram­koma hennar á vinnu­staðnum, en þar átti hún því miður iðu­lega erfitt með að hafa stjórn á skapi sínu. Vara­for­maður lætur einnig hafa það eftir sér að ég hafi iðu­lega reiðst henni og sýnt henni ein­hvers­konar fauta­skap, en það er ekki svo. Þau sem sátu stjórn­ar­fundi með okkur sem og þau sem urðu vitni að sam­skiptum okkar á vinnu­staðnum eru til vitnis um að ég sýndi henni aldrei annað en vin­skap og hlýju, og reyndi mitt besta til að hjálpa henni að fóta sig í nýju vinnu­um­hverfi en það reynd­ist henni mikil áskorun.

Í við­tal­inu segir Agnieszka Ewa að ég hafi ekki til­kynnt hótun frá starfs­manni skrif­stof­unnar gegn mér til lög­regl­unnar. Ég skil ekki af hverju hún finnur sig knúna til að segja ósatt um þetta. Sam­skipti mín við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hófust 20. októ­ber og hót­unin var skráð/til­kynnt í mála­kerfi lög­regl­unnar þann 4. nóv­em­ber. Í hug­ar­heimi Agnieszku er þetta allt mjög óljóst og mikið sem hún skilur ekki eins og kemur fram í við­tal­inu, en hún sér samt ekk­ert athuga­vert við að stað­hæfa um málið í þeim til­gangi að láta það hljóma líkt og ég segi ósatt. Þarna fetar hún í fót­spor Gabríel Benja­míns, starfs­manns skrif­stof­unnar sem fann sig knú­inn til að senda mönnum útí bæ per­sónu­leg skila­boð um það að frá­sögn mín af hót­un­inni sem bein­ist gegn mér og heim­ili mínu væri “pjúra lygi”.

Enn af ósann­indum vara­for­manns í við­tal­inu: Hún heldur því fram að ég hafi kraf­ist þess að fá að sitja alla fundi trún­að­ar­ráðs eftir að ég sagði af mér sem for­maður. Stað­reyndin er sú að ég óskaði eftir því með tölvu­pósti dag­settum 8. nóv­em­ber að fá að sitja einn fund þar sem að afsögn mín yrði til umræðu, til þess að segja mína hlið. Þann 10. nóv­em­ber dró ég ósk mína til baka, enda hafði þá runnið upp fyrir mér að Agnieszka og Ólöf Helga ætl­uðu sér ekki að virða mig svars. Það er sorg­legt að lesa hvernig vara­for­maður ræðst svo með sví­virð­ingum að með­limum trún­að­ar­ráðs í við­tal­inu. Enn á ný sýnir Agnieszka að sýn hennar á félags­störf og rétt félags­fólks á lýð­ræð­is­legum vett­vöngum félags­ins er ein­stak­lega van­þroskuð, svo vægt sé tekið til orða.

Ég gæti skrifað fjöl­margt til við­bótar um þær rang­færslur og þau ósann­indi sem lesa má í við­tal­inu. En ég læt þetta duga, í það minnsta í bili. Segi þó að lokum að það er sorg­legt að sjá og upp­lifa dóm­greind­ar­leysi fólks í kjöl­far þess að það tapar í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum. Ég skil auð­vitað að það er erfitt að tapa en þá er mik­il­vægt að sýna sæmd, sýna sjálfs­virð­ingu og sýna að leik­reglur lýð­ræð­is­ins eru manni í það minnsta fremur skilj­an­legar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti