Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Blóðugir mótmælendur tóku sér stöðu við sendiráð Rússa: „Þeir hegða sér eins og algjör skrímsli“

Blóðugir mótmælendur tóku sér stöðu við sendiráð Rússa: „Þeir hegða sér eins og algjör skrímsli“
Táknræn mót­mæla­staða Mynd: Mannlíf

Táknræn mót­mæli voru við sendi­ráð Rúss­lands í Reykja­vík í hádeg­inu í dag. Um þrjá­tíu manns mætti og mót­mæltu stríð­inu í Úkraínu. Hópur kvenna og eins karl­manns stillti sér upp fáklædd í blóð­ugum fötum og með skyltum með slag­orðum eins og „Rúss­neskir her­menn nauðga börnum“ og „Stöðvið ofbeldið, stöðvið stríð!“ Þá fengu þeir sem voru þar að heyra það sem margir Úkra­ínu­menn heyra dag hvern, loft­varn­arflautur og barna­grát.

Sterk mót­mæli við sendi­ráðið.

„Við munum pottþétt sigra þetta stríð“

Eftir að hóp­ur­inn hafði lokið mót­mæla­stöð­unni, tjáðu nokkrir sig við fjöl­miðla. Olena var ein þeirra en hún er fædd í Bucha en hún kom til Íslands fyrir tveimur mán­uðum.

Frétta­maður ann­ars mið­ils en Mannlífs spurði hverju hún væri að mót­mæla í dag. „Ég fædd­ist í Busha, ég stund­aði nám í Busha og ég hef séð þann óskapnað sem rúss­neskir her­menn hafa gert fólki í Úkraínu. Ég er hand­viss að nauðg­anir, dráp, rányrkja og ofbeldi gagn­vart venju­legum borg­urum er aðal­vopn rúss­neska hers­ins, rúss­neskra hryðju­verka­manna. Við erum hér til að sýna fólki að við erum hér og við erum á móti inn­rás Rússa.“

Frétta­maður: „Ertu með ein­hver skila­boð til rúss­neskra yfir­valda?“
„Við munum pott­þétt sigra þetta stríð. Við erum frá­bært þjóð. Við erum frið­sæl þjóð. Við viljum vera partur af Evrópu og vera lýð­ræð­is­ríki. Ég veit að Rússar vilja ekki leyfa okkur að verða hluti af Evr­ópu­sam­band­inu en við viljum til­heyra sið­uðum heimi og þeir ættu að hætta þessu stríði og glæpum gegn Úkra­ínsku þjóð­inni.“

Táknræn mót­mæla­staða

Frétta­maður: „Hvernig geta íslensk stjórn­völd stutt betur við bakið á Úkra­ínsku þjóð­inni?“ „Við erum mjög þakk­lát íslenskum stjórn­völdum og þjóð­inni því hún er mjög gest­risin og hér fáum við mik­inn stuðn­ing. En rík­is­stjórnin mætti gera eitt­hvað gagn­vart sendi­ráð­inu hér og segja hreint út að rúss­neski her­inn er að fremja glæpi og eru í raun hryðju­verka­menn. Þeir drepa sak­lausa borg­ara og íslenska þingið þarf að segja það við þjóð­ina.“

Frétta­maður: „Hvernir er það fyrir þig að sjá Rússa fagna deg­inum í dag, Sig­ur­deg­inum, nú þegar stríðið í Úkraínu er enn í gangi?“ „Þetta er eng­inn sig­ur­dagur fyrir Rússa, þetta er smán­ar­dagur fyrir Rússa, ég get bara sagt það, þetta er dagur smán­unar fyrir Rússa. Úkraína mun von­andi bráðum eiga sinni sig­ur­dag.“

Frétta­maður: „Er fjöl­skylda þín enn í Úkraínu?“ „Já, partur af fjöl­skyld­unni er enn í Bucha en ég flúði hingað ásamt börnum mínum.“

Frétta­maður: „Ertu með skila­boð til fjöl­skyldu þinnar í Úkraínu?“ „Já, farið var­lega og haldið ykkur í byrgj­unum því það er enn stríð í gangi.“

„Efnahagslegi þátturinn er það sem mun fella stríðið“

Næst var talað við Jón og kær­ustu hans, Olenu sem er frá Úkraínu en hún hefur búið hér í níu ár. Olena minnt­ist meðal ann­ars á glæpi rúss­neskra her­manna. „Þetta er ekk­ert leynd­ar­mál, farið bara á YouTube, þar sjáið þið að það er verið að nauðga börnum og nýfæddum börnum. Hvernig í ósköp­unum er hægt að útskýra þetta? Ég er mjög stolt Úkra­ínu­kona, þú getur flutt frá land­inu þínu en landið þitt flytur ekki frá þér.“

Blóðug barna­dúkka

Jón var spurður hvort hann teldi að Ísland gæti gert meira. „Já, stríð er eitt­hvað svo fjar­lægt okkur Íslend­ingum, maður upp­lifir þetta á svo öðru stigi með því að upp­lifa þetta í gegnum ein­stak­ling sem hefur beina teng­ingu þangað. Þegar maður vaknar að morgni inn­rás­ar­dags og þarf að segja við­kom­andi að það er komið stríð og maður sér við­brögðin. Þegar fólk sprettur upp úr rúm­inu og byrjar að hringja í alla aðstand­endur og þetta hefur verið alveg stans­laust síðan, það er alltaf verið að athuga, er í lagi með þig? Hvað er að ger­ast hjá þér? Þetta er svo fjar­lægt okkur Íslend­ingum. En það sem við getum gert betur, almennt og yfir­höfuð er að taka sterka afstöðu og það verður ekki gert nema í gegnum algjört við­skipta­bann þannig að þrýst­ing­ur­inn í Rúss­landi komi frá þjóð­inni sjálfri. Efna­hags­legi þátt­ur­inn er það sem mun fella stríðið.“
Blaða­maður Mannlífs: „Finnst þér að íslenska ríkið sé að gera nóg?“ „Stundum er alltof mikið bara verið að tala og við erum nátt­úru­lega mjög smá þjóð og mikið við­hlægj­endur oft, í stærri klúbbi.“

Frétta­maður: „Hvernig líður þér með það að Rússar séu nú að fagna stríðslokum seinna stríðs og þetta er enn í gangi í Úkraínu?“ „Það var auð­vitað sami við­bjóð­ur­inn í gangi í seinni heim­styrj­öld­inni þó að fréttir um það hafi borist með öðrum hætti, jafn­vel ekki fyrr en miss­erum, mán­uðum og árum síðar. Reynslu­sögur frá konum og ungum börnum af hrylli­legum nauðg­unum. Þetta fylgir öllum stríðum og auð­vitað eru ekki allir her­menn skepnur en það er ofboðs­lega stór hluti her­manna sem breyt­ast í skepnur í svona aðstæðum og þetta er bara spurn­ing um ein­hverja útrás fyrir sjúk­lega ofbeld­is­þörf. Og þetta er eitt­hvað sem þarf að draga menn til ábyrgðar fyrir. Og ekki bara her­menn­inga heldur einnig þá sem eru að tefla þeim fram.“
Blaða­maður Mannlífs: „Finnst þér að yfir­völd hér á landi eigi að reka sendi­herra rússa úr landi?“„Það þarf nátt­úru­lega að við­halda ein­hverju tal­sam­bandi en það þarf að sýna með ein­hverjum mjög skýrum og sterkum hætti að þetta er ekki liðið. Og það eru alltaf við­skipta­legir þættir sem yfir­trompa hið mann­lega.“

Flúði Rússland fyrir tveimur mánuðum

Að lokum vildi hin rúss­neska Maria fá orðið en hún flúði Rússland fyrir tveimur mán­uðum en hún þurfti nokkrum sinnum að beygja af, svo tók á hana að tala um þetta.

Maria

„Ég flúði Rússland með syni mínum, 26 mars. Það er ómögu­legt að mót­mæla í Rúss­landi eins og við erum að gera hér. Ég er hér fyrir hönd rúss­neskra kvenna sem eru á móti stríð­inu og þær eru að mót­mæla í Rúss­landi. Vinkona mín Sasha Skolichenka er nú í fang­elsi næstu 15 árin því hún tal­aði opin­ber­lega um fórn­ar­lömbin í Mariupol. Hún var að segja sann­leik­ann og nú er hún í fang­elsi ásamt fleiri konum sem eru nógu hug­rakkar til að mót­mæla. Þetta sem við erum að gera hér er algjör­lega ómögu­legt í Rúss­landi. Ég yrði barin um leið og ég færi úr bux­unum á opin­berum stað. Hinn hræði­legi atburður í Busha snerti mig mjög,“ sagði María og beygði af og afsak­aði sig. „Af því að þetta er harm­leikur kvenna og barna í Úkraínu og einnig harm­leikur fyrir rúss­nesku þjóð­ina því skömmin er slík og við getum ekki losað okkur við þennan harð­stjóra, við erum algjör­lega hjálp­ar­laus, við erum að gera okkar allra besta. Stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Navalni er nú í fang­elsi en áður var eitrað fyrir honum og eng­inn gerir neitt.“

Þarna stopp­aði Maria aftur og afsak­aði sig á meðan tárin streymdu niður and­lit hennar. „Þetta er líka harm­leikur fyrir rúss­nesku þjóð­ina og ég veit að partur af þjóð­inni styður stríðið og það er hræði­leg skömm. Og þetta er harm­leikur fyrir okkar menn­ingu, ég trúi ekki að þetta sé að ger­ast. Þeir eru ekki mennskir, þeir hegða sér eins og algjör skrímsli og ég stend hér til að styðja við mennsk­una, fyrst og fremst og styðja konur og börn í Úkraínu og karl­menn þar líka, alla þjóð­ina. Og ég vil einnig tala fyrir rúss­neskar konur því þær eru að senda syni sína í stríðið, þær sam­þykkja það ekki. Þeir eru sendir í stríðið 18, 19 ára og þeir eru að deyja þar og engin fær að vita af því í Rúss­landi, því það er verið að fela dauða rúss­neskra pilta sem deyja í stríð­inu.“

Við lok mót­mæl­anna steig fram kona sem tjáði við­stöddum að hún vildi að leyfa fólki að heyra það sem Úkra­ínu­búar heyra dag­lega og spil­aði svo upp­töku úr sím­anum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti