Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

10 ástæður til að slíta sambandinu

10 ástæður til að slíta sambandinu
Hvenær er vert að íhuga sam­bands­slit. Mynd/Envato Elements

Að slíta sam­bandi er aldrei auð­velt og erfitt getur verið að vita hvenær botn­inn er end­an­lega úr. Í pistli sem birt­ist á Psychology Today er reifað á tíu atriðum sem skera úr um hvenær sam­band er komið á enda­stöð.

Sam­skipti sem komin eru í þrot og áhuga­leysi ann­ars eða beggja til að vaxa saman eru ágætis vís­bend­ingar um að sam­bandið standi á brauð­fótum. Flestir stimpla sig út þegar sárs­auki og von­brigði eru ríkj­andi en ótelj­andi ástæður má finna fyrir sam­bands­slitum – en aug­ljós­ustu ástæð­urnar blasa oft­ast við.

Hér að neðan eru tíu vís­bend­ingar um að vert sé að end­ur­hugsa sam­bandið:

Ofbeldi

Ef um ein­hvers konar ofbeldi er um að ræða; þar á meðal lík­am­legt, and­legt, til­finn­inga­legt eða fjár­hags­lega þá er tími til að leita sér aðstoðar og yfir­gefa sam­bandið. Í þess konar aðstæðum er þarft að stíga hart niður.

Síendurtekið framhjáhald

Það getur verið þraut­inni þyngra að vinna sig í gegnum sárs­auk­ann sem fylgir einu fram­hjá­haldi og að end­ur­byggja traust í sam­band­inu. End­ur­taki það sig eftir slíka vinnu er ekki þess virði að end­ur­taka sárs­auk­ann aftur. Fyrir fjöl­marga eru slík svik með öllu ólíð­andi.

Samskiptaleysi

Ef þið eruð hætt að eiga upp­byggj­andi og inni­halds­rík sam­skipti er sam­bandið í dauða­teygj­unum. Nærandi sam­skipti eru horn­steinn þess að vaxa saman. Ef ekk­ert er órætt og við­var­andi til­finn­inga­legt upp­nám, þrátt fyrir ráð­gjöf er vert að við­ur­kenna að sumir eiga ein­fald­lega ekki sam­leið.

Áfengis- og vímuefnavandi

Fíklar eiga ekki í sam­böndum  — þeir eru með gísla. Því lengur sem með­virkni fær að gross­era í sam­band­inu, þeim mun erf­ið­ari reyn­ist að rjúfa sam­skipta­mynstrið sem hefur skap­ast.

Langvarandi rifrildi

Ef und­ir­liggj­andi gremja og reiði ræður ríkjum þrátt fyrir sam­bands­ráð­gjöf má vera að vand­inn sé orð­inn það mik­ill að ekki er hægt að kom­ast yfir hann. Þegar sárs­auk­inn er orð­inn langvar­andi þá gef­ast flestir upp.

Neitar að fara í ráðgjöf

Ef annar aðil­inn vill fara í sam­bands­ráð­gjöf þá þurfa báðir að fara. Ef annað ykkar vill ekki leita aðstoðar er það skýrt merki um að ekki sé áhugi á að vinna í sam­band­inu. Og án réttrar vinnu og sjálfs­skoð­unar munu öll sam­bönd deyja.

Illska og reiði

Þegar maki þinn er ekki góður við þig, er það merki um dýpri und­ir­liggj­andi vanda­mál sem hafa áhrif á báða aðila í sam­band­inu. Ein­hverjir geta verið ósnortnir ef ein­hver er við­stöðu­laust reiður út í þá en aðrir geta það ekki.

Samþykkir ekki börnin þín eða gæludýr

Ef mak­inn þolir illa börnin þín skap­ast stöðugt and­ríki. Slík hið sama á við um gælu­dýrin þín sem fyrir mörgum eru eins og afkvæmi. Ef maka þínum líkar ekki við ein­hvern eða eitt­hvað sem þú elskar mun það bara skapa ósætti. Annað hvort þarf að laga það strax eða slíta sam­band­inu.

Ríkjandi andlegt ofbeldi

Ef maki þinn gerir lítið úr þér heima fyrir eða ann­arra við­ur­vist, lýgur að þér, upp­nefnir eða kallar þig „geð­veikan“, þá er við­kom­andi að reyna að stjórna þér. Slík fram­koma er ekki líð­andi í heil­brigðu sam­bandi.

Þegar makinn vill ekki meira – þá er það búið

Leyfðu við­kom­andi að fara og haltu áfram með líf þitt.

Það er auð­veld­ara sagt en gert að slíta sam­bandi og miklar til­finn­ingar sem fylgja. En vert er að muna að því fyrr sem þú heggur á hnút­inn, því fyrr mun sárið gróa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar