Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrjúhundruð rússneskir læknar skora á Pútín: „Við krefumst þess að pynting Alexey Navalny endi“

Þrjúhundruð rússneskir læknar skora á Pútín: „Við krefumst þess að pynting Alexey Navalny endi“
Alexey Navalny. Mynd: Yulia Morozova / Reuters

Um 300 rúss­neskir læknar sendu Vladimir Pútín opið bréf til bjargar Alexei Navalny sem sætir pynt­ingum í fang­elsi.

Þann níunda jan­úar síð­ast­lið­inn birt­ist færsla á Twitter-síðu Alexey Navalny með fréttum af honum. Navalny var einn helsti stjórn­ar­and­stæð­ingur Vla­dimirs Pútín for­seta en var árið 2021 dæmdur í 11,5 ára fang­elsi fyrir fjár­drátt og fleira, sem talið er að séu upp­lognar sakir. Í færsl­unni segir að Navalny hafi verið færður til refsi­vistar á gamlárs­kvöld, í tíunda skiptið í röð. Kemur þetta fram í rúss­neska net­miðl­inum Meduza. Þar segir að þrátt fyrir að reglan í fang­els­inu sem Navalny dvelur í, sé sú að menn geti aðeins dvalið í ein­angrun í 15 daga, fari fang­els­is­yf­ir­völd á svig við þá reglu með því að læsa hann inni í mis­mun­andi „refsi­klefa“ hvað eftir annað. Það sem verra er, sam­kvæmt lög­manni Navalny, Vadim Kobzev, er hann lát­inn hýr­ast í „refsi­klefa“ fár­vekur „með hita, hroll og hósta.“ Á sama tíma neitar fang­els­is­yf­ir­völd að koma lyfum til hans, hvorki með pósti né heim­sóknum.

Tveir rúss­neskir læknar, þeir Alex­ander Polupan og Alex­ander Vanyukov hafa gríð­ar­legar áhyggjur af heilsu Navalnu og hafa nú safnað und­ir­skriftum við opið bréf frá rúss­neska heil­brigð­is­sam­fé­lag­inu til Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta. Í bréf­inu, sem birt­ist á Facebook, krefj­ast lækn­arnir að „pynt­ingin á Navalny verði stöðvuð.“ Rúmlega 300 læknar hafa skrifað undir bréfið. Hér fyrir neðan má lesa bréfið í íslenskri þýð­ingu Mannlífs.

„Herra for­seti,

Við skrifum sem með­limir heil­brigð­is­sam­fé­lags­ins og sem rúss­neskir borg­arar. Okkar starf felst í því að ann­ast fólk og lina þján­ingar þess. Við getum ekki og höfum engan rétt til þess að líta fram­hjá þeim vís­vit­andi skaða sem verið er að valda heilsu stjórn­mála­manns­ins Alexey Navalny í Penal Colony númer 6 í alrík­is­fang­els­is­kerf­inu í Vladimir hér­að­inu.

Hver borg­ari hins rúss­neska ríkis á rétt, sam­kvæmt 41. grein stjórn­ar­skrár Rúss­lands, á heil­brigð­is­þjón­ustu og lækn­is­að­stoð. Samkvæmt alrík­is­lögum „um grund­vall­ar­at­riði heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir borg­ara í Rúss­landi,“ á mann­eskja sem er í rík­is­for­sjá eða afplánar fang­els­is­dóm, rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu, þar með talið aðgang að sjúkra­stofn­unum ríkis og sveit­ar­fé­laga. Aðstæður Alexey Navalny og útlit hans, vekur hjá okkur miklar áhyggjur af heilsu hans og líf. Synjun fang­els­is­yf­ir­valda á að koma nauð­syn­legum lyfjum til Alexey skapar beina ógn við líf rúss­nesks rík­is­borg­ara, Alexey Navalny. Frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­horni séð er aug­ljóst að Alexey er ekki að fá við­eig­andi lækn­is­að­stoð og það að halda honum í refsi­klefa gengur algjör­lega í ber­högg við heilsu­þarfir manns í hans ástandi.

Við kref­umst þess að pynt­ing Alexey Navalny endi; við krefj­umst þess að Alexey verði eki lengur lát­inn dvelja í refsi­klefa; við krefjum þess að almennir læknar fái að hitta hann og koma honum á almenna heilsu­gæslu í því skyni að heilsa hans og með­ferð verði að fullu metin.

Við krefjum þess að réttur Alexey Navalny til við­eig­andi lækn­is­að­stoðar verði virtur í sam­ræmi við lög stjórn­ar­skrár Rúss­lands, hvers ábyrgð­ar­maður þú ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta