Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Brynjar æfur yfir leyniræðu Björgvins á landsfundi – „Ekki gefa okkur fleiri gjafir“

Brynjar æfur yfir leyniræðu Björgvins á landsfundi – „Ekki gefa okkur fleiri gjafir“
Brynjar Níelsson.

Björgvin Þór Þór­halls­son, fyrr­ver­andi skóla­stjóri Mela­skóla og sós­í­alisti, seg­ist á Facebook hafa flutt leyniræðu á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þessa ræðu hafi hann flutt fyrir tómum sal klukkan hálf sex að morgni sunnu­dags.

Ræðuna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en hvort sem hún var flutt í raun eða ekki, þá er ljóst að hún strýkur Brynjar Níelsson, vara­þing­mann flokks­ins, öfugt. Brynjar bregst ókvæða við og skrifar: „Þér hefur ekk­ert dottið í hug að flytja ræður á lands­fundum sós­í­alista í Norður Kóreu, Kúbu, Venes­ú­ela og öðrum svip­aður til að segja hvað sós­í­al­ism­inn hefur fært þeim?“

Björgvin var í fram­boði fyrir Sós­í­alista­flokk­inn í Reykja­vík í síð­ustu kosn­ingum.

Færsla Björgvins í heild sinni

Ég hélt ræðu á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kl. 5:30 í morgun. Ég var einn í salnum.

Ágætu lands­fund­ar­full­trúar. Góðir Sjálf­stæð­is­menn. Vondir Sjálf­stæð­is­menn og allir sem eru þar mitt á milli.

Ég er hér fyrir hönd þjóð­ar­innar að færa ykkur þakkir. Takk fyrir allt. Takk fyrir allt sem þið hafið gert okkur, okkur sem þjóð og okkur sem sam­fé­lagi.

Þið gáfuð okkur Davíð, þið gáfuð okkur Árna.

Johnsen.

Þið gáfuð okkur Íraks­stríðið og þið gáfuð okkur Hrunið. Þið gáfuð okkur meira að segja Sigmund Davíð og Leið­rétt­ing­una sem er nú sér­stakt afrek.

Og þið gáfuð okkur Bjarna. Takk fyrir það.

Og nú gefið þið okkur Guðlaug. Tack så mycket, eins og sænska maf­ían myndi segja.

Meðan ég man, ég sá Guðlaug hoppa um á hækjum áðan, er ekki hægt að láta hann fá hjóla­stól? Skilst að einn hafi losnað nýlega.

Sem sagt, þið gáfuð okkur Davíð. Til­finn­ingar mínar gagn­vart þeirri per­sónu eru lík­legri blendn­ari en flest annað. Sem áhuga­maður um stjórn­mál við­ur­kenni ég mik­il­feng­legan fer­il­inn og ein­staka hæfi­leik­ana sem ein­ungis Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir náði að jafna eða jafn­vel bæta um betur. En á móti kom að það skorti alltaf til­finn­an­lega uppá mild­ina í fari þessa ágæta manns, “For­ingj­ans mikla” eins og fylgj­end­urnir köll­uðu hann sumir. Hann gat verið ófyr­ir­leit­inn og eins og hann hefði orðað það sjálfur, und­ar­lega smár í sniðum.

En svo liðu árin og ég tók hann smám saman í sátt. Ein­hverja sátt alla vega. Og þegar þar var komið sögu, var komið haust á póli­tískum ferli Davíðs, kosn­inga­vorið 2003. Það haustaði mjög snemma það ár. Davíð vann sann­kall­aðan Pyrr­hosar­sigur á Sam­fylk­ing­unni sem var illu heilli með Össur sem for­mann, mann sem þekkti ekki sinn vitj­un­ar­tíma, hvorki þá né síðar, og hafði sett Ingi­börgu, von­ar­stjörnu vinstri manna í fimmta sætið á lista flokks­ins í Reykja­vík. Ingi­björg komst ekki inn og ég gleymi aldrei mynd­inni af henni í blaði skömmu síðar, tek­inni morg­un­inn eftir kosn­inga­nótt­ina. Hún sat með kaffi­boll­ann við eld­hús­borðið og greini­lega úrvinda. Brosti samt en dauf­lega. Og ég hugs­aði: Hvílík sóun!

En fyr­ir­gef­iði, þetta var útúr­dúr, ég þjóna lund minni og er far­inn að fjalla um Sam­fylk­ing­una.

Málið var að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði fylgi þetta vor en rík­is­stjórnin hélt meiri­hlut­anum vegna kosn­inga­sig­urs Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sá sigur er nú í fréttum, tutt­ugu árum síðar vegna lof­orða­flaums þess flokks. Lof­orða­ermi Fram­sókn­ar­flokks­ins ætlar að reyn­ast okkur dýr. Og vegna þessa dýr­keypta varn­ar­sig­urs neydd­ist Davíð til að láta eftir for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn til Halldórs Ásgríms­sonar og bara til hans per­sónu­lega, eins og í léns­veldum mið­alda, ekki til Fram­sókn­ar­flokks­ins. Davíð fékk eitt ár í stólnum svona til að fá að velja sinn tíma og þaðan fór hann beina leið í utan­rík­is­ráðu­neytið. Öll hans saga eftir það er síðan hálf­gerð nið­ur­læg­ing­ar­saga fyrir hann, flokk­inn og okkur öll. 25 nýskip­aðir sendi­herrar (eða eitt­hvað álíka), afmæl­is­söngur fyrir stríðs­herr­ann í Washington, fárán­leg og lít­il­mann­leg bar­átta fyrir því að orustu­þotur yrðu um kyrrt á Kefla­vík­ur­flug­velli og svo þegar hann loks hætti í stjórn­málum og gerði sjálfan sig að Seðla­banka­stjóra (til­kynnti það sjálfur, réð í raun sjálfan sig, skyldi hann hafa tekið atvinnu­við­tal við sjálfan sig?): Hrunið eða hvað það nú heitir það ágæta banka­hrun.

Sem sagt, þið gáfuð okkur Davíð. Það er eig­in­lega ekki hægt að halda áfram með þessa sögu ógrát­andi, upp­gjörs­skýrsla um flokk­inn rifin í tætlur í ræðu­stól á lands­fundi og það þurfti svo lög til að losna við mann­inn úr Seðla­bank­anum. Hversu lágt …? Hvað kom fyrir þennan mann? Hvað kom fyrir ykkur, ágæta Sjálf­stæð­is­fólk?

Samt, fann ég til furðu­legrar vel­vildar í garð Davíðs þegar kunn­ug­legt and­litið birt­ist í sjón­varp­inu sem for­seta­fram­bjóð­andi hér um árið. Þetta var eins og ómur for­tíðar: allir gömlu kall­arnir rifj­uð­ust upp fyrir mér, allar gömlu hetj­urnar, Ragnar Arnalds, Svavar, Jón Baldvin, Stein­grímur (Her­manns­son!) og allir hinir… og það rann upp fyrir mér að saga Davíðs er mín saga og ykkar saga. Hann er hluti af minni sam­tíð, við höfum verið sam­ferða­menn, gengið ólíkar götur en sam­stíga samt sem áður. Og ég fann til vænt­um­þykju og hlýju, mér fannst í alvör­unni svo­lítið huggu­legt að heyra rödd­ina.

En ég hefði auð­vitað frekar nagað af mér útlim en að kjósa hann.

Og þið gáfuð okkur Árna Johnsen, þann ofur­huga og fork. Þann lífskúnstner. Þann dæmda fjár­drátt­s­mann.

Ég var aldrei sáttur við fang­els­is­dóm­inn. Vil helst ekki loka menn inni nema þeir séu hættu­legir öðrum. Árna hafði svo sem verið laus höndin í gegnum tíð­ina en við skulum ekk­ert vera að rifja það upp núna. Það þurfti ekki að loka hann inni, ein­ungis að banna honum að koma að opin­berum fjár­málum aftur. En það fyrsta sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gerði þegar Árni hafði afplánað dóm­inn var að skipa hann full­trúa í stjórn RARIK.

Ég hef bara góðar óskir til Árna en þetta var óþarfi og til skaða. Svona gera menn ekki en svona gerðI Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Svona gerir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Það er í raun­inni skömm að þessu. Skömm og heiður? Það er stundum eins og þessi hug­tök séu víðs­fjarri ykkur Sjálf­stæð­is­fólki.

Og þið gáfuð okkur Íraks­stríðið. Siðlaust árás­ar­stríð byggt á lygum og blekk­ingum. Helm­ing­ur­inn lygi og hitt allt ein­tóm svik. Og hvað lágu margir Írakar í valnum? Hversu margir sárir, örkuml­aðir, lim­lestir? Og hvað með sam­fé­lagið sjálft? Írak er ónýtt land og Íraks­stríðið leiddi af sér ein grimmi­leg­ustu hryðju­verka­sam­tök okkar tíma, ÍSIS.

Ég minn­ist ljós­myndar í blaði af ungri írakskri stúlku, barni, þar sem hún lá handa- og fóta­laus á sjúkra­húsi í Bagdad, fórn­ar­lamb loft­árása “Banda­manna”. Ræf­ill­inn hann Tony Blair ætl­aði að fá hana til Bret­lands til að veita henni góða aðhlynn­ingu en mér finnst að Davíð eigi að ann­ast hana.

Hún lá þarna án handa og án fóta. Tólf ára kannski eða tíu. Hennar sök var að vera þarna bara, heima hjá sér, þegar flug­skeytin féllu, nákvæmu smart­bomburnar. Var Íraks­stríðið nauð­syn­legt? Nei, auð­vitað ekki og við erum sam­sek. Davíð og Halldór báru ábyrgð á því.

Og þið, ágætu Sjálf­stæð­is­menn, báruð ábyrgð á Davíð Oddssyni.

Er afsök­un­ar­beiðni á leið­inni?

Svo kom hið svo­kall­aða hrun. Þar ber Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn meg­in­sök. Hin póli­tíska ábyrgð á þeim óskapn­aði sem leiddi til Hrunsins, liggur í Valhöll. Hún liggur í þeirri hug­mynda­fræði, græðg­i­svæð­ing­unni og þeirri öfga­hyggju að mark­að­ur­inn leysi allan vanda – og hún liggur í krónískri spill­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem virð­ist fyr­ir­munað að skilja á milli rík­is­valds­ins og flokks­ins. Svona eins og í … Norður-Kóreu?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með for­sæt­is­ráðu­neytið (Geir), hann var með fjár­mála­ráðu­neytið (Árni, nei, ekki Johnsen! Mathiesen), stjórn­ar­for­mann Seðla­bank­ans og Seðla­banka­stjóra, svo­kall­aðan for­mann banka­stjórnar. Flokk­ur­inn var með Fjár­mála­eft­ir­litið (Jónas Fr. Jónsson) en að vísu ekki stjórn­ar­for­mann þeirrar stofn­unar, svo það sé sagt. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var sem sé ekki bara báðum megin við borðið, hann var til hlið­anna líka, undir því og yfir því og allt um kring. Þeir hefðu alveg eins getað stað­sett stjórn­ar­ráðið og ráðu­neytin í Valhöll.

Hvílíkt ban­ana­lýð­veldi! Hvílík nið­ur­læg­ing einnar þjóðar!

Hvílíkur skandall.

Helvítis fokk­ing fokk.

Þið, mínir kæru vinir, gerðuð okkur þetta. Þið gerðuð okkur að ban­ana­lýð­veldi. Þið og við. Við leyfðum ykkar að gera það. Með því að kjósa ykkur unn­vörpum og með því að leiða ykkur til valda, trekk í trekk. Eins og klár­inn sem leitar alltaf þangað sem hann er kvaldastur.

Að lokum var þjóð­inni reyndar nóg boðið og hér var gerð svokölluð bylt­ing. Bús­á­halda­bylt­ingin beind­ist ekki gegn Sam­fylk­ing­unni, glóru­lausum sam­starfs­flokki ykkar í Hrun­stjórn­inni, heldur að ykkur. Bús­á­halda­bylt­ingin sner­ist um það m.a. að fá Sam­fylk­ing­una til að slíta þessu von­lausa stjórn­ar­sam­starfi. Segja Sjálf­stæð­is­flokknum upp.

Með bús­á­halda­bylt­ing­unni rak þjóðin í raun Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þið voruð rekin. En þið náðuð ekki þeim skila­boðum, þið hélduð að þið væruð “Drekinn”. Heppi­legur mis­skiln­ingur.

Þess vegna skilur eng­inn hvers vegna þið bar­mið ykkur yfir litlu fylgi flokks­ins eftir Hrun. Allir aðrir vita skýr­ing­una: það varð hérna svo­kallað hrun og þið njótið ekki lengur trausts og munið aldrei gera aftur. Fyrir þessa þjóð er það að tengja efna­hags­legan stöð­ug­leika við hag­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins bara lélegur brand­ari. Djók.

Og svo gáfuð þið okkur Bjarna, prins­inn sjálfan úr Garða­bænum. Ófúsan for­ystu­mann sem lét til leið­ast að taka við þessum kaleik, í nafni ætt­ar­innar og hefð­ar­innar. Og hefur svo sem vaxið í starfi og hlut­verki enda ekki annað hægt. Teflon­húð­aður svo ekk­ert fest­ist á hann, ekki einu sinni að hafa komið millj­ónum fyrir í skatta­skjóli.

Ég hef reyndar aldrei litið á Bjarna sem ein­hvern voða­legan spill­ing­ar­gosa. Það sem er ófyr­ir­gef­an­legt í mínum huga er mis­kunn­ar­leysið og skeyt­ing­ar­leysið gagn­vart lág­launa­fólki, öryrkjum og eldri borg­urum og eilíf sam­staða með stór­fyr­ir­tækj­unum og stóru fjár­magns­eig­end­unum gegn þeim sem minna mega sín. Hvernig er hægt að stilla málum þannig upp að kjara­bætur þeirra sem minnst hafa – og hafa ekki nóg – setji hag­kerfið á hlið­ina en ekki ef sömu pen­ingar verða eftir hjá hinum ríku? Eru þetta ekki sömu pen­ing­arnir?

Bjarni er búinn að standa sig vel sem fjár­mála­ráð­herra enda búinn að vera þar jafn lengi og grunn­skóla­börn eru í grunn­skóla en hann hefur staðið gegn rétt­læt­inu. Og það verður aldrei neinn friður án rétt­lætis. Hann er ekki rétti mað­ur­inn til að vera með þessi völd.

Og svo gefið þið okkur Guðlaug. Ekki beint orð­heppn­asta stjórn­mála­mann lands­ins en ódrep­andi og með níu líf í póli­tík. Á hvaða lífi ætli hann sé núna?

Guð­laugur, Graf­ar­vogs­fur­st­inn alþýð­legi. Sjar­mer­andi eins og George Bush yngri, einn af strák­unum, vantar bara hafna­bolta­húf­una. En hver er póli­tík hans? Ég veit það eig­in­lega ekki. Stundum finnst mér eins og póli­tík Guðlaugs Þórs, Borg­nes­ings­ins knáa, sé aðal­lega Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og hans frami.

Þó kemur ýmis­legt uppí hug­ann: hér var einu sinni sjón­varps­stöð, á svip­uðum level og Omega. Þar sátu löngum stundum Ingvi Hrafn frétta­maður, Hallur Helgason, fyrr­ver­andi frétta­maður og Jón Kristinn Snæhólm, Sjálf­stæð­is­maður úr Kópavogi. Og með þeim var Guð­laugur Þór, fur­st­inn úr Graf­ar­vogi. Hinir létu móðan mása en Guð­laugur beið. Og þetta er svo­lítið ein­kenni á þess­ari teg­und af stjórn­mála­manni, að tala síð­astur svo hann lendi ekki á skjön við meg­in­straum­inn í umræð­unni. Svo tal­aði Guð­laugur og hinir hlust­uðu í andakt á meðan. Eða kannski með smá spurn í aug­unum: “er þetta allt og sumt”? En Guð­laugur skar sig ekki úr í þessum hópi. Og skoð­anir þessa hóps er ekki hægt að kalla annað en öfga­kennda hægri stefnu.

Hver er póli­tík Guðlaugs? Spyr sá sem ekki veit.

Kæru lands­fund­ar­full­trúar. Mér þykir vænt um ykkur alla, eins og mér þykir vænt um alla hæl­is­leit­endur sem hingað koma. Við erum öll mann­eskjur og viljum það sama, svona meira eða minna. Ég er ekk­ert betri en þið, jafn­vel ívið verri ef eitt­hvað er. Þó ég sé ekki sam­mála ykkur um margt í stjórn­málum þá virði ég rétt ykkar til að hafa ykkar skoðun og stefnu og mæla fyrir henni. Samkvæmt leik­reglum lýð­ræð­is­ins og í lýð­ræð­is­legum anda. En um leið og ég þakka fyrir þessar gjafir ykkar í gegnum tíð­ina, og það geri ég í nafni þjóð­ar­innar, þá verð ég þó segja þetta:

Ekki meir, ekki meir.

Ekki gefa okkur fleiri gjafir.

Gleði­legan lands­fund. Lifið heil

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti