Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bæn okkar allra um frið á jörðu – Óhefðbundnir og glæsilegir jólatónleikar Söngfjelagsins

Bæn okkar allra um frið á jörðu – Óhefðbundnir og glæsilegir jólatónleikar Söngfjelagsins
Frá tón­leikum kórs­ins í fyrra. Mynd: Aðsend

Elleftu jólatón­leikar Söng­fjelags­ins verða haldnir í Lang­holts­kirkju sunnu­dag­inn 11. des­em­ber.

Tón­leik­arnir eru fyrir löngu orðnir fastur liður í til­ver­unni á aðvent­unni fyrir fjölda manns. Þemað hefur alltaf verið að kynna tón­list frá ýmsum heims­hornum en í gegnum árin hafa þau til dæmis flutt klezmer, jiddíska, kelt­neska, rúss­neska og  suður-amer­íska tón­list og núna síð­ast söngva og dansa frá Balk­an­lönd­unum. Flest lögin eru flutt á frum­mál­inu. Fjöldi lista­manna hefur komið fram ásamt kórnum í gegnum tíð­ina, inn­lendir sem erlendir og sumir lista­menn hafa ferð­ast langa leið erlendis frá til að taka þátt í þess­ari árlegu tón­list­ar­veislu Söng­fjelags­ins.

Undir frið­ar­sól

Hilmar Örn Agn­ars­son kór­stjóri Söng­fjelags­ins segir að þema tón­leik­anna í ár sé bæn okkar allra um frið á jörðu og er yfir­skrift tón­leik­anna Undir frið­ar­sól. Sú til­vísun er fengin úr Helgiljóði Olgu Guðrúnar Árna­dóttur, sem var jóla­lag Söng­fjelags­ins árið 2016, en ár hvert frum­flytur Söng­fjelagið nýtt jóla­lag á jólatón­leikum sínum . „Á tón­leik­unum í ár er jóla­lagið eftir Hjörleif Hjart­ar­son, en Hjör­leifur hefur einnig þýtt og stíl­fært mörg erlendu lag­anna. Þá verður á dag­skránni úkra­ínsk tón­list í bland við tón­smíðar frá Nýja Sjálandi, Afríku, Lapp­landi og fleiri stöðum, ásamt Íslandi, sem öll fjalla um frið og kær­leika til nátt­úru, Guðs og manns. Nokkrir gestir verða með okkur. Við erum mjög spennt að fá hina rúss­nesku Natöshu S til að fara með eigið ljóð á tón­leik­unum, en hún er fyrsta skáldið af erlendu bergi brotin til að hljóta verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar. Þá hefur Snorri Helgason samið lag við ljóð hennar og verður það frum­flutt á tón­leik­unum. Við verðum með ein­söngv­ara frá Úkraínu og Rúss­landi ásamt íslenskum leynig­estum. Það getur líka vel verið að við flytjum eitt þekkt Bítlalag” bætir Hilmar við sposkur.

Eitt af ein­kennum tón­leika Söng­fjelags­ins hefur verið sam­starf við erlenda tón­list­ar­menn búsetta á Íslandi „Það er svo gaman að kynn­ast nýju tón­list­ar­fólki og jafn­framt gefa fleirum tæki­færi til að heyra þeirra flutn­ing. Þau þekkja lögin betur en við gerum og hafa kennt okkur margt nýtt. Við höfum líka flutt inn lista­menn, til dæmis fengum við sjö manna Suður – Amerískt band frá Noregi fyrir þremur árum, það er senni­lega eitt það stærsta og metn­að­ar­fyllsta sem við höfum gert í þeim málum. Eða alla­vega enn sem komið er!” segir Jakob, for­maður kórs­ins.

Kominn tími til að dansa!

Jafn­framt tekur for­maður Söng­fjelags­ins það fram að mikil áhersla sé lögð á að syngja lögin á frum­mál­inu, en það hafi ekki alltaf reynst ein­falt í fram­kvæmd. „Það er sér­stak­lega eft­ir­minni­legt þegar við þurftum að taka viku­lega rúss­nesku­tíma fyrir tón­leik­ana okkar fyrir þremur árum. Þannig var það aðeins erf­ið­ara en við héldum, en á sama tíma ótrú­lega gaman þegar við byrj­uðum að ná meiri tökum á tungu­mál­inu! Mark­miðið okkar er að fara alltaf meira útfyrir þæg­ind­ara­mmann, svo nú fannst okkur vera kom­inn tími til að dansa! Nokkur lag­anna munu inni­halda hreyf­ingar og dans­spor og nutum við þar góðs af leið­sögn val­kyrj­unnar Sanna Valvane, kór­stjóra frá Finn­landi, sem kenndi okkur þjóð­lög og dansa nú á haust­dögum. Fimm manna hljóm­sveit leikur með á tón­leik­unum og hljóm­sveit­ar­stjór­inn í ár er Sigrún Krist­björg Jóns­dóttir. Stjórn­andi að öllu saman er svo Hilmar Örn Agn­ars­son kór­stjóri en sér­legur aðstoð­ar­maður hans er Iveta Licha.

Tón­leik­arnir fara fram sunnu­dag­inn 11. des­em­ber kl. 17 og 20.
Miðaverð er 4.500 kr. Hægt er að kaupa miða á tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar